Morgunblaðið - 08.10.2006, Side 70

Morgunblaðið - 08.10.2006, Side 70
|sunnudagur|8. 10. 2006| mbl.is Staðurstund Ingveldur Geirsdóttir fjallar um afþreyingarbókmenntir fyrir konur, allt frá Jane Austin til Bridget Jones. » 77 af listum Victoria Beckham segir David, eiginmann sinn, vera tilbeðinn sem guð í Japan, þar sé búið að reisa hof honum til dýrðar. » 88 fólk Dagurinn í dag er sá síðasti á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Dagskrá dagsins er að finna hér að aftan. » 77 kvikmynd Baggalútur er fyrirtaks hljóm- sveit sem engum þarf að leið- ast að hlusta á, að mati gagn- rýnanda Morgunblaðsins. » 79 tónlist Vernharður Linnet segir tón- leika Kristjönu Stefánsdóttur og Agnars Más gleðistund fyrir tónlistarunnendur. » 75 tónlist Eftir Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is RÍKISSJÓNVARPIÐ hefur sýn- ingar á þáttunum Tíu fingur næstkomandi sunnudagskvöld en alls eru þættirnir tólf og fjalla um íslenska hljóðfæraleikara á sviði klassískrar tónlistar. Jónas Sen er umsjónarmaður þáttanna og framleiðandi er Jón Egill Berg- þórsson. Rúnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri innlendrar dagskrárgerðar hjá Ríkissjón- varpinu, segir að ekki hafi áður verið ráðist í gerð þátta af þessu tagi í íslensku sjónvarpi. Ákveðið hafi verið að ráðast í gerð tólf þátta til að byrja með og verða þeir á dagskrá Sjónvarpsins fram yfir áramót. Tíu fingur sé metn- aðarfullt verkefni og segir Rúnar þættina hugsanlega forsmekk að þeim fyrirheitum sem gefin hafa verið um stóraukin hlut inn- lendrar dagskrárgerðar í Rík- issjónvarpinu. „Hugmyndin gengur út á það að gera skemmtilega sjónvarpsþætti. Ég reyni að höfða til breiðs hóps sjónvarpsáhorfenda því þótt ekki hafi allir áhuga á klassískri tón- list hlusta mjög margir á hana sér til ánægjuauka. Tónlistin sem er leikin í þáttunum er yfirleitt fremur aðgengileg og þar sem þetta eru sjónvarpsþættir hafði ég að markmiði að meira yrði lagt upp úr myndrænni úrvinnslu en oft áður. Sviðsmyndin er sveigj- anleg að því leyti að hægt er að skipta um lit og lýsingu þannig að það undirstriki andrúmsloftið í hverju verki. Klippingar og sjón- arhorn í myndatöku undirstrika líka það sem er að gerast í tónlist- inni,“ segir Jónas. Um það bil helmingur af hverj- um þætti er viðtöl við listamann- inn og aðra viðmælendur sem fléttast inn í tónlistaratriðin. Auk þess er stungið inn í þættina gömlum upptökum af viðkomandi listamanni úr safni Sjónvarpsins. „Viðtölin eiga að varpa ljósi á manninn að baki einleikaranum sem þýðir að viðtölin eru stundum nokkuð nærgöngul og þau eru að mestu tekin á heimili viðmæland- ans. Viðtölin skýra einnig tónlist- ina sem er leikin og í þriðja lagi varpa þau ljósi á tónlistarheiminn á Íslandi og ýmsa þætti hans.“ Sett var upp heimasíða þátt- arins með ýmsu efni sem ekki er sýnt í sjálfum þáttunum, eins og t.d. lengri útgáfur viðtalanna og ýmislegt ítarefni jafnt um hljóð- færaleikarana sem fjallað er um, tónlistina sem þeir flytja og tón- skáldin. Þess má einnig geta að leikin verður tónlist úr Tíu fingr- um í útvarpsþættinum Hlaupanót- unni á Rás 1 á föstudegi áður en sýning þáttanna hefst. Þeir einleikarar sem fram koma í þáttunum eru Sigrún Eðvalds- dóttir fiðluleikari, Gunnar Kvaran sellóleikari, Áshildur Haralds- dóttir flautuleikari, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og Sigurður Ingvi Snorrason klarin- ettuleikari, Halldór Haraldsson píanóleikari, Guðný Guðmunds- dóttir fiðluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari, Ásdís Valdimarsdóttir víóluleikari, Kol- beinn Bjarnason flautuleikari, Edda Erlendsdóttir píanóleikari, Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari og Einar Jóhannesson klarinettu- leikari. Sjónvarp | Tíu fingur, nýr sjónvarpsþáttur um klassíska tónlist Maðurinn að baki einleikaranum www.ruv.is/tiufingur Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is HVAÐ er karnivalískt spunaverk? Þetta er óhjákvæmilega spurningin sem brennur á blaðamanni þar sem hann hittir leikstjórann Sigrúnu Sól Ólafsdóttur og Árna Pétur Guð- jónsson leikara í Reiðhöll Gusts í Kópavogi. Ástæðan er sú að í kvöld frumsýnir Einleik- húsið þar Þjóðarsálina, spunaverk sem að- standendur segja einmitt vera af slíku tagi. „Sýningin er eitt allsherjarkarnival; stíl- hreinn hrærigrautur af alls konar stílum,“ út- skýrir Sigrún Sól spennt. „Við steypum saman háþróaðri leikhúsvinnu, áhættuatriðum með hesta, sirkuskúnstum, dansi og fjöldasöng hestakvenna,“ heldur hún áfram, en auk fimm atvinnuleikara koma við sögu sýningarinnar fimleikafólk, kraftajötnar, fegurðardísir, söng- hópur, hestaþjálfarar og fimm hestar. Þótt engin starfsemi eigi sér stað í Reiðhöll- inni þegar viðtalið fer fram örlar engu að síður á umræddri karnivalstemningu þar inni. Rým- ið er stórt með moldargólfi, ekki óáþekkt sirk- us, og hvít, hálfgegnsæ tjöld hanga úr lofti og gefa á einhvern óskilgreindan hátt til kynna að hér muni eitthvað óvenjulegt eiga sér stað. Enda lofa Sigrún Sól og Árni Pétur því að sýn- ingin verði harla nýstárleg. Þroska- og fjölskyldusaga Sýninguna hefur leikarahópurinn búið til frá grunni ásamt Sigrúnu Sól, en auk Árna Péturs leika þau Harpa Arnardóttir, Sara Dögg Ás- geirsdóttir, Jóhann G. Jóhannsson og Árni Salómonsson í sýningunni. Á yfirborðinu er Þjóðarsálin fjölskyldusaga. Árni Pétur leikur fjölskylduföður sem rekur hestasýningu sem gengið hefur í tuttugu ár. Hann lýsir hestasýningunni sem „fjöl- skylduvænni og heilbrigðri“, þar sem áhorf- endur geta séð flotta hesta, fallegar stúlkur og stælta stráka; þar sem er gleði og tónlist ráða ríkjum. Áhorfendur Þjóðarsálarinnar fá svo að sjá valin brot úr þessari „sýningu í sýning- unni“ ásamt því að fylgjast með samskiptum þeirra fjölskyldumeðlima sem að henni vinna. „Þetta er þroskasaga yngsta fjölskyldu- meðlimsins. Það sem hann er að kljást við í samfélaginu er mjög sterkt hreyfiafl í sýning- unni. Í gegnum þá glímu fylgjumst við með því hvernig hver einasta persóna tekst á við dekkri hliðar sínar,“ segir Árni Pétur. Sigrún Sól tekur við: „Og þegar skuggahliðarnar eru komnar upp á yfirborðið undir lok sýning- arinnar … þá drögum við fram leynivopnið,“ segir hún leyndardómsfull. Rafmagnaður sköpunarkraftur Að sögn Sigrúnar Sólar og Árna Péturs hef- ur vinnan í kringum uppsetninguna verið nokkuð ólík þeirri spunavinnu sem hefur tíðk- ast í leikhúsum landsins. „Þetta eru spunaaðferðir sem krefjast mik- ils af leikaranum,“ útskýrir Sigrún Sól. „Leik- arinn fer aldrei út á gólf án þess að vera búinn að greina alveg ofan í kjölinn um hvað senan sem hann er að takast á við hverju sinni fjallar í raun og veru. Allt sem hann gerir verður hann að vera búinn að orða og skýra. Það er ekki bara farið út á gólf og látið vaða. Sköpunarkrafturinn sem myndast þegar farið er út á gólf með jafnmikið bakland er raf- magnaður,“ fullyrðir Sigrún Sól að lokum. Rafmagnað karni- valískt spunaleikhús Morgunblaðið/Kristinn Karníval „Sýningin er eitt allsherjar karníval; stílhreinn hrærigrautur af alls konar stílum.“ Spuni „Þetta eru spunaaðferðir sem krefjast mikið af leikaranum,“ segja Árni Pétur Guð- jónsson og Sigrún Sól Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.