Morgunblaðið - 08.12.2006, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
Síðasti þingfundurinn
fyrir jól á morgun
STEFNT er að því að síðasti þing-
fundurinn fyrir jól verði haldinn á
morgun, laugardag, samkvæmt sam-
komulagi sem náðst hefur milli
stjórnar og stjórnarandstöðu. Sam-
komulagið náðist seint í fyrrinótt
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, eftir mikil fundarhöld milli
m. a. formanna þingflokka og forseta
þingsins. Einnig komu að samkomu-
laginu formenn flokkanna.
Samkvæmt samkomulaginu verð-
ur afgreiðslu frumvarpsins um Rík-
isútvarpið ohf. frestað fram yfir ára-
mót, eða þar til þing kemur saman að
nýju hinn 15. janúar nk. Þinginu
verður þar með flýtt um einn dag, en
skv. starfsáætlun átti það að koma
saman að nýju 16. janúar.
Samið var um að klára aðra um-
ræðu um Ríkisútvarpið í gær, en því
verður vísað til þriðju og síðustu um-
ræðu í dag. Í samkomulaginu felst
einnig að frumvörp ríkisstjórnarinn-
ar um m.a. almannatryggingar, mat-
arskatt og kaup ríkisins á eignar-
hlutum í Landsvirkjun verði
afgreidd fyrir jól.
Samkomulag um þinghlé náðist seint í fyrrinótt
Morgunblaðið/Kristinn
Þinghlé Stefnt er að því að þingfundum verði frestað á morgun fram yfir
áramót. Þingnefndir munu þó starfa í millitíðinni.
NÁKVÆMUR kostnaður við tvöföld-
un Suðurlandsvegar liggur ekki fyrir
ef marka má umræður í upphafi þing-
fundar á Alþingi í gær. Þar voru
nefndar tölur á bilinu 6 til 12 millj-
arðar. Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra sagði í samtali við Morgun-
blaðið í vikunni að áætlað væri að
kostnaður við breikkun vegarins milli
Rauðavatns og Selfoss væri á bilinu
fimm til sjö milljarðar; það færi eftir
ýmsu, t.d. hve mörg mislæg gatnamót
yrðu.
Hjálmar Árnason, þingmaður
Framsóknarflokks, benti hins vegar á
að vegamálastjóri, Jón Rögnvaldsson,
hefði nýlega sagt að kostnaðurinn
gæti numið allt að 12 milljörðum.
Fyrir ári hefði hann hins vegar talað
um 7 til 8 milljarða í bréfi til Sam-
bands sunnlenskra sveitarfélaga.
Ráðherra svaraði því m.a. til að tvö-
földun vegarins væri mjög umfangs-
mikil og flókin. Kostnaður gæti leikið
á mjög stóru bili, eftir því hvernig
staðið yrði að verkinu. „Stóri kostn-
aðarþátturinn þarna sem leiðir til
þessara breytilegu upphæða liggur í
því hvort við förum í hringtorg eða
mislæg gatnamót. Það mun vera svo
að yfir 70 gatnamót liggja á Suður-
landsvegi, ef við tökum hann sem
dæmi, austur á Selfoss.“
Fleiri þingmenn blönduðu sér í um-
ræðuna. Drífa Hjartardóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, sagði m.a.
að Vegagerðin ætti að hætta við und-
irbúning svonefnds 2 + 1 vegar og
byrja að undirbúa tvöföldun vegarins.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna, sagði m.a. að ef
ákvörðun yrði tekin á Alþingi um að
tvöfalda Suðurlandsveg myndi Vega-
gerðin vinna samviskusamlega að því.
Óvissa um kostnað
við tvöföldun
SAUTJÁN einstaklingar sóttu um
hæli á Íslandi fyrstu sex mánuði
þessa árs. Þar af voru fjögur börn
undir 16 ára aldri, öll í fylgd foreldra.
Þetta kemur fram í skriflegu svari
dómsmálaráðherra við fyrirspurn
Álfheiðar Ingadóttur, varaþing-
manns Vinstri grænna. Einn af þess-
um hælisleitendum hefur horfið, að
því er fram kemur í svarinu.
Í svarinu segir að enginn umsækj-
endanna í ár hafi verið talinn flótta-
maður í skilningi flóttamannasamn-
ings Sameinuðu þjóðanna. Enginn
þeirra hafi því fengið hæli hér á
landi. Sömu sögu er að segja um um-
sækjendur síðustu fimm árin, að því
er fram kemur í svarinu.
Í svarinu segir að vitað sé um tvo
hælisleitendur sem eignast hafi barn
hér á landi á undanförnum árum.
Annað barnið fæddist í nóvember
2003 og hið síðara í maí á þessu ári.
Enginn
fengið hæli
ÖNNUR umræða um Ríkisútvarpið
ohf. fór fram á Alþingi í allan gærdag
og stóð langt fram á kvöld. Frum-
varpinu verður vísað til þriðju og síð-
ustu umræðu í dag og er gert ráð
fyrir því að það fari aftur til umfjöll-
unar í menntamálanefnd þingsins.
Samkomulag náðist um það í fyrri-
nótt milli stjórnar og stjórnarand-
stöðu að klára aðra umræðu um
frumvarpið fyrir jól, en fresta síð-
ustu umræðu og þar með afgreiðslu
frumvarpsins þar til eftir áramót.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra sagði í samtali
við blaðamann í gær að hún væri sátt
við samkomulagið. „Ég er sátt við
það að við klárum aðra umræðu, en í
henni er alltaf mikill þungi. Síðan
byrjum við strax eftir áramót, fyrr
heldur en gert var ráð fyrir, til að
klára Ríkisútvarpið.“
Vilja vísa frumvarpinu frá
Mörður Árnason, Samfylkingu,
mælti fyrir minnihlutaáliti mennta-
málanefndar, en í því er lagt til að
frumvarpinu verði vísað frá og næsta
mál verði tekið á dagskrá. Greidd
verða atkvæði um þá tillögu í dag, en
að henni stendur öll stjórnarand-
staðan. Í minnihlutaáliti mennta-
málanefndar segir m.a. að með frum-
varpinu sé ekki skapaður sá
starfsrammi sem Ríkisútvarpinu
hæfi og þar með ekki sá starfsfriður
sem RÚV sé nauðsynlegur.
Sigurður Kári Kristjánsson, for-
maður menntamálanefndar, mælti
fyrir nefndaráliti meirihlutans, en í
því eru lagðar til nokkrar breytingar
á frumvarpinu, m.a. að Ríkisútvarp-
inu verði óheimilt að selja auglýsing-
ar til birtingar á Netinu, eins og
greint hefur verið frá í Morgun-
blaðinu. Að lokinni framsögu Sigurð-
ar Kára innti Össur Skarphéðinsson,
Samfylkingu, þingmanninn eftir áliti
hans um umsögn Samkeppniseftir-
litsins. Stofnunin hefði komist að
þeirri niðurstöðu að afgreiðsla frum-
varpsins myndi hafa í för með sér
samkeppnislega mismunun.
Sigurður Kári svaraði því m.a. til
að þar sem ríkið tæki þátt í sam-
keppni, þar ríkti einhvers konar mis-
munun. „Leikurinn verður alltaf
ójafn þegar ríkið er þátttakandi.“
Hann ítrekaði ennfremur að ekki
væri pólitísk samstaða um það innan
þingsins að taka RÚV af auglýsinga-
markaði, eins og Samkeppniseftirlit-
ið legði m.a. til.
Kolbrún Halldórsdóttir, Vinstri
grænum, sagði m.a. að sú ákvörðun
að gera RÚV að opinberu hlutafélagi
jafngilti í hennar huga ákvörðun um
einkavæðingu. Dagný Jónsdóttir,
Framsóknarflokki, sagði hins vegar
að vilji beggja stjórnarflokkanna
væri skýr; það stæði ekki til að selja
RÚV. Einar Már Sigurðarson, Sam-
fylkingu, spurði Dagnýju m.a. út í
ummæli Björns Inga Hrafnssonar,
borgarfulltrúa Framsóknar, um að
meirihluti framsóknarmanna væri á
móti hlutafélagavæðingu RÚV.
Dagný kvaðst ekki geta svarað
fyrir Björn Inga en sagði að á síðasta
miðstjórnarfundi hefði einn fundar-
manna talað um að álykta gegn
RÚV-frumvarpinu. Enginn hefði
hins vegar tekið undir það. Þar með
gæti grasrótin ekki verið á móti mál-
inu.
Guðjón Ó. Jónsson, Framsóknar-
flokki, sagði síðar í umræðunni að
Framsóknarflokkurinn væri búinn
að beygja Sjálfstæðisflokkinn af
einkavæðingarstefnu RÚV. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, Samfylk-
ingu, kom þá upp og sagði þetta
merkilega yfirlýsingu.
Ræddu um
RÚV í allan
gærdag
Afgreiðslu RÚV-frumvarps frestað
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
SKRÁNING lögheimilis í húsnæði í
frístundabyggð verður óheimil nái
frumvarp félagsmálaráðherra þess
efnis fram að ganga. Félagsmála-
nefnd þingsins hefur fjallað um
frumvarpið og leggur til að það
verði samþykkt með smávægileg-
um breytingum. Tilurð frumvarps-
ins er dómur Hæstaréttar Íslands
um að sveitarfélaginu Bláskóga-
byggð hafi ekki verið heimilt að
synja fjölskyldu um skráningu lög-
heimilis í sumarhúsi.
Í fylgiskjölum frumvarpsins kem-
ur fram að í kjölfar dómsins hafi
ráðuneytinu borist erindi frá sveit-
arfélögum og samtökum þeirra þar
sem m.a. var skorað á ráðherra að
beita sér fyrir því að lög verði end-
urskoðuð með það í huga að komið
verði í veg fyrir að hægt sé að skrá
lögheimili í skipulagðri frístunda-
byggð. Vísað var til þess að ef lögin
stæðu óhögguð myndi það kalla á
verulega aukna þjónustu og kostn-
að fyrir sveitarfélögin. Algert
frjálsræði í vali á búsetu innan
sveitarfélags gæti ekki aðeins graf-
ið undan forræði sveitarfélaga í
skipulagsmálum heldur gæti það
einnig haft áhrif á rekstrargrund-
völl þeirra. Skv. frumvarpinu verð-
ur þó ekki útilokað að fá samþykki
fyrir lögheimilisskráningu í frí-
stundabyggð ef viðkomandi hefur
þar fasta búsetu.
Morgunblaðið/ÞÖK
Skráning lögheimilis í
frístundabyggð óheimil