Morgunblaðið - 08.10.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 08.10.2006, Blaðsíða 40
leiðtogar 40 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Ég var staddur í Þýzkalandi,þegar ákvörðunin umReykjavík kom. Ég var að koma frá leiði Nonna með Max Ade- nauer, konsúl okkar og borgarstjóra í Köln, þegar miði var settur á rúðuna þar sem ég sat; „Reagan-Gorbachev- Reykjavík“ stóð á honum. Ég breytti öllum mínum áætlunum og rauk heim. Fyrst var talað um að halda fund- inn á Hótel Sögu, sem hefði efalaust orðið þægilegra fyrir alla meðreið- arsveinana heldur en Höfði, sem varð ofan á. Ég held að Nick Ruwe, sendi- herra Bandaríkjanna, hafi bent á Höfða. 1986 höfðu verið borgarstjórn- arkosningar í maí og þá sló Alþýðu- blaðið því upp í kosningabaráttunni, að ég hefði ekki gert upp allan kjall- arann í Höfða, heldur komið þar upp einkabar, sem átti að hafa kostað stórfé. Sannleikurinn var sá, að það voru tvö herbergi, sem ekki höfðu verið löguð við endurbyggingu húss- ins, sem voru gerð upp og annað þeirra kyndiklefinn. Og einkabarinn sem átti að vera gerði held ég út- slagið á það að hægt var að halda fundinn í Höfða, því plássið í húsinu stóð í járnum. Þetta kosninga- hneyksli varð því til góðs eftir allt saman! Valið stóð á milli Reykjavíkur og London. Lega landsins mitt á milli Moskvu og Wahsington hafði sitt að segja, en ég held að Reykjavík hafi orðið ofan á vegna þess að íslenzkir stjórnmálamenn voru ekki líklegir til að reyna að blanda sér í málin. Það hefði verið erfiðara fyrir þá í London með Thatcher á hliðarlínunni. Hér fengu þeir frið fyrir forystumönnum, þótt þeir ættu auðvitað með þeim stutta kurteisisfundi. Ég held ég hafi verið eini opinberi fulltrúinn sem hitti þá Reagan og Gorbachev saman. Ég beið inni í Höfða með borgarstjórakeðjuna á brjóstinu til að afhenda þeim húsið til fundahaldanna. Svo var ég líka með gestabók, sem ég hafði látið gera úr geitaskinni. Reyndar höfðu fulltrúar þeirra sagt mér fyrir fundinn, að ég gæti gleymt gestabókinni því þeir myndu ekki skrifa á eitt eða neitt í Höfða. Ég hafði samband við Matt- hías Á. Mathiesen, sem þá var utan- ríkisráðherra, en hann hringdi í mig til baka og sagði menn harðneita því að leiðtogarnir myndu skrifa í gesta- bókina. Mér fannst þetta nú hart, eft- ir allt saman var það Reykjavík- urborg sem lánaði húsið til fundarins og mér fannst það satt að segja ekki til of mikils mælzt að leiðtogarnir kvittuðu fyrir lánið! Ég hafði líka samband við Steingrím Her- mannsson forsætisráðherra, en hann bar til baka þau svör, að bæði Kreml og Hvíta húsið harðneituðu. Þrátt fyrir þetta ákvað ég að tölta með bók- ina inn í Höfða og þegar Reagan kom, þá spurði ég hann hvort hann myndi vilja skrifa í gestabókina. Ég sá að þessi bón olli titringi meðal manna, en Reagan sagði strax já og svo Gor- bachev líka. Síðan kom öll strollan og skrifaði í bókina, Shultz og Shev- ardnadze og þeir allir. Þegar ég fór hugsaði ég með mér að bezt væri að taka bókina með mér; þeir gætu alltaf fundið upp á því að rífa síðuna úr henni, svo ég labbaði út með gesta- bókina undir hendinni. Nú er hún lítil gersemi í Höfða. Það var náttúrlega rosalegur gauragangur hjá borginni í sambandi við fundinn, enda bara 10 dagar til stefnu. Slíkt hentar okkur Íslend- ingum reyndar vel, við erum menn uppgripa og vertíðarstemmningar. Af hálfu borgarinnar voru lykilmenn- irnir í undirbúningnum þeir Þórður Þorbjarnarson, Stefán Hermannsson og Magnús Óskarsson. Það var í mörg horn að líta og margar lausnir sérstæðar, en stóðu fyrir sínu; til dæmis var sett plata yfir baðkarið uppi og það notað sem fundarborð! En þrátt fyrir frumstæðar aðstæður gekk fundurinn vel. Reyndar kviknaði í ruslafötu í kjallaranum meðan KGB-mennirnir voru að fylgjast með þremenning- unum Rip, Rap og Rup, en þeir gátu nú sem betur fer slitið sig frá sjón- varpinu og slökkt í ruslafötunni! Þeir vildu taka út koparborðið í Höfða og láta leiðtogana sitja í stól- um horn í horn. En ég neitaði að borðið yrði sett út. Svo kom Reagan. „Hvar eigum við að sitja?“ spurði hann. „Hérna, herra forseti,“ sögðu þeir og bentu í hornið. „Nei. Við sitj- um við borðið,“ sagði forsetinn og að- stoðarmennirnir horfðu á mig mann- drápsaugum! En það var auðvitað ekki hægt að ætla þeim að sitja í þessu návígi allan fundinn og forset- inn sá strax í hendi sinni að það hent- aði ekki. Magnús Óskarsson tók sig til og án þess að menn tækju eftir því skellti hann borgarmerkinu í blómvönd, sem skyldi standa milli leiðtoganna. Þess vegna er merki Reykjavík- urborgar á öllum myndunum. Ef menn leyfa sér slíkt, þá er heil- mikið hægt.“ – Þegar ég ók framhjá Höfða áðan var hópur ferðamanna þar fyrir utan. „Já. Höfði er vinsæll hjá ferða- mönnum. Eftir leiðtogafundinn feng- um við aragrúa fyrirspurna að utan, sérstaklega voru Japanar áhuga- Gestabókin var geymd en ekki gleymd Davíð Oddsson var borgarstjóri í Reykjavík þegar leiðtogafundurinn fór fram í Höfða. Hann deildi nokkrum minningum með Freysteini Jóhannssyni. Upphafið. Davíð Oddsson borgarstjóri tekur á móti Reagan og Gorbachev fyrir fyrsta fund þeirra í Höfða. » Það var í mörg hornað líta og margar lausnir sérstæðar, en stóðu fyrir sínu; til dæmis var sett plata yf- ir baðkarið uppi og það notað sem fundarborð! 210–215 línur fyrir síma til útlanda og þar af eru um 180–190 fyrir tal en hinar línurnar fyrir telex og annað slíkt,“ útskýrði Ólafur Tóm- asson póst- og símamálastjóri í samtali við Morgunblaðið. Hann ofmat síst álagið sem fréttaflutningurinn átti eftir að hafa í för með sér og a.m.k. sjö erlendar sjónvarpsstöðvar fluttu sínar eigin jarðstöðvar til landsins til að tryggja útsendingar til heimalanda sinna. Krakkarnir í Mela- og Hagaskóla kættust yfir óvæntu haustfríi þegar húsnæði skólanna var lánað fyrir fréttaþjónustu vegna fundarins og sett var upp alþjóðleg blaðamannamiðstöð í Hagaskóla sem og minni miðstöð á Hótel Loft- leiðum. Beðið í eftirvæntingu Að kvöldi 9. október 1986 steig Reagan Bandaríkjaforseti á íslenska grund en Gorbac- hev og kona hans Raisa lentu um tvöleytið daginn eftir. Stóra stundin rann svo upp í Höfða 11. október þegar leiðtogarnir tveir mættust fyrri fundardaginn en lítið var hægt að veiða upp úr þeim um gang viðræðna að fundi loknum. Daginn eftir drógust samræður þeirra á langinn og jukust vonir manna um að viðræðunum myndu lykta með samkomulagi til muna þegar tilkynnt var um að þeir myndu halda aukafund síðar sama dag. Í eftirvæntingu biðu fréttamenn víðs vegar um veröld eftir því að sjá dyrahúninum á Höfða snúið og þeir yrðu leiddir í allan sann- leik um niðurstöður aukafundarins. Loks birt- ust þessir tveir valdamestu menn heims, þung- búnir á svip og á blaðamannafundum, sem fylgdu í kjölfarið, var tilkynnt um að viðræðun- um hefði lokið án samkomulags. Ástæðan var ágreiningur um geimvarnaráætlun Banda- ríkjastjórnar sem Gorbachev lagði mikla áherslu á að horfið yrði frá en Reagan vildi ekki gefa eftir. Viðbrögð heimspressunnar létu ekki á sér Alvarlegur Klukkutíma eftir að viðræðum var slitið greindi Gorbachev frá niðurstöðum fundarins. Til hægri er er Alexander Yakolev en Eduard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkj- anna er til vinstri. George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna hélt hins vegar blaðamannafund á Loftleiðum þar sem hann greindi frá niðurstöðunum fyrir hönd Bandaríkjamanna. Annríki Komið var upp miðstöð fréttamanna á Loftleiðahótelinu þaðan sem símalínur voru rauðglóandi allan sólarhringinn. Morgunblaðið/Einar Falur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.