Morgunblaðið - 08.12.2006, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006 43
Í DAG fögnum við því að hafa búið
við almannatryggingakerfi í 70 ár. Í
dag verður einnig opnaður nýr þjón-
ustuvefur Trygg-
ingastofnunar. Á
hverjum degi koma
mörg hundruð manns í
þjónustumiðstöðina á
Laugavegi, aðrir
hringja í þjónustuver
eða senda fyrirspurnir
í tölvupósti. Mörgum
finnst vandratað um
velferðarkerfið okkar.
Starfsfólk Trygg-
ingastofnunar leitast
við að veita við-
skiptavinum upplýs-
ingar um réttindi
þeirra og markmiðið er
ávallt að veita sem allra besta þjón-
ustu. Hluti af þessari þjónustu er að
gera vefinn okkar sem best úr garði
fyrir alla, enda er vefurinn sívaxandi
samskipta- og þjónustutæki.
Það eru spennandi tímar fram-
undan, þar sem stjórnsýslan og allt
umhverfi hennar mun sífellt verða
rafrænna. Nú þegar eru nokkur
dæmi um rafræna þjónustu hjá TR;
viðskiptavinir geta sótt eyðublöð á
vefinn og þar með sparað sér ferð í
þjónustumiðstöð eða umboð og sum
þjónustuferlin eru alveg rafræn,
eins og til dæmis umsókn um Evr-
ópska sjúkratryggingakortið. Einn-
ig geta viðskiptavinir reiknað út
hvað þeir muni fá í fæðingarorlof og
lífeyri og hlaðið niður bæklingum
sem gefnir hafa verið út um ýmis
réttindi til almannatrygginga. Í
framtíðinni verður hægt að spara
viðskiptavinum mörg spor með auk-
inni rafrænni þjónustu. Þrátt fyrir
það verður þeim sem ekki geta eða
vilja nýta sér þjón-
ustuleiðir vefsins veitt
þjónusta sem fyrr.
Það mikilvægasta við
smíði og útfærslu nýs
vefs er að móta hann
eftir óskum þeirra sem
nota hann hvað mest.
Þess vegna vildum við
fá fram skoðanir sem
flestra og ábendingar
frá væntanlegum not-
endum, og var boðað til
vinnu með rýnihópum
til að fá viðbrögð þeirra
við nýju síðunni. Rýni-
hóparnir voru mynd-
aðir af fólki sem vinnur í heilbrigð-
iskerfinu eða í hagsmunasamtökum
þeirra sem nota þjónustu Trygg-
ingastofnunar mikið. Starfsmenn
fengu einnig aðgang að nýja vefnum
mánuði fyrir opnun og voru duglegir
að benda á hvað þeim fannst mega
auka við eða bæta. Vefurinn verður
að sjálfsögðu áfram í þróun. Við för-
um nú að hefja ákveðið endurskoð-
unarferli þar sem farið verður í
gegnum allar ábendingar og at-
hugasemdir, og breytingar gerðar
með tilliti til þeirra.
Aðaláherslurnar við gerð nýju síð-
unnar voru aðgengi, nýtt útlit, grein-
argóður texti og umfram allt bætt
þjónusta. Starfsemi Tryggingastofn-
unar miðast við, og er fyrir, fólkið í
landinu. Það er í anda starfseminnar
að hafa aðgengi sem best svo að allir
sitji við sama borð, þó að aðgengi á
vefnum eigi að sjálfsögðu alltaf að
vera forgangsmál. Á síðunni reynum
við að hafa auðlesnar upplýsingar
sem auðvelt er að finna og höfðum til
notendahópa með ólíkar þarfir frek-
ar en að greina efni eftir lagaheitum
eða bótaflokkum. Meðal þess sem
við gerum nú til að hafa aðgengið að
upplýsingum sem best er að bjóða
upp á stækkanlegt letur, breytilega
litasamsetningu, öfluga leitarvél og
eins skilmerkilega framsetningu á
texta og völ er á. Með góðri sam-
vinnu við notendur vefsins stefnir
TR að vottun aðgengis á næstunni.
Fyrir liggur mikil vinna við að móta
aðgengisstefnu og öðlast þessa vott-
un. Við gerum okkur grein fyrir því
að við eigum enn langt í land, en við
ætlum að gera okkar besta.
Aðgengi og þjónusta
Guðbjörg Guðmundsdóttir
skrifar um almannatryggingar
í tilefni af opnun nýs þjón-
ustuvefs Tryggingastofnunar
» Það mikilvægastavið smíði og útfærslu
nýs vefs er að móta
hann eftir óskum þeirra
sem nota hann hvað
mest.
Guðbjörg
Guðmundsdóttir
Höfundur er verkefnisstjóri í kynn-
ingarmálum TR.
TENGLAR
..............................................
www.tr.is
I.
SÚ FRÉTT birtist á forsíðu
Morgunblaðsins fyrir skömmu að ný
stytt útgáfa Biblíunnar
væri efst á met-
sölulista bóka almenns
eðlis þá vikuna, og í
áttunda sæti yfir allar
bækur á sölulista. Um
er að ræða útgáfu sem
heitir Biblían á hundr-
að mínútum. Þetta
sýnir þann mikla
áhuga sem Biblían
vekur nú sem fyrr.
Hvað er eiginlega
Biblían og hvað gerir
hana svona eftirsótta?
Biblían, helgirit krist-
inna manna, er í raun ekki ein bók
heldur safn bóka, enda þýðir orðið
Biblía, sem er komið úr grísku,
margar bækur og frá henni er komið
útlenda orðið Biblíótek eða bóka-
safn.
Elstu bækur Biblíunnar, ritaðar á
hebresku, geyma sögur, lög, annála
og ljóð Ísraelsmanna frá því löngu
fyrir daga fyrir Krists og var þeim
safnað í Gamla testamentið. Gamla
testamentið eins og kristnir menn
kalla það er í raun hebreska Biblían
eða Biblía gyðinga.
Hebreska Biblían tengir saman
kristna menn og gyðinga og er sam-
eiginlegur arfur þeirra. Múslímar
sækja líka í þann arf, því margar
sögur Kóransins tengjast Biblíunni.
Þannig er Abraham sem sagt er
frá í Gamla testamentinu, ættfaðir
bæði gyðinga, kristinna og múslíma.
Nýja testamennið geymir guð-
spjöllin, söguna af lífi, starfi, dauða
og upprisu Jesú. Þar er
einnig að finna bréf, op-
inberanir og frásagnir
frá fyrstu árum kirkj-
unnar.
II
En Biblían er ekki
aðeins áhugaverð sem
trúarrit. Í 2000 ár hafa
menn túlkað boðskap
hennar í myndlist, tón-
list, leiklist, bók-
menntum og kvik-
myndum. Áhrif hennar
á hugmyndafræði og orðfæri Vest-
urlanda eru ómælanleg.
Þannig er í raun ómögulegt að
skilja vestræna menningu án þess að
þekkja Biblíuna. Lítið dæmi um það
er íslenska skjaldarmerkið, en hug-
myndina að landvættunum fjórum
er gæta Íslands sækir Snorri Sturlu-
son í Biblíuna.
III
Öll rit Biblíunnar lesa kristnir
menn fyrst og fremst í ljósi Jesú
Krists. Postular hans predikuðu
fagnaðarerindið um hann og vitnuðu
í spádóma Gamla testamentisins til
að skýra mál sitt. Og enn í dag túlka
kristnir menn orð ritningarinnar í
ljósi hans. Nýjar þýðingar og út-
gáfur líta dagsins ljós og eru lesnar
af ákafa – eins og bókin Biblían á
hundrað mínútum.
Þess vegna er Biblían líka met-
sölubók – ekki aðeins hér á landi
heldur um víða veröld.
Biblían – metsölubók
Þórhallur Heimisson fjallar um
rit Biblíunnar » Öll rit Biblíunnarlesa kristnir menn
fyrst og fremst í ljósi
Jesú Krists.
Þórhallur Heimisson
Höfundur er prestur
við Hafnarfjarðarkirkju.
Bókin sem allir eru að tala um
- og þú verður að lesa!
„Ég ætlaði ekkert að lesa hana, bara að þefa af
henni eins og maður gerir við flestar bækur á þessum
árstíma. En það var eitthvað við upphafið (...) sem
laðaði mig inn í bókina uns ég gat ekki hætt að lesa.
Flott verk.“
Silja Aðalsteinsdóttir á tmm.is
„Með betri ævisögum íslenskra stjórnmálaleiðtoga.
Opinská, fróðleg, áhrifarík og umfram allt skemmti-
leg. Ég mæli sterklega með þessari bók.“
Guðmundur Steingrímsson
á gummisteingrims.blog.is
Einlæg og átakamikil ævisaga sem
lætur engan ósnortinn
2. SÆTI Á BÓKSÖLULISTANUM
- ævisögur og endurminningar
28. nóv. til 4. des.
Fréttir á SMS