Morgunblaðið - 07.01.2007, Page 13
villtir og eru leiðsögninni fegnir.“
Kristján Valur er sammála þessu.
„Stundum hefur fólk engan ráðgjafa
nema sorgina og þegar hún er dýpst
er sorgin ekki góður ráðgjafi.“
Vinir og vandamenn leita oft til
presta og spyrja hvað þeir geti gert
til að hjálpa aðstandendum hins
látna. „Ég segi þessu fólki alltaf að
mesta hjálpin sé fólgin í nálægðinni.
Hættið ekki að þekkja syrgjendur
eins og um holdsveikt fólk sé að
ræða,“ segir Pálmi. „Ef fólk vill
styrkja aðstandendur fjárhagslega
hef ég bent því á að hlaupa t.d. undir
bagga með erfidrykkjuna. Ég finn æ
oftar fyrir því að vinahópar vilji
leggja sitt af mörkum, sérstaklega
unga fólkið sem er yfirleitt um-
hyggjusamt og vill gefa af sér.“
Bálförum fer fjölgandi
Jarðarfarir eru enn algengastar á
Íslandi en bálförum hefur fjölgað
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 13
Fyrirhugað er að leggja fyrir Al-
þingi frumvarp til laga um breyt-
ingar á lögum um kirkjugarða,
greftrun og líkbrennslu. Séra Krist-
ján Valur Ingólfsson, sem átti sæti í
nefndinni sem vann tillögurnar,
segir að verksvið nefndarinnar hafi
aukist á starfstímanum og endur-
skoðun laganna orðið víðtækari en
ráð var fyrir gert í upphafi. Hann
vonast til að frumvarpið verði lagt
fyrir þingið á þessu vormisseri.
Þessar voru helstu breyting-
artillögur sem nefndin gerði:
Nefndin setur hvarvetna inn orð-
ið „kirkjugarðsstjórn“ þar sem
gildandi lög tala um fleiri aðila í
samræmi við gildandi reglur.
Lagt er til að heiti laganna verði
breytt og orðinu „grafreiti“ bætt
þar inn.
Lagt er til að flytja skuli lík í lík-
hús eftir að læknir er búinn að úr-
skurða mann látinn og að tilgreina
skuli hámarks dagafjölda sem megi
vera frá andláti að útför.
Lagt er til að óheimilt sé að
greftra lík eða brenna nema það sé í
kistu og hjúpað líkklæðum eða öðr-
um klæðnaði. Kristján Valur bendir
á að Kirkjuþing hafi lagt til að gefin
yrði undanþága ef um sérstaka
trúarhópa væri að ræða sem hefðu
þann sið að grafa án kistu.
Bætt er við sérstökum kafla um
flutning kistu eða duftkers milli
landshluta eða milli landa og lagt til
að ráðuneytið setji leiðbeinandi
reglur um flutninginn.
Í nýjum kirkjugörðum er skylt að
gera ráð fyrir óvígðum reit og sér-
stökum reitum fyrir önnur trúar-
brögð en kristin.
Sérstakur kafli er um kirkju-
garða og grafreiti og friðhelgi
þeirra. Þar kemur fram að heimilt
sé að afmarka sérstaka reiti fyrir
mismunandi trúarbrögð og einnig
óvígðan reit ef hlutaðeigandi
kirkjustjórn samþykkir. Auk þessa
er bætt við ákvæði um sérstakan
minningarreit við kirkju vegna
horfinna, látinna og drukknaðra er
skuli njóta sömu friðhelgi og leg-
staður.
Sérstakur kafli er um útför og þá
sem koma að útförum og þjónustu
við látna og aðstandendur þeirra.
Kristján Valur segir að prestar í
kirkjunni ættu ekki að koma að út-
förum þar sem ekki sé óskað eftir
kirkjulegum yfirsöng heldur að
leyfa hinum látnu að halda sínum
sið.
Lagt er til að heimild verði veitt
til að taka gjald í líkhúsi til að
tryggja eftirlit.
Lagt er til að heimilt verði að
grafa kistu ungbarns í leiði.
Lagt er til að heimilt verði að
gera þjónustusamning við Kirkju-
garðasamband Íslands. Í þeirri
grein er einnig vakin athygli á því
að reglugerð um kirkjugarðasjóð
hefur aldrei verið sett og nauðsyn-
legt sé að bæta úr því.
Niðurstaða nefndarinnar varð-
andi siðareglur fyrir útfararstofur
var sú að tefla fram alþjóðlegum
reglum sem væru rammi að sér-
stökum siðareglum sem stéttin sjálf
setti sér.
NÝTT FRUMVARP
Í BURÐARLIÐNUM
Launasjóður fræðiritahöfunda
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
Auglýsing um starfslaun
Launasjóður fræðiritahöfunda auglýsir eftir umsóknum um starfslaun úr sjóðnum sem
veitt verða frá 1. júní 2007. Rétt til að sækja úr Launasjóði fræðiritahöfunda hafa höfund-
ar alþýðlegra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku.
Meginhlutverk Launasjóðs fræðiritahöfunda er að auðvelda samningu bóka, og verka í
stafrænu formi, til eflingar íslenskri menningu. Starfslaun eru veitt til hálfs árs, eins árs, til
tveggja ára eða þriggja. Þeir sem hljóta starfslaun úr sjóðnum skulu ekki gegna föstu starfi
meðan á starfslaunatímanum stendur. Starfslaun miðast við núgildandi kjarasamning
félags háskólakennara.
Umsóknarfrestur er 23. febrúar nk.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís, að
Laugavegi 13, sími 515-5800, eða á heimasíðu Rannís - www.rannis.is.
Umsóknir sendist til:
Launasjóður fræðiritahöfunda
Rannís
Laugavegi 13
101 Reykjavík