Morgunblaðið - 08.10.2006, Side 37
var að grafa undan stjórnleysingjum
og öðrum þeim lýðveldissinnum sem
Stalín hafði ímugust á (að slíku er
vikið í trúverðugri skáldsögu Álf-
rúnar Gunnlaugsdóttur, Yfir Ebro-
fljótið). Að vísu er hugsanlegt að
Rajk hafi sýnt linkind í þessu starfi á
Spáni en framganga hans í því að
gera öryggislögregluna í Ungverja-
landi að valdatæki Flokksins eina
gerir það nú ekki líklegt. Hann hafði
forgöngu um að banna fjölmörg sam-
tök og félög „borgaralegra afla“ og að
hans frumkvæði var efnt til fyrstu
réttarhaldanna sem byggðust á upp-
lognum sökum. Rajk var því alger-
lega samstiga fereykinu í því að koma
á alræði Flokksins. En hvað gerist?
Að skipan Rákosis var hann færður
til í ráðherraembætti og settur yfir
utanríkismálin rétt um það bil sem
Flokkurinn treysti völd sín á árinu
1948. Og árið eftir, vorið 1949, var
hann handtekinn og sakaður um
drottinsvik, landráð, samstarf við
skálkinn Tító í Júgóslavíu enda hefði
hann verið erindreki leynilögregl-
unnar í heimalandi sínu þegar fyrir
stríð. Réttarhöld voru sett á svið,
Rajk fór með rulluna sem Rákosi
hafði samið handa honum, var síðan
dæmdur dauðamaður og tekinn af lífi
haustið 1949. Samferða honum til
heljar urðu nokkrir þjóðþekktir
menn, einnig kommúnistar.
Játaði á sig fáránlegar sakir
Nú er vitað að Rajk meðgekk ekki
auðveldlega, fyrrverandi undirmenn
hans í öryggislögreglunni mis-
þyrmdu honum vikum saman og
gengu nærri lífi hans en harkan virt-
ist óbugandi. Þar kom ekki lát á fyrr
en „Úlfurinn“, einn af fjórmenning-
unum, og annar maður til, János
Kádár, eftirmaður hans á stóli innan-
ríkisráðherra, komu til hans um nótt
og sárbændu hann að gera það fyrir
Flokkinn að játa á sig hinar fárán-
legu sakir til að Sovétríkin mættu
styrkjast í baráttunni gegn heims-
valdasinnum og svikaranum Tító. Þá
fyrst mýktist Rajk og lét undan enda
var honum heitið fullum griðum.
Dauðadómurinn yrði einungis leik-
sýning og hann fengi sældarlíf í Sov-
étinu að launum. Annað kom á dag-
inn en eigi að síður hrópaði hann „lifi
Sovétríkin“ frammi fyrir aftökusveit-
inni.
Orð um János Kádár. Hann var
handgenginn Rajk og vinur hans allt
frá stríðsárunum, orðinn æðsti yfir-
maður lögreglunnar þegar Rajk var
pyntaður, dæmdur og skotinn, síðar
sjálfur sviptur embætti og ákærður
fyrir svik við Flokkinn, sat í dýflissu
um skeið og sagður hafa sætt pynt-
ingum (sem ýmsir hafa dregið í efa:
„það þurfti ekki nema rétt að sýna
áhöldin, þá streymdu upp úr honum
játningarnar,“ er haft eftir kunnug-
um manni), ráðherra í ríkisstjórn
Imre Nagys á uppreisnardögunum,
en sneri snældu sinni og tók að sér
landstjórahlutverk í umboði Sovét-
manna eftir að þeir höfðu með her-
valdi kæft byltinguna í nóvember
1956 og var herra Flokks og lands
næstu þrjá áratugina. Og eins og áð-
ur sagði: Kádár taldi að forsætisráð-
herra uppreisnarinnar lifandi væri
ógnun við veldi sitt, og því kaus hann
honum snöru um háls 16. júní 1958.
Af nýrri kvikmynd Mörtu Mészáros-
ar um líf og dauða Imre Nagys,
sýndri hér í Þjóðarbókhlöðu 19. júní í
sumar á vegum ungverska sendiráðs-
ins, verður ekki annað skilið en Kád-
ár hafi ákveðið þetta án þrýstings frá
sovétstjórninni. (Kvikmyndaleik-
stjórinn Márta Mészáros er náin vin-
kona Elísabetar dóttur Nagys, báðar
börn útlægra kommúnista í Moskvu
fyrir heimsstyrjöldina.) Kádár lést í
hárri elli fáum vikum eftir endur-
greftrun Imre Nagys 1989, sama dag
raunar og Nagy fékk formlega upp-
reisn æru hjá æðsta dómstóli lands-
ins. Kádár, valdsins maður með
flekkaðar hendur, fékk viðhafnarút-
för að valdsins hætti en hann rís aldr-
ei upp úr gröf sinni aftur, ólíkt þeim
Rajk og Nagy fórnarlömbum sínum.
Endurgreftrun verður upprisa
Það er meðal sérkenna í ung-
verskri sögu hve mikið fer fyrir af-
tökum og útförum sem hafa greypst í
minni þjóðarinnar og orðið tilefni op-
inberra minningardaga. 6. október er
minningardagur svonefndra píslar-
votta frá 1849, og sá dagur var valinn
til endurgreftrunar Rajks til að
leggja áherslu á píslarvætti hans.
Endurgreftrunin varð hans upprisa
ekki ósvipað og gerðist með Imre
Nagy 16. júní löngu síðar. Fáir hygg
ég að vilji muna Rajk nú fyrir verk
sem hann vann í lifanda lífi og skilur
þar með þeim Nagy. En upprisudag-
ur Rajks 6. október 1956 varð beinn
undanfari uppreisnarinnar seinna í
mánuðinum. Á þeim degi mátti
margt læra. Fyrir það er hann eft-
irminnilegur.
1956
Höfundur var við nám í Ungverja-
landi árið 1956.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 37
Brotherhood í kvöld kl. 22.30
„Ef þú fylgist bara með einni
þáttaröð, hafðu það Brotherhood“
- Mike Garron, Hollywood Reporter
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
3
6
7
8
SKJÁREINN næst í gegnum Skjáinn og Digital Ísland
Þáttaröðin Brotherhood hefur fengið frábæra dóma í erlendum fjölmiðlum og þykir
sannkallað meistaraverk. Þættirnir fjalla um tvo ólíka bræður. Annar er efnilegur stjórn-
málamaður en hinn er forhertur glæpamaður. Nú reynir á bræðraböndin.
Brotherhood í kvöld kl. 22.30
Hómópatanám
Um er að ræða 4 ára nám sem byrjar
21. og 22. okt. á vegum College of
Practical Homoeopathy í Bretlandi.
Mæting 10 helgar á ári í Reykjavík.
Kynning á náminu verður 20. okt.
Upplýsingar gefur Martin í símum
567 4991 og 897 8190.
Hómópataskólinn - Stofnaður 1993
www.homoeopathytraining.co.uk