Morgunblaðið - 08.10.2006, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
TILKYNNING frá fundi herstöðva-
andstæðinga á Ísafirði og í nágrenni
sem haldinn var til að fagna brottför
varnarliðsins frá Keflavíkurherstöð-
inni:
Auðvitað er ástæða til að fagna
brottför hersins eftir sex áratuga
veru hér á landi. En þó er okkur efst
í huga hvað það er lítil reisn yfir
þessari brottför af hálfu íslenskra
ráðamanna. Við hefðum viljað sjá, og
það fyrir löngu, íslenska þjóð kasta
frá sér kotungshættinum og segja
upp varnarsamningnum með stolti
og lýsa yfir ævarandi her- og hlut-
leysi þjóðarinnar. Þá gætu Íslend-
ingar tekið að sér að verða leiðtogar
í friðarmálum heimsins. Þá hefði
verið gaman að lifa, í stað þess að sjá
enn og aftur undirlægjuháttinn sem
fær mann til að skammast sín. Enn
og aftur skríðum við fyrir Banda-
ríkjamönnum og samþykkjum
áframhaldandi heræfingar hér á
landi og þrífum upp óhroðann eftir
þá. Enn og aftur vælum við utan í
þeim þegar þeir sjá ekki lengur hag
sinn í lengri hersetu hér á landi. Enn
og aftur flöðrum við upp um þá eins
og lúbarðir rakkar og skiljum ekki
hvers vegna þeir vilja ekki gæta
okkar lengur fyrir vondu körlunum.
Eins og við höfum nú stutt þá dyggi-
lega í allri þeirra yfirgangsstefnu og
fyrirlitningu á öðrum þjóðum. Á við-
horfi íslenskra ráðamanna þarf að
verða breyting svo þjóðin geti borið
höfuðið hátt í alþjóðasamfélaginu.
Samtök herstöðvaandstæðinga í
Ísafjarðarbæ og í nágrenni.
fyrir hönd Samtaka herstöðva-
andstæðinga í Ísafjarðarbæ,
JÓNA BENEDIKTSDÓTTIR,
Fjarðarstræti 39, Ísafirði.
Brottför varnarliðsins
Frá Jónu Benediktsdóttur:
ÉG VELTI því stundum fyrir mér
hvort ég sé Íslendingur. Enda er það
orðin lenska að spámenn standa upp
og fullyrða að þjóðin vilji ekki þetta
eða hitt, með öðrum orðum þá verð
ég að vera sama sinnis svo ég sé
tækur í þjóðarhópinn. Ég veit
reyndar að rökþrota spámönnum er
tamt að nota slíkt upphróp og því
ástæðulaust að taka mark á upp-
hrópinu, enda hefi ég þráast við og
talið mig Íslending og haldið áfram
að greiða skatta og skyldur til þjóð-
félagsins. Spámennirnir hafa nú
fært sig uppá skaftið og tekið sér
umboð fyrir ófædda Íslendinga.
Hvar þeir hafa grafið upp umboðið
er mér ráðgáta, ef til vill hafa þeir
einhver himnesk sambönd við æðri
máttarvöld eins og keisararnir áður
fyrr. Einn ágætur skemmtikraftur
hefur nýtt þessa nýju hugmynd og
bætt henni á skemmtidagskrá sína
og er gaman að því, hitt væri verra
ef hann trúir því í raun að æðri mátt-
arvöld hafi fært honum umboð fyrir
þá ófæddu, það væri einskonar keis-
arakvilli. Mér finnst Austfirðingar
mikið ágætis fólk og áhugasamt um
að bæta sín lífskjör og auka verð-
mæti eigna sinna og það án þess að
seilast inn á svæði annara lands-
hluta. Í raun er undarlegt að þetta
fólk og framtak þess skuli eiga þó
nokkuð af óvildarmönnum. Bestu
óskir til Austfirðinga, nýtið þetta
tækfæri til að setja stoðir undir auð-
ugra mannlíf, meiri menntun og fjöl-
breyttari tækifæri.
STEINAR STEINSSON,
Holtagerði 80,
Kópavogi.
Keisara-
kvillar
Frá Steinari Steinssyni:
VATNALÓÐ Í HVAMMI,
SKORRADAL
Mjög falleg 6.800 fm vatnalóð við Skorradalsvatn. Lóðin er kjarrivax-
in og er mjög gott útsýni yfir nánast allt vatnið. Vegur kominn að
byggingarstað og vatn og rafmagn komið að lóðarmörkum.
Teikningar af 150 fm mjög glæsilegu húsi auk gestahúss geta fylgt
með. Mjög metnaðarfull uppbygging á sér nú stað í landi Hvamms.
Skorradalsvatn er eitt besta bátavatn landsins. Verð: tilboð.
Sölumaður Þórhallur, sími 896 8232. Dugguvogur - Til leigu
Gott tæplega 400 m² iðnaðarhúsnæði á jarðhæð. Rúmlega 5
metra loftæð, 5 metra háar innkeyrsludyr, öflugur
hlaupaköttur, niðurföll í gólfum, þriggja fasa rafmagn,
skrifstofa og afstúkað vinnurými. Nýmáluð gólf, nýtt salerni.
Hentar vel undir hvers konar iðnað eða lager.
Leiguverð 1.000.- kr/m²
Sími 511 2900
Áhugasamir hafið sambandi við skrifstofu
Leigulistans eða Böðvar s. 661 1120.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Um er að ræða glæsilegt nýtt 760 fm atvinnu-
húsnæði auk 250 fm steypts millilofts (skrifstof-
ur o.fl.), samtals stærð 1.012 fm. Mikil lofthæð,
nokkrar innkeyrsludyr, rúmgóð athafnalóð, út-
sýni (sjávarhæð) og frábær staðsetning. Hellu-
lögð lóð, góð aðkoma. Vönduð eign. Til afhend-
ingar nánast strax.
Upplýsingar gefur Helgi Jón á skrifstofu
Hraunhamars.
Vesturvör - Kóp.
Til leigu/sölu
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Sími 515 0500 www.fasteignakaup.is
FÉLAGASAMTÖK ÓSKA
EFTIR ÍBÚÐUM
Félagasamtök í Reykjavík óska eftir 6-8 íbúðum,
2ja til 3ja herbergja fyrir skjólstæðinga sína.
Íbúðirnar þurfa að vera í sama stigagangi eða á
sömu hæð með séraðgengi. Óskað er eftir að
húsnæðið geti verið til afhendingar hið fyrsta.
Nánari upplýsingar veita sölufulltrúar
Fasteignakaupa á skrifstofutíma.
Sími 575 8500 Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasali
Vorum að fá til útleigu í stærri eða smærri einingum ca 2.800 m² atvinnuhúsnæði
miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðið er í byggingu og verður það tilbúið til
afhendingar 10. ágúst 2007. Leigutaki getur haft áhrif á endanlega hönnun húsnæð-
isins ef um semst. Gert er ráð fyrir því að lofthæð verði allt að 8 metrar.
OPIÐ
VIRKA DAGA
FRÁ KL. 9-18
ATVINNUHÚSNÆÐI - MIÐSVÆÐIS Í GARÐABÆ
Fréttir á SMS
Fréttir
í tölvupósti