Morgunblaðið - 08.10.2006, Blaðsíða 36
kalda stríðið
36 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
U
m þessar mundir minn-
ast Ungverjar stórat-
burða sem urðu í landi
þeirra fyrir réttum 50
árum. Seint í október
1956 gerðu landsmenn uppreisn gegn
ríkjandi valdhöfum og steyptu þeim
af stóli, var það einstæð gerð í sögu
sovétblakkarinnar. Um sumarið áður
og haustið hafði verið mikil gerjun í
landinu, umræðufélög spruttu upp
hvarvetna þar sem áður ríkti þögn,
blaðskrifendur urðu áræðnari, stúd-
entar skutu á fundum og höfðu skoð-
anir á þjóðmálum.
Laugardaginn 6. október var uppi
fótur og fit á stúdentagarðinum í
Búdapest þar sem ég bjó og mér var
sagt að nú yrðu stórpólitískar að-
gerðir í bænum. Og ég fylgdist með
skólafélögum eftir breiðstrætum
langt austur í Pest á mér áður
ókunnar slóðir. Ónotaveður, rigning
og rok mun hafa verið þennan dag en
vorhugur ungversku félaganna hreif
mig og skapar mér endurminningu
um hauststillur! Þegar nálgaðist
Austurstöðina var orðið margt um
manninn og þar fyrir handan mann-
haf sem fyllti allar götur. Fólkið gekk
þögult enda að fara til útfarar á heil-
ögum minningardegi. Rúmum
hundrað árum fyrr, 6. október 1849,
lét landstjóri Franz Jósefs keisara
skjóta Lajos Batthyány forsætisráð-
herra í uppreisn Ungverja gegn
Austurríkismönnum, og sama dag
voru þrettán helstu herforingjar
Ungverja teknir af lífi. Skammvinnt
sjálfstæði Ungverja var á enda í það
skiptið. En nú skyldi minnast annars
manns og annarra atburða nær í tím-
anum: fólk var að minnast þess að
valdsjúkir sovétkommúnistar
frömdu dómsmorð á kommúnistan-
um László Rajk sjö árum fyrr. Það
stóð til að endurgreftra hann og
nokkra aðra menn sem dæmdir voru
saklausir; það var til marks um rót-
tækar breytingar að ríkið skyldi sjá
um útförina og sérstakur fulltrúi
Flokksins halda minningarræðu yfir
þeim sem áður voru taldir svikarar
við Málstaðinn.
Þrautaganga Júlíu Rajks
Okkur tókst nokkrum strákum að
komast gegnum mannþröngina og
inn í Kerepesi-kirkjugarðinn og rétt
að segja að heiðursverðinum kring-
um kistur Rajks og félaga.
Mér þótti ekkja Rajks, Júlía, fögur
kona og allt að því upphafin í sorg
sinni, og drengurinn við hlið hennar
var stilltur vel, fæddur árið sem faðir
hans var líflátinn. Nú sé ég á ljós-
mynd frá athöfninni að Júlía bar þess
merki að hafa þjáðst enda hafði hún
verið dæmd til fimm ára fangavistar.
Drengurinn var settur á munaðar-
leysingjahæli undir öðru nafni. Allt
frá því að viðurkennt var 1955 að
Rajk hefði verið saklaus hafði hún
barist hetjulegri baráttu fyrir því að
mega greftra lík manns síns og nú
hafði það loks tekist. Hins vegar var
þrautagöngu hennar ekki lokið; hún
var síðar um haustið, eftir að upp-
reisnin hafði verið barin niður, flutt
nauðug til Rúmeníu og geymd þar í
tvö ár á meðan Kádár, landstjóri
Rússa, var að festa sig í sessi. Júlía
var nefnilega stjórnmálakona í eigin
rétti, virk í starfsemi kommúnista
fyrir stríðslok, síðar beitti hún sér
einkum í kvennabaráttu, einnig á
uppreisnardögunum.
Næst sá ég til drengsins, László
Rajks yngra, árið 1989 þegar hann,
fertugur arkitekt, var hönnuður
hinnar áhrifamiklu skreytingar á
Hetjutorgi 16. júní þegar fram fór
minningarathöfn um Imre Nagy for-
sætisráðherra frá dögum uppreisn-
arinnar 1956. Þá voru líkamsleifar
Nagys og samstarfsmanna, sem
Kádár lét taka af lífi 1958, endur-
greftraðar við hátíðlega athöfn að
viðstöddum enn meiri mannfjölda en
fylgdi Rajk ríflega þrem áratugum
áður. Og nú eins og þá var endur-
greftrunin tjáning almannavilja og
jafnframt fyrirboði sögulegra at-
burða.
Það stigu á stokk ýmsir þekktir
menn við athöfnina yfir Rajk, þeirra
á meðal sjálfur aðstoðarforsætisráð-
herrann Antal Apró. Ferenc Münn-
ich flutti kveðju þeirra sem höfðu
verið sjálfboðaliðar í borgarastyrj-
öldinni á Spáni. Béla Szász talaði fyr-
ir þá sem lentu í Rajk-réttarhöldun-
um en lifðu af.
Hverjir voru hvar
Og svo var líka athyglisvert hverjir
voru viðstaddir og hverjir fjarstaddir
af valdamönnum tímans: Þarna stóð
Imre Nagy með sitt góðbóndalega
skegg, virðulegur eins og jafnan, með
regnhlífina á arminum. Hafði ýmist
verið innsti koppur í búri Flokksins
eða settur út af sakramentinu eins og
nú, en naut alltaf meiri hylli almenn-
ings en nokkur annar kommúnisti.
Hans beið innan tíðar mikið hlutverk
sem skipar honum á bekk meðal stór-
menna ungverskrar sögu. Fjarri
góðu gamni var Mátyás Rákosi, fyrr-
um alvaldur landsins, enda nú völd-
um sviptur og kominn í þá útlegð í
Sovétríkjunum sem hann átti aldrei
afturkvæmt úr. Ekki var þarna arf-
taki Rákosis, Ernö Gerö, sá illa þokk-
aði maður, reyndar þann daginn
staddur í Moskvu að ræða við vin
sinn Mikojan. Og ekki var þar ógn-
valdurinn Mihály Farkas, „Úlfur-
inn“, einn hinn grimmasti úr föru-
neyti Rákosis, en hann hafði einmitt
verið fangelsaður daginn áður og
beið ákæru fyrir drjúgan hlut sinn í
sýndarréttarhöldum yfir saklausum
og annarri lögleysu. En sannarlega
hefði átt að vera á samkomunni Já-
nos Kádár, eða hafði hann ekki verið
vinur Rajks heitins og samstarfs-
maður í hinum ólöglega kommúnista-
flokki á stríðsárunum? Hann kaus
heldur að vera í Moskvu við hlið Ge-
rõs og má finna gildar ástæður fyrir
því að hann muni ekki hafa langað til
að rifja upp fortíðina yfir jarðneskum
leifum Rajks.
Antal Apró sagði við útfararat-
höfnina: „Flokkurinn og ríkisstjórnin
fordæma harðlega það sem gerðist.
Við heitum því hér við gröf félaga
okkar að gera allt sem í okkar valdi
stendur til að þvílíkir voðaatburðir
gerist ekki aftur.“
Þegar á feril Aprós er litið má
segja að honum hafi ekki verið klígju-
gjarnt; hann var einstaklega lífseigur
stjórnmálamaður sem þjónaði öllum
herrum Flokksins í fjóra áratugi en
aldrei í fremstu röð, eins konar Björn
að baki Kára. (Þegar menn nú sækja
hart að Ferenc Gyurcsány, núver-
andi forsætisráðherra Ungverja, og
vilja knýja hann til afsagnar, leggja
það honum ýmsir til lasts að hann er
tengdasonur þessa sama Aprós. En
aðrir vilja meina að þar sé ólíku sam-
an að jafna. Ég ætla að Gyurcsány sé
ólíkt meiri stærð en Apró – orðið
apró merkir smár – hvort sem menn
vilja leita skálks eða skeleggs leið-
toga.)
Ég nefndi Ferenc Münnich meðal
ræðumanna, sjötugan lögfræðing í
utanríkisþjónustunni. Hann var
Spánarfari eins og Rajk, en kaus sér
það hlutskipti að standa yfir höfuð-
svörðum ungversku uppreisnarinnar
1956 ásamt Kádár og ganga síðan
næstur honum að völdum um hríð.
Síðastur talaði Béla Szász, sér-
kennilegur útlits með sitt snjóhvíta
hár, og ekki vissi ég þá hvílík ógn-
arörlög höfðu yfir hann gengið. Að
því komst ég fyrst liðlega þrem ára-
tugum síðar þegar ég las bók hans,
Án allrar þvingunar, en hún kom út á
Vesturlöndum 1963 þar sem höfund-
urinn fékkst lengi við blaðamennsku.
Hann hafði verið starfsmaður utan-
ríkisráðuneytisins ungverska í ráð-
herratíð Rajks og var handtekinn um
leið og húsbóndinn. Meiri hrylling í
misþyrmingum og pínslum en Szász
segir frá er vart hægt að hugsa sér;
eru þó kjarrkarlar þjóðanna sífellt að
efna í nýja kapítula í slíkum frásög-
um og megum við hugsa til dægurf-
regna nútímans í því sambandi.
Ætlunin var sú að Szász yrði eitt
helsta ljúgvitnið gegn Rajk en hann
neitaði allri samvinnu við handlang-
ara valdsins, hvað sem gengið var
nærri lífi hans. Á endanum var gefist
upp við að „undirbúa“ hann fyrir opin
réttarhöld og hann dæmdur fyrir
luktum dómi til margra ára fanga-
vistar.
Sagt skilið við „persónudýrk-
unina“
Ég er ekki lengur viss um að ég
hafi þennan útfarardag lesið forsíð-
ugrein Frjálsrar þjóðar (Szabad nép,
málgagn Flokksins) enda þá í raun-
inni enn stirðlæs á langt lesmál á
tungu landsmanna. Þar komu fram
sæmilega hreinskilnislegar játningar
um lögleysur sem framdar hefðu ver-
ið í nafni Flokksins en nú væri lögð
áhersla á það að segja skilið við „per-
sónudýrkunina“. Það var orðalag
Krústsjofs á 20asta flokksþinginu í
Moskvu um glæpi Stalíns. Ég hafði
skilið nóg af skrafi skólafélaganna til
að vita að nú væru þrengingar að
baki og bjart framundan. Þetta voru
hjartahreinir 18 ára sveinar utan af
landi, flestir þeirra höfðu mátt þola
hungur í upphafi menntaskólatíðar
sinnar þegar mest þrengdi að bænd-
um og iðnvæðingin var í hámarki (þar
hefði átt við kjörorðið: ál í hvert mál!)
Um það allt fræddist ég betur síðar,
orðinn sleipari í tungumálinu, við
trúnaðartal í þröngum hópi.
Nú væri frá mörgu að segja sam-
tímis, en hér verður að velja fátt eitt í
stuttu máli. Líklega hefir valdakjarn-
inn í Ungverjalandi talið að með svar-
dögum við gröf Rajks mundi hann
kaupa sér frið og vinna tíma en það
var nú eitthvað annað. Fólk hafði
fundið styrk fjöldans á götum Búda-
pestar 6. október og nú snarfjölgaði
fundum og kröfugerðum um ger-
breytt stjórnarfar og aðra menn til
valda. Hálfum mánuði síðar og
nokkrum dögum betur braust upp-
reisnin út, stjórnin valt og Imre
Nagy var kvaddur til að verða for-
sætisráðherra samkvæmt kröfu er
hljómaði um landið allt. Hér verður
ekki að sinni af þeim atburðum sagt
en haldið áfram að víkja að ýmsu er
varðar forsöguna, svo og persónum
og leikendum á sviðinu.
Þjóð í ánauð Flokksins
Ungverjaland hafði eftir heims-
styrjöldina lent sovétmegin í valda-
skiptingu stórveldanna og þremur-
fjórum árum eftir stríðslok var sov-
éthollur kommúnistaflokkur kominn
með öll völd í landinu. Þingræði var í
reynd afnumið og stjórnmálaflokkar
í eiginlegri merkingu orðsins lagðir
niður, frjáls félagasamtök vesluðust
upp, í stað fjölmiðlunar kom einmiðl-
un af hálfu valdaflokksins, öll efna-
hagsstarfsemi var gerð að hliðar-
verkefni stjórnmálanna, verkalýðs-
félög urðu afskiptalaus um kjaramál,
bændur voru gerðir ánauðugir eins
og verið hafði á öldum áður, skáldin
ortu fyrir skrifborðsskúffuna eða
sneru sér að hættulausum þýðingum,
öryggislögreglan varð helsta valda-
og eftirlitsstofnun Flokksins.
Aðalritari Flokksins, Mátyás
Rákosi, var af loftungum sínum kall-
aður „besti lærisveinn Stalíns“ og er
býsna vel til fundið. Valdagræðgi
hans var við brugðið, undirförull var
hann í besta lagi og hollur engum
nema húsbóndanum í Kreml. Rákosi
hafði byggt valdapíramíta í kringum
sig, á toppnum var hann sjálfur og
þrír nánustu samstarfsmenn, einn
þeirra hafði forræði í menningarmál-
um, annar í efnahagsmálum og hinn
þriðji sá um herinn. Allir höfðu þeir
dvalist í útlegð í Moskvu á millistríðs-
árunum og komu í kjölfar rauða hers-
ins til Búdapestar og tóku þar til við
að reisa ríkið úr rústum, en Ung-
verjaland hafði dregist inn í styrjöld-
ina við hlið Þjóðverja og raunar höfðu
innlendir fasistar hrifsað þar völdin
áður en yfir lauk.
Á árunum rétt eftir stríðið þegar
Rákosi og hans menn unnu að því að
ná undirtökum í valdakerfi landsins
var sá tvígreftraði László Rajk mjög
handgenginn fereykinu efst í píra-
míta Flokksins enda hafði hann mik-
ilsverðu hlutverki að gegna: hann var
innanríkisráðherra fram til 1948 og
byggði upp öryggislögregluna sem
samkvæmt sinni ungversku skamm-
stöfun hefir verið nefnd Avó á Vest-
urlöndum. Rajk hafði haft dálítið
annan feril í kommúnistahreyfing-
unni en þeir sem komu frá Moskvu,
moskóvítarnir; hann hafði dvalist um
skeið í álfunni vestanverðri og barist
við hlið lýðveldissinna á Spáni, á
stríðsárunum hafði hann verið í
heimalandinu við áróðursstörf á veg-
um hins bannaða kommúnistaflokks
en var gripinn og honum stungið inn.
Rétt áður en gera skyldi hann höfð-
inu styttri tókst bróður hans, hátt-
settum foringja hjá ungversku fasist-
unum, að skjóta honum undan.
Hollvinir Moskvu
Engin rök standa til þess að Rajk
hafi verið minna moskvuhollur en
fjórmenningarnir sjálfir; má meðal
annars sjá það af stöðu hans í al-
þjóðaherdeildinni á Spáni: þar var
hann pólitískur fulltrúi og flokksrit-
ari ungversku sveitarinnar. Nú vitum
við að helsta hlutverk slíkra manna
Í aðdraganda uppreisnar
AP
Uppreisnin Ungverskir uppreisnarmenn með ungverska fánann á lofti ofan á sovéskum skriðderka, sem þeir náðu
á sitt vald á torginu fyrir utan þinghúsið í Búdapest 2. nóvember 1956. Uppreisnin hófst 23. október, stóð í 11 daga
og var brotin á bak aftur með valdi. 2.500 manns létu lífið og 200 þúsund manns hröktust í útlegð.
Fyrir hálfri öld var upp-
reisnin í Ungverjalandi
brotin á bak aftur með
valdi Sovétríkjanna.
Hjalti Kristgeirsson rifj-
ar upp löngu liðna daga í
Ungverjalandi þegar
upprisa dauðra efldi
mönnum kjark.
Aðdragandinn Imre Nagy og frú
við endurgreftrun Lázló Rajk 6.
september 1956.
» Fólk hafði fundið
styrk fjöldans á göt-
um Búdapestar 6. októ-
ber og nú snarfjölgaði
fundum og kröfugerðum
um gerbreytt stjórn-
arfar og aðra menn til
valda.