Morgunblaðið - 08.10.2006, Blaðsíða 34
síminn
34 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Guðfinna S. Bjarnadóttir
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006
Valfrelsi og skapandi umhverfi
www.guðfinna.is
Í dag, sunnudaginn 8. október kl. 16:00, opnum við kosningaskrifstofu
Guðfinnu S. Bjarnadóttur í Landsímahúsinu við Austurvöll.
Við bjóðum alla velkomna til að kynna sér málefni frambjóðandans,
þiggja kaffiveitingar og njóta dagsins með okkur.
Við hlökkum til að sjá þig!
Stuðningsfólk Guðfinnu S. Bjarnadóttur
Kosningaskrifstofa
- opnum við Austurvöll
H
undrað ár er hár aldur
á fyrirtæki og verður
að segja að fyrirtæki
sem ná að lifa svo
lengi eiga það til að
verða stirð og varfærin. Brynjólfur
Bjarnason, forstjóri Símans, tekur
þó ekki undir það að Síminn sé fyr-
irtæki sem fari sér hægt, þvert á
móti megi segja að Síminn sé
fjörugri en nokkru sinni og ekki seg-
ir hann að menn ætli að staðnæmast
of lengi við afmælisfögnuðinn, Síma-
menn kjósi frekar að líta fram á veg-
inn en horfa sífellt um öxl. „Við ger-
um sögunni góð skil, gefum út bók og
gefum söfnum muni, en þar með er-
um við búnir að líta til síðustu hundr-
að ára og snúum okkur að næstu
hundrað árum, við ætlum okkur að
halda áfram að vera leiðtogar í
tækniþróun eins og hingað til, að
halda forystu í fjarskiptum á Ís-
landi,“ segir hann.
Verkfræðingabragur
Í gegnum árin hefur verið verk-
fræðingabragur á Símanum, ef svo
má segja, meiri áhersla lögð á að
grunntæknin sé traust en kynn-
ingar- og markaðsstarf. Brynjólfur
tekur undir þetta að nokkru leyti og
segir að vissulega hafi fyrirtækið
verið drifið áfram af tækniþekkingu,
„og reyndar hef ég þá skoðun að við
Íslendingar skuldum þeim tækni-
mönnum sem störfuðu hjá Símanum
mikið þakklæti fyrir það hversu vel
þeir hugsuðu um fjarskiptamál á Ís-
landi. Það sést kannski best af því
hvað við komum vel út úr sam-
anburði við önnur Evrópulönd í fjar-
skiptamálum þótt það sé eðlilega
mjög erfitt að að vinna að fjar-
skiptum á svo stóru og strjálbýlu
landi.
Þetta tæknidrifna fyrirtæki hugs-
aði því vel um tæknina, en fyrir
þremur árum fórum við í að end-
urskilgreina hlutverk okkar. Það
byggist á því að við erum að auðga líf
fólks með þjónustu að leiðarljósi. Allt
byggist það á ákveðnu hugarfari og
tekur sinn tíma að breyta þó það sé
allt að ganga eftir að mínu mati.“
Við erum inni á hverju einasta
heimili og inni hjá hverju einasta fyr-
irtæki á landinu, en við ætlum okkur
ekki bara að flytja símtöl, við ætlum
okkur líka að búa til vörur sem við
ætlum að flytja. Það verður eitt okk-
ar helsta verkefni á næstu árum, en
ég tel að á því sviði liggi okkar helstu
Í fjarskiptaheiminum
verður maður að fara hraðar
Síminn fagnaði því á
dögunum að hundrað ár
voru liðin frá stofnum
fyrirtækisins. Árni
Matthíasson ræddi af
því tilefni við Brynjólf
Bjarnason, forstjóra
fyrirtækisins.
Morgunblaðið/Sverrir
Framsýni Brynjólfur Bjarnason forstjóri Símans horfir fram á veginn á hundrað ára afmæli fyrirtækisins.