Morgunblaðið - 08.12.2006, Síða 36

Morgunblaðið - 08.12.2006, Síða 36
Banfi Summus 2001 er ansi sérstök blanda úr þrúgunum Brunello (Sangiovese), Caber- net Sauvignon og Syrah. Þetta er eitt af vín- unum sem stundum eru flokkuð sem „Súp- er“-Toskana vín þar sem að þau eru í úrvalsdeildinni en falla ekki að ítölsku vínlög- gjöfinni. Summus 2001 er fínlegt, allt að því kvenlegt með svörtum kirsu- og sólberjum, ögn af beisku súkkulaði og eik samofið við fínleg tannín og nokkra sýru sem gefur víninu svolítið Bordeaux-lega uppbyggingu. Þetta vín er fáanlegt í fríhöfninni í Keflavík og kostar þar 2.990 krónur. 19/20 Banfi Chianti Classico Riserva 2003 stíft, mjög þurrt og klassískt með áberandi kirsjuberjum, fjólum og sýru. Hefði gott af 1–2 árum af þroska til viðbótar eða klukku- tíma í karöflu fyrir neyslu. 1.290 krónur í Fríhöfninni. 17/20 Falesco Vitiano 2004 er rauð- vín frá einum þekktasta vín- framleiðanda Úmbríu. Bjartur, þykkur, sætur og aðlaðandi ávöxtur í nefi. Kirsuber í súkku- laði og rifsberjahlaup. 1.490 krónur. 17/20 Að lokum suður-franskt rauð- vín frá Fitou sem er svæði innan héraðsins Languedoc-Rousillon. Ekkert slor heldur einn besti framleiðandi svæðisins. Chateau des Erles Fitou 2003 er dökkt og djúpt á lit og ilmmikið, þarna er vanilla, plómur og sveskjur með svörtu súkkulaði. Vel uppbyggt og aðgengilegt, mild tannín, nokkuð kryddað og þægilegt. Ynd- islegt núna en mun batna og batna á næstu árum. Gott með t.d. hreindýri eða rósm- arínkrydduðu lambakjöti. 3.690 krónur. 19/ 20 Byrjum á hvítvíni og rauðvíni frá ein-um af betri vínhúsum Suður-Afríku, Le Bonheur í Stellenbosch.Þetta er ein af gömlu tignarlegu landareignunum á þessu svæði og fellur und- ir skilgreininguna Estate sem er nokkurn veginn sama hugtak og Chateau í Frakk- landi. Le Bonheur Chardonnay er skarpt og fók- userað hvítvín með mikilli og hreinni eik sem verður þó ekki þung og yfirþyrmandi. Undir viðnum og í bland við hann ferskur og sætur ávöxtur, límóna og ananas. Góð sýra heldur víninu lifandi og léttu. 1.590 krónur. 17/90 Le Bonheur Merlot-Cabernet Sauvignon er vel gert og athyglisvert rauðvín. Byrjar með mikilli angan af sólberjum og krækiberj- um, það er eins og hellt hafi verið Ribena- safa í glasið. Fljótlega bætist þó meira við, vanilla og viður, súkkulaði og púðursykur. Uppbygging öll góð, lengd yfir meðallagi. 1.790 krónur. 18/20 Tökum þá næst tvennu frá Chile, nánar til- tekið frá Apalta-svæðinu í Colchagua-dalnum. Þar hefur Lapostolle-fjölskyldan franska (sem oft er kennd við Grand Marnier) fjár- fest í glæsilegri víngerð og haft einn þekkt- asta vínráðgjafa veraldar, Michel Rolland, sér til halds og trausts. Casa Lapostolle Sauvignon Blanc 2005 er kröftugt hvítvín, angan af perum, hvítum ávöxtum og marsipandeigi, langt og ferskt. 1.490 krónur 17/20 Casa Lapostolle Merlot Cuvée Alexander Apalta Vineyard 2003 er vín með heitt og kryddað yfirbragð, þungur allt að því sultu- kenndur berjailmur með mikilli eik, sætri og brenndri. Þarna er líka kaffi og píputóbak, í munni heitt og feitt. 2.490 krónur. 18/20 Að lokum yfir til Evrópu og Ítalíu og þrjú rauðvín þaðan. Vín frá þremur heimsálfum vín 36 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ 2300.- 995.- 2500.- 2900.- 1900.- 1500.- 2300.- 1800.- 1800.- 1800.- 995.- Klapparstíg 44 Sími 562 3614 SÆNSKAR JÓLAVÖRUR Laugavegi 40 Sími 561 1690 Pottþétt jólagjöf opið virka daga 11-18, laug. 11-18 og sunnud. 11-17 RALPH LAUREN Laugavegi 51, sími 552 2201 Kjólar Töskur Hárskraut j l Skólavörðustíg 7, Rvík, sími 551 5814 Mesta hanskaúrval landsins Til jólagjafa Hanskar frá kr. 2.200 Einnig mikið úrval af • Töskum • Seðlaveskjum • Skjalatöskum • Ferðatöskum LANGUR LAUGARDAGUR Í MIÐBORGINNI HJÁLMAR fækka ekki höfuðáverkum meðal hjólafólks. Þetta er niðurstaða ástralskrar rannsóknar sem styðst við reynslu af hjálm- notkun í ólíkum löndum. Áströlsku vísindamennirnir komast að þeirri niðurstöðu að hjólreiðamenn taki frek- ar áhættu séu þeir með hjálm sem fjölgar slysum, að því er Jyllandsposten greinir frá. Áður hefur gagn reiðhjólahjálma verið mælt með því að bera saman höfuðáverka hjól- reiðamanna eftir því hvort þeir hafa verið með hjálm eða ekki. Þessar rannsóknir hafa sýnt að þeir sem nota hjálm fái færri áverka. Hins vegar hafa rannsóknirnar ekki tekið til- lit til þess hvort þeir hegði sér eins við hjól- reiðarnar með og án hjálms. Fleira hefur þarna neikvæð áhrif. Til dæm- is virðast ökumenn taka síður tillit til hjól- reiðamanna sem eru með hjálm. Þá eru þeir til sem beinlínis hætta að hjóla þegar skylda er að nota hjálm, líkt og í Ástralíu. Morgunblaðið/Árni Torfason Slys Áverkum fækkar ekki með hjálmum. Hjálmar fækka ekki slysum heilsa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.