Morgunblaðið - 08.10.2006, Blaðsíða 85
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2006 85
þegar maður mætir þessu hunda-
gengi þá er eðlilegast að pakka
saman og hverfa á braut, því ekki
gerir maður góða veiði þann dag-
inn. Bönnum hunda við veiðar, þá
njóta fleiri góðra stunda á fjöllum.
Beretta.
Áhöfn Gulltopps 1941
ÉG heiti Jennifer Dutton og skrifa
frá Englandi.
Faðir minn, sem er 88 ára,
þjónaði í breska sjóhernum í síð-
ari heimsstyrjöldinni. Hann var á
SS Beaverdale á leiðinni frá Hali-
fax, Nova Scotia til Liverpool á
Englandi þegar skip hans fékk
tundurskeyti frá þýskum kafbát,
U-48, 2. apríl 1941. Staðsetningin
var 60,50 gráður norður, 29,19
gráður vestur.
Eftir nokkurra daga dvöl í opn-
um björgunarbáti var föður mín-
um, og skipsfélögum hans, bjargað
af íslenska togaranum Gulltoppi.
Ég er á leið til Íslands 19. októ-
ber nk., ásamt eiginmanni, og
hefði ég mikla ánægju af því að fá
að hitta einhverja úr áhöfn Gull-
topps til að færa þeim þakkir mín-
ar og föður míns. Ég mun dvelja á
Radisson Hótel Reykjavík 19.–22
október.
Jennifer Dutton.
Sími: (0) 1702 586007.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ef maður situr og hugsar um þá marg-
víslegu stefnu sem nýtt hugsanlegt
samband getur tekið myndi maður samt
aldrei hitta á þá töfrandi og óvæntu nið-
urstöðu hvernig það verður ef þú bara
tekur áhættuna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Eitt viðfangsefni gnæfir yfir önnur í
huga þér. Þegar þú leysir það mun
margt falla í ljúfa löð. Taktu þér
klukkutíma til þess að fara í gönguferð.
Svarið við vandamálinu er skrifað í
ferska loftið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Langt og torvelt verkefni verður þess
virði þegar þú kemur að leiðarlokum.
Farðu alla leið. Haltu áfram og ekki
hætta fyrr en tappinn skýst úr kampa-
vínsflöskunni og mannfjöldinn fagnar
með látum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Fær byrjunin á vondu skapi þig til þess
að hætta við áætlanir þínar? Auðvitað
ekki. Þess vegna er erfitt fyrir þig að
gera þér í hugarlund hvers vegna aðrir
láta sér detta í hug að breyta tíma-
áætlun sinni vegna smámuna. Umburð-
arlyndis þíns er krafist.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið hefur tiltekið viðhorf, ákveðinn
útgangspunkt, vissan skilning á hlut-
unum. Kannski að þínir nánustu séu
ekki að fatta þig eins og þeir ættu að
gera, en það gerir afstöðu þína ekki
minna virði.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Umhyggju meyjunnar er þörf – í raun-
inni eru margir sem reiða sig á þína ein-
stöku ástarhörku. Harkan meiðir
reyndar ekki því ástin er svo sterk.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ef þú stendur í rigningunni verður þú
hugsanlega gegndrepa, köld og forug.
Eða þá að þú finnur fyrir endurnýjun,
innblæstri og hreinsun. Ljóðrænt for-
skot hjálpar þér til þess að sætta þig við
mótsagnir lífsins.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Lífið er stórkostlegt. Rétt í þann mund
sem þú ert að byrja að láta þér leiðast
seinna í dag, gerist eitthvað fyndið. Gott
og vel. Kannski finnst þér einum það
fyndið, en það hefur samt gildi, er það
ekki?
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Af því að aðdáun þín á tiltekinni mann-
eskju er endalaus getur hugsast að þú
eyðir um of í veitingahús, gjafir eða
veislur. Og mikið áttu eftir að skemmta
þér vel.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin notar skírnarnöfn í sam-
skiptum við mikilvægar persónur. Þú
gætir hjálpað vini gríðarlega með því að
lyfta upp tólinu. En hafðu í huga að
samböndin sem þú hefur eru þín, af því
að þú biður ekki oft um greiða.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn hefur sætt sig við hluti
sem hann myndi að öllu jöfnu ekki gera.
Athugasemdir, óreiðu, óþekkt
barnanna, allt leggst þetta saman.
Stjörnurnar leggja þér lið við það að
greiða úr þessum flækjum áður en sólin
sest.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Tilfinningalegur stuðningur gerir vart
við sig í líki konu. Settu þig í samband
við konurnar í fjölskyldunni, ekki síst
ömmu eða gamla frænku. Hún þarf á
styrkleika þínum að halda líka, en gæti
verið of stolt til þess að viðurkenna það.
Tungl í nauti ýtir undir
lyst og ekki bara lystina á
mat. Ef heilinn finnur sér
eitthvað til að þrá, verður
nánast óhugsandi að
hugsa um eitthvað annað
á meðan hið þrjóska naut ræður yfir
tunglinu. Mörgum tímum verður varið í
að fullnægja alls kyns þrám, ekki síst
þeim sem er nánast óhugsandi að full-
nægja.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Félagsstarf
Bergmál líknar- og vinafélag | Opið
hús í dag kl. 16 í Blindraheimilinu að
Hamrahlíð 17. Gestur fundarins Lena
Rós Matthíasdóttir. Gréta Jónsdóttir
syngur einsöng. Veitingar. Vinsamleg-
ast tilkynnið þátttöku í síma 552 1567,
864 4070, 862 8487.
Bólstaðarhlíð 43 | Haustfagnaður 19.
okt. kl. 17. Hlaðborð. Jóhann Friðgeir
Valdimarsson syngur við undirleik Jón-
asar Þóris. Ragnar Leví leikur fyrir
dansi. Happdrætti, fjöldasöngur og fjör.
Uppl. í síma 535 2760.
Dalbraut 18-20 | Í boði m.a. brids, fé-
lagsvist, handavinnuhópur, söngur,
leikfimi, framsögn og heilsubótar-
göngur. Heimsókn sönghóps Lýðs til
sönghóps Hjördísar Geirs í Hæðargarði
á fimmtudag.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur sunnudagskvöld kl. 20. Klassík
leikur. Skemmtikvöld verður haldið 13.
október og hefst kl. 20, samtalsþættir,
getraun, ljóðalestur, söngur og dans.
Hans Markús Hafsteinsson héraðs-
prestur verður til viðtals 19. október,
panta þarf tíma í síma 588 2111.
Félagsstarf Gerðubergs | Haust- og
vetrarstarf, fjölbreytt dagskrá hvern
virkan dag kl. 9–16.30. Veitingar í há-
degi og kaffitíma í Kaffi Bergi. Uppl. á
staðnum og í síma 575 7720. Strætis-
vagnar S4, 12 og 17 stansa við Gerðu-
berg. Þriðjud. 10. okt. kl. 10–14 er Vina-
hjálp með sölu á varningi fyrir
handavinnu og föndurgerð.
Húnvetningafélagið í Reykjavík | Í
dag: ,,Heimsókn úr heimabyggð“, opið
hús í Húnabúð, Skeifunni 11, 3. hæð
(lyfta). Húsið opnað kl. 13.30, dagskrá
hefst kl. 14, m.a. Gudrun Kloes, ferða-
málafulltrúi Húnaþings vestra, fjölda-
söngur, harmonikkutónlist og kaffisala
á vegum kaffinefndar. Allir velkomnir.
Hæðargarður 31 | Kíkið inn, kl. 9 farið í
Stefánsgöngu, fáið ykkur kaffisopa,
kíkið í blöðin og hittið mann og annan.
Minnum á að Listasmiðjan er alltaf
opin, ljóðahópur – lesið/samið – mánu-
dögum kl. 16, framsagnarhópur á
miðvikud. kl. 9 og bókmenntahópur kl.
13 sama dag. Sönghópur slær upp balli
á fimmtudag kl. 13.30.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK
verður þriðjudaginn 10. okt. kl. 20 að
Holtavegi 28. „Kærleikur í bókum Ast-
rid Lindgren“. Inga Bryndís Jónsdóttir
djáknanemi fjallar um efnið. Ragnheið-
ur Sverrisdóttir djákni hefur hugleið-
ingu. Kaffi. Allar konur velkomnar.
Korpúlfar Grafarvogi | Gönguhópur
Korpúlfa gengur frá Grafarvogskirkju á
morgun kl. 10. Á morgun, mánudag, er
boccia á Korpúlfsstöðum kl. 13.30.
SÁÁ félagsstarf | Elding hvalaskoðun
býður starfsfólki og félagsmönnum
SÁÁ upp á hvalaskoðun og skemmti-
siglingu um Faxaflóa með skemmti-
bátnum Eldingu í dag kl. 13, ef veður
leyfir. Tilboðsverð: Frítt fyrir börn að 7
ára aldri, 7–16 ára 1.000 kr. og 16 ára og
eldri 2.000 kr.
Vesturgata 7 | Haustbingó verður
þriðjudaginn 10. okt. kl. 12.45. Pönnu-
kökur m/rjóma í kaffitímanum. Getum
bætt við okkur söngfólki í kórinn, sér í
lagi karlmönnum. Æfingar fimmtudaga
kl. 12.30–14.30. Uppl. í síma 535 2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Haustfagn-
aður verður haldinn fimmtudaginn 12.
okt. kl. 18. Góður matur. Glens og gam-
an, óvæntar uppákomur að hætti húss-
ins. Uppl. í síma 411 9450.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Æskulýðsfélagið Lúk-
as, ætlað 8. bekkingum, fundar sunnu-
daga kl. 17–18+. Kynntur er og æfður
m.a. dansinn „Beat-less“. Fyrir 9. bekk-
inga og eldri er fundur kl. 20–22.
Grafarvogskirkja | Bænahópur hittist
kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla
virka daga frá kl. 9–17 í síma
587 9070.
Hjallakirkja | Eldra æskulýðsfélag,
Dittó, heldur fundi hvert sunnudags-
kvöld í Hjallakirkju kl. 20–21.30.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK
verður þriðjudaginn 10. október kl. 20
á Holtavegi 28. Sr. Petrína Mjöll Jó-
hannesdóttir sér um efni fundarins.
Kaffi. Allar konur eru velkomnar.
Kristniboðsfélag karla | Árleg kaffi-
sala verður í Kristniboðssalnum, Háa-
leitisbraut 58–60, norðurenda og 3.
hæð, í dag kl. 14–17. Allur ágóði af kaffi-
sölunni rennur til starfs Kristniboðs-
sambandsins í Eþíópíu, Keníu og Asíu.
staðurstund
NÝJASTA STÓRVIRKIÐ FRÁ OLIVER STONE. STÓRMYND SEM LÆTUR ENGAN ÓNSNORTIN.
NICOLAS CAGE SÝNIR STÓRLEIK Í MYNDINNI.
eee
LIB, TOPP5.IS
eee
BBC
eee
ROLLING STONE
eeee
EMPIRE
SÖNN SAGA UM HUGPRÝÐI OG ÓTRÚLEGA MANNBJÖRG.
TRUFLAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS ER KOMIN
ÞÚ ÁTT EFTIR
AÐ JÓÐLA AF
HLÁTRI
ATH! ENGIR ÞJÓÐVERJAR VORU
SKAÐAÐIR EÐA MEIDDIR Á MEÐAN
TÖKUM MYNDARINNAR STÓÐ.
eee
EMPIRE
eee
L.I.B. Topp5.is
eee
S.V. Mbl.
FRAMLEIDD AF TOM HANKS.
„the ant bully“
eeeee
LIB - topp5.is
eeee
HJ, MBL
eeee
Tommi - Kvikmyndir.is
MEÐ HINUM EINA SANNA JACK BLACK OG FRÁ LEIKSTJÓRA
“NAPOLEON DYNAMITE” KEMUR FRUMLEGASTI GRÍNSMELLURINN Í ÁR.
eee
E.B.G. Topp5.is
E.T. kvikmyndir.is
Takið þátt í spennandi ferðalagi þar
sem villidýrin fara á kostum.
Ekki missa af fyndnustu Walt
Disney teiknimynd haustins.
RÐ ANNAÐ
TU AÐ TAKA
PORIÐ. ÓBYGGÐIRNAR„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
GLÆNÝ TEGUND AF
FERÐAMÖNNUM
/ ÁLFABAKKI / KEFLAVÍK/ AKUREYRI
BEERFEST kl. 5:30 - 8 - 10:15 B.i. 12
ÓBYGGÐIRNAR Ísl tal. kl. 2 - 4 Leyfð
NACHO LIBRE kl. 6 B.i. 7
AN INCONVENIENT... kl. 8 - 10 Leyfð
MAURAHRELL... Ísl tal. kl. 2 Leyfð
WORLD TRADE CENTER kl. 5:50 - 8 - 10:40 B.i. 12.ára.
WORLD TRADE CE... VIP kl. 2 - 4:10 - 8 - 10:40
BEERFEST kl. 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 12.ára.
STEP UP kl. 1:30 - 3:45 - 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 7.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 1:45 - 4 - 6 LEYFÐ
THE WILD m/ensku tali kl. 4 LEYFÐ
HARSH TIMES kl. 8:30 - 10:40 B.i. 16.ára.
NACHO LIBRE kl. 4:20 - 6:20 B.i. 7.ára.
BÖRN kl. 8:30 B.i.12.ára.
BÍLAR m/Ísl. tali kl. 1:45 LEYFÐ
THE PROPOSITION kl. 10:50 B.i. 16.ára.
SUPERMAN kl. 1:30 B.i. 10.ára.
MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl. 1:30 - 3:45 LEYFÐ
WORLD TRADE ... kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.I. 12
THE ALIBI kl. 8 - 10 B.i.16.
ÓBYGGÐ... Ísl tal. kl. 2 - 4 Leyfð
MAURAHR... Ísl tal. kl. 2 Leyfð
NACHO LIBRE kl. 4 - 6 Leyfð
30 OG 1:45 Í ÁFABAKKA OG KL. 2 Á AKUREYRI OG KEFLAVÍK
Munið afsláttinn