Morgunblaðið - 07.01.2007, Síða 42
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Grjótás - Garðabæ.
Glæsilegt parhús á útsýnisstað.
Stórglæsilegt 200 fm parhús á fallegum útsýnisstað með 29 fm innb. jeppabíl-
skúr. Eignin er innréttuð á vandaðan og smekklegan hátt og skiptist m.a. í stórt
opið rými sem í eru eldhús með eyju og vönduðum innréttingum frá Alno og
stofa/borðstofa með útgangi á lóð til suðurs. Arinstofa er innaf borðstofu, þrjú
rúmgóð herbergi auk fataherbergis og tvö glæsileg baðherbergi. Stórar svalir
eru til suðvesturs með útsýni til sjávar og að Snæfellsjökli. Hiti er í stórum hluta
gólfa hússins sem og aukin lofthæð á báðum hæðum hússins. Laust til afh. við
kaupsamn. Verð 53,5 millj.
Ránargata - 3ja herb.
með suðursvölum.
Mjög falleg um 70 fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð og í kjallara. Á hæðinni eru for-
stofa/hol, snyrting, samliggjandi bjartar skiptanlegar stofur með útgangi á nýjar
svalir til suðurs, fallegt eldhús með uppgerðum innréttingum og 1 svefnherb.
og í kjallara eru geymsla og rúmgott nýlega endurnýjað sturtuherbergi. Allt gler
nýlegt. Verð 19,7 millj.
Háaleitisbraut
Glæsilegt 289 fm einbýlishús á tveimur hæðum með innb. bílskúr. Eignin skipt-
ist m.a. í samliggjandi stofur með arni, stórt eldhús með ljósum viðarinnrétting-
um, 5-6 herbergi auk fataherbergis, 2 flísalögð baðherbergi, gesta w.c. auk um
20 fm nýlegs skála sem byggður var við húsið. Rúmgóðar suðursvalir út af stof-
um. Falleg ræktuð og skjólgóð lóð með nýlegri verönd og nýlega hellulagðri
innkeyrslu með hita í. Einnig hiti í tröppum upp að húsi. Verð 76,9 millj.
Hrísmóar - Garðabæ.
Glæsileg íbúð á efstu hæð
með frábæru útsýni.
Glæsileg 186 fm íbúð á efstu hæð í litlu fjöleignarhúsi með 37 fm innb. bílskúr.
Íbúðin skiptist m.a. í eldhús og borðstofu í einu stóru rými, rúmgóðar stofur
með allt að 4,5 metra lofthæð, 2-3 herb. og stórt flísalagt baðherb. með miklum
innréttingum. Á efri hæð íbúðarinnar er 32,6 fm rými og er í dag nýtt sem sjón-
varpsstofa, en auðvelt að breyta í herbergi. Flísalagður sólskáli út af stofum og
þaðan útg. á svalir til suðausturs. Fallegar innréttingar í eldhúsi. Frábært útsýni
er út á Arnarnesvoginn, að Jökli og víðar. Hús í góðu ástandi að utan. Verð
37,9 millj.
Eden - Hveragerði
Um er að ræða fyrirtæki sem hefur fest
sig í sessi sem leiðandi fyrirtæki á sínu
sviði þ.e. þjónustu- og afþreyingarmið-
stöð fyrir ferðamenn, sem byggir starf-
semi sína á því hvað hægt er að gera
með íslenskum jarðhita í ræktun á
plöntum auk verslunar- og veitinga-
sölu. Miklir möguleikar eru í að þróa starfsemina frekar og tengja hana í ríkari
mæli við Hveragerði sem er vaxandi bær fyrir heilsutengda þjónustu. Fyrir ligg-
ur tillaga að deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir 1.500 fm stækkun gróðurhúsa og
tengibyggingar aftan við núverandi veitingasal. Einnig er gert ráð fyrir fjögurra
hæða hótelbyggingu með fjölda herbergja, auk kj., á austurhluta lóðarinnar. All-
ar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
42 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
VERÐTILBOÐ
Falleg 2ja herb. 69,2 fm. íbúð á 1 hæð með sérinn-
gangi í hjarta borgarinnar. Vandaðar innréttingar og
gólfefni. Lofthæð um 3 metrar. Þvottahús er innan
íbúðar. Möguleiki á að hafa gæludýr.
Skipti möguleg á annarri eign.
Ólafur tekur á móti gestum s. 824 6703
Fr
u
m
Tryggvagata 4-6 - 101 Rvk
Opið hús í dag kl. 15:00 - 17:00
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Reisulegt og fallegt einbýlishús á þremur
hæðum á eftirsóttum stað. Húsið er samtals
253,9 fm, þar af bílskúr 28 fm. Í kjallara er
góð íbúð með sérinngangi. Húsinu hefur ver-
ið vel viðhaldið, það býður uppá mikla mögu-
leika og hefur fallega aðkomu. Þetta er ein-
stök eign á rólegum og góðum stað.
TUNGUVEGUR - 108 RVK
Hafir þú áhuga á nánari upplýsingum eða skoð-
un er velkomið að hafa sambandi við Þóru
Þrastardóttur sölufulltrúa í síma 822-2225.
NÝLEGA birti Finnska vís-
indaráðið greiningu á
stöðu finnskra vísinda í
samanburði við aðrar
þjóðir innan OECD. Sá
samanburður byggist
annars vegar á fjölda
greina sem birtar eru í
alþjóðlega við-
urkenndum vís-
indaritum og hins vegar
á fjölda tilvitnana í
þessar sömu greinar.
Hið síðarnefnda er al-
mennt viðurkenndur
mælikvarði á það hvaða
athygli birtar vís-
indagreinar hafa vakið meðal annarra
vísindamanna eða starfssystkina á
sömu fagsviðum um allan heim. Þess-
ir tveir kvarðar mæla þannig annars
vegar afköst og hins vegar gæði vís-
indastarfs og áhrif á þróun vísinda
eða fræða. Samanburður varðandi
fjölda birtinga eða afköst vísindanna
er miðaður annars vegar við höfða-
tölu. Samanburður milli landa varð-
andi fjölda tilvitnana er mældur með
vísitölu þar sem teknar eru allar birt-
ingar allra OECD-landanna og reikn-
að út meðaltal tilvitnana en staða ein-
stakra landa er sýnd sem frávik frá
meðaltali OECD-landanna. Sam-
anburðurinn er þannig óháður höfða-
tölu.
Í greiningu Finnska vísindaráðsins
eru tölur um Ísland teknar með. Nið-
urstöður eru afar athyglisverðar. Í
ljós kemur að Íslendingar voru árið
2005 fjórðu í röðinni á
heimsvísu að því er
varðar fjölda birtra vís-
indagreina miðað við
höfðatölu en voru í 12.
sæti árið 1995. Miðað
við fjölda tilvitnana
voru þeir í fimmta sæti
árið 2005 og í 7. sæti ár-
ið 1995. Þau lönd sem
eru fyrir ofan okkur í
fjölda birtinga árið 2005
eru lönd eins og Sviss,
Bandaríkin, Danmörk
og Finnland en í tilvitn-
unum standa Sviss,
Bandaríkin, Danmörk og Holland
framar okkur.
Þegar miðað er við fjölda tilvitnana
á 6 sviðum vísinda er staðan þessi:
Í náttúruvísindum er Ísland 3ja
í röðinni með vísitöluna 1,23 á
eftir Bandríkjunum og Sviss
sem bæði eru með vísitöluna
1,30.
Í læknavísindum er Ísland einn-
ig í 3. sæti með vísitöluna 1,29 á
eftir Sviss með 1,36 og Band-
ríkjunum með 1,30.
Í landbúnaðarvísindum eru Ís-
lendingar númer 2 í röðinni með
vísitöluna 1,48 á eftir Finnum
sem eru með vísitöluna 1,56.
Í verkfræði og tækni eru Ís-
lendingar í 23. sæti með vísitöl-
una 0,84.
Í félagsvísindum eru Íslend-
ingar í 16. sæti með vísitöluna
0,81.
Í hugvísindum eru Íslendingar
svo í 4. sæti með vísitöluna 1,33
á eftir Grikkjum með vísitöluna
1,94, Dönum með 1,64 og Hol-
lendingum með 1,60.
Ekki verður sagt annað en þetta sé
góður árangur og greinilegt að vax-
andi athygli beinist að Íslendingum á
þessu sviði eins og komið hefur fram í
mati margra erlendra aðila á sam-
keppnistöðu Íslands í alþjóðlegu sam-
hengi. Segja má að við uppskerum
eins og við sáum því við erum einmitt
í 4.–5. sæti meðal OECD þjóða í fjár-
framlögum til rannsókna og þróunar
sem hlutfall af landsframleiðslu og er
það í samræmi við frammistöðuna
sem rakin er hér að ofan.
Þess má geta að sóknarárangur ís-
lenskra vísindamanna í samstarfs-
áætlun Evrópusambandsins um
rannsóknir og þróun hefur verið
langt umfram það sem gerist og
gengur og endurspeglar ofangreind
styrkleikasvið, þ.e. í læknavísindum,
umhverfisvísindum, orkurann-
sóknum, matvælafræði og mat-
vælatækni. Hugvísindin hafa ekki
komið eins mikið fram á völlinn í Evr-
ópusamstarfi en eiga greinilega fullt
erindi miðað við þann styrk sem þau
sýna í ofangreindum samanburði
Finnanna. Við greiðum nú 16,5 millj-
ónir evra inn í sameiginlegan rann-
sóknarsjóð 6. rammaáætlunar ESB
samkvæmt EES-samningnum en nú
eru allar horfur á því að Íslendingar
fá um 25 milljónir evra úr honum í
samkeppnisstyrkjum eða um 50%
meira en við greiðum í hann. Þetta
fæst í harðri alþjóðlegri samkeppni
og endurspeglar því að nokkru leyti
vísindalega samkeppnisstöðu þjóð-
arinnar og staðfestir þannig grein-
ingu Finnanna.
Nú skal tekið fram að allir svona
mælikvarðar orka tvímælis. Hvorki
fjöldi vísindagreina né tilvitnanir í
þær eru einhlítar. Einnig verður að
spyrja hvernig þessi góða vísindalega
og þekkingarlega frammistaða verð-
ur okkur til framdráttar. Þar ræður
ekki síður geta til að hagnýta þennan
styrk til nýsköpunar bæði í fram-
leiðslu og þjónustu og auka mátt okk-
ar til að sækja fram í hnattvæddu
samfélagi þjóða. Þá þarf margt fleira
að koma til, bæði stuðningur hins op-
inbera sem og frumkvæði atvinnulífs-
ins og fjármagn úr framsæknu fjár-
málakerfi.
Það skal einnig tekið fram að þótt
tilvitnanatíðni birtra greina í verk-
fræði og félagsvísindum sé nokkru
lægri en á hinum fjórum sviðunum
segir það ekkert um hagnýtt framlag
þessara sviða til íslensks samfélags.
Gæti skýringin á lægri tíðni tilvitnana
verið sú að einmitt í þessum greinum
séu menn meira uppteknir af íslensk-
um veruleika en alþjóðlegri þróun
þessara fræðasviða. En eitt er alveg
víst að í þeirri stöðu vísinda og tækni
á Íslandi sem birtist í greiningu Finn-
anna felast ný tækifæri fyrir íslensk
fyrirtæki og stofnanir sem tvímæla-
laust þarf að nýta. Það blasir m.a. við
að Háskóli Íslands ætti að geta kynnt
sterka frammistöðu sína á sumum
þessara sviða og komast á blað í al-
þjóðlegum samanburði á gæðum há-
skóla eins og stefnt er að.
Framúrskarandi staða
íslenskra vísinda
Vilhjálmur Lúðvíkson skrifar
um stöðu íslenskra vísinda í
samanburði við aðrar þjóðir
innan OECD
»… Íslendingar voruárið 2005 fjórðu í
röðinni á heimsvísu að
því er varðar fjölda
birtra vísindagreina
miðað við höfðatölu …
Vilhjálmur Lúðvíksson
Höfundur er skrifstofustjóri vís-
indaskrifstofu menntamálaráðuneyt-
isins.
Fáðu úrslitin
send í sím-
ann þinn