Morgunblaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 43
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Kaplahraun 2-4 2.362 fm límtrésskemma á mjög
stórri lóð, alls 7494 fm, sem býður upp á mikla
möguleika fyrir t.d. iðnað eða heildverslun. Húsið
stendur gegnt íþróttamannvirkjunum við Kapla-
krika. V. 350 millj.
ATVINNUHÚSNÆÐI - AKKURAT
Kaplahraun 9 Vandað 500 fm hús á tveimur hæð-
um. Á efri hæð eru skrifstofur eða vinnustofur.
Möguleiki á tveimur innkeyrsluhurðum á jarðhæð.
Tilvalið fyrir t.d. heildverslun og/eða léttan iðnað.
Drangahraun 3 Byggingarréttur fyrir ca 2400 fm.
Samt. 4000 fm stór, malbikuð lóð. Miklir möguleik-
ar. Núverandi hús er um 700 fm. Verð ca 150 millj.
Melabraut 19 360 fm iðnaðar- eða lagerhúsnæði
með mikilli lofthæð. Stórar innkeyrsludyr.
Steinhella 1 Glæsilegt 540 fm iðnaðarhús úr stein-
steypueiningum. Lóð fullfrágengin. Malbikað plan.
Auðbrekka 4 Rúmlega 1400 fm þjónustu- og iðn-
aðarhús sem stendur til að breyta að hluta í íbúðir
og byggja annað hús undir íbúðir á lóðinni. Þetta er
frábært tækifæri fyrir byggingarmenn til að komast
yfir lóð í hjarta Kópavogs.
Melabraut 17 1463 fm húseign með fjölmarga
notkunarmöguleika. Verið er að breyta eigninni í
fjóra misstóra eignarhluta sem hægt er að selja sér.
Hvaleyrarbraut 4-6 1100 fm vandað verslun-
ar-, þjónustu- og lagerhúsnæði í útleigu til 3
ára, byggingarréttur. Verð ca 150 millj.
Óseyrarbraut 1 Frábær staðsetning fyrir þá
sem huga að framtíð, miklir byggingarmögu-
leikar (í hönnun).
Óseyrarbraut 3 Rúmlega 2000 fm verksmiðju-,
skrifstofu- og þjónustuhús sem tengist eignum
að Óseyrarbraut 1 og Hvaleyrarbraut 4-6.
Möguleikar að selja allar eignirnar saman og
auka byggingamagn með sameiningu lóða.
Ath. Eignaskipti.
w
w
w
.a
kk
ur
at
.is
Opið hús sunnudaginn 25. febrúar
milli kl. 13 og 16 að Strandvegi 12, Garðabæ
Stórglæsileg 3ja herbergja, 100 fm íbúð á efstu hæð í góðu lyftuhúsi með bílastæðakjallara við
Strandveg 12 í Garðabæ. Aukin lofthæð er í íbúðinni, glæsileg gluggasetning með gólfsíðum glugg-
um og samstæðum eikarinnréttingum og gólfefnum. Fallegt útsýni og sjarmerandi hverfi. Komið er
inn í sameigninlegt rými stofu, borðstofu og eldhúss, útgengt er á góðar svalir. Á herbergjagangi eru
tvö góð svefnherbergi, bæði rúmgóð. Baðherbergið er fallegt og þá er þvottahús í íbúð. Góð sér-
geymsla fylgir eigninni í kjallara ásamt stæði í bílastæðakjallara. Sameign er öll hin snyrtilegasta og
að sjálfsögðu er lyfta úr bílastæðakjallara upp á efstu hæð.
Halldór I. Andrésson, löggiltur fasteignasali
MIKIL umræða hefur verið um
alltof mörg dauðaslys og mikinn
fjölda slasaðra í umferðarslysum.
Dauðaslysin hafa verið um langan
tíma milli 20 og 30 á
ári. Við stöndum þó
vel að vígi miðað við
Evrópu í heild en síð-
ur samanborið við
einstök lönd eins og
Bretland, Holland,
Noreg og Svíþjóð.
Á síðustu sjö árum
hefur átt sér stað já-
kvæð breyting. Slös-
uðum ökumönnum
höfuðborgarsvæðisins
á hverja 1.000 íbúa
hefur fækkað. Alvar-
legum áverkum öku-
manna, ef miðað er við innlagnir á
Landspítala – háskólasjúkrahús,
hefur einnig fækkað á sama tíma.
Konur eru orðnar í meirihluta
slasaðra ökumanna en karlar
þurfa oftar á innlögn að halda.
Ef litið er til síðustu 30 ára hef-
ur átt sér stað enn jákvæðari þró-
un. Alvarlega slösuðum úr umferð-
arslysum hefur fækkað um
helming (sjá súlurit).
Orsakir dauðaslysanna eru
margar eins og hraðakstur, þreyta
og tillitsleysi í umferðinni en flest-
ir eru sammála um að með því að
bæta vegi og skilja að akreinar úr
sitt hvorri áttinni megi fækka
dauðaslysum um allt að helming.
Margir vilja að Suðurlandsvegur
verði tvöfaldaður sem allra fyrst
en aðrir telja að það
væri skynsamlegra
að leggja áherslu á
svokallaðan 2+1 veg
sem er sennilega
helmingi ódýrari en
skilar svipuðum ár-
angri og
tvöföldun
vega. Ef
það á að
fækka
mikið al-
varlegum
áverkum
og dauða-
slysum í umferð-
arslysum á skömmum
tíma, er farsælast að
leggja áherslu á 2+1
vegi um 150 km út frá
höfuðborgarsvæðinu
þar sem langflest um-
ferðarslysanna eiga sér stað og
stefna síðan að því að tvöfalda
vegina.
2+1 vegurinn í Svínahrauni hef-
ur legið undir nokkru ámæli og
finnst mörgum sem einbreiði hlut-
inn sé of þröngur og „axlirnar“ of
mjóar. Nánasta umhverfi vega
hvort sem um er að ræða 2+1 veg
eða tvöfalda vegi er nánast óvin-
veitt ef svo illa fer að bifreið fer
út af vegi. Oft er bratt niður, stór-
grýti, skurðir eða aðrar fyr-
irstöður sem geta orsakað lífs-
hættulega áverka. Það verður að
leggja á það áherslu að malbiks-
merkingin við „axlirnar“ sé þannig
gerð að ökumaður verði var við
þegar hann fer út af malbikinu því
þreyta og svefnleysi er orsök
margra alvarlegra slysa. Auðvelt
er að lagfæra þessi atriði.
Góðir vegir draga mikið úr
hættunni á alvarlegum umferð-
arslysum. Ég styð eindregið 2+1
vegagerð með tvöföldun vega í
huga síðar meir. Þannig fækkum
við mest alvarlegum áverkum og
dauðaslysum í umferðinni á
skömmum tíma.
Betri vegir fækka dauðaslys-
um og alvarlegum áverkum
Brynjólfur Mogensen fjallar
um umferðarslys og vegamál
» Góðir vegir dragamikið úr hættunni á
alvarlegum umferð-
arslysum. Ég styð ein-
dregið 2+1 vegagerð
með tvöföldun vega í
huga síðar meir.
Brynjólfur Mogensen
Höfundur er formaður slysavarn-
aráðs og vinnur við og kennir slysa-
og bráðalækningar á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi.