Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 61 UMRÆÐAN BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is BIRTING Jótlandspóstsins í Dan- mörku á tólf teikningum sem hædd- ust að Múhameð spámanni hafa vakið hörð viðbrögð múslima víða um heim og hrundið af stað mikilli umræðu um prentfrelsi, mannréttindi og árekstra menningarheima. Myndbirtingarnar og viðbrögðin við þeim er enn ein áréttingin á mikilvægi almennrar trúarbragðafræðslu enda er þekking og gagnkvæmur skilningur forsenda friðsamlegra og nærgætinna sam- skipta ólíkra trúarbragða og menn- ingarheima. Við undirrituð eigum sæti í starfs- hópi á vegum Þjóðkirkjunnar sem vinnur að því að efla góð samskipti við önnur trúarbrögð og gagnkvæman skilning. Þar höfum við m.a. unnið að undirbúningi að stofnun samráðsvett- vangs fyrir ólík trúarbrögð hérlendis í samvinnu við Alþjóðahús og með þátttöku múslima og fleiri trúarhópa og kirkjudeilda. Birting Jótlandspóstsins og ann- arra fjölmiðla á teikningunum af Mú- hameð spámanni er særandi fyrir múslima vegna þess að þar er hann smánaður sem hryðjuverkamaður, hæðst er að trú þeirra og neikvæðar staðalmyndir dregnar upp af þeim í anda andgyðinglegs áróðurs nazista á sínum tíma. Trú flestra múslima leggur bann við myndum af ekki bara Múhameð spámanni heldur einnig öllum öðrum spámönnum sem þeir eiga sameiginlega með gyðingum og kristnum mönnum. Þótt virða beri bann múslima við teikningum af Mú- hameð spámanni er ljóst að hörð við- brögð þeirra stafa fyrst og fremst af þeirri neikvæðu mynd sem dregin er upp af þeim og trú þeirra með um- ræddum teikningum. Múslimar eru meðal fjölmargra minnihlutahópa á Norðurlöndum. Birting mynda sem smána og draga dár að því sem minnihlutahópi er heilagt í trúarefnum og ýta undir nei- kvæðar staðalmyndir af þeim hljóta að vekja spurningar um tilganginn þar að baki, ekki síst þegar rit- stjórnin veit að þær munu særa til- finningar viðkomandi og jafnvel ýta undir úlfúð milli þjóð- félagshópa. Eftir að dönsku myndirnar birtust hafa þær með- al annars orðið vatn á myllu öfgahópa sem hvetja til ofbeldis gegn þeim sem ábyrgir voru fyrir þeim. Slík viðbrögð eiga sér ekki heldur málsbætur. Það er miður að íslenskir fjölmiðlar skuli sumir hverjir hafa birt umrædd- ar myndir. Tjáningarfrelsi fylgir ekki aðeins ábyrgð heldur er það óhjá- kvæmilega ýmsum skilyrðum háð enda geta fjölmiðlar ekki birt hvað sem er, svo sem meiðyrði og barna- klám. Jafnframt telst það lögbrot að draga opinberlega dár að eða smána trúarkenningar eða guðsdýrkun lög- legs trúfélags hér á landi. Enginn sem vill stuðla að góðum samskiptum þjóðfélagshópa, þar á meðal trúarhópa, getur stutt birt- ingar á þessum myndum í fjölmiðlum á Íslandi. Þjóðkirkjan hefur átt góð sam- skipti við Félag múslima á Íslandi sem hefur á friðsaman hátt komið óánægju sinni á framfæri vegna myndbirtinganna og útskýrt málstað sinn. Við tökum undir ósk þeirra um að fjölmiðlar virði það sem þeim er heilagt. BJARNI RANDVER SIGURVINSSON, formaður starfshóps um samskipti við önnur trúarbrögð, STEINUNN ARNÞRÚÐUR BJÖRNSDÓTTIR, verkefnisstjóri samkirkjumála á Biskupsstofu, TOSHIKI TOMA, prestur innflytjenda. Það sem fólki er heilagt Frá Bjarna Randveri Sigurvinssyni, Steinunni Arnþrúði Björnsdóttur og Toshiki Toma: Bjarni Randver Sigurvinsson Steinunn Arn- þrúður Björnsdóttir Toshiki Toma ÁSAKÓR 1-3 - KÓPAVOGI - 10 ÍBÚÐIR Í BYGGINGU - FJÁRFESTINGATÆKIFÆRI - Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali NÁNAR UM EIGNIRNAR Samtals 10 íbúðir í fjölbýlishúsi nr. 1-3 við Ásakór í Kópavogi. Birt stærð séreignarhluta íbúðanna er 1.471,8 fm, þar af bílskúrar 87,7 fm. Húsið er staðsteypt með tveimur stigahúsum fyrir samtals 31 íbúð og 12 bílskúra. (Sá möguleiki gæti verið til staðar að kaupa allar þessar íbúðir með bílskúrum.) Húsið er teiknað af teiknistofunni Suðurlandsbraut 4, Reykjavík, og arkitekt er Kristinn Ragnarsson. Að innan skilast íbúðirnar fullfrágengnar án gólfefna og sameign og lóð fullfrágengin. Öllum íbúðunum fylgja sér- geymslur á 1. hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. AFHENDING Afhending séreignarhluta íbúðanna, fullfrágengnum í samræmi við fyrirliggjandi skilalýsingu, verður eftirfarandi; Ásakór 3 afhendist í nóvember 2006 og Ásakór 1 afhendist í febrúar 2007. Fullnaðarfrágangur sameignar og lóðar verður eigi síðar en 01.07.2007. ÍBÚÐIRNAR SELJAST EINGÖNGU Í EINU LAGI. Upplýsingar Jón Gretar Jónsson, sölumaður, gsm 840 4049 og Gunnar Smári Tryggvason, sölumaður, 895 6554 fasteignasala Höfðabakka 9, Reykjavík - Sími 534 2000 Ísak V. Jóhannsson Sölustjóri gsm 822 5588 Vorum að fá í einkasölu sex íbúðir á 6. hæð í lyftuhúsi við miðbæ Reykjavíkur ● Tilvalið fyrir félagasamtök. ● Fyrirtæki með erlenda starfsmenn. ● Einstaklinga til útleigu. ● Gistiheimili sem vantar auka herb. ● Stutt í alla þjónustu. ● Verð pr. íbúð 15,4 millj. ● Stærð íbúða ca. 54 fm. Einnig í sölu tvær ca. 90 fm íbúðir á 9. hæð með glæsilegu útsýni. Þarfnast standsetningar. Agnar Agnarsson, löggiltur fasteignasali. Sérhæfð fasteigna- og fyrirtækjasala með áratugareynslu starfsmanna TÆKIFÆRI - SEX ÍBÚÐIR Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Þrastarás - Einbýli - Hf. Í einkasölu glæsilegt 187,3 fm einbýli á tveimur hæðum með innbyggðum 33,1 fm bílskúr, vel staðsett í Áslandshverfi í Hf. Eignin skiptist í borðstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðh., herbergi, þvottahús og bílskúr. Á neðri hæð eru tvö góð barnah., hjónah, baðh. og sjón- varpshol. Glæsil. sérsmíðaðar innréttingar og gólfefni eru parket og flísar. Glæsil. sólpallur með heitum potti. Frábær staðsetning. Marteinn Karlsson: „Vegna óbilgjarnrar gjaldtöku bæjar- stjórnar Snæfellsbæjar af okk- ur smábátaeigendum, þar sem ekkert tillit er tekið til þess hvort við megum veiða 10 eða 500 tonn, ákvað ég að selja bát- inn og flytja í burtu.“ Sigríður Halldórsdóttir skrif- ar um bækur Lizu Marklund sem lýsa heimilisofbeldi. Hulda Guðmundsdóttir: „Ég tel að það liggi ekki nægilega ljóst fyrir hvernig eða hvort hinn evangelísk-lútherski vígsluskilningur fari í bága við það að gefa saman fólk af sama kyni …“ Prófkjörsgreinar á mbl.is www.mbl.is/profkjor Matthias Freyr Matthiasson skorar á alla, sem þátt taka í prófkjöri Samfylkingarinnar að kjósa Andrés Jónsson í 4. sætið. Helgi Hjörvar styður Sigrúnu Elsu Smáradóttur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Birgir Dýrfjörð styður Björk Vilhelmsdóttur í prófkjöri Sam- fylkingarinnar í Reykjavík. Margrét Frímannsdóttir styð- ur Sigrúnu Elsu Smáradóttur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Atli Vigfússon styður Elínu Margréti Hallgrímsdóttur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Jóhann Alfreð Kristinsson styður Sigurð Örn Hilmarsson í kosningum til stúdentaráðs í HÍ. Haukur Sveinsson styður Björk Vilhelmsdóttur í próf- kjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Elísabet Hjörleifsdóttir styð- ur Elínu Margréti Hallgríms- dóttur í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins á Akureyri. Ágúst Ólafur Ágústsson styð- ur Sigrúnu Elsu Smáradóttur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ingólfur Margeirsson styður Dag B. Eggertsson í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Gísli Gunnarsson styður Sig- rúnu Elsu Smáradóttur í próf- kjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Guðrún Ögmundsdóttir styð- ur Sigrúnu Elsu Smáradóttur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Birgir Dýrfjörð rafvirki styður Sigrúnu Elsu Smáradóttur sem býður sig fram í 2. til 4 sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.