Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 55
menning
ÞEIR BLAZE-feðgar þeysa um
Bandaríkin á vélhjólunum og sýna
hrikaleg áhættuatriði. Þegar fað-
irinn greinist með krabbamein gerir
Johnny (Cage) sonur hans svohljóð-
andi samning við djöfulinn (Fonda):
„Ég undirritaður sel fjandanum sál
mína ef hann pabbi minn verður heill
heilsu.“ Gömul saga og ný, en því
miður, hvorki sótt í Faust né þjóð-
sögurnar af Sæmundi fróða, heldur
teiknimyndasöguútgáfuna Marvel.
Þar á bæ er Ghost Rider – Johnny
Blazer með vinsælli hetjum og að-
eins tímaspursmál hvenær kappinn
birtist á hvíta tjaldinu líkt og Spider-
Man, The Fantastic Four og Hulk,
svo nokkrar af gersemum fyrirtæk-
isins séu nefndar og hafa orðið met-
sölumyndir.
Því miður eru áhorfendur orðnir
það sjóaðir í brellumyndaglápi að
Ghost Rider kemur alltof sjaldan á
óvart. Einu sinni eða tvisvar bregð-
ur manni dálítið og brellurnar eru í
sjálfu sér ágætlega unnar. Það sem
á vantar er betri saga og betri leik-
stjórn, hvortveggja er flatt og líf-
laust í höndum Johnsons, sem á að
baki Marvel-myndina Daredevil,
sem var ögn skárri.
Eftir því sem á líður gerast eld-
tungurnar, brennisteinninn og log-
andi hauskúpurnar æ leiðigjarnari
og ástarsagan á milli Blaze og frétta-
mannsins Roxanne (falleg en stein-
runnin Mendes) er pínlegri en orð fá
lýst: „Það er ljótt með hann Johnny
minn,“ segir hún við vin hans og fé-
laga, „Ég veit ekki hvort þú trúir
mér, hann seldi sál sína djöflinum.“
Og annað eftir því.
Einu mennirnir sem lífga upp á
draugaganginn eru gömlu kemp-
urnar Sam Elliott og Peter Fonda,
en koma lítið við sögu.
Sálin hans Jóns míns
Draugareið Það sem á vantar í Ghost Rider er betri saga og betri leik-
stjórn, að mati Sæbjörns Valdimarssonar gagnrýnanda.
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Smárabíó, Laug-
arásbíó, Borgarbíó Akureyri.
Leikstjóri: Mark Steven Johnson. Aðal-
leikendur: Nicolas Cage, Eva Mendes,
Wes Bentley, Peter Fonda, Donal Logue,
Sam Elliott. 114 mín. Bandaríkin 2007.
Dauðinn ríður/ Ghost Rider Sæbjörn Valdimarsson
Upplyfting í skammdeginu!
Opið hús og samfelld dagskrá frá kl. 13.30 til 17.30
Söngskólinn í Reykjavík
‰ 13.45
Rósa Jóhannesdóttir
•
Zigaunerlieder
Johannes Brahms
‰ 14.30
Egill Árni Pálsson
•
Aríur og
ljóðasöngvar
‰ 15.15
Unnur Sigmarsdóttir
•
Haugtussa
Edvard Grieg
‰ 16.00
Magnús Guðmundsson
•
Norðurevrópskir
ljóðasöngvar
‰ 16.45
Gréta Hergils
•
Aríur og þýskir
ljóðasöngvar
Einsöngstónleikar /Vikivakadansar / Fjöldasöngur /Veitingar
Sýningin er opin virka daga frá kl. 11 -17 og um helgar frá kl. 13 - 16
Gerðuberg • sími 575 7700 • www.gerduberg.is
GERÐUBERG
Viðburðir á Vetrarhátíð!
Í dag 23. febrúar kl. 9:00-16:30
Menningardagar eldri borgara í Breiðholti
Kynning á félagsstarfinu í Gerðubergi
Í kvöld 23. febrúar er opið til kl. 24:00
Safnanótt „Fallin á tíma?“
Eggert Pálsson og Pétur Grétarsson flytja
tónlistargjörning kl. 20:00 og 22:00
Í kvöld 23. febrúar kl. 21:00
verður Rúrí með leiðsögn um sýningu sína
Tími - Afstæði - Gildi
Sjónþing, ritþing og tónleikaskrár seld í kílóavís á Safnanótt!
Laugardagur 24. feb kl. 13:00-18:00
Heimsdagur barna
Listsmiðjur fyrir börn og unglinga frá öllum
heimsins hornum! Digeridoo - Rapp & rímur
- Bollywood - og margt fleira spennandi!
Vissir þú...
...að í Gerðubergi er góð aðstaða fyrir
ráðstefnur, námskeið, fundi og móttökur
Sjá nánari upplýsingar og verðskrá á
www.gerduberg.is
Menningarmiðstöðin Gerðuberg • Gerðubergi 3 -5 • 111 Reykjavík
sími 575 7700 • www.gerduberg.is
GERÐUBERG
Viðburður á Vetrarhátíð!
Safnanótt „Fallin á tíma?“
Eggert Pálsson og Pétur Grétarsson,
sem mynda slagverkstvíeykið BENDU,
flytja tónlistargjörninginn Fallin á tíma?
í kvöld kl. 20:00 og 22:00
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÚTVARPSÞÁTTURINN Hlaup-
anótan á Rás 1 er á þeysispretti um
þessar mundir ef svo mætti segja,
dagskrárgerðin einkennist af mikl-
um metnaði og framsýni og skemmst
er að minnast þess að fyrir hans til-
stilli flutti hljómsveitin múm nokkur
lög í útvarpssal sem enn eru óútkom-
in. Í takt við þetta stendur þátturinn
fyrir tónleikum í Listasafni Reykja-
víkur – Hafnarhúsi í kvöld. Tónleik-
arnir eru liður í Vetrarhátíð Reykja-
víkurborgar og fram koma Eiríkur
Orri Ólafsson og Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson, Lost in Hildurness
(Hildur Ingveldardóttir Guðnadótt-
ir), Ólöf Arnalds, Sigurður Hall-
dórsson sem mun leika verk eftir
Svein Lúðvík Björnsson og Ben
Frost sem frumflytur nýtt verk og
nýtur þar liðsinnis sjö gítarleikara.
Býflugnabú
Frost er Ástrali og hefur verið bú-
settur hérlendis í tvö ár. Í fyrrahaust
gaf hann út plötuna Theory of Mach-
ines, undir merkjum Bedroom
Community sem var stofnað af upp-
tökustjóranum og tónlistarmann-
inum Valgeiri Sigurðssyni ásamt
fleirum. Platan kemur út á al-
þjóðavettvangi 5. mars næstkom-
andi. Tónlistin sem Frost flytur í
kvöld er hins vegar spánný. Verkið
er í þróun en á samt eins konar að-
draganda í hljóðinnsetningu sem
Frost setti upp í Madrid fyrir stuttu
en þar leikur tónlist um sex bý-
flugnabú.
„Ég sé svona um að stýra gít-
arleikurunum en gítarhljómunum
verður staflað hverjum ofan á annan
þannig að þeir myndi eitt lagskipt
hljóð. Ætlunin er að komast að ein-
hverjum kjarna, og í þeim tilgangi
reyni ég að strípa þetta niður þannig
að úr verður einhvers konar míni-
malískt verk. Þetta er verk sem
áheyrendur þurfa að baða sig í ef svo
mætti segja, það opinberar sig ekki
strax heldur þarf dálítinn tíma. Ann-
ars er verkið enn í vinnslu og ég er
svona að sjá hvert hægt er að fara
með það. Það má segja að flutning-
urinn í kvöld feli einnig í sér nokkurs
konar hugmyndaleit.“
Frost segir því að ekkert sé fast í
hendi með hvernig þetta verk muni
enda, hvort þetta sé upphaf að nýju
verkefni eða nýrri plötu. Það komi
allt saman í ljós.
Ísland
Ben Frost á nokkuð langan feril að
baki sem listamaður og hefur snert á
mörgum sviðum (sjá nánar á
www.ethermachines.com). Hann
segist ávallt hafa verið áhugasamur
um samstarf ólíkra listgreina og verk
sín í gegnum tíðina beri því merki.
Og ástæðan fyrir því að hann starfar
hér er einföld:
„Hér á ég heima og mér líður vel
hér. Það var ekki starfsins vegna
sem ég flutti hingað eða neitt svoleið-
is. Mér finnst einfaldlega gott að búa
á Íslandi. En það sakar ekki að hafa
kynnst öllu þessu frábæra fólki sem
ég hef starfað með að undanförnu.“
Tónlist | Ben Frost leikur á tónleikum Hlaupanótunnar í
Hafnarhúsinu í kvöld ásamt valinkunnu tónlistarfólki
Morgunblaðið/Kristinn
Kjarni Listamaðurinn Ben Frost kemur frá Ástralíu en hefur verið búsett-
ur á Íslandi í tvö ár og spilar í Hafnarhúsinu í kvöld ásamt fleirum.
Verk í vinnslu
Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 og
er aðgangur ókeypis. Einnig verða
þeir sendir út beint á Rás 1.
www.vetrarhatid.is
myspace.com/theghostofben-
frost
myspace.com/hlaupanotan
Hljómsveitirnar We Made God,Amos og Sudden Weather
Change hyggjast troða upp í kvöld á
rokkbarnum Dillon við Laugaveg.
Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl.
21 og ku tilefnið vera stórafmæli
Friðjóns Fannars Hermannssonar.
Tónleikarnir eru þrátt fyrir allt opn-
ir hverjum þeim sem á vilja hlýða og
er aðgangur
ókeypis. Dillon
hefur að und-
anförnu sótt í sig
veðrið innan
rokkkreðsunnar
með skemmti-
legum tónleikum
og má búast við
að kvöldið í kvöld
verði þar engin
undantekning, enda eru sveitirnar
ungar og upprennandi líkt og Frið-
jón Fannar.
Fólk folk@mbl.is