Morgunblaðið - 07.01.2007, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
TIL AÐ aðgreina betur fjármögnun
sjúkrahúsa og starfsemi sjálfstætt
starfandi augnlækna hefur heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið ákveðið að frá og með sl. ára-
mótum eigi allur undirbúningur og
eftirskoðanir vegna augasteins- og
glákuaðgerða að fara fram á því
sjúkrahúsi sem framkvæmir að-
gerðirnar. Héðan í frá verður
óheimilt að senda Tryggingastofnun
ríkisins reikninga vegna þessara
verka og þau tekin út af gjaldskrá
sjálfstætt starfandi augnlækna.
Þetta kemur fram í bréfi sem Jón
Sæmundur Sigurjónsson, formaður
samninganefndar ráðuneytisins,
hefur sent Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi (LSH), Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) og
St. Jósefsspítala fyrir hönd ráð-
herra.
Bréfið markar tímamót
Magnús Pétursson, forstjóri
LSH, segir bréfið marka nokkur
tímamót. Ákvörðunin falli vel að
þeirri stefnu sjúkrahússins að auka
göngu- og dagdeildarstarfsemi að
vissu marki. Skoðun stjórnenda
spítalans sé að lækningar séu stöð-
ugt að færast meira í dag- og
göngudeildarform og að því hafi
verðið unnið á LSH. Hvað augn-
lækningar varði sé það í þágu sjúk-
linga að samfella í þjónustu sé ávallt
sem best. Til þess að spítalinn geti
orðið við þessari kröfu þurfi að huga
að aðstöðu inni á sjúkrahúsinu, bæði
mannafla og húsnæði. Hingað til
hafi skoðanir sem um ræðir verið
framkvæmdar á stofum sjálfstætt
starfandi augnlækna utan spítalans.
Í bréfi ráðuneytisins kemur fram
að ákvörðunin hafi verið tekin að
lokinni yfirferð yfir starfsemi sjálf-
stætt starfandi augnlækna. Sú vinna
hafi leitt í ljós að undirbúningur fyr-
ir aðgerðir á sjúkrahúsum, aðallega
í tengslum við augasteins- og gláku-
aðgerðir, hafi færst í auknum mæli
yfir á samning sjálfstætt starfandi
augnlækna ásamt skoðunum eftir
slíkar aðgerðir.
Þá segir í bréfinu að mikilvægt sé
að þau sjúkrahús sem sinnt hafa
biðlistaaðgerðum grípi til þeirra að-
gerða „sem nauðsynlegar eru til að
þau geti annast alla þjónustu tengda
biðlistaaðgerðum á [þessu ári], þ.e.
að tekið verði tillit til kostnaðar
vegna forskoðana og eftirfylgni.“
„Á augndeild Landspítalans skap-
ar þetta talsverð vandamál sem við
erum að reyna að leysa úr. Þessi
ákvörðun kom með skömmum fyr-
irvara [14. desember 2006] þannig
að við höfðum ekki marga vinnu-
daga til þess að undirbúa og laga
okkur að þessu,“ segir Einar Stef-
ánsson, prófessor í augnlækningum
við Háskóla Íslands og yfirlæknir
augnlækningadeildar LSH. Einar
starfar einnig á Augnlækningastofu
Reykjavíkur. „Þetta þýðir verulega
fjölgun á skoðunum [á LSH] sem
hafa sumar hverjar verið gerðar á
stofum augnlækna úti í bæ. Þær
þurfa þá að flytjast inn á göngudeild
spítalans og þar skapast flöskuháls.
Við óttumst að þetta muni leiða til
þess að þessum aðgerðum muni
fækka.“ Ekkert fjármagn fylgi
ákvörðuninni. „Við reynum að bæta
úr þessu af bestu getu með því að
skipuleggja hlutina eins vel og við
kunnum. En málið er að bæði hús-
næði og mannskapur var nokkuð
fullnýttur fyrir, þannig að svona
mikil aukning sem þetta er og svona
skyndilega, hún veldur truflunum,
það er óhjákvæmilegt.“
Einar segir ákvörðunina auk þess
setja sjálfstætt starfandi augn-
lækna, sem sinnt hafa þessum rann-
sóknum, í klemmu.
Svar við kröfum augnlækna
„Það er eðlilegt að viðeigandi
rannsóknarstarfsemi sé fyrst og
fremst þar sem aðgerðirnar eru
framkvæmdar og sé þannig sam-
hangandi hluti af dæminu,“ segir
Jón Sæmundur Sigurjónsson, for-
maður samninganefndar heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra. Hann
segir augnlækna hafa leitað til ráðu-
neytisins í sumar þar sem stefnt
hafi í að þeir færu verulega fram úr
þeim fjárheimildum sem samningur
þeirra við ráðuneytið kveður á um.
„Þegar sjúkrahúsin, sem fram-
kvæma aðgerðirnar, senda rann-
sóknir sem þeim tengjast út á mark-
aðinn, er verið að ganga á þann
kvóta augnlækna sem þeir hafa
samið um að nota til að sinna sínum
sjúklingum.“
Ráðherra hafi brugðist við kvört-
unum augnlækna og látið fara fram
talningu á fjölda rannsókna vegna
augnaðgerða á sjúkrahúsum, en
þær reyndust vera sem svaraði 102
þúsund einingum sem hver kostar á
220 kr. eða rúmlega 22,4 milljónir
króna. Niðurstaða ráðherra var sú
að bæta augnlæknum upp þá skerð-
ingu sem þessi þjónusta hefði ann-
ars valdið.
Jón Sæmundur segir að þetta
ástand geti í einhverjum mæli átt
við um fleiri sérgreinar. Hins vegar
sé því svo farið í mörgum tilfellum,
t.d. varðandi bæklunaraðgerðir, að
þær eru að stórum hluta gerðar ut-
an sjúkrahúsa. „Ef sérgrein lækna
sér ekki ástæðu til að grípa til að-
gerða til verndar samningi sínum,
þá sér ráðuneytið það heldur ekki
að öðru jöfnu,“ svarar Jón Sæmund-
ur spurður um hvort ráðuneytið
muni skoða fleiri sérgreinar með til-
liti til þessa.
Rannsóknir vegna augnað-
gerða verði gerðar á LSH
Morgunblaðið/Kristinn
Augljóst Ákvörðun ráðherra að færa allar rannsóknir vegna augnaðgerða LSH inn á sjúkrahúsið þýða að líklega
þarf að bæta við mannafla og aðstöðu en sjálfstætt starfandi læknar hafa sinnt mörgum þessara rannsókna.
Í HNOTSKURN»Árið 2005 voru 1.512augnaðgerðir gerðar á
dagdeild LSH í augnlækn-
ingum.
»Á tímabilinu janúar tilnóvember á síðasta ári
voru aðgerðirnar þegar orðn-
ar fleiri eða 1.560.
»Augasteins- og gláku-aðgerðir eru einnig fram-
kvæmdar á FSA og á St. Jós-
efsspítala í Hafnarfirði.
STEFÁN Eiríksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins, segir við-
ræður í gangi milli lögreglunnar,
dómsmálaráðu-
neytis og borg-
aryfirvalda um
fjölgun eftir-
litsmyndavéla
lögreglunnar í
borginni.
„Stefna lög-
reglunnar er
skýr, við telj-
um mikilvægt
að fjölga
myndavélum,“
segir Stefán.
Um átta löggæsluvélar eru í mið-
borginni en ekki hefur verið ákveð-
ið hversu margar vélar þyrftu að
bætast við. „Það er ljóst að við
þurfum að ná yfir stærri hluta mið-
bæjarins og jafnframt höfum við
velt því fyrir okkur hvort eigi að
setja upp vélar annars staðar á höf-
uðborgarsvæðinu,“ segir Stefán.
Aðspurður segir hann Garðastræt-
ismálið eitt þeirra ófáu sakamála
þar sem eftirlitsmyndavélar hafa
nýst mjög vel. Nefnir hann nauðg-
unarmál sem upplýstist á síðasta
ári með aðstoð öryggismyndavéla á
bensínstöð í Breiðholti sem lögregla
fékk aðgang að í þágu rannsókn-
arinnar.
Garðastrætismálið er nú að fullu
upplýst hjá LRH og er yfir-
heyrslum yfir öllum málsaðilum
lokið. Játningar liggja fyrir og lík-
legt er að sakamálið fari í ákæru-
meðferð og saksókn hjá ákærudeild
LRH.
Mikilvægt
að fjölga
löggæslu-
vélunum
Stefán
Eiríksson
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ÁBERANDI fá sakamál komu til kasta ríkissak-
sóknara árið 2005 miðað við árin á undan. Þetta
kemur fram í ársskýrslu embættisins fyrir árið
2005. Fjöldi mála 2005 var 380 en málin voru 532
árið á undan og 405 árið 2003. Árið 2002 var fjöldi
mála 533.
Þótt sakamál ársins 2005 séu langtum færri en
árin á undan er ákæruhlutfallið á hinn bóginn það
hæsta sem sést hefur frá 2001. Þannig var ákært í
67% málanna 380 árið 2005 en hlutfall áranna á
undan var frá 57% til 63%.
Einnig er áberandi fyrir árin 2004 og 2005 í
hversu fáum málum er fallið frá saksókn miðað við
árin á undan. Þannig var fallið frá saksókn í 1% til-
vika árið 2005 og 0,6% árið 2004. Árin á undan hafði
þetta hlutfall verið nokkuð hærra eða frá 1,8% til
3,6%.
Svipaða þróun má sjá hjá embættinu þegar töl-
ur um niðurfelld mál eru skoðaðar. Þá kemur í ljós
að tæp 32% mála voru felld niður árið 2005 en
þetta hlutfall var um og yfir 40% á árunum á und-
an, að undanskildu 2002 þegar hlutfallið var tæp
33%.
Svipaða þróun má sjá hjá embætti ríkislög-
reglustjóra með því að málum sem tekin voru til
rannsóknar fækkaði árið 2005 en hins vegar er
hlutfall niðurfelldra mála svipað og árin á undan,
eða í kringum 16%.
Þess má geta að sakamál er fellt niður þegar
ákærandi telur að það sem komið hefur fram við
rannsókn sé ekki nægilegt eða líklegt til sakfellis.
Hægt er að falla frá saksókn samkvæmt heimild
í lögum þótt ákærandi telji það sem komið hefur
fram við saksókn líklegt til sakfellis.
Ákært í minna en helmingi
kynferðisbrotamála
Varðandi kynferðisbrot sem komu til kasta rík-
issaksóknara árið 2005 má segja að rétt tæplega
annað hvert mál leiði til ákæru á hendur sakborn-
ingi. Þannig var alls 121 kynferðisbrotamál tekið
fyrir 2005 og ákært í 54 þeirra. Fallið var frá sak-
sókn í tveimur málum.
Ef tekin eru eingöngu þau kynferðisbrotamál
sem varða við 194. til 198. grein hegningarlaga,
þ.e. nauðgunarmál, kemur í ljós að 52 slík mál bár-
ust ríkissaksóknara. Í skýrslunni er tekið fram að
„eins og áður er hlutfall niðurfelldra mála í þess-
um málaflokki hátt og voru 32 mál felld niður, á
grundvelli 112. gr. laga um meðferð opinberra
mála,“ segir í skýrslunni.
Fíkniefnamál voru áberandi mörg hjá embættinu
árið 2005, eða 12 talsins en voru á bilinu 4 til 9 á ár-
unum 2002 til 2004. Í málunum 12 var ákært í þeim
öllum og sakfellt í öllum tilvikum í héraðsdómi.
Segja má að sprenging verði í þeim málaflokki
sem fjallar um manndráp á árinu 2005 því á árinu
bárust 9 slík mál og var ákært í þeim öllum. Fjöldi
þessara mála hafði verið 2 til 5 árin á undan.
Afdrif málanna 9 fyrir dómstólum urðu þau að
héraðsdómur sýknaði í flestum þeirra eða 6 og
sakfelldi í 3 málum. Tveim málum var áfrýjað til
Hæstaréttar sem sakfelldi í tveim þeirra.
Fá sakamál komu til kasta
ríkissaksóknara árið 2005
♦♦♦
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands
hefur dæmt 25 ára karlmann til
átta mánaða fangelsisvistar fyrir
umferðarlagabrot og gripdeild.
Hann var að auki sviptur ökuleyfi
ævilangt og gert að greiða 126
þúsund krónur í sakarkostnað.
Ákærði gerði sig m.a. sekan um
aka bifreið undir áhrifum áfengis í
júlí sl. þar til hann velti henni. Í
stað þess að hringja eftir hjálp ýtti
ákærði ásamt farþegum bifreiðinni
aftur á hjólin og hélt akstri áfram.
Samkvæmt sakarvottorði hefur
akstur mannsins ítrekað verið
stöðvaður vegna ölvunar auk þess
sem hann var dæmdur í febrúar sl.
m.a. fyrir að aka 14 sinnum án
ökuréttinda. Hann hefur að auki
ítrekað rofið skilorð sem honum
hefur verið gert að sæta og því um
hegningarauka að ræða.
Héraðsdómarinn Ástríður
Grímsdóttir kvað upp dóminn.
Gunnar Örn Jónsson fulltrúi flutti
málið af hálfu ákæruvaldsins og
Sigurður Sigurjónsson hrl. varði
manninn.
Ók ítrekað
ölvaður
FIMMTÁN ára stúlka, sem
lögreglan í Neskaupstað spurð-
ist fyrir um seint á föstudags-
kvöld, kom í leitirnar á Akur-
eyri í fyrrinótt.
Að sögn lögreglunnar á Ak-
ureyri var stúlkan heil á húfi og
amaði ekkert að henni.
Kom
fram á
Akureyri