Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 60
60 SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
AÐ VERÐA gamall eða að verða
öryrki er ekki eftirsóknarverð staða
á Íslandi í dag. Öryggi
þessara hópa er stór-
lega skert er varðar
tekjuhliðina sem hefur
áhrif á gæði lífs þeirra
þegar kemur að fram-
færslu og því að eiga
möguleika á að njóta
þess sem lífið hefur
upp á að bjóða.
Að verða gamall eða
öryrki og hverfa af
vinnumarkaði hefur í
för með sér mjög mikla
tekjuskerðingu. Ef
þetta fólk vildi nú
reyna af veikum mætti
að auka lítillega tekjur sínar með
vinnu skerðast þau laun sem fólkið
fær, ýmist ellilífeyrir eða örorkulíf-
eyrir. Þetta er til skammar fyrir
þjóð sem vill svo gjarnan trúa því að
hún búi við besta almannatrygg-
ingakerfi sem fyrirfinnst. En við
megum ekki einblína á vandamálið
sem við vitum að er heldur eigum við
að reyna að horfa á lausnina.
Þegar börn og unglingar hefja
störf á vinnumarkaði greiða þau 6%
skatt af tekjum sínum, enda börn og
eru að greiða til samfélagsins í sam-
ræmi við það. Ég tel að
við starfslok, hvort
heldur vegna aldurs
eða örorku, ættu ein-
staklingarnir ekki að
þurfa að greiða fulla
skatta heldur 6% af
tekjum sínum. Ef þess-
ir einstaklingar hins
vegar tækju sér hluta-
vinnu ættu þeir að
greiða fulla skatta af
þeim tekjum án þess að
það hefði áhrif á þann
lífeyri sem þeir fá.
Hverju tapar ríkið á
þessu? Ekki miklu, því
við búum einnig við kerfi sem leggur
skatt, misháan, á alla vöru og þjón-
ustu og ef þessir einstaklingar hefðu
meira á milli handanna myndu þeir
einnig nýta meira ýmsa þjónustu og
vörur og skila þannig stórum hluta
til baka. Það mætti einnig einfalda
almannatryggingakerfið þannig að
með minni skattlagningu á þetta fólk
þyrfti það ekki lengur að sækja sér-
staklega um lækkun eða styrki
vegna margskonar þjónustu s.s.
læknisheimsókna og lyfjakostnaðar.
Að auki tel ég niðurlægjandi fyrir
fólk í þessari stöðu að þurfa að
ganga með betlistaf til þess að geta
nýtt sér nauðsynlega þjónustu líkt
og heilbrigðisþjónustu.
Með þessu væri þessu fólki gert
kleift að halda sjálfstæði sínu og
virðingu, það þyrfti ekki að ganga í
betlileiðangur til hinna ýmsu stofn-
ana og/eða félagasamtaka né heldur
reiða sig á velvild ættingja og vina.
Að geta borið höfuðið hátt og séð
sjálfum sér farborða hljóta að vera
lágmarksmannréttindi og ef þeim er
þetta ekki unnt hlýtur það að sama
skapi að teljast mannréttindabrot.
Að missa heilsu eða verða gamall
Ragnhildur L. Guðmundsdóttir
fjallar um aldraða ’Með þessu væri þessufólki gert kleift að halda
sjálfstæði sínu og virð-
ingu.‘
Ragnhildur L.
Guðmundsdóttir
Höfundur er félagsfræðingur
og kennari.
Sími 575 8500 Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasali
Til sölu er öll 6. hæðin í Húsi verslunarinnar með meiru. Hús verslunarinnar er þekktasta skrif-
stofuhús landsins. Frábær staðsetning. Mikið útsýni. Mikið auglýsingagildi. Sex sérbílastæði í
kjallara fylgja hæðinni. Hæðin er ca. 490 fm og mjög auðvelt er að skipta henni í þrjár einingar. Í
dag er hæðin notuð af seljanda sem leigir frá sér stærri hluta hæðarinnar. Auk þess fylgja
7,08%, ca. 524 fm, í sameign hússins (sérstakt félag er um sameignarhlutann) sem er m.a. 11.-
14. hæðin og verslunar- og skrifstofurými á jarðhæð og í kjallara sem er allt leigt út.
Allar nánari upplýsingar gefur Sverrir í síma 896 4489.
Þetta er einstök eign fyrir fjárfesta.
OPIÐ
VIRKA DAGA
FRÁ KL. 9-18
HÚS VERSLUNARINNAR
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
Í einkasölu fallegt og afar sjarmerandi
161,3 fm, þriggja hæða steinhús með
timburgólfum og panelklæðningu á veggj-
um. Húsinu fylgir afgirtur lítill garður í rækt.
Húsið er byggt árið 1922.
Aðalhæð skiptist í anddyri, hol, herbergi,
tvær bjartar stofur og eldhús. Efri hæð
skiptist í hol, herbergi, rúmgott baðher-
bergi og geymslur. Kjallari skipist í stofu,
tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús, tvær
geymslur og anddyri. Sér inngangur er í
kjallara.
Sjón er sögu ríkari.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15-16
FRAMNESVEGUR 36 - EINBÝLI
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15 -16.
Ólína tekur á móti gestum.
Góð 128 fm efri hæð í góðu stein-
húsi í Þingholtunum. Eignin er nýtt
sem tvær íbúðir í dag en er skv.
teikn. 5-6 herb. íbúð og er auðvelt
að breyta því í fyrra horf. Stærri
íbúðin er um 80 fm og skiptist í
tvær bjartar samliggjandi stofur,
eldhús, eitt herbergi og baðher-
bergi. Minni íbúðin er um 40 fm
með nýlegri innréttingu í eldhúsi,
stofu, einu herbergi og nýlega end-
urnýjuðu baðherbergi. Snyrtileg sameign, sérgeymsla í kj. Verð 32,0 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16
Verið velkomin
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Þórsgata 17 - Efri hæð í Þingholtunum
Opið hús frá kl. 14-16
Glæsileg 87 fm íbúð á 2. hæð, íbúð
0203, þ.m.t. 7,4 fm geymsla í kjallara
við sjávarsíðuna í Bryggjuhverfinu.
Íbúðin skiptist í forstofu/gang, bjarta
stofu með fallegu útsýni, rúmgott eld-
hús með vönduðum innréttingum og
tækjum, tvö herbergi, bæði með skápum, og flísalagt baðherbergi með
þvottaaðstöðu. Borðaðstaða fyrir enda eldhúss. Allar innréttingar, parket og
hurðir úr eik. Tvennar svalir í suður og norður. Verð 21,9 millj.
Opið hús í dag, sunnudag, frá kl. 14-16
Verið velkomin.
Naustabryggja 41 - Glæsileg 3ja herb. íbúð
Opið hús frá kl. 14-16
ÁSTÆÐA þessara skrifa er að við
fimm ára dóttir mín fengum Orku-
bókina senda í pósti frá Latabæ,
óumbeðið, með stuðningi ríkisstjórn-
arinnar, stærstu sveitarfélaga lands-
ins og allnokkurra fyrirtækja. Bók-
inni fylgja límmiðar með myndum af
æskilegum vörum og óæskilegum
ásamt stigafjölda og gert er ráð fyrir
að fylgst sé með mataræði og hegðun
barnsins í 28 daga og hvort tveggja
skráð með límmiðunum. Á hverjum
degi er svo reiknuð út dagsorka og
uppsöfnuð orka.
Nú starfa ég sem sálfræðingur og
geri mér ljósa grein fyrir mikilvægi
hollra lifnaðarhátta. Hvort sem skjól-
stæðingar mínir eru börn eða full-
orðnir legg ég alltaf höfuðáherslu á
að þeir komi lagi á svefnvenjur sínar,
nærist almennilega og hreyfi sig. Þar
á eftir að þeir rækti tengsl sín við
annað fólk, sér í lagi sína nánustu, og
þá fyrst er hægt að taka á vandanum
af einhverju viti, hver sem hann er.
Ég get því ekki agnú-
ast út í markmiðin með
Orkuátakinu. Ég hef
meira að segja mælt
með umbunarkerfum,
límmiðum og dagbók-
arfærslum, til að fylgj-
ast með hegðun fólks
og hvetja það til að
bæta hana.
Ég verð að játa að ég
hef ekki mikið vit á
Latabæ, hvorki leikrit-
inu, sjónvarpsþátt-
unum, hagkerfinu, stíg-
vélunum, stílabókunum
né öðrum þeim vörum sem halda
merki hans á lofti. Allt þetta hef ég
reynt að leiða hjá mér. Dóttir mín
veit hins vegar vel hver íþróttaálf-
urinn er. Hún var því allspennt að fá
bók með þessum fígúrum þótt hún
skildi ekkert í tilgangi hennar. En ég
fann að mér gramdist að vera stillt
upp við vegg eins og það væri kvöð á
mér að fylgja þessu eft-
ir, koma dóttur minni
inn í þjálfunar- og
heilsukerfi. Og hvernig
er hægt að vera á móti
því að hún borði hollan
mat, hreyfi sig, fari
snemma að sofa, bursti
tennur og taki til? Það
er ekki hægt.
En ég er á móti því að
hún taki þátt í einhverju
æði í kringum ákveðið
fyrirtæki (Latabæ), lím-
ist við skjáinn, kaupi
bækurnar, koddaverin,
brúðurnar, bolina o.s.frv. Ég vil ekki
að hún læri að ákveðin vörumerki séu
góð (á „góðu“ límmiðunum má sjá
Skyr.is, Cheerios, Lýsi, Dreitil, Col-
gate, Létt og laggott o.s.frv. (en þó
umfram allt Latabæ)) en sleikipinnar
slæmir. Ég vil ekki að hún fari að líta
á mat sem hluta af einhverju kerfi,
læri að það að fara snemma að sofa
jafngildi því að fá sér vatn (hvort
tveggja tíu einingar í kerfinu), að dís-
ætt skyr sé tíu einingar í plús en sæl-
gæti eða gos fjörutíu einingar í mín-
us, og hvað þá að hún fái stig fyrir að
gleypa pillur (vítamín merkt Lata-
bæ). Og ég vil ekki að hún tileinki sér
það hugarfar að lífið sé keppni og að
árangurinn sé metinn í stigum.
Lífið er ekki kapphlaup í mínum
huga. Ég vil að dóttir mín líti á lífið
sem göngu, ég veit að stundum er það
skemmtiganga, stundum þrauta-
ganga. Ég vil að hún njóti göngunnar,
skjótist upp á hól ef hún vill, fjall ef
henni sýnist svo en kannski helst að
hún læri að tylla sér niður og njóta
þess sem er henni næst, þar og þá,
jafnvel þótt það sé í flæðarmálinu.
Dóttir mín gerir engan grein-
armun á hundrað, þúsund og milljón.
Ég vil ekki að hún fái samviskubit ef
hún fær sér sælgæti eða hafi áhyggj-
ur af því að hún hafi ekki borðað nóg
af mjólkurvörum þann daginn. Á
mínu heimili borðum við það sem er í
matinn. Sælgæti sést sjaldan. Við
leikum okkur, föndrum, förum í sund.
Dóttir mín dundar sér svo við að
glamra á orgel, teikna og huga að
brúðunum sínum. Ég hef algjöra
stjórn á því hvað er í matinn og hvað
ekki. Við gerum hlutina ánægjunnar
vegna og góðra áhrifa, ekki vegna
kerfis. Kerfið getur skapað óheilbrigð
og óheillavænleg viðhorf og tengsl við
mat.
Tilgangurinn helgar ekki alltaf
meðalið og kapp er best með forsjá.
Öll viljum við heilbrigða sál í hraust-
um líkama. Ég held hins vegar að við
séum að gleyma okkur í líkams-
dýrkun (en köllum það hreysti og
heilbrigði). Því miður getur kerfi og
áróður eins og hér er til umfjöllunar
orðið til þess að börn fari að gera
óheilbrigðar kröfur til sín og jafnvel
annarra í kringum sig. Og hvaða áhrif
hefur þetta á þau börn sem hafa
vaxtalagið eða líkamsburði ekki með
sér, eða á framkomu og viðhorf ann-
arra barna til þeirra?
Höfum við e.t.v. vanrækt sálina?
Hverjir halda á lofti að við þurfum að
efla visku hjá börnum okkar og for-
vitni, næmni á tilfinningar, kenna
þeim gagnrýna hugsun, hugprýði,
dugnað, heilindi, heiðarleika, mann-
gæsku, kærleika, sanngirni, lítillæti,
þakklæti, fyrirgefningu, bjartsýni,
hófsemi og að meta fegurð, vináttu,
gáska og gleði?
Ég efast ekki um að öllum, sem að
Orkubókinni koma, gengur gott til og
ég er viss um að kerfið hentar mörg-
um sérlega vel. En það er foreldr-
anna að hafa vit fyrir börnum sínum
og besta leiðin til að tryggja heil-
brigði þeirra, á sál og líkama, er að
gefa sér tíma til að sinna þeim í leik
og starfi og vera góð fyrirmynd. Al-
varlegustu misbrestirnir í uppeldi
barna eru vanræksla, hvort sem hún
er í formi ofdekurs, sinnu- eða þekk-
ingarleysis. Ég er heldur ekki frá því
að algengasta orsök vanrækslu sé
lífsgæðakapphlaup foreldranna, í
hvaða mynd sem er. Kapp er best
með forsjá.
Kapp er best með forsjá
Reynir Harðarson
fjallar um orkubókina
’Ég er heldur ekki fráþví að algengasta orsök
vanrækslu sé lífsgæða-
kapphlaup foreldranna, í
hvaða mynd sem er.‘
Reynir Harðarson
Höfundur er sálfræðingur.