Morgunblaðið - 08.10.2006, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 08.10.2006, Blaðsíða 65
framt stolti yfir því að hafa verið frænka þín. Hanna Þórunn Skúladóttir. Gærdagurinn er liðinn og genginn á fortíðar vit. Morgundagurinn er ekki runninn upp og í honum felast fyrir- heit um vonir og væntingar. Dagurinn í dag en núið, úr honum sköpum við framtíðina því allar gjörðir hafa sínar afleiðingar. Ekkert stöðvar tímans þunga nið. Hann líður hratt, dagur er að kveldi kominn áður en maður veit af. Allt styttist – tíminn og lífið haldast í hendur. Það eru misjöfn verkefnin sem lífið leggur fyrir okkur. Sum eru auðveld og skemmtileg en önnur svo erfið að þau virðast okkur um megn. Eitt af þessum erfiðu verkefnum er að horfa upp á ástvini kveljast, þjást og að lokum kveðja í hinsta sinn. Lífið er ekki sjálfgefið og það kemur ekki aft- ur ef það slokknar. Nú er Naný frænka mín horfin til himnaföðurins. Hún barðist við illvíg- an sjúkdóminn með reisn og líf hennar hafði tilgang til síðustu stundar. En hver er tilgangur lífsins? Kannski að: vakna við fagran fuglasöng, finna ilm- andi kaffilykt, hlusta á töfrandi tóna- flóð, dásama dýrð náttúrunnar og feg- urð sköpunarinnar, horfa á börnin sín heilbrigð og hamingjusöm, heyra hjal barnabarnanna sinna, gefa og gleðjast yfir stóru sem smáu, njóta og finna til – líka með öðrum, elska og vera elskuð – af sínum nánustu, öðlast viturt hjarta og að þakka af auðmýkt fyrir þetta allt. Hún Naný upplifði þetta svo sannarlega allt og líf hennar hafði stóran og mikinn tilgang. Velgengni er listin að lifa lífinu þannig að samferðamönnum okkar finnist þeir ríkari vegna kynna við okkur. Þannig er ég ríkari vegna kynna minna við Naný. Hún hefur ávallt glatt og gefið af sér með frábær- um húmor og léttri lund. Gestrisni hennar var með eindæmum góð. Hún var höfðingi heim að sækja og þeir sem dvöldu hjá henni í Old Lyme lifðu í slíkum vellystingum að þeir voru yf- irleitt orðnir aðeins stærri þegar heim var komið en þegar út var farið. Ætt- ingjarnir heima á fósturjörðinni nutu góðs af trausti hennar og gjafmildi. Alltaf mundi hún eftir afmælisdögum og öðrum viðburðum sem glaðst var yfir. Hún sendi kveðjur og gjafir til ungra frænkna og frænda. Allir vita hver Naný frænka var. Hún lagði sig fram við að fylgjast með og kynnast frændfólki sínu á Íslandi. Gamla ætt- jörðin togaði í hana og hún kom eins oft í heimsókn og efni og aðstæður gáfu tilefni til. Naný var í góðum tengslum við systkini sín. Hún og Margrét móðir mín voru mjög samrýndar. Mamma saknaði oft að vera ekki í meiri sam- vistum við hana. Það var aðeins árs aldursmunur á þeim og þær voru mjög líkar. Oft rugluðumst við systk- inin á þeim á myndum. Þegar mamma veiktist kom Naný og dvaldi hjá henni. Það var Naný þungbært að horfa á eftir systur sinni eins og okk- ur öllum. Stuðningur hennar var ómetanlegur. Nú eru þær tvær horfn- ar burt úr sjö systkina hópi. Vænt- anlega hafa verið fagnaðarfundir þeg- ar þær hittust aftur hinum megin. En lífið heldur áfram í sínum hversdagsleika. Allt iðar af lífi í kring- um okkur sem eftir erum og lífið er dýrmæt gjöf. Gjöf sem við þurfum að muna eftir að þakka fyrir. Við þurfum að þakka fyrir fjölskylduna og sam- ferðafólkið. Við yljum okkur við minn- ingarnar um ástvinina sem við höfum horft á eftir úr þessum heimi. Við Rúnar erum þakklát fyrir að hafa kynnst Naný og hennar yndis- lega persónuleika. Einnig að synir okkar hafi fengið að verða þeirrar gæfu aðnjótandi. Nanýar er sárt saknað af börnum hennar, barna- börnum, systkinum og öðrum ætt- ingjum og vinum. Við vottum þeim dýpstu samúð. Guð veri með þeim. Halla Sigurgeirsdóttir og Rúnar S. Gíslason. Naný frænka mín, ömmusystir, mun alltaf lifa í minningu minni sem ein glæsilegasta kona sem ég hef hitt. Hún hafði til að bera einhvern nátt- úrulegan þokka og kvenleika sem var henni svo eðlilegur og áreynslulaus. Bar sig vel og hafði fallegan málróm. Hún var sannkölluð dama. Naný var líka skemmtileg og við- ræðugóð og kunni að segja skemmti- lega frá. Þegar ég hitti hana fyrir nokkrum árum kenndi hún okkur mömmu að gera spilagaldur sem við reyndum svo að æfa en gátum ekki komið jafnvel frá okkur og Naný frænka. Þegar ég fór til New York í fyrsta sinn hringdi ég oft í hana og sagði henni spennandi sögur frá því sem á daga mína dreif í stórborginni og það var alveg frábært hvað hún hafði gaman af að hlusta á sögurnar og fá að fylgjast með ævintýrum mín- um. Sjálf átti hún heima í Connecti- cut, í litlum bæ, og sagði að ég yrði nú eflaust ekkert rosalega spennt yfir því að koma úr stóra eplinu yfir til hennar þar sem „ekkert var að ger- ast“. Ég veit að Naný sjálfri fannst ekki mjög gaman að fara til New York, enda fannst henni borgin svo óhrein. Hún tók víst aldrei af sér leð- urhanskana ef hún steig fæti sínum inn fyrir borgarmörkin, enda eins og áður sagði, sannkölluð dama. Þegar Edda Ágústa dóttir mín fæddist sendi Naný henni föt í sæng- urgjöf. Það segir mér eitthvað um hversu hjartahlý og góð kona hún var. Hún sendi líka kort þegar Edda var skírð og spurði mömmu alltaf frétta af okkur mæðgum. Hún sagði mér líka einu sinni að amma hefði trúað sér fyrir því hvað henni hefði þótt mikið vænt um mig og minntist á það í leið- inni að ömmu hefði eflaust þótt hjart- anlega gaman að fá að sjá litlu dóttur mína og fylgjast með því hvernig líf okkar hefur þróast. Nú hittast þær systur, amma og Naný, kannski einhvers staðar í heimi þar sem kyrrð og friður ríkir yfir öllu og hugsanlega fylgjast þær með okk- ur að ofan. Ég vona það. Naný og amma mín voru báðar manneskjur sem hægt er að taka sér til fyrirmyndar. Framkoma þeirra og samskipti við annað fólk einkenndist af hlýhug, reisn og mannvirðingu sem ekki er öllum gefin. Naný var góð- hjörtuð og falleg kona. Blessuð sé minning hennar. Margrét Hugrún Gústavsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 65      Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN JÓNSSON, Dalbraut 27, Reykjavík, lést á Hrafnistu miðvikudaginn 20. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum aðstandendum og vinum fyrir auðsýnda samúð og hlýju í okkar garð. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A-3 á Hrafnistu fyrir góða umönnun. Ljúft við lifum. Birna Benediktsdóttir, Hjördís Kristinsdóttir, Haraldur Geir Hlöðversson, Benný Þórðardóttir, Páll Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg dóttir mín, móðir, tengdamóðir, amma, sambýliskona og systir, RAGNHEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR, Kleppsvegi 126, Reykjavík, lést af slysförum sunnudaginn 1. október. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju mánu- daginn 9. október kl. 13.00. Vigdís Bjarnadóttir, Bjarki Jónsson, Ásdís Sturlaugsdóttir, Aron Snær Bjarkason, Hildur Bjarkadóttir, Valdimar Long, Margrét Ingvadóttir, Kristinn Guðmundsson, Þorgeir Ingvason, Guðrún Þorgeirsdóttir. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA PÉTURSDÓTTIR, Grenigrund 32, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 27. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kærar þakkir til starfsfólks E-deildar og sjúkra- og iðjuþjálfunar á Sjúkra- húsi Akraness fyrir frábæra umönnun og umhyggju á liðnum árum. Guðjón Guðmundsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Jón Ármann Einarsson, Guðrún Guðjónsdóttir, Guðmundur Guðjónsson, Þórunn Gunnarsdóttir, Ásdís Guðjónsdóttir, Jón Þórðarson, Pétur Guðjónsson, Oddný Ragnheiður Kristjánsdóttir, Björn Guðjónsson, Kristín Guðjónsdóttir, Ævar Guðjónsson, Heiðveig Erla Brynjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær dóttir mín, móðir okkar, systir og amma, AÐALHEIÐUR LILJA SVANBERGSDÓTTIR, Einigrund 8, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 4. október. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju miðviku- daginn 11. október kl. 14. Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Akraness. Kristín Minney Pétursdóttir, Svanberg Júlíus Eyþórsson, Minney Ragna Eyþórsdóttir, Hreiðar Þór Eyþórsson, Eva Rakel Eyþórsdóttir og fjölskyldur. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ALMA PÁLMADÓTTIR, Kjartansgötu 9, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 1. október. Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 12. október kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins, sími 543 3724. Ólafur Jónsson, Þórir Ólafsson, Sigrún Áskelsdóttir, Linda Ólafsdóttir, Hafsteinn Eyjólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, f. 19. desember 1926, andaðist á heimili sínu, Skjóli, Kleppsvegi 64, laugardaginn 30. september. Jarðsungið verður frá Laugarneskirkju föstu- daginn 13. október kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Félags aðstandenda Alzheimers-sjúklinga. Sveinn Rúnar Hauksson, Björk Vilhelmsdóttir, Óttar Felix Hauksson, Guðný Þöll Aðalsteinsdóttir, Sigríður G. Hauksdóttir, Evald Sæmundsen, Sigfús Guðfinnsson, Andrea Henk, Guðmundur Guðfinnsson, Lena María Gústafsdóttir, María Þ. Guðfinnsdóttir, Hörður Hauksson, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir minn, tengdafaðir og afi, JÓHANNES BJARNI JÓNSSON rafvirkjameistari, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 5. október. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 12. október kl. 11.00. Atli Már Jóhannesson, Líney Björg Sigurðardóttir, Guðjón Már Atlason, Arnór Már Atlason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.