Morgunblaðið - 23.02.2007, Síða 64
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 54. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Austan- og
norðaustanátt,
víða 10–15 m/s
en 15–20 við
suðausturströndina.
Skýjað austantil. » 8
Heitast Kaldast
2°C -6°C
CAROLINE Flint, heilbrigðis-
ráðherra Bretlands, átti fund í vik-
unni með Magnúsi Scheving þar
sem hún óskaði eftir aðstoð hans í
heilsuátaki barna sem er þar í und-
irbúningi. Markmiðið er að Latibær
verði eins konar merki átaksins eft-
ir að yfirvöld þar í landi komust að
því að þátturinn virkaði vel til að
koma grænmeti ofan í börnin.
Magnús er einnig að hjálpa BBC
að setja af stað útvarpsstöð fyrir
börn auk þess sem tökulið eltir
hann nú út um allt til að safna efni í
innslag um hann fyrir þátt á vegum
Discovery-sjónvarpsstöðvarinnar
sem ber yfirskriftina „Farsælasta
fólk í heimi“. | 22
Frískur
og farsæll
„NÚ ER búið að samþykkja að
við förum til Boston og yfir til
New York á einu bretti í lok
mars. Síðan byrjum við í Lund-
únum í júní og væntanlega í
Miami í maí,“ segir Baldvin Jóns-
son, framkvæmdastjóri Áforma,
um samning sem gerður var í síð-
ustu viku við bandarísku versl-
unarkeðjuna Whole Foods Mark-
et. Samkvæmt honum verður
þeim verslunum sem bjóða upp á
íslenskar afurðir fjölgað veru-
lega, eða úr þrjátíu í um sjötíu
strax í lok mars.
Í verslunum Whole Foods er
boðið upp á íslenskt skyr, osta og
smjör frá Mjólkursamsölunni auk
súkkulaðis frá Nóa Síríusi. Að
sögn Björns Gunnarssonar, hjá
vöru- og þróunarsviði MS, gætir
mikillar bjartsýni hjá fyrirtæk-
inu. Íslensk páskaegg | 6
Íslenskar af-
urðir í útrás
GUÐNÝ Vala Tryggvadóttir og St. Bernharðshvolpurinn Daníel horfast í augu í
leik og gleðin skín úr andliti beggja. Í blaðaukanum Hundalífi, sem fylgir Morg-
unblaðinu í dag, segja viðmælendur frá því hversu fjölbreytt og skemmtilegt líf
það er að halda hunda og hver hefur sína sérstöku sögu að segja.
Morgunblaðið/Ingó
Skemmtilegt líf
KAUPÞING banki er besti fjár-
festingarkosturinn á meðal banka
á Norðurlöndum. Þetta er mat al-
þjóðlega fjárfestingarbankans
Morgan Stanley, sem hefur gefið
út nýtt verðmat á bankanum.
Morgan Stanley hækkar verð-
mat sitt á Kaupþingi um 20%, úr
94 sænskum krónum á hlut í 113
sænskar krónur, og mælir með
því að fjárfestar kaupi hlutabréf
bankans.
Í verðmati Morgan Stanley seg-
ir að fjárfestingarbankinn hækki
verðmat sitt á Kaupþingi í kjölfar
nýlegs uppgjörs bankans fyrir ár-
ið 2006 og einnig í kjölfar upplýs-
inga frá stjórnendum bankans.
Ákaflega ánægjuleg nið-
urstaða fyrir Kaupþing
Jónas Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs
Kaupþings banka, segir að fulltrúi
Morgan Stanley hafi nýlega verið
hér á landi og rætt við stjórnend-
ur bankans. „Við svöruðum eftir
bestu getu öllum spurningum full-
trúa Morgan Stanley,“ segir Jón-
as. „Þar var alfarið um opinberar
upplýsingar að ræða, sem allir
hafa aðgang að, enda enginn
áhugi hjá fulltrúa Morgan Stanley
að leita eftir einhverju öðru.“
Jónas segir því ekki hægt að
benda á eitthvað ákveðið í upplýs-
ingagjöf stjórnenda Kaupþings
banka sem valdi því að trú fjár-
festingarbankans á bankanum
aukist jafnmikið og raun ber vitni.
En niðurstaðan sé ákaflega
ánægjuleg fyrir Kaupþing banka.
Hagnaður Kaupþings á síðasta
ári nam rúmum 85 milljörðum ís-
lenskra króna og hafði þá aukist
um 36 milljarða, um 73%, frá
árinu 2005. | 18
Besti fjárfest-
ingarkosturinn
Greiningardeild Morgan Stanley
gefur út nýtt verðmat á Kaupþingi
Morgunblaðið/Sverrir
Aðalfundur Frá síðasta aðal-
fundi Kaupþings banka.
♦♦♦
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„VIÐ erum mjög ánægðar með þessa
niðurstöðu,“ segir Guðrún Jónsdótt-
ir, talskona Stígamóta, um ákvörðun
skipuleggjenda ráðstefnu netkláms-
framleiðenda, Snowgathering 2007,
þess efnis að hætta við að halda ráð-
stefnuna á Íslandi eftir að Radisson
SAS hótelið í Reykjavík tilkynnti í
gær að ákveðið hefði verið að synja
ráðstefnugestum um gistingu.
Fyrir viku sendu Stígamót ríkis-
stjórn, þingmönnum, borgarstjórn
og lögreglustjórum bréf þar sem
hvatt var til að skoða hvað hér væri á
ferðinni og fyrir hvað þátttakendur í
væntanlegri ráðstefnu stæðu. Guð-
rún segir að Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarstjóri hafi strax brugðist
við af mikilli röggsemi og lýst því yfir
að Reykjavík vildi ekki hafa svona
samkomur innan borgarmarkanna.
Aðrir hafi einnig brugðist fljótt og
vel við og svo virðist sem flestir, sem
hafi komið að málinu, hafi verið sam-
mála um að ráðstefnan hérlendis hafi
verið óæskileg og hópurinn verið
óvelkominn til Íslands. „Við erum
mjög glaðar yfir að þetta fór svona,“
segir hún.
Katrín Anna Guðmundsdóttir,
talskona Femínistafélagsins, tekur í
sama streng. „Okkur finnst þetta
frábær sigur fyrir kynfrelsið og
mjög gott að sjá þjóðina standa sam-
an um það að hafna kláminu,“ segir
hún.
Baráttan gegn ráðstefnunni hefur
verið snörp og segir Katrín Anna að
samstaðan og árangurinn hafi verið
framar vonum, en í raun hafi mark-
aðurinn brugðist við og hafnað ráð-
stefnunni. „Ég þakka góðum við-
brögðum stjórnvalda, viðbrögðum
Hótel Sögu og jafnréttisbaráttunni,“
segir hún.
Segja þjóðina hafa staðið
saman og hafnað kláminu
Stígamót og Femínistafélagið fagna því að hætt var við ráðstefnu klámframleiðenda
Í HNOTSKURN
» Ráðstefna netkláms-framleiðenda, Snowgath-
ering 2007, átti að fara fram
hérlendis 7.–11. mars.
» Gert var ráð fyrir 150–175 þátttakendum.
Hótel Saga strokar út | 4
VERSLANIR Krónunnar og Bónuss lækka vöru-
verð í dag og miða það við virðisaukaskatt upp á
7%, þrátt fyrir að boðuð lækkun skattsins taki
ekki gildi fyrr en um næstu mánaðamót.
„Við ákváðum að lækka virðisaukaskattinn
strax í 7% í Krónuverslununum og vildum mæta
með því óskum viðskiptavina okkar sem voru
orðnir spenntir að sjá hið nýja verð í fram-
kvæmd,“ sagði Eysteinn Helgason, fram-
kvæmdastjóri Kaupáss sem m.a. rekur Krónu-
búðirnar. „Við viljum leggja okkar af mörkum til
þess að merk aðgerð ríkisstjórnarinnar til að
lækka vöruverð í landinu takist.“ Eysteinn kvaðst
reikna með því að vörur tækju að berast með
lækkuðum virðisaukaskatti í verslanir á næstu
dögum. Margar þeirra koma verðmerktar frá
framleiðendum, eins og t.d. ostar sem væntanlegir
voru í Krónuverslanirnar í dag með verði sem
miðaðist við nýtt virðisaukaskattstig. Að sögn Ey-
steins tekur fyrirtækið á sig talsverðan kostnað
vegna þessarar lækkunar.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri
Bónuss, sagði að ákveðið hefði verið að koma fólki
á óvart með því að lækka vöruverðið strax. „Þetta
er gert fyrir viðskiptavini Bónuss,“ sagði Guð-
mundur.
Hann sagði að verið væri að gefa 6,1% af vöru
sem ber 14% virðisaukaskatt og rúm 14% af þeirri
vöru sem ber 24% virðisaukaskatt þar til boðuð
virðisaukaskattslækkun tekur gildi.
Krónan og Bónus lækka strax
Morgunblaðið/Þorkell
Lækka Bónus og Krónan miða nú við 7% vsk.
LANGT er frá því að heilinn missi
aðlögunarhæfni sína eða aðra
hæfni til að styrkjast og þroskast
með aldrinum. Þvert á móti bendir
allt til þess að mikilvægir hlutar
heilabúsins geti haldið áfram að
bæta við sig, svo lengi sem þeir séu
þjálfaðir reglulega. Kom þetta
meðal annars fram í erindi dr.
Elkhonon Goldberg, prófessors í
taugafræði við New York Univers-
ity School of Medicine, á ráðstefnu
um öldrun og málefni aldraðra, sem
nú stendur yfir í Háskólanum í
Reykjavík. Goldberg segir heilann
þurfa að æfa eins og aðra líkams-
hluta. Einfaldir hlutir eins og að
halda boltum á lofti geti haft mæl-
anleg áhrif á skömmum tíma. | 32
Máttur heila
♦♦♦