Morgunblaðið - 08.10.2006, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 08.10.2006, Qupperneq 35
möguleikar og þeir eru nánast óþrjót- andi,“ segir Brynjólfur og bætir við að Síminn sé fjárhagslega sterkt fyrirtæki sem sé vel búið tækni og með mikla þekkingu hjá starfsfólki. „Við það bæt- ist mikill vilji hjá nýjum eigendum til að leggja meira fé til nýrra verkefna. Okk- ar bíður svo að vinna úr þessu.“ Á undanförnum árum hefur verið áberandi aukin áhersla Símans á að sinna ekki bara gagnaflutningum, held- ur að færa sig ofar í virðiskeðjunni, út- vega efni til flutnings og jafnvel fram- leiða það. „Ekki grunaði mig til dæmis þegar ég byrjaði hjá þessu fyrirtæki ár- ið 2002 að ég yrði sjónvarpsstjóri,“ seg- ir Brynjólfur og hlær við. „Gagnvirkt sjónvarp er gott dæmi um það sem við erum að gera og 25.000 heimili á Íslandi nota sér gagnvirkt sjónvarp í dag,“ seg- ir hann og bætir við að hann treysti sér til að fullyrða að Síminn sé fremsta fyr- irtæki í Evrópu á þessu sviði. „Haustið 2004 fóru menn frá okkur til Danmerkur að kynna sér það sem Danir voru að gera á þessu sviði, en þeir ætluðu að byrja með gagnvirkt sjónvarp síðasta haust, en ekkert varð úr. Þegar ég ræddi síðan við forstjóra TeleDanmark í sumar um þessi mál og sagði honum hvað við værum komnir langt sagði hann: Nú ætla ég að senda hóp til Íslands, þið eruð komnir langt framúr okkur. Þetta er ekki eina dæm- ið um það hve langt við höfum náð, því við fáum einnig símhringingar frá er- lendum fyrirtækjum sem spyrja okkur hvernig við fórum að því að leysa ýmis vandamál.“ Fjarhjúkrun og nýtt farsímakerfi Síminn hefur ekki bara haslað sér völl í sjónvarpsþjónustu heldur hefur hann boðið upp á sitthvað fleira, til að mynda öryggisþjónustu fyrir heimili, og er með margt í bígerð. „Við erum til dæmis með í tilraunastarfsemi nokkuð sem við köllum fjarhjúkrun, en sú þjón- usta byggist á því að læknir getur at- hugað blóðþrýsting hjá sjúklingi á heimili hans, sem hefur eðlilega í för með sér mikinn sparnað og hagræði fyrir sjúklinginn. Það er líka stutt síðan við settum af stað þjónustu sem við köllum Safnið sem hefur verið mjög vel tekið, en í því getur fólk geymt heimilismyndirnar á einum stað og skoðað í sjónvarpinu sínu hvenær sem því hentar eða leyft öðrum að skoða þær. Þetta er mikið hagræði fyrir fólk sem er með stafrænar myndavélar og öryggi líka, því við tök- um til að mynda afrit daglega. Annað atriði sem nefna má um fram- tíðarþjónustu snýr að NMT-far- símakerfinu gamla sem hefur verið mjög mikilvægur öryggisþáttur hér á landi í fjöldamörg ár. Nú er það kerfi að detta út, enda ekki lengur hægt að fá þjónustu varðandi búnaðinn, varahluti og álíka. Við erum því komnir með til- raunaleyfi að nota tækni sem kallast CDMA 450 og mun leysa NMT-kerfið af hólmi, enda er það mjög langdrægt kerfi. Ég býst við að það verði tekin ákvörðun um það á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.“ Einstaklingsmiðuð sjónvarpsþjónusta Stóra byltingin í sjónvarpsnotkun á undanförnum árum hefur verið það sem kallað hefur verið time shifting, en þá velur fólk tíma til að horfa á dag- skrárliði í stað þess að velja dag- skrárliði eftir tíma. Með öðrum orðum, gagnvirk sjónvarpsþjónusta er ein- staklingsmiðuð þjónusta og í stað þess að allir séu að horfa á það sama á sama tíma horfir hver á það sem hann vill þegar honum hentar, hver og einn er sinn sjónvarpsstjóri hvort sem hann vill horfa á fréttir, fræðslu- eða skemmti- efni. Eins og getið er hefur Síminn einmitt sótt fram á þessu sviði, byggt upp staf- rænt gagnvirkt sjónvarp, Skjáinn. Eins er efni framleitt á vegum Skjásins, en aðspurður hvort sækja eigi frekar fram í þeim efnum svarar Brynjólfur því til að áform Símans í efnisgerð og öðru slíku séu ekki stórtæk. „Við ætlum til dæmis ekki að byggja upp frétta- stofu eins og NFS, en okkur er aftur á móti engin launung á því að við er- um með margs konar samstarf í at- hugun. Kannski eigum við eftir að semja við Morgunblaðið sem er með sjónvarpsstúdíó í nýju húsi upp í Há- degismóum,“ segir Brynjólfur og kímir. „Það er annars mjög hart barist um efni og við eigum við mjög ramm- an reip að draga þar sem 365 er með ráðandi markaðsstöðu á efni. Við verðum vitanlega að laga okkur að því og rekum Skjáinn í samræmi við það, en hann er líka réttum megin við núllið. Síðan erum við í íþróttunum og endurvarpi á erlendum sjónvarps- stöðvum, sem hefur verið miklu vin- sælla en við áttum von á, og erum byrjaðir á því að dreifa merkjum sjónvarpsstöðva 365.“ Samskiptaformið breytist Af ofangreindu er ljóst að síma- þjónusta verður æ minni hluti af starfsemi Símans, ekki vegna þess að símanotkun sé að minnka, heldur vegna þess að önnur þjónusta eykst mun hraðar. Brynjólfur segir og að samskiptaformið sé að breytast – það fari ekki lengur allt fram í orðum í síma, heldur fari samskipti fram með ýmsum leiðum, með ýmiskonar gagnaflutningi, tali, mynd og texta. „Síminn hefur vakið athygli í Evrópu fyrir að vera með það sem menn kalla quadruple play – símaþjónustu, farsímaþjónustu, gagnaflutning og sjónvarp. Mörg evrópsk fyrirtæki líta því til okkar sem góðs þróun- artækis þar sem prófa má nýjar hug- myndir og nýja þjónustu og við stefnum líka að því að sækja auknar tekjur ytra. Við fylgjum við- skiptavinum okkar, íslensk fyrirtæki sem hafa komið sér fyrir úti í heimi, og erum til dæmis búnir að opna skrifstofu í London til að þjónusta þau fyrirtæki. Í því samhengi gerð- um samning við Orange, áður French Telecom, sem er gríðarlega stórt fyrirtæki í símaþjónustu og er- um komnir inn í þeirra kerfi. Við er- um líka að leita fyrir okkur að við- skipta- og fjárfestingatækifærum erlendis, en hvað það síðarnefnda varðar erum við að leita annars veg- ar að fyrirtækjum sem eru með eigin fjarskiptakerfi og hinsvegar að fyr- irtækjum sem veita þjónustu á fjar- skiptakerfum,“ segir Brynjólfur og bætir við að næstu hundrað ár verði mjög spennandi að sínu viti. „Munurinn á því að vera í sjávar- útvegi og á fjarskiptamarkaði er að- allega sá að í sjávarútvegi fjárfestir maður í togara, ýtir honum úr vör og segir gangi ykkur vel. Í fjarskipt- unum ákveður maður að fara út í ákveðna tækni og leggja 500 millj- ónir í hana. Svo labbar maður út úr herberginu og er rétt kominn fyrir hornið þegar einhver kemur hlaup- andi með blað í hendinni og segir: Þetta er úrelt, við verðum að kaupa eitthvað annað. Maður verður að vera tilbúinn til að skipta um kubb í hausnum á sér, reiðubúinn að af- skrifa tæknina hraðar og í sumum tilfellum strax vegna þess að eitthvað nýtt hefur komið í staðinn. Þetta hef- ur verið okkur Íslendingum erfitt, við höfum viljað nýta hlutina vel en í fjarskiptaheiminum verður maður að fara hraðar.“ » Fjarhjúkrun er til- raunastarfsemi en sú þjónusta byggist á því að læknir getur athugað blóðþrýsting hjá sjúklingi á heimili hans. arnim@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 35 www.si.is Fjárhagslega hvata þarf til rannsókna- og þróunarstarfs innan fyrirtækja líkt og Norðmenn, Svíar, Frakkar og fleiri hafa tekið upp. Besta leiðin til þess er að koma á fót endurgreiðslukerfi vegna viðurkenndra rannsókna- og þróunarverkefna. Endurgreiðslur eiga að geta numið allt að 20% kostnaðar en með tilteknu þaki. Skattkerfið verði nýtt í þessu samhengi þannig að þau fyrirtæki sem greiða tekjuskatt fá afslátt en þau sem ekki greiða skatt fá endurgreiðslur. Kerfið er sniðið að norskri fyrirmynd sem ber heitið SkatteFUNN. Úr stefnu Samtaka iðnaðarins Tekið er við skráningu á fundinn á netfangið skraning@si.is eða í síma 591 0100 Samtök iðnaðarins hafa fengið Ragnhild Rønneberg, framkvæmdastjóra SkatteFUNN í Noregi, til að kynna þetta athyglisverða kerfi og reynsluna af því - en hátt í sex þúsund rannsókna- og þróunarverkefni norskra fyrirtækja njóta góðs af því um þessar mundir. Sjá nánar áskorun til ríkisstjórnarinnar, stefnu SI og tillögur á www.si.is Morgunverðarfundur Samtaka iðnaðarins þriðjudaginn 10. október á Grand Hótel frá 8:30 til 10:00 - Ávinningur fyrir alla - Endurgreiðsla vegna rannsókna- og þróunarstarfs
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.