Morgunblaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
„Nýju fötin keisarans“?
VEÐUR
Sjálfstæðisflokkurinn hefur veriðað laga sig að nýjum viðhorfum í
umhverfismálum. Það kemur skýrt í
ljós í fréttaskýringu, sem birtist á
forsíðu Morgunblaðsins í gær.
Forystumaðurum þessa að-
lögun Sjálfstæð-
isflokksins að
breyttum við-
horfum er tví-
mælalaust Illugi
Gunnarsson, fyrr-
um aðstoð-
armaður Davíðs
Oddssonar, sem
nú skipar öruggt sæti á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í öðru
Reykjavíkurkjördæmanna.
Nú fyrir helgina skipaði EinarOddur Kristjánsson alþing-
ismaður sér í hóp hinna grænu sjálf-
stæðismanna, þegar hann andmælti
ákveðið hugmyndum um eignarnám
vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár.
Áður hafði Katrín Fjeldsted talaðmeð afgerandi hætti á Alþingi
fyrir sjónarmiðum umhverfisvernd-
arsinnar.
Í fréttaskýringu Morgunblaðsins ígær er vakin athygli á afstöðu
Sigríðar Önnu Þórðardóttur, fyrr-
verandi umhverfisráðherra, Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar, Péturs
Blöndals og Borgars Þórs Ein-
arssonar, formanns Sambands
ungra sjálfstæðismanna.
Fylking umhverfisverndarsinnarinnan og utan þingflokks sjálf-
stæðismanna er því orðin sterk og
endurspeglar áreiðanlega sömu þró-
un meðal flokksmanna.
Birgir heitinn Kjaran, fyrrum einnaf forystumönnum Sjálfstæð-
isflokksins og frumkvöðull í mótun
umhverfisstefnu í íslenzkum stjórn-
málum, hefði glaðst yfir þessari þró-
un.
STAKSTEINAR
Illugi Gunnarsson
Aðlögun Sjálfstæðisflokks
SIGMUND
!
"#
$%&
' (
) '
* +,
- . /
*
,
!!
"!
"
! !
# $
01
0
2
31,1 ),
40
$
5 '67
8 3#
'
%
#!!
$
9
)#:;<
!!
!
"
#
$
) ##: )
&' (!
!'!
)
=1
=
=1
=
=1
&( !*
$
+!, -
<>7,?
.( !-
/
! ! !'!
"
0
!! !!
1! $
!
'
"
5 1
2
! ! !
3
!
$
1!
!
!
&'
3! !4
$"
. !-
/
! "
:
2!!+
1!
!'
!'!
)$"
&!
! ! $
1!
!!&3! !4
$"
0
!! !!
1! $
!!
'"
5/ !!66
!!4
!*
$
!7
"!
! "!" 2&34@3
@)=4ABC
)D-.C=4ABC
+4E/D(-C " 1%
%" " 9" " " " " " " " " 1
19
1
1
1
1%
1
1
1
1
1
1%
1
1%
1%
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Jóhanna Fríða Dalkvist
| 24. febrúar 2007
Umhverfismál
Ég var að lesa rosalega
góða grein á blogginu
hjá Kára Harðarsyni
um hjólreiðar.
Allir þeir sem eru að
hugsa í raun um um-
hverfismál og vilja láta
kjósa sig á þeim forsendum ættu að
beita sér fyrir bættum hjólreiða-
samgöngum. Það er eitt af því besta
sem hægt er að gera til að sporna við
svifrykinu og CO2 mengun, það er að
auka notkun reiðhjólsins.
Meira: dalkvist.blog.is
Eiríkur Bergmann Einarsson
| 23. febrúar 2007
Klámið á Hótel Sögu
Samt hefur komið fram
að Hótel Saga selur
gestum sínum klám.
Því er ekki ólíklegt að
Hótel Saga dreifi
klámefni frá ein-
hverjum þeirra aðila
sem ætluðu að gista á hótelinu, en
máttu ekki. Semsé: Forsvarsmenn
Hótel Sögu telja í lagi að selja klám
og dreifa klámi en þeir telja ekki í
lagi að hýsa framleiðendur þess efn-
is sem þeir sjálfir sýna og græða á.
Meira: eirikurbergmann.blog.is
Snorri Bergz | 24. febrúar 2007
VG og Samfylkingin
Ok, ég verð að segja, í
þessu samhengi, að ef
marka má fyrstu frétt-
ir frá Landsþingi VG,
séu voðalega margir
þar búnir að ganga í
gegnum skilnaði.
Steingrími tókst þarna algjörlega að
hrekja ISG í faðm Geirs. Því jafnvel
kratarnir hljóta að sjá, að stefna VG
er bæði óframkvæmanleg og hættu-
leg. Þar að auki er SJS ekki líklegur
til að gera miklar málamiðlanir eða
tilhliðranir.
Meira: hvala.blog.is
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
| 24. febrúar 2007
Ríkisrekin trú?
Þjóðkirkjan er minnk-
andi stofnun eins og
góð úttekt Kompáss
sýnir. Afstaða biskups
og annarra leynt og
ljóst gegn giftingum
samkynhneigðra innan
kirkjunnar og það þvingunarvald sem
þeir beita gegn öðrum trúfélögum til
gifta samkynhneigð pör fjölgaði ekki
meðlimum.
Sumir geta réttilega haldið því
fram að kirkjan eigi ekki að breytast,
geri hún það sé hún að beygja sig
undir nýtt gildismat hverrar kyn-
slóðar og smátt og smátt missi hún
sjónar á tilgangi sínum. Hins vegar er
ljóst að sú kirkja sem rígheldur í aft-
urhaldsöm og gamaldags gildi missir
frá sér meðlimi og þurrkast á end-
anum út.
Þar með ætla ég ekki að halda því
fram að þjóðkirkjan sé vond stofnun
eða geri meira ógagn en gagn – kirkj-
an gerir flest vel og innan hennar er
mikið af fólki sem vinnur óeigingjarnt
starf af miklum kærleika.
Það er ekki jafnræði á milli trú-
félaganna – þjóðkirkjan fær skv.
Kompási fjóra milljarða en hin trú-
félögin fá eingöngu sóknargjöldin
sem dregin eru af skatti sóknarbarna.
Ég viðurkenni mikilvægi trúfélaga
í samfélaginu en myndi helst ekki
vilja borga af mínum skattpeningum
til Krossins, Vottanna eða annara
öfgahópa. En ef ég vil að skattborg-
arar borgi í mitt trúfélag þá get ég
ekki annað en samþykkt það sama
fyrir aðra.
Meira: bryndisisfold.blog.is
Steingrímur Sævarr Ólafsson
| 23. febrúar 2007
Bréfið umdeilda
Hér er bréfið sem er að
gera allt vitlaust í nýj-
asta þættinum af The
bold and the beautiful,
aka Baugsmálinu svo
kallaða. Er þjóðfélagið
ekki fullt af nafnlausum
bréfum? Er annað hvert blogg ekki
nafnlaust bréf? Langflestir spjall-
þræðir Málefnanna og Barnalands?
Hvað er svona sérstakt við þetta
bréf sem gerir allt vitlaust?
Þegar stórt er spurt …
Meira: saevarr.blog.is
BLOG.IS
Allir velkomnir.
Nánari upplýsingar á www.hi.is
Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum, flytur
erindi um augnrannsóknir í boði Háskóla Íslands,
í Hátíðasal Aðalbyggingar, miðvikudaginn
28. febrúar kl. 16.15.
Að erindi loknu verður boðið upp á léttar veitingar.
Allt áhugafólk um augnrannsóknir er velkomið.
www.hi.is
FYRIRLESTUR
AUGNRANNSÓKNIR
ERU BLINDUVARNIR,
GRUNNVÍSINDI
OG NÝSKÖPUN