Morgunblaðið - 25.08.2006, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 25.08.2006, Qupperneq 31
veitingastaðir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2006 31 Það er líklega vart hægt aðhugsa sér ólíkari staði enHamborgarabúlluna viðTryggvagötu og matstof- una Maður lifandi við Borgartún. Það eina sem þessir staðir eiga sam- eiginlegt er að þeir eru „skyndibita- staðir“ í þeirri merkingu að ekki þarf að bíða lengi eftir matnum og ekki þarf langan tíma til að borða hann. Alla rétti er sömuleiðis hægt að taka með sér heim eða í vinnuna. Að öðru leyti eru þeir andstæður. Og þó, kannski eiga þeir eitt enn sameiginlegt, þeir standa sig báðir með prýði í sínu hlutverki. Það voru nokkur tíðindi er Ham- borgarabúllan var opnuð við Geirs- götu um páskahelgina 2004. Segja má að Tómas Tómasson eða Tommi sé guðfaðir íslenska hamborgarans. Margir hafa eflaust snætt sinn fyrsta hamborgara á sínum tíma í Tommaborgurum við Lækjargötu en Tommaborgarar urðu smám saman að fyrstu alíslensku hamborgarakeðjunni. Það sama virðist vera að gerast með nýjasta afkvæmi hans – Hamborgarabúll- una – en hana er nú líka að finna í Hafnarfirði og á Egilsstöðum. Hin eina sanna Hamborgarabúlla er hins vegar sú upprunalega við Geirsgötu og hún stendur svo sann- arlega undir nafni. Húsið er með þeim sérkennilegri í Reykjavík og var upprunalega byggt sem vigt- arhús og kaffistofa fyrir höfnina. Þarna var lengi rekið kaffihús en smám saman fór húsið í niðurníðslu og var vægast sagt í hrörlegu ástandi er því var breytt í hamborg- arastað. Vigtarhúsið gamla er friðað og hefur fengið að halda sér að mestu í upprunalegri mynd. Gólfið er gróft og allar innréttingar ein- faldar og um margt sérstakar – t.d. „jólaskreytingaljósin“ í loftinu sem mynda eins konar stjörnuhimin yfir gesti. Hamborgarabúllan er sannkall- aður amerískur „diner“ og stemmn- ingin einstök. Það er frekar dimmt og drungalegt í þröngu rýminu, steikingarlyktin megn í loftinu og brakið af hamborgurum á pönnunni keppir við háværa tónlistina. Tón- listarvalið er saga út af fyrir sig, þegar inn er komið er kannski verið að spila djass, næsta lag er með Bítlunum, þá kemur brasilískur samba og að því búnu eitthvað sem hefði getað sómt sér sem framlag Þjóðverja í Eurovision fyrir 2–3 áratugum. Matseðillinn er einfaldur – lítill, stór eða tvöfaldur hamborgari og franskar og sósa með. Nýlega bætt- ist einnig við ein af samlokunum vinsælu frá Hard Rock-tímabili Tómasar. En í þessum einfaldleika felst snilldin. Þetta er staður sem býður upp á pottþétta, ramm-ameríska hamborgara. Basta og búið. Brauð- ið, sem oft er veikasti hlekkur ís- lenskra hamborgara, er fínt og á borgaranum kál, tómatur, tóm- atsósa, sinnep og majonnes. Ostur ef menn kjósa en hann er að mínu mati það sísta á borgaranum. Tommi hefur með Hamborgara- búllunni sannað á ný að engum er hægt að treysta betur fyrir borg- aranum en honum. Á Manni lifandi er hins vegar gengið inn í aðra veröld. Heilsusem- in æpir á mann. Í versluninni er hægt að kaupa alls konar heilsu- samlegan og lífrænan varning, stað- urinn er bjartur og ljós. Hægt er að kaupa margvíslega rétti – í boði er salatbar en einnig tilbúnir réttir til að kippa með sér, bökur og svo auð- vitað réttur dagsins. Styrkur Maður lifandi er fjöl- breytnin og frábær hráefni. Matar- gerðin er alla jafna spennandi, rétt- irnir bragðmiklir og kokkarnir hika ekki við að hafa bragð að matnum með frumlegri notkun krydda. Stundum eru réttir dagsins ættaðir frá Evrópu, aðra daga rómönsku Ameríku, stundum eru afrísk eða asísk áhrif áberandi. Á diskinum er ávallt góð blanda af heitu og köldu, stökku og mjúku, baunum, grjónum, hnetum, ávöxtum og margvíslegu grænmeti og það verður að segjast eins og er að ég hef aldrei verið óánægður með matinn. Ekki síst er ágætt að þetta er ekki hreinræktaður grænmet- isstaður – stundum er t.d. kjúk- lingakjöt í réttunum. Nýlega fékk ég t.d. verulega góðan kjúkling í súkkulaðisósu eða þá bakaðar papr- ikur fylltar með rótargrænmeti. Eitt af því sem vakið hefur at- hygli mína er hversu kynjaskipt- ingin er ólík á þessum tveimur stöð- um. Á Manni lifandi eru konur alla jafna í miklum meirihluta en á Hamborgarabúllunni eru karlar ríkjandi. Þetta endurspeglast einnig í því lesefni sem í boði er fyrir gesti. Glanstímarit liggja á víð og dreif í Manni lifandi en á Búllunni er hægt að glugga í gömul dagblöð og þykk- an doðrant sem ber heitið „The World’s Best Pub Jokes“ eða bestu pöbbabrandarar veraldar – bæði bindin. Í nýlegri heimsókn á Hamborg- arabúlluna var engin kona meðal gesta framan af en úr því rættist þó um það leyti er ég var að yfirgefa staðinn. Það reyndist hins vegar vera erlendur ferðamaður að leita að sushi-staðnum í nágrenninu. Morgunblaðið/Eyþór Maður lifandi Styrkur staðarins er fjölbreytnin og frábær hráefni. Morgunblaðið/Golli Hamborgarabúllan Sannkallaður amerískur „diner“ með einstaka stemningu og pottþétta hamborgara. Mars og Venus Steingrímur Sigurgeirsson gagnrýnir veitingahúsin Hamborgarabúlluna og Maður lifandi. Gleymdu ekki nestinu TILBÚNIR frystir réttir sem eiga að vera megrunarfæði geta haft að geyma mun meira salt en fólki er hollt að innbyrða. Á vegum Svenska Dagbladet var gerð könnun á salt- innihaldi slíkra skyndirétta sem fást í frystikistum matvöruverslana og kom í ljós að saltinnihaldið var mjög mikið. Þegar framleiðendur reyna að skera niður fitu og kolvetni í rétt- unum er saltið oft aukið til að bragð- ið haldi sér. Ráðlagður dag- skammtur kvenna af salti er um 5 g en karla um 6 g. Ef kona ætti að full- nægja næringarþörf sinni með frystiréttum heilan dag yrði saltneyslan á bilinu 9–24 g eða allt að 5 tsk. miðað við að mælt er með einni á dag. Talsverð umræða hefur átt sér stað í Svíþjóð um of mikla saltneyslu og megrunar- skyndiréttir eru bara eitt af því sem skoðað hefur verið. Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem sjónum er beint að þessum réttum sérstaklega og m.a. er bent á grænmetisbuff sem vinsæl eru hjá grænmetisætum eða þeim sem eru að reyna að borða hollari mat eða jafnvel léttast. Bent er á að alls kyns skyndimatur er æ oftar á borðum fólks og því hafi salt- neyslan aukist svo mjög. Tilbúið megrunarfæði úr frystikistum versl- ana sé engin undantekning. Of mikil saltneysla getur valdið of háum blóðþrýstingi sem aftur getur valdið hjartaáföllum og heilablóðföllum. Rann- sóknir hafa sýnt að saltneysla sem fer yfir 4 g á dag get- ur haft neikvæð áhrif á heilsuna. Salt í megrunarfæði PINOTEX Wood Protection From storage in Denmark we offer a selection of Pinotex products for export. We have 40.000 L. packed in 1 - 2.5 - 5 and 10 L. cans. The goods will be sold as one lot for Eur. 1.20 pr. L. FOT Denmark Contact : Dansk Genbrug Import/Export ApS Tel.+45 75127144 Fax.+45 75127879 Hamborgarabúllan Geirsgötu 1  Traustir borgarar í sérstæðu umhverfi  Stór ostborgari, franskar og sósa kosta um 900 krónur Maður lifandi Borgartúni 24  Fjölbreytt og bragðgott heilsu- fæði í björtu og þægilegu umhverfi  Réttur dagsins á 1.250 krónur og tíunda skiptið frítt ef klippikort er notað
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.