Morgunblaðið - 08.10.2006, Síða 41
samir og þeir spurðu meðal annars,
hvort við ætluðum virkilega að nota
Höfða áfram, þennan helgidóm sem
húsið væri orðið.“
– Af hverju þessi sérstaki áhugi
Japana?
„Reynslan af kjarnorkusprengj-
unum er brennd inn í japanska þjóð-
arsál. Það er eitthvað við þetta litla
hús svona nálægt friðnum, sem höfð-
ar til þeirra.
Þeir reistu meira að segja eins hús
í Japan og ég hef komið í það. Höfði
er í þeirra augum helgistaður.
Auðvitað er sjálfsagt að nota húsið
áfram, en við eigum að leyfa því að
bera áfram svipmót þess merka at-
burðar, sem þar átti sér stað. Það var
til dæmis alveg ótrúleg vitleysa að
fjarlægja myndina af Bjarna Bene-
diktssyni. Þótt menn verði borg-
arstjórar og séu eitthvað pirraðir út í
pólitíska andstæðinga er óþarfi að fá
útrás með þessum hætti.
Menn héldu nú lengi vel að
Reykjavíkurfundurinn hefði svo sem
ekki verið neitt merkilegur fundur.
En nú er það almenn skoðun að í
Höfða hafi gerzt mjög merkilegur
hlutur. Þar brutu stórveldin ísinn og
málin komu upp á borðið og hefðu
kannski þokazt lengra, ef Gorbachev
hefði verið sterkari leiðtogi en hann
þá var og getað tekið af skarið.
Ég var einmitt að fá í hendurnar
bók, þar sem kemur fram að Reagan
stakk upp á því að þeir hittust aftur í
Reykjavík 1996.“
Davíð sýnir mér bókina Kalda
stríðið – ný saga eftir John Lewis
Gaddis; útgefandi The Penguin
Press, New York 2005.
Og þar er framtíðarsýn forseta
Bandaríkjanna svo lýst:
„Þeir Gorbachev myndu koma til
Íslands, hvor um sig með sínar síð-
ustu kjarnaflaugar í farangrinum.
Síðan myndu þeir slá upp heljarmik-
illi veizlu fyrir alla heimsbyggðina …
Forsetinn … væri orðinn mjög aldr-
aður og Gorbachev myndi ekki
þekkja hann aftur. Forsetinn myndi
segja: „Halló, Mikhail!“ Og Gorbac-
hev myndi segja: „Ron, ert þetta þú?“
Svo myndu þeir eyða síðustu eld-
flaugunum.“
freysteinn@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 41
Hlemmur
Hverfisgata
Kosningamiðstöðin
verður opnuð í dag
Í dag, sunnudaginn
8. október kl. 15, verður
kosningamiðstöð Björns
Bjarnasonar opnuð að
Skúlagötu 51.
Góð dagskrá og léttar
veitingar í boði. Komdu
og fagnaðu með okkur.
Samstaða til sigurs!
Stuðningsmenn
Prófkjör sjálfstæðismanna
í Reykjavík, 27. og 28. október
www.bjorn.is
standa og var niðurstöðunni lýst sem áköfum
vonbrigðum. Skipti þá engu þótt miðað hefði í
samkomulagsátt um fækkun langdrægra eld-
flauga og meðaldrægra flauga í Evrópu og As-
íu. Sumir gengu svo langt að segja að viðræð-
urnar hefðu mistekist.
Menn virðast þó hafa verið heldur fljótir á
sér, a.m.k. ef litið er til þess hvernig sagan hef-
ur dæmt fund leiðtoganna tveggja í Reykjavík
þetta haust. Niðurstaða flestra fræðimann-
anna, sem komu saman til ráðstefnu í tilefni af
tíu ára afmæli fundarins, var að „hann hefði
skipt sköpum í þróun afvopnunarmála og jafn-
vel markað tímamót í sögu tuttugustu ald-
arinnar“, svo vitnað sé til greinar í Morg-
unblaðinu 11. október 1996. Í kjölfar fundarins
hafi samskipti stórveldanna batnað og á hon-
um hafi verið lagður grunnur að tveimur af-
vopnunarsamningum; START-sáttmálanum
um helmings fækkun langdrægra flauga og
INF- sáttmálanum um að eyða meðaldrægum
flaugum. Enda hefðu Sovétmenn gert tilslak-
anir í Reykjavík sem síðar urðu ekki dregnar
til baka.
Dóttir Reagans, Maureen, sagði föður sinn
alltaf hafa sagt að fundurinn í Reykjavík hefði
markað mikil tímamót. Þáverandi skrif-
stofustjóri Bandaríkjaforseta, Donald T. Reg-
an gekk þó enn lengra og lét hafa eftir sér að
skrá yrði fundinn sem sigur fyrir mannkyn.
Utanríksmál Mikill handagangur var í öskjunni þegar leiðtogafundurinn var haldinn. Stein-
grímur Hermannsson forsætisráðherra svarar spurningum blaðamanna um skipulag fundarins.
Morgunblaðið/RAX
Léttur andi „Við áttum reyndar að heilsast þarna niðri,“ mun Reagan hafa sagt við Gorbachev
er þeir mættust við dyr Höfða fyrir fyrsta fund. Brúnin var þyngri við lok fundar daginn eftir.
Morgunblaðið/RAX
Rabbað saman Forseti Íslands hitti leiðtog-
ana tvo sitt í hvoru lagi fyrir fundina í Höfða.
Eftir fundinn með Reagan sýndi Vigdís Finn-
bogadóttir honum umhverfi Bessastaða.