Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 61
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
BIRTING Jótlandspóstsins í Dan-
mörku á tólf teikningum sem hædd-
ust að Múhameð spámanni hafa vakið
hörð viðbrögð múslima víða um heim
og hrundið af stað mikilli umræðu um
prentfrelsi, mannréttindi og árekstra
menningarheima. Myndbirtingarnar
og viðbrögðin við þeim er enn ein
áréttingin á mikilvægi almennrar
trúarbragðafræðslu enda er þekking
og gagnkvæmur skilningur forsenda
friðsamlegra og nærgætinna sam-
skipta ólíkra trúarbragða og menn-
ingarheima.
Við undirrituð eigum sæti í starfs-
hópi á vegum Þjóðkirkjunnar sem
vinnur að því að efla góð samskipti við
önnur trúarbrögð og gagnkvæman
skilning. Þar höfum við m.a. unnið að
undirbúningi að stofnun samráðsvett-
vangs fyrir ólík trúarbrögð hérlendis
í samvinnu við Alþjóðahús og með
þátttöku múslima og fleiri trúarhópa
og kirkjudeilda.
Birting Jótlandspóstsins og ann-
arra fjölmiðla á teikningunum af Mú-
hameð spámanni er særandi fyrir
múslima vegna þess að þar er hann
smánaður sem hryðjuverkamaður,
hæðst er að trú þeirra og neikvæðar
staðalmyndir dregnar upp af þeim í
anda andgyðinglegs áróðurs nazista á
sínum tíma. Trú flestra múslima
leggur bann við myndum af ekki bara
Múhameð spámanni heldur einnig
öllum öðrum spámönnum sem þeir
eiga sameiginlega með gyðingum og
kristnum mönnum. Þótt virða beri
bann múslima við teikningum af Mú-
hameð spámanni er ljóst að hörð við-
brögð þeirra stafa fyrst og fremst af
þeirri neikvæðu mynd sem dregin er
upp af þeim og trú þeirra með um-
ræddum teikningum.
Múslimar eru meðal fjölmargra
minnihlutahópa á Norðurlöndum.
Birting mynda sem smána og draga
dár að því sem minnihlutahópi er
heilagt í trúarefnum og ýta undir nei-
kvæðar staðalmyndir af þeim hljóta
að vekja spurningar um tilganginn
þar að baki, ekki síst þegar rit-
stjórnin veit að þær munu særa til-
finningar viðkomandi og jafnvel ýta
undir úlfúð milli þjóð-
félagshópa. Eftir að
dönsku myndirnar
birtust hafa þær með-
al annars orðið vatn á
myllu öfgahópa sem
hvetja til ofbeldis
gegn þeim sem
ábyrgir voru fyrir
þeim. Slík viðbrögð
eiga sér ekki heldur
málsbætur.
Það er miður að íslenskir fjölmiðlar
skuli sumir hverjir hafa birt umrædd-
ar myndir. Tjáningarfrelsi fylgir ekki
aðeins ábyrgð heldur er það óhjá-
kvæmilega ýmsum skilyrðum háð
enda geta fjölmiðlar ekki birt hvað
sem er, svo sem meiðyrði og barna-
klám. Jafnframt telst það lögbrot að
draga opinberlega dár að eða smána
trúarkenningar eða guðsdýrkun lög-
legs trúfélags hér á landi.
Enginn sem vill stuðla að góðum
samskiptum þjóðfélagshópa, þar á
meðal trúarhópa, getur stutt birt-
ingar á þessum myndum í fjölmiðlum
á Íslandi.
Þjóðkirkjan hefur átt góð sam-
skipti við Félag múslima á Íslandi
sem hefur á friðsaman hátt komið
óánægju sinni á framfæri vegna
myndbirtinganna og útskýrt málstað
sinn. Við tökum undir ósk þeirra um
að fjölmiðlar virði það sem þeim er
heilagt.
BJARNI RANDVER
SIGURVINSSON,
formaður starfshóps um samskipti
við önnur trúarbrögð,
STEINUNN ARNÞRÚÐUR
BJÖRNSDÓTTIR,
verkefnisstjóri samkirkjumála á
Biskupsstofu,
TOSHIKI TOMA,
prestur innflytjenda.
Það sem fólki er heilagt
Frá Bjarna Randveri Sigurvinssyni,
Steinunni Arnþrúði Björnsdóttur og
Toshiki Toma:
Bjarni Randver
Sigurvinsson
Steinunn Arn-
þrúður Björnsdóttir
Toshiki
Toma
ÁSAKÓR 1-3 - KÓPAVOGI
- 10 ÍBÚÐIR Í BYGGINGU - FJÁRFESTINGATÆKIFÆRI -
Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali
NÁNAR UM EIGNIRNAR
Samtals 10 íbúðir í fjölbýlishúsi nr. 1-3 við Ásakór í Kópavogi. Birt stærð séreignarhluta íbúðanna er 1.471,8 fm, þar af bílskúrar
87,7 fm. Húsið er staðsteypt með tveimur stigahúsum fyrir samtals 31 íbúð og 12 bílskúra. (Sá möguleiki gæti verið til staðar að
kaupa allar þessar íbúðir með bílskúrum.) Húsið er teiknað af teiknistofunni Suðurlandsbraut 4, Reykjavík, og arkitekt er Kristinn
Ragnarsson. Að innan skilast íbúðirnar fullfrágengnar án gólfefna og sameign og lóð fullfrágengin. Öllum íbúðunum fylgja sér-
geymslur á 1. hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
AFHENDING
Afhending séreignarhluta íbúðanna, fullfrágengnum í samræmi við fyrirliggjandi skilalýsingu, verður eftirfarandi; Ásakór 3 afhendist í
nóvember 2006 og Ásakór 1 afhendist í febrúar 2007. Fullnaðarfrágangur sameignar og lóðar verður eigi síðar en 01.07.2007.
ÍBÚÐIRNAR SELJAST EINGÖNGU Í EINU LAGI.
Upplýsingar Jón Gretar Jónsson, sölumaður, gsm 840 4049 og Gunnar Smári Tryggvason, sölumaður, 895 6554
fasteignasala
Höfðabakka 9, Reykjavík - Sími 534 2000
Ísak V. Jóhannsson
Sölustjóri gsm 822 5588
Vorum að fá í einkasölu sex íbúðir á 6. hæð
í lyftuhúsi við miðbæ Reykjavíkur
● Tilvalið fyrir félagasamtök.
● Fyrirtæki með erlenda starfsmenn.
● Einstaklinga til útleigu.
● Gistiheimili sem vantar auka herb.
● Stutt í alla þjónustu.
● Verð pr. íbúð 15,4 millj.
● Stærð íbúða ca. 54 fm.
Einnig í sölu tvær ca. 90 fm íbúðir á 9. hæð með
glæsilegu útsýni. Þarfnast standsetningar.
Agnar Agnarsson, löggiltur fasteignasali.
Sérhæfð fasteigna- og fyrirtækjasala með
áratugareynslu starfsmanna
TÆKIFÆRI - SEX ÍBÚÐIR
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Þrastarás - Einbýli - Hf.
Í einkasölu glæsilegt 187,3 fm einbýli á
tveimur hæðum með innbyggðum 33,1
fm bílskúr, vel staðsett í Áslandshverfi í
Hf. Eignin skiptist í borðstofu, hol, stofu,
borðstofu, eldhús, baðh., herbergi,
þvottahús og bílskúr. Á neðri hæð eru
tvö góð barnah., hjónah, baðh. og sjón-
varpshol. Glæsil. sérsmíðaðar innréttingar
og gólfefni eru parket og flísar. Glæsil.
sólpallur með heitum potti.
Frábær staðsetning.
Marteinn Karlsson: „Vegna
óbilgjarnrar gjaldtöku bæjar-
stjórnar Snæfellsbæjar af okk-
ur smábátaeigendum, þar sem
ekkert tillit er tekið til þess
hvort við megum veiða 10 eða
500 tonn, ákvað ég að selja bát-
inn og flytja í burtu.“
Sigríður Halldórsdóttir skrif-
ar um bækur Lizu Marklund
sem lýsa heimilisofbeldi.
Hulda Guðmundsdóttir: „Ég
tel að það liggi ekki nægilega
ljóst fyrir hvernig eða hvort
hinn evangelísk-lútherski
vígsluskilningur fari í bága við
það að gefa saman fólk af sama
kyni …“
Prófkjörsgreinar á mbl.is
www.mbl.is/profkjor
Matthias Freyr Matthiasson
skorar á alla, sem þátt taka í
prófkjöri Samfylkingarinnar að
kjósa Andrés Jónsson í 4. sætið.
Helgi Hjörvar styður Sigrúnu
Elsu Smáradóttur í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Birgir Dýrfjörð styður Björk
Vilhelmsdóttur í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík.
Margrét Frímannsdóttir styð-
ur Sigrúnu Elsu Smáradóttur í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Atli Vigfússon styður Elínu
Margréti Hallgrímsdóttur í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á
Akureyri.
Jóhann Alfreð Kristinsson
styður Sigurð Örn Hilmarsson í
kosningum til stúdentaráðs í
HÍ.
Haukur Sveinsson styður
Björk Vilhelmsdóttur í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Elísabet Hjörleifsdóttir styð-
ur Elínu Margréti Hallgríms-
dóttur í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins á Akureyri.
Ágúst Ólafur Ágústsson styð-
ur Sigrúnu Elsu Smáradóttur í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Ingólfur Margeirsson styður
Dag B. Eggertsson í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Gísli Gunnarsson styður Sig-
rúnu Elsu Smáradóttur í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Guðrún Ögmundsdóttir styð-
ur Sigrúnu Elsu Smáradóttur í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Birgir Dýrfjörð rafvirki styður
Sigrúnu Elsu Smáradóttur sem
býður sig fram í 2. til 4 sæti í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar