Morgunblaðið - 08.10.2006, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 73
Viðurkenning til
framúrskarandi
menningarstarfs
á landsbyggðinni
• Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni
úr hópi umsækjenda um Eyrarrósina 2007
• Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, 1.500.000 kr.
og verðlaunagrip til eignar
• Viðurkenningin verður afhent í ársbyrjun
2007 á Bessastöðum
• Verkefnið sem hlýtur viðurkenninguna fær
sérstaka kynningu í tengslum við Listahátíð
í Reykjavík 2007
• Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff
forsetafrú
HÉR MEÐ ER AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM
UM EYRARRÓSINA 2007
Lýsing á verkefninu
Lögð skal fram greinargóð lýsing á verkefninu; umfangi þess,
sögu og markmiðum.
Tíma- og verkáætlun
Gerð skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu verkefnisins
og áformum á árinu 2007. Skilyrði er að verkefninu hafi nú
þegar verið hleypt af stokkunum.
Upplýsingar um aðstandendur
Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem
að verkefninu standa og grein gerð fyrir þeirra þætti í því.
Fjárhagsáætlun
Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári.
Uppgjör ársins 2005 fylgi umsókn.
• Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar
verður hún ekki tekin til greina
• Umsækjendur geta verið m.a. stofnun, safn,
tímabundið verkefni eða menningarhátíð
• Umsóknarfrestur er til 13. nóvember 2006
og verður öllum umsóknum svarað
• Viðurkenningin verður veitt í janúar 2007
• Umsóknir skal senda til Listahátíðar í Reykjavík,
pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar Eyrarrósin
UMSÓKNUM SKAL FYLGJA:
Allar nánari upplýsingar veitir
framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík
í síma 561 2444, hrefna@artfest.is
www.listahatid.is
Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag
Íslands standa saman að Eyrarrósinni, viðurkenningu
sem veitt er árlega einu afburða menningarverkefni
á starfssvæði Byggðastofnunar á landsbyggðinni.
Fyrstu Eyrarrósina, sem afhent var árið 2005, hlaut
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði og Eyrarrósina 2006 hlaut
LungA, listahátíð ungs fólks, Austurlandi.
Jóhann Ólafsson,
Löggiltur FFS.
gsm: 863 6323,
johann@vidskiptahusid.is
Jón Sigfús Sigurjónsson,
Hdl.& Löggiltur FFS.
gsm: 893 3003,
jon@vidskiptahusid.is
Hörður Hauksson,
Viðskiptafræðingur.
gsm: 896 5486
hh@vidskiptahusid.is
Höfum til sölu fyrirtæki með mikla sérstöðu
á markaði og góða afkomu.
Við hjá Viðskiptahúsinu á fyrirtækjasviði sérhæfum okkur í vöktun fjárfestingatækifæra á
sviði fyrirtækja fyrir fjárfesta. Traust er okkar aðalsmerki.
Upplýsingar eru ekki gefnar í síma en áhugasamir eru beðnir að panta tíma.
Skúlagata 17 - 101 Reykjavík - Sími 566 8800 - Fax 566 8802
vidskiptahusid@vidskiptahusid.is
www.vidskiptahusid.is
Áhugavert framleiðslufyrirtæki
sem þjónustar sjávarútveginn
Nýtt
SparBíó* — 450kr
„THE WILD“
ÓBYGGÐIRNAR
Sýnd með íslensku tali !
SparBíó* : 450 KR MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR kl: 1:30 og 1:45
Laugardag og Sunnudag Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA
SUPERMAN RETURNS SÝND KL. 1:30 (ÁLFAB.)
ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal. SÝND KL. 1:45 (ÁLFAB.) OG 2 (AK. OG KEF.)
MAURAHRELLIRINN M/- Ísl tal. SÝND KL. 1:30 (ÁLFAB.) OG 2 (AK. OG KEF.)
STEP UP SÝND KL. 1:30 (ÁLFAB.)
BÍLAR M/- Ísl tal. SÝND KL. 1:45 (ÁLFAB.)
COLLAGRAPH nefnist tæknin sem
Elva Hreiðarsdóttir notar við gerð
myndanna sem hún sýnir í Graf-
íksafninu. Hér er um að ræða graf-
íktækni sem býr yfir fjölbreyttum
möguleikum og dregur nafn sitt af
orðinu collage. Collage er samsett
mynd þar sem hægt er að nota marg-
vísleg efni, nokkurs konar samlímd
klippimynd og getur verið bæði tvívíð
mynd eða þrívíð lágmynd þar sem
fundnir hlutir eru notaðir. Collagraph
byggist síðan á að þrykkja afrit af yf-
irborði slíkrar myndar en þá er yf-
irborðið gert með afritið í huga.
Elva vinnur með jarðliti og blátóna
sem minna á íslenska náttúru enda
nefnir hún sýningu sína Bergmyndir
og einstaka myndir t.a.m. Bergrúnir,
Bergbúi og Bláberg. Í myndunum
sem eru hálfabstrakt en líka má lesa
úr þeim yfirborð sem minnir á
hamraveggi og álfaborgir má finna
heillandi smáatriði og áhugavert er
að lesa sig áfram eftir myndröðum
sem byggjast á sama grunni. Stóru
myndirnar tvær minna nokkuð á
jarðþrykk og í heildina má tengja
þessi verk Elvu verkum t.a.m. Jó-
hanns Eyfells en einnig má hugsa til
verka samtímalistamanna sem vinna
með mynstur og síbyljuáferð í lands-
lagsverkum. Stærri myndir Elvu eru
um leið þær metnaðarfyllstu og það
má ímynda sér að listakonan ætli sér
eitthvað meira í þá átt. Sýningin
byggist nokkuð á einni hugmynd en
ferskleiki aðferðarinnar og áferð-
arfalleg hrynjandi milli verka gerir
sýninguna áhugaverða aflestrar og
vekur forvitni um aðra möguleika
þessarar vinnuaðferðar sem er ein-
föld en þó kröfuhörð. Hér fara saman
markviss hugmynd, agi í vinnubrögð-
um og næm tilfinning fyrir efniviðn-
um, það verður forvitnilegt að sjá
hvernig Elva þróar verk sín áfram.
Hrynjandi lágstemmdra tóna
MYNDLIST
Grafíksafn Íslands
Elva Hreiðarsdóttir. Til 8. október. Opið
fim. til sun. frá kl. 14–18. Aðgangur
ókeypis.
Bergmyndir
Morgunblaðið/Ásdís
Tækni „Sýningin byggir nokkuð á einni hugmynd en ferskleiki aðferð-
arinnar og áferðarfalleg hrynjandi milli verka gerir sýninguna áhuga-
verða aflesturs og vekur upp forvitni um aðra möguleika þessarar vinnu-
aðferðar sem er einföld en þó kröfuhörð.“
Ragna Sigurðardóttir
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið