Morgunblaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 59
upp á hann með fallegu húsgögnun-
um sínum og útsaumnum, hófst
handa í útrás við að flytja út íslenska
hesta, íslenska ull og fleira. Hún lét
ekki þar við sitja og byggði nýtt, stór-
glæsilegt bæjarhús á jörðinni sem
innan skamms var orðið fullt af fal-
legu húsgögnunum hennar og fá-
gætu, dönsku postulíni sem hún hef-
ur eflaust þurft að geyma meðan hún
bjó í gamla bænum á jörðinni. Á
Kambi hitti hún þann mann sem átti
eftir að verða tryggur lífsförunautur
hennar til dauðadags en það var
bóndinn á næsta bæ, Jón Vídalín
Jónsson frá Herríðarhóli.
Heimsborgarinn og fagurkerinn,
Vilborg frænka mín, undi sér vel í
sveitinni enda ekki fátítt nú til dags
að athafnamenn og konur sem stund-
að hafa viðskipti og dvalið erlendis
sækist eftir búsetu í friðsælli sveit á
Íslandi eins og hún gerði. Síðustu
æviár sín bjó hún ásamt Jóni í Vogum
á Vatnsleysuströnd og átti þar frið-
sælt ævikvöld. Ég votta Jóni, Sól-
veigu dóttur hennar, barnabörnum
og barnabarnabörnum samúð mína
vegna fráfalls þessarar mikilhæfu
frænku minnar.
Sólveig Guðmundsdóttir.
Hún Lilla er dáin. Hún var amma
okkar. Hún var víðförul. Hún var
heimsborgari. Hún var sveitavargur.
Hún var verslunareigandi. Hún var
hótelstjóri. Hún var jarðareigandi.
Hún var hrossakaupmaður. Hún var
„elegant“.
Af þessari upptalningu má sjá að
lífshlaup ömmu okkar var óvenju
margbreytilegt og laust við alla logn-
mollu.
Eftir áratuga dvöl í útlöndum kom
Lilla heim með stæl. Hún keypti jörð-
ina Kamb austur í Holtum og byggði
þar upp mikinn húsakost. Lilla nældi
sér í bóndason af næsta bæ, Jón Ví-
dalín Jónsson, sem reyndist henni
hinn besti eiginmaður og félagi. Þar
var oft margt um manninn og yfir
sumarið var nánast ættarmót um
hverja helgi. Svo fór líka að margir
fengu skika þar og reistu sér bústað.
Eftir nokkur góð ár í Kambi ákváðu
Jón og Lilla að selja jörðina og leggja
land undir fót. Í rúman áratug
bjuggu þau vítt og breitt um landið,
þar má nefna Mundakot á Eyrar-
bakka, Bakkagerði í Jökuldal, Strönd
á Völlum og Hellisholt við Flúðir.
Þegar gæta tók heilsubrests hjá Lillu
keyptu þau hjónin íbúð í Vogum á
Vatnsleysuströnd. Þar leið þeim
mjög vel, til að byrja með vann Jón á
Vellinum og Lilla sá um heimilið.
Þegar veikindi Lillu ágerðust sagði
hann starfi sínu lausu og einbeitti sér
að umönnun eiginkonu sinnar, það
gerði hann af mikilli ást, alúð og elju-
semi fram á hennar síðasta dag.
Kæri Jón, þinn missir er mikill og
vottum við þér okkar dýpstu samúð.
Gunnhildur og Gunnar.
✝ SigurbjörnGústavsson
fæddist í Kópavogi
20. október 1965 en
ólst upp við Klepps-
veg í Reykjavík.
Hann lést á heimili
sínu aðfaranótt 8.
febrúar síðastliðins.
Foreldrar hans eru
Gústav Kristján
Gústavsson blikk-
smiður, f. 1928 og
Bára Gerður Vil-
hjálmsdóttir hús-
móðir, f. 1935.
Systkini Sigurbjörns eru Inga,
maki Guðlaugur Gunnar Ein-
arsson, Gústav Kristján, maki
Margrét Sólveig
Ólafsdóttir og Ás-
dís Heiðdal, maki
Henri Harmon.
Sigurbjörn
kvæntist Hildi
Emblu Ragnheið-
ardóttur 1997, dótt-
ir þeirra er Sigríð-
ur Vigdís
Sigurbjarnardóttir,
f. 3. ágúst 1998.
Þau skildu.
Sambýliskona
Sigurbjörns er
Erna Lárusdóttir.
Sigurbjörn var jarðsunginn frá
Fossvogskapellu í kyrrþey 14.
febrúar.
Mér þótti mjög vænt um pabba
minn. Við gerðum margt saman þeg-
ar við vorum saman. Við fórum að
kaupa nammi og líka í bíltúr. Stund-
um fórum við í IKEA og keyptum
pylsur. Við fórum oftast niður að
tjörn að gefa öndunum brauð. Ég
talaði stundum við hann í símann og
ég talaði við hann kvöldið áður en
hann dó og ég sakna hans mikið.
Sigga Vigga hans pabba,
Sigríður Vigdís.
Sigurbjörn Gústavsson
!" # $ % &
' $
#(
' )$ * '
' )$ +' &#
' )$ ,
# - #
' )$ . /
' )$ / 0
' )$ ✝
Hjartans þakkir fyrir innilegan hlýhug og auðsýnda
samúð við andlát ástkærrar eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÚNAR BJARKAR STEINSDÓTTUR,
Fjarðarási 28,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Heima-
hlynningar LSH og líknardeildar LSH í Kópavogi
fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar og Lions-
klúbbunum Eir og Víðarri fyrir glæsilegt framlag þeirra við útför hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Haukur Harðarson,
Vignir Bragi Hauksson, Þóra Valgerður Jónsdóttir,
Andri Már Bergþórsson,
Lilja Vignisdóttir,
Anna Kolbrún Jensen,
Mikael Freyr Friðriksson.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÞORMÓÐS INGA PÉTURSSONAR,
Lautasmára 3,
Kópavogi.
Jóninna Guðný Steingrímsdóttir,
Steingrímur Þormóðsson, Guðbjörg Egilsdóttir,
Helga Ingileif Þormóðsdóttir, Ingibergur Sigurðsson,
Pétur Þormóðsson,
afa- og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns, tengda-
sonar, bróður, mágs og svila,
SÆMUNDAR K.B. GÍSLASONAR,
Sæbólsbraut 51,
Kópavogi.
Erla Sigvaldadóttir,
Ingibjörg Halldórsdóttir,
Jóhannes Lúther Gíslason, Erla Hafdís Steingrímsdóttir,
Elísabet Sigvaldadóttir, Guðlaugur Karlsson,
Sigrún Sigvaldadóttir, Kristján G. Jóakimsson,
Þorsteinn Sigvaldason, Kristín Þórmundsdóttir,
Bogi Sigvaldason, Ingunn Pálsdóttir,
Dagbjört Sigvaldadóttir.
✝
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og
útför elsku ömmu okkar, tengdamóður, langömmu
og langalangömmu,
GUÐLAUGAR MARKÚSDÓTTUR,
Klapparstíg 9,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Vífilsstaða fyrir einstaka umönnun og kærleik við
hina látnu.
Birna Sigþórsdóttir,
Bylgja B. Sigþórsdóttir,
Sigurður M. Sigþórsson,
Sigþór B. Sigurðsson, Kolbrún Ágústsdóttir,
barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR R. DANELÍUSDÓTTUR,
Gullsmára 11,
Kópavogi.
Danelíus Sigurðsson, Margrét Ellertsdóttir,
Alfreð Almarsson, Helga Haraldsdóttir,
Halldór Almarsson, Helena Jónasdóttir,
Sigfús Almarsson, Sigrún Sigurðardóttir,
Pálmi Almarsson, Vilborg Sverrisdóttir,
Sveindís Almarsdóttir, Kjartan Snorrason,
Vignir Almarsson, Inga Yngvadóttir,
Dagbjört Almarsdóttir, Gunnar Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ALFONS GUÐMUNDSSONAR
vélstjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 3. hæðar á Sólvangi
í Hafnarfirði fyrir einstaka umönnun, hlýhug og
kærleik við hinn látna.
Anna Þorleifsdóttir,
Gunnar Jón Alfonsson,
Guðmundur Rúnar Alfonsson, Hildur Kristín Hilmarsdóttir,
Þorleifur Kristinn Alfonsson, Lovísa Agnes Jónsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og
kveðjur í veikindum og við andlát og útför
BJÖRGVINS HANNESSONAR,
Suðurhlíð 38b,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11 G á
Landspítalanum við Hringbraut fyrir kærleiksríka
umönnun og veittan styrk.
Guð blessi störf ykkar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Margrét Hallgrímsdóttir.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birt-
ist valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar séu
ekki lengri en 3.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word
Count). Ekki er unnt að senda
lengri grein. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta
þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar