Morgunblaðið - 08.10.2006, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
14,2%
Nafnávöxtun í ágúst 2006: 14,2% á ársgrundvelli.*
SJÓÐUR 9
BESTA ÁVÖXTUN
PENINGAMARKAÐSSJÓÐA
Á ÍSLANDI Í ÁGÚST
Hentar sérlega vel fyrir skammtíma-
ávöxtun og fyrir þá sem vilja hafa
greiðan aðgangað sparifé sínu.
Þú getur fjárfest í áskrift eða keypt fyrir
staka upphæð. Farðu á www.glitnir.is og
kláraðu málið.
Sjóður 9 er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003
um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag
sjóðsins er Glitnir Sjóðir hf. Útboðslýsingu og útdrátt úr
útboðslýsingum má nálgast í útibúum Glitnis eða á www.
glitnir.is/sjodir.
*Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
62
08
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Min ingar minning@mbl.is Hilmar P. Þor ó sson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
sunnudagur 8. 10. 2006
atvinna mbl.isatvinna
Gestir í vikunni 10.295 » Innlit 19.000 » Flettingar 148.332 » Heimild: Samræmd vefmæling
LOPAPEYSAN AFTUR Í TÍSKU
EFTIRSPURNIN EFTITR ÞESSARRI RAMMÍSLENSKU FLÍK ER
SVO MIKIL AÐ LOPAFRAMLEIÐENDUR HAFA VARLA VIÐ. >> 12
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 64
Veður 8 Myndasögur 70
Staksteinar 8 Dagbók 70/74
Hugsað upphátt 43 Víkverji 70
Forystugrein 44 Staður og stund 72
Reykjavíkurbréf 44 Leikhús 74
Umræðan 47/61 Bíó 82/95
Bréf 60 Sjónvarp 86
Minningar 64/67 Menning 70/79
* * *
Innlent
Óprúttnir aðilar brutust inn um
hlið að lóð rússneska sendiráðsins
við Túngötu aðfararnótt laugardags
og stálu rússneska fánanum sem
blakti við hún í garðinum. Tals-
maður sendiráðsins segir málið litið
mjög alvarlegum augum. » 88
Skipulagðri glæpastarfsemi hef-
ur vaxið mjög fiskur um hrygg und-
anfarin ár og angar hennar teygja
sig hingað til lands. Á nokkrum ár-
um hefur fíkniefnamarkaðurinn hér
á landi gjörbreyst, hann er í sífellt
auknum mæli skipulagður af erlend-
um aðilum. » 1
Halli á rekstri Landspítala - há-
skólasjúkrahúss heldur áfram að
aukast samkvæmt nýjum tölum um
starfsemi spítalans. Á fyrstu átta
mánuðum ársins nam heildarhalli
LSH 707 milljónum króna og voru
rekstrargjöld 3,5 prósentum um-
fram rekstraráætlun. Fyrstu sex
mánuði ársins voru rekstrargjöld
hins vegar 3,1 prósenti umfram
rekstraráætlun. » 2
Tilfinningaleg vanræksla barna
virðist fara vaxandi, segir Hrefna
Ólafsdóttir, félagsráðgjafi og sér-
fræðingur í fjölskyldumeðferð. Hún
hefur starfað á barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans síðastliðin
20 ár og kveðst verða vör við þetta í
sífellt vaxandi mæli. Hrefna vinnur
meðal annars með börnum sem
glíma við sjálfsvígshugsanir og
kveðst skynja mikinn einmanaleika
hjá mörgum þeirra, ekki síst þeim
sem tilheyra tveimur fjölskyldum.
» 88
Erlent
Stjórnvöld í Georgíu sökuðu í
gær Rússa um að hafa gerst seka
um „væga útgáfu af þjóðernishreins-
unum“ í aðgerðum sínum gegn
Georgíumönnum á síðustu dögum.
Vísaði hann til þess, að Rússar hafa
sent á annað hundrað Georgíumenn
úr landi og lokað fyrirtækjum í
þeirra eigu í Moskvu.
» 1
Melson Bacos, sjúkraliði í banda-
ríska sjóhernum, var á föstudag
dæmdur í árs fangelsi fyrir að hafa
tekið þátt í ráni á Íraka, sem var
skotinn til bana með köldu blóði af
hópi bandarískra hermanna. Bacos
skýrði frá atvikinu, sem átti sér stað
í íraska þorpinu Hamdania 26. apríl
sl., fyrir herrétti í Kaliforníu. » 1
Hermenn frá Suður-Kóreu skutu
í gær viðvörunarskotum eftir að her-
menn frá Norður-Kóreu fóru yfir
landamæri S-Kóreu , samkvæmt
upplýsingum frá varnarmála-
yfirvöldum í S-Kóreu. Spennan
vegna fyrirhugaðra tilrauna N-
Kóreumanna með kjarnavopn fer
stöðugt vaxandi, nú þegar örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna hefur
samþykkt yfirlýsingu þar sem þrýst
er á stjórnvöld í Pyongyang að falla
frá tilraununum. Vara sérfræðingar
við því, að tilraunirnar muni jafnvel
fara fram um helgina.
Nær fullvíst er talið, að Ban Ki-
moon, utanríkisráðherra Suður-
Kóreu, verði á morgun staðfestur
sem arftaki Kofi Annans sem fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Mótframbjóðendur hans sex hafa
dregið framboð sitt til baka. Talið er
að öryggisráðið muni mæla með Ki-
moon en það kemur svo í hluta alls-
herjarþings SÞ að staðfesta kjör
hans í embætti framkvæmdastjóra
samtakanna. Annan lætur af störf-
um í árslok eftir tíu ár í embætti.
» 16
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is
HALLI á rekstri Landspítala – há-
skólasjúkrahúss heldur áfram að
aukast samkvæmt nýjum starfsem-
istölum spítalans. Á fyrstu átta
mánuðum ársins nam heildarhalli
LSH 707 milljónum króna og voru
rekstrargjöld 3,5% umfram rekstr-
aráætlun. Fyrstu sex mánuði árs-
ins voru rekstrargjöld hins vegar
3,1% umfram rekstraráætlun.
Að sögn Önnu Lilju Gunnars-
dóttur, framkvæmdastjóra fjár-
reiðna og upplýsinga LSH, dróst
starfsemi spítalans minna saman í
júlí og ágúst en fyrri ár og eins
heldur óhagstæð gengisþróun
áfram að hafa áhrif á rekstur spít-
alans. Í greinargerð Önnu segir að
erfitt hafi reynst að fá starfsfólk til
starfa hvort sem um hafi verið að
ræða lausar stöður eða sumaraf-
leysingar. Til að geta haldið starf-
semi spítalans gangandi allan sól-
arhringinn hafi þurft að kaupa
umtalsverða yfirvinnu af starfsfólki
spítalans og kaup á hjúkrunarþjón-
ustu frá innlendum og erlendum
verktakafyrirtækjum hafi aukist til
muna.
Launakostnaður á tímabilinu var
rúmar 530 milljónir krónar um-
framrekstraráætlun, eða sem nem-
ur 3,9%. Flest svið spítalans sýna
halla á rekstri, einnig þau sem hafa
verið í jafnvægi til margra ára.
Einar Oddur Kristjánsson, vara-
formaður fjárlaganefndar, segir að
ekki verði komist hjá því að gripið
verði til einhverra aðgerða til að
sporna við hallarekstri LSH. Hann
fullyrðir jafnframt að ríkið muni
borga sínar skuldir. Einar segir
efnahag ríkisins góðan en rekstr-
arvandamálin mikil, m.a. hjá LSH.
„Heilbrigðisþjónusta á Íslandi er
gríðarlega góð og þjónustustigið
mjög hátt. Hins vegar má mönnum
vera ljóst að kostnaður Íslendinga
við heilbirgðisþjónustuna er meiri
en hjá nokkurri annarri þjóð. Ís-
lendingar eru yngsta þjóð Evrópu
og miðað við aldurssamsetningu
ætti heilbrigðisþjónustan ekki að
vera svo kostnaðarsöm. Menn hafa
ekki fengist til að horfast í augu
við þessa staðreynd en fyrr eða
síðar komumst við ekki hjá því,“
segir Einar.
Halli LSH 707 milljón-
ir króna í lok ágúst
Varaformaður fjárlaganefndar segir aðgerða þörf
Í HNOTSKURN
» Halli á rekstri LSH frájanúar til júní 2006 nam
477 milljónum króna.
» Á fyrstu átta mánuðumársins var hallinn 707
milljónir króna.
» Á síðasta ári nam hallinn283 milljónum króna.
GANGNAMENNIRNIR Peter Plasche (t.v.) og Victor
Berg Guðmundsson skimuðu eftir fé af Mælifelli þegar
bændur í Mýrdalnum voru í seinni leitum haustsins.
Það er oft talsvert erfitt að ná öðru safni af Höfða-
brekkuafrétti til byggða, því þótt landslagið sé af-
skaplega fallegt er það hrjóstrugt og víða erfitt yf-
irferðar.
Erfiðustu og styggustu kindurnar eru oftast eftir á
fjalli eftir fyrstu leitir. Þær vilja ekki fylgja bestu leið-
unum og þarf því oft að leggja á sig mikið brölt og klif-
ur til að komast fyrir þær.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Eftirleitir í Mýrdal
KARLMAÐUR á fertugsaldri var
fluttur á slysadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss aðfaranótt laugar-
dags með talsverða áverka á höfði
eftir að tveir menn á þrítugsaldri
höfðu veist að honum fyrir utan veit-
ingastað í miðbænum.
Meiðsl ekki alvarleg
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu var árásin tilefnislaus og afar
fólskuleg. Þannig veittu árásar-
mennirnir manninum hnefahögg
með þeim afleiðingum að hann féll til
jarðar. Þá spörkuðu þeir í höfuð hans
þar sem hann lá varnarlaus á jörð-
inni.
Árásarmennirnir voru handteknir
en þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við lögregluna voru þeir í
fangageymslum og biðu þess að
verða yfirheyrðir.
Samkvæmt upplýsingum læknis á
slysadeild reyndust meiðsli manns-
ins ekki alvarleg en hann fékk að
fara heim að lokinni skoðun.
Að sögn lögreglu var nokkur fjöldi
fólks í miðbænum aðfaranótt laug-
ardagsins en lítið var um áflog og
læti.
Fólskuleg árás
í miðbænum LÖGREGLAN í Reykjavík hafði af-
skipti af tveimur mönnum vegna ofsa-
aksturs aðfaranótt laugardags en
mikið var um hraðakstur í miðborg-
inni. Annar mannanna mældist á 163
km hraða á Miklubraut en hann var
sviptur ökuréttindum á staðnum.
Hinn var tekinn á 125 km hraða á
Suðurlandsvegi við Rauðavatn. Sá er
sautján ára gamall og hefur haft öku-
réttindi í níu mánuði. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu var þetta í
fjórða skiptið sem hann var stöðvaður
vegna hraðaksturs. Lögregla ræddi
við móður piltsins af þessu tilefni en
hún hafði ekkert við háttalag sonar
síns að athuga og sagðist treysta hon-
um fullkomlega til þess að aka bifreið.
Misskilin
móðurást