Morgunblaðið - 08.10.2006, Page 76

Morgunblaðið - 08.10.2006, Page 76
76 SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning Frumsýnt 8. október · Miðasala: 694 8900 / midasala@einleikhusid.is · einleikhusid.is Árni Pétur Guðjónsson, Árni Salomonsson, Harpa Arnardóttir, Jóhann G. Jóhannsson & Sara Dögg Ásgeirsdóttir Hestar, kraftajötnar, kvennakór og íslensk fegurð · Leikstjóri: Sigrún Sól Ólafsdóttir · Tónlist: Pálmi Sigurhjartarson Þegar góða veislu halda skal Pantið hlaðborð á tilboðsverði, aðeins fyrir sýningargesti Þjóðarsálarinnar - nánari uppl. á einleikhusid.is Frumsýnt um helgina! H rin gb ro t ANGELA HEWITT Í SALNUM Hinn heimskunni píanóleikari Angela Hewitt leikur verk eftir Bach, Beethoven, Rameau og Chabrier á tvennum tónleikum í Salnum á Kanadískri menningarhátíð í Kópavogi. mánudaginn 16. október kl. 20 þriðjudaginn 17. október kl. 20 Miðasala og nánari upplýsingar á www.salurinn.is og í síma 5 700 400 Innan tónlistarinnar rúmastmargir kimar, menning-arkimar og ómenning-arkimar, óteljandi afbrigði af tónlist geta af sér óteljandi klíkur sem láta kannski duga að hlusta á tónlistina, en oftar en ekki fylgir sér- stakur klæðaburður, „einkennisbún- ingur“, og hegðan. Allt er þetta til þess fallið að treysta samloðun hóps- ins; klíkufélagar standa saman gegn öðrum klíkum og ekki síst gegn yf- irvöldum eða yfirvaldi – þátttaka í hópi er uppreisn gegn ríkjandi hópi, ríkjandi smekk, ríkjandi tísku. Allir á sama báti Gott dæmi um þetta er þunga- rokkið þar sem menn skipast í hópa efir því hversu harða tónlist þeir hlusta á, eða eftir inntaki texta eða eftir klæðaburði. Allt skarast þó og þannig hafa margir Slayer-vinir líka einhverja skemmtun af poppi á við Iron Maiden og þeir sem dá Mes- huggah hlusta líka á Audioslave, þó kannski ekki nema með öðru eyranu. Þungarokksunnendur eru semsagt flestir umburðarlyndir gagnvart öðru þungu rokki, enda finnst þeim sem þeir séu allir á sama báti þótt hver sé í sinni káetu. Málið vandast aftur á móti þegar lið úr annarri deild fer að kássast upp á jússurnar, þegar „indí“-lið fer að hlusta á þungarokk, mætir kannski á Slayer-tónleika í Sonic Yo- uth-bol eða þaðan af verra. Þá er hætt við að hinir hreintrúuðu snúi sér annað, saki hljómsveitir sem höfða til slíkra áheyrenda um list- rænt hórerí; um að hafa svikið mál- staðinn. Geysiþétt og hart þungarokk Bandaríska rokksveitin Mastodon glímir einmitt við þetta vandamál um þessar mundir. Sveitin spilar geysi- þétt og hart þungarokk með grófum öskursöng, dæmigerð metalsveit um margt en síðasta plata hennar, Blood Mountain, hefur náð eyrum fjöl- margra annarra en þungarokksvina. Nægir að nefna að hljómsveitin hef- ur verið áberandi í tímaritum og á vefsetrum sem alla jafna fjalla helst um nýbylgju og tilraunakennt rokk. Mastodon er sprottin úr prog- rokksveitinni mögnuðu Today Is the Day, en þeir Bill Kelliher og Bränn Dailor voru báðir meðreiðarsveinar Steves Austins í Today Is the Day, sá fyrrnefndi á gítar og sá síð- arnefndi á trommur. Today in the Day var og er fræg fyrir bræðing af þungarokki, harðkjarna og óhljóðum en þeir Kelliher og Dailor áttu ekki skap við Austin og stoppuðu þar stutt. Kelliher og Dailor bjuggu þá í New York-ríki en fluttust til Atlanta í leit að meira fjöri. Þar hittu þeir fyrir bassaleikarann Troy Sanders og gítarleikarann Brent Hinds, sem báðir eru að auki traustir söngvarar. Svo vel fór á með fjórmenningunum að þeir ákváðu að slá saman í hljóm- sveit og voru ekki lengi að semja upptökuhæft efni. Fyrstu upptök- urnar gerðu Mastodon-menn vorið 2000 og héldu síðan í mikla tónleika- ferð um Bandaríkin, ýmist að þeir héldu tónleika einir á smábúllum eða þeir hituðu upp fyrir ekki ómerkari sveitir en Queens of the Stone Age, Morbid Angel og Cannibal Corpse. Svo vel stóðu þeir félagar sig á sviði að eftir var tekið og dugði til að þeir fengu samning hjá rokkútgáfunni góðu Relapse. Íslandsheimsókn og hvíti hvalurinn Fyrsta Mastodon-platan var stutt- skífan Lifesblood sem kom út haust- ið 2001. Fyrsta breiðskífan var svo hljóðrituð síðar um haustið með Matt Bayles við takkana, en hann er meðal annars þekktur fyrir að hafa unnið með þeirri frábæru sveit Isis. Remission hét platan og kom út snemma árs 2002. Það ár og fram eftir 2003 var sveitin síðan á tón- leikaferðalagi meira og minna og kom meðal annars hingað til lands og lék á tvennum tónleikum um miðjan júlí 2003, en þá þegar voru fleiri en þungarokksvinir farnir að sperra eyrun, ekki síst fyrir það hve sveitin þótti mögnuð á tónleikum. Haustið 2003 hófst vinna við nýja plötu sem kom svo út í ágúst 2004 og hét Leviathan. Eins og sjá má af um- slagi plötunnar er viðfangsefnið hvíti hvalurinn Moby Dick og nokkur lög á plötunni beinlínis samin upp úr bókinni eftir Herman Melville. Plat- an fékk frábæra dóma, en einhverjir kvörtuðu þó yfir því að þeir félagar hefðu teygt sig of langt frá þunga- rokkinu í átt að framúrstefnulegu rokki, að of mikið „progg“ væri á plötunni og hljómur of hreinn. Hvað sem því líður þá varð Leviathan enn til að ýta undir áhuga á Mastodon og ekki bara hjá tónlistarunnendum, heldur tóku stórfyrirtækin við sér og kepptust um að bjóða sveitinni út- gáfusamning. Á endanum sömdu þeir félagar við Warner-útgáfuna sem lofaði að leyfa þeim að ráða því sem þeir vildu við lagasmíðar og upptökur. Margur óttaðist að þar með væri Mastodon gengin hinu illa á hönd og eftir þetta yrðu plötur sveitarinnar álíka lap og síðustu fimmtán ár af Metallica. Á meðan menn biðu eftir nýrri plötu sem skera myndi úr um það héldu þeir Mastodon-menn gömlum og þó aðallega nýjum aðdá- endum sínum við efnið með safnskíf- unni Call of the Mastodon. Það var mörgum síðan léttir þegar fyrsta Warner-platan kom út um daginn, Blood Mountain, og var ekki síðri en fyrri verk. Dagréttur hljómur Á Blood Mountain eru þeir Masto- don-félagar enn að dagrétta hljóm sinn og fínpússa músíkina, nokkuð sem gamlir þungarokkshundar eiga eflaust eftir að kveinka sér undan, en sveitin er á réttri leið að mínu mati, fórnar ekki krafti eða djöfullegri stemmningu fyrri verka, en miðar sér þó áfram, þróar tónmál sitt og hljóm í stað þess að hjakka í sama farinu. Gestir á skífunni gera sitt til að gera plötuna skemmtilega, Josh Homme, Scott Kelly og Cedric Bix- ler-Zavala, en Blood Mountain er þó gegnheil Mastodon-plata – frábær plata og ein af bestu plötum ársins, svo mikið er víst. Upp blóðfjallið Harðir Bandaríska rokksveitin Mastodon á eina bestu plötu ársins hingað til. TÓNLIST Á SUNNUDEGI Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.