Morgunblaðið - 12.02.2006, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 59
UMRÆÐAN
Hvort sem þú þarft að selja eða leigja
atvinnuhúsnæði, þá ertu í góðum
höndum hjá Inga B. Albertssyni.
Nú er góður sölutími framundan,
ekki missa af honum.
Vandaðu valið og veldu fasteignasölu
sem er landsþekkt fyrir traust og
ábyrg vinnubrögð.
Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali
ATVINNUHÚSNÆÐI
HAFÐU
SAMBAND
www.thinghol t . is
Jörð óskast
Okkur hefur verið falið að leita
að jörð á Suðurlandi.
Húsakostur og stærð jarðar skiptir ekki máli.
Allar jarðir koma til athugunar.
Allar nánari upplýsingar veitir Þórarinn
Kópsson í síma 590 9500.
Sveinn Guðmundsson hdl., lögg. fasteignasali
Borgartún 20, 105 Reykjavík • thingholt@thingholt.is
Sími 590 9500
Um er að ræða glæsilega nýlega
3ja herbergja 83 fm íbúð á 2. hæð
í litlu fjölbýli. Fallegar sérsmíðaðar
innréttingar. Parket. Sérþvottahús
í íbúð. Góðar suðursvalir. Sérinn-
gangur af svölum. Stutt í alla
þjónustu. Eign sem vert er að
skoða. Verð 19,9 millj.
Ásta og Magnús taka vel á móti
ykkur.
LJÓSAVÍK 27 - REYKJAVÍK
Opið hús í dag, sunnudag,
milli kl. 14 og 16
Opið hús
Drekavöllum 26, Hafnarfirði
Fjarðargötu 17, Hafnarfirði, sími 520 2600, fax 520 2601,
netfang as@as.is, heimasíða www.as.is. Opið virka daga kl. 9-18.
Kári Halldórsson, löggiltur fasteignasali.
Kíktu í heimsókn til okkar að
Drekavöllum 26, sunnudaginn 12.
febrúar frá kl. 14-16. Komdu og
skoðaðu fallegar íbúðir í glæsilegu 9
hæða lyftuhúsi.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri
Sjón er sögu ríkari.
Eiríkur Svanur sölumaður verður á
staðnum.
fasteignasala
Höfðabakka 9, Reykjavík - Sími 534 2000
Ísak V. Jóhannsson
Sölustjóri
Okkur vantar strax eftirtaldar eignir
á söluskrá vegna gríðarlegrar sölu
undanfarið:
● Atvinnuhúsnæði í útleigu frá 50-2000 millj.
● Skrifstofuhúsnæði í öllu stærðum
● Iðnaðarbil 50-500 fm
● Lóðir fyrir verktaka
● Byggingaframkvæmdir á öllu stigum.
● Hótel og gistiheimili.
● Jarðir og sumarbústaðalönd.
● Fyrirtæki í góðum rekstri
Agnar Agnarsson, löggiltur fasteignasali.
Sérhæfð fasteigna- og fyrirtækjasala með
áratugareynslu starfsmanna.
ÁSTÆÐAN fyrir því að ég,
borgarbarn, tek lyklaborð í hönd,
er ótrúleg trú ís-
lenskra stjórnvalda á
áli og ál sé það sem
komi í stað þorsk-
hausa úti á lands-
byggðinni, eiginlega
er ég farin að trúa
þessu bulli. Álverið í
Straumsvík er fyrsta
umhverfisslysið sjón-
rænt séð og jafnframt
atvinnulega séð. Fólk í
álverum er ekki fólk í
frystihúsum þótt
frystihús séu engin
paradís á jörð. Í stað
kulda í fæturna og frosinna handa
er fólk komið í helvíti á jörð þar
sem það stendur í hita og sóti. Það
gleymist örlítið hvernig vinnu-
staður þetta er. Þetta er ekki bæj-
arstjórnarskrifstofa með ágætis
loftræstingu og góðu útsýni yfir
blómlega byggð eða byggð sem
stendur á afturfótunum. Nei, svo
mikið er víst og að
fólk skuli kjósa starf í
álveri er mér alveg
óráðin gáta, nema
ekkert annað sé í boði.
Hvernig væri t.d. að
vinna hér á landi úr
þessu hráefni sem
heitir ál og bæta örlít-
ið fyrir syndir okkar?
Eða kostar það ekki
nógu miklar virkj-
unarframkvæmdir?
Kostar það of fáa
fossa að búa til um-
búðir utan gosið sem
við drekkum? Eða borðin sem við
sitjum við, gætu þau ekki verið ís-
lensk hönnun úr íslensku áli? Eða
er það of íslenskt og eitthvað sem
landanum er ekki bjóðandi, enda
hvorki danskt eða ítalskt heldur
bara íslenskt eðalál úr íslensku eð-
alrafmagni úr íslenskum eðalfoss-
um.
Hvernig væri að opnað væri fyrir
fjölbreyttari menntun fólks í sinni
heimabyggð? Til dæmis fyrir Norð-
lendinga sem keppast við að finna
úrræði í sínum atvinnumálum. Per-
sónulega dettur mér í hug að álið,
sem verður framleitt fyrir austan,
verði hráefni fyrir Norðlendinga, til
að smíða úr og fólk fengi menntun
til að smíða, hanna, markaðssetja
og selja varning úr áli. Upp með
ermarnar, stjórnmálamenn. Úr áli
er eitthvað hægt að moða og góða
skemmtun.
Álið er málið
Ásdís Óladóttir fjallar um álver
’Hvernig væri að opnaðværi fyrir fjölbreyttari
menntun fólks í sinni
heimabyggð?‘
Ásdís Óladóttir
Höfundur er ljóðskáld
og listhönnuður.
ÓSKABARN þjóðarinnar, Eim-
skip, hluti af sjálfstæðisbaráttu
okkar Íslendinga, stolt okkar.
Eftir fréttir í fjölmiðlum fyrir
nokkrum dögum sem segja að
áhafnaskráning Eim-
skips sé að flytja til
Færeyja velti ég fyrir
mér hvaða skref væri
verið að stíga þarna.
Er verið að flytja
Eimskip til útlanda
og vegna hvers?
Hafa íslensk stjórn-
völd sofið á verðinum
og eru að stuðla að
því að íslenskur far-
skipafloti verði lagður
niður? Reyndar hefur
það svo virst á liðnum
árum. Skipin skráð
hingað og þangað og erlendir sjó-
menn í auknum mæli í skipshöfn.
Hver er munur á aðstöðu ís-
lenskra farskipa og farskipa t.d.
Norðmanna, Dana og fleiri þjóða?
Ég hef grun um að þarna sé tals-
verður munur á rekstrarumhverfi
sem íslensk stjórnvöld þurfi alvar-
lega að hugleiða hvernig skuli
meðhöndla ef þau vilja ekki að
farskipaflotinn íslenski leggist af.
Ég býð ekki alveg í það er er-
lendir skipstjórnendur verða á
farskipum kringum landið – eins
erfiðar og viðsjárverðar sigl-
ingaleiðir og eru hér í kringum
okkar ástkæra land.
Nei, ég álít að íslensk stjórnvöld
hafi algjörlega sofið á verðinum.
Í þessu sambandi er einnig vert
að benda á að nem-
endum Fjöltækniskól-
ans, fyrrverandi
Stýrimannskólans og
Vélskóla Íslands, hef-
ur stórlega fækkað og
hef ég fyrir satt að
útgerðarmenn og aðr-
ir er koma að sjávar-
útvegi hafi stórar
áhyggjur af því að
innan nokkurra ára
verði mjög erfitt að
manna íslenska flot-
ann með hæfum skip-
stjórnendum og vél-
stjórum.
Þarna kemur einnig í ljós sú
takmarkaða áhersla er hefur verið
á verkmenntun í þessu landi und-
anfarin ár.
Ríkisstjórn Íslands, þetta eru
samtengd mál, farskipaflotinn og
menntun yfirmanna á íslenska
skipaflotanum sem verður að taka
til endurskoðunar og það sem
allra fyrst.
Ég skora því á sjávarútvegs-
ráðherra og menntamálaráðherra
að taka á þessum málum áður en
þau verða komin í alvarlegri stöðu
en nú er.
Annað er ekki sæmandi ís-
lenskri þjóð sem hefur lifað á
sjávarútvegi á umliðnum árum og
nauðsynlegt er að efla allra hluta
vegna.
Leggst íslenski
fiskiskipaflotinn af?
Jón Kr. Óskarsson fjallar
um menntun sjómanna ’… að innan nokkurraára verði mjög erfitt að
manna íslenska flotann
með hæfum skipstjórn-
endum og vélstjórum.‘
Jón Kr. Óskarsson
Höfundur er varaþingmaður
Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi.
smáauglýsingar
mbl.is