Morgunblaðið - 07.01.2007, Page 35
Orður ganga reyndar ekki í arf –
því þarf að breyta!
En skáldið Steingrímur Thor-
steinsson kom eftirfarandi vísdómi í
orð hér á árum áður:
Orður og titlar, úrelt þing
– eins og dæmin sanna –
notast oft sem uppfylling
í eyður verðleikanna.
Í lögum um fálkaorðuna segir
m.a.:
„Stórmeistari (forseti) getur, að
ráði orðunefndar, svipt hvern þann,
sem hlotið hefur orðuna en síðar
gerst sekur um misferli, rétti til að
bera hana.“
Hefur virkilega aldrei komið til
þess þrátt fyrir ærin tilefni?
Einstaka menn hafa síðan hafnað
viðtöku orðunnar og er málarinn Jó-
hannes S. Kjarval einn þeirra.
Mér finnst nú að hann hefði getað
látið svo lítið að taka við orðunni
þegar Reykjavíkurborg var búin að
taka við ævistarfi hans að gjöf. Var
orðan ekki kvittun fyrir meintri gjöf
Kjarvals til handa Reykjavík-
urborg?
Brottför bandaríska hersins og
hinu nýfengna sjálfstæði landsins
ber að fagna þó að við eigum eftir að
hirða upp eftir Kanann sorpið um
ókomna tíð.
Rétt fyrir áramót bar síðan hæst í
erlendum fréttum opinbera aftöku
Saddams Husseins. Ég minntist
þess að dóttir mín eldri varð afar
aum um árið er Saddam fannst í holu
nokkurri og grátbað mig um að
skjóta skjólshúsi yfir gamla mann-
inn. Síendursýnd lúsaleit og tann-
skoðun á Saddam fengu tárin til að
brjótast fram úr augunum á barninu.
Ég gat ekki orðið við þeirri bón
hennar að hýsa karlinn um árið og
varð að hryggja hana með því nú að
hægt væri að fylgjast með aftöku
hans í sjónvarpinu. Það gladdi mig
að það skyldi vekja hjá henni furðu
og óhug að opinberar aftökur tíðk-
uðust og væri jafnvel sjónvarpað um
víða veröld.
Á nýársdag horfði ég síðan á ára-
mótaskaupið á Netinu. Það fór um
það eins og þegar ég fór í leikhúsferð
með foreldrum mínum til Helsinki
sem barn og horfði á finnskar leik-
sýningar kvöld eftir kvöld. Ég botn-
aði hvorki upp né niður í neinu sem
þar fór fram ekki frekar en í skaup-
inu. Stökk ekki bros enda kannski
fátt sem vakti kátínu á árinu sem var
að líða.
íslensk hönnun | stólinn
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 35
PÉTUR B. Lúthersson, hús-
gagnaarkitekt, hefur hannað stóla
í tugavís allar götur síðan hann út-
skrifaðist úr lista- og hönn-
unarskóla í Kaupmannahöfn 1964.
„Stundum finnst mér ég varla
gera annað en að hanna stóla,“
segir hann í gríni. Að vísu ekki alls
kostar rétt eins og kemur í ljós
þegar vefurinn hans, pbldesign-
.com, er skoðaður. Þar gefur að
líta fjölbreytt úrval húsgagna að
ógleymdum lömpum og ljósakrón-
um sem hann hefur hannað í ár-
anna rás.
Nýju stólarnir úr smiðju Péturs
nefnast einu nafni Funi og fást í
þremur hæðum og mörgum og
fjörlegum litum. Sóló húsgögn
framleiða Funa og selja í sam-
nefndri verslun og einnig eru stól-
arnir seldir í Design Center í
Knightsbridge í London. Pétur
segir stólana ætlaða jafnt í sam-
komusali og stofnanir sem á heim-
ili. „Þeir eru nettir, meðfærilegir
og staflanlegir auk þess sem hægt
er að fá sérstaka vagna fyrir þá
þegar þeir eru ekki í notkun eða
til flutninga. Stólarnir eru mjög
þægilegir og til að auka enn frek-
ar við þægindin er ráð að setja í þá
lausar sessur sem fást úr kross-
viðarplötum, fóðruðum með
svampi og með fallegu áklæði,“
upplýsir hann og tekur fram að
plastskelin, sem er stærsti partur
stólsins, eigi rætur að rekja til
Þýskalands og sé 40 ára gömul
hönnun.
„Skeljarnar hafa verið til sölu
út um allan heim, en fram til þessa
aðeins boðist með mattri áferð,
sem er þeim ókostum búin að soga
í sig óhreinindi, og í brúnum og
gráum lit. Ég sá þær hins vegar
fyrir mér með glansáferð og í
sterkum litum eða hálfgagnsæjar
og þá líka í sterkum litum og gat
samið við framleiðandann um að
útvega mér þær þannig.“
Stólgrindina hannaði Pétur úr
krómuðum stálpípum með plast-
töppum fyrir teppi eða með filt-
töppum fyrir parket- og flísagólf.
Þar sem grindin er framleidd í
mismunandi hæð, 45 cm, 60 cm og
90 cm, getur Funi sómt sér jafn
vel sem venjulegur stóll, eldhús-
stóll eða barstóll.
Fjör-
legur
Funi
Frönskunámskeið
hefjast 15. janúar
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
Taltímar og einkatímar.
Viðskiptafranska og lagafranska.
Námskeið fyrir börn.
Kennum í fyrirtækjum.
Tryggvagata 8,
101 Reykjavík,
fax 562 3820.
Veffang: www.af.is
Netfang: alliance@af.is
Innritun í síma
552 3870
8.-13. janúar
Margrgét Scheving
félagsráðgjafi og sálgæsluþjónn
Ráðgjöf, stuðningur, meðferð og fræðsla.
Fyrir einstaklinga, hjón, fjölskyldur og
hópa.
• Ég vinn út frá heildarsýn á líf einstaklingsins.
• Samtalsmeðferð, einstaklings og lausnamiðuð
nálgun.
• Hugræn atferlismeðferð.
• Fyrir þau sem vilja öðlast meiri lífsgæði.
• Sem hafa orðið fyrir ofbeldi, líkamlegu, tilfinn-
ingalegu, kynferðis, trúarlegu
• Þau sem eru að kljást við fíknir, og aðstandendur
þeirra.
• Fyrir þau sem þjást af depurð og kvíða.
• Eru yfir kjörþyngd eða eiga við átröskun að stríða
• Þau sem eru að feta sig eftir tólf sporunum.
Upplýsingar og tímapantanir í síma 699-5709.
margretscheving@simnet.is
Geymið auglýsinguna
Hef opnað stofu að
Suðurlandsbraut 6, 2. hæð th.
ISARPAC SÁLGÆSLUÞJÓNN, frá International Schoolof Abuse
(sexual) Related Pastoral Counseling, 1999. Isarpac.dk