Morgunblaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 33
að vera alltaf með vindinn á móti sér. Það sem mér finnst skipta mestu máli er að vera sjálfum sér trúr. Mað- ur má aldrei falla í þá gryfju að fara að gera hluti einungis vegna þess bara að maður heldur að markaður- inn vilji það. Þá er maður búinn að svíkja sjálfan sig. Aðalatriðið er að ég trúi á það sem ég er að gera. Ég er að búa til tónlist á þeim forsendum að sinna þörf minni og reyna að gleðja aðra.“ Ertu hræddur við ofurveldi fárra í tónlistinni? „Nei, ég er bara raunsær, ég veit hvað klukkan slær. Ástandið í útgáfu- málum á Íslandi er þannig, að það er einn stór útgefandi sem ber höfuð og herðar yfir aðra. Það er staðreyndin. Og svo á þessi stóri líka fjölmiðlana. Það sem hefur kannski bjargað mér í gegnum tíðina er að ég hef kynnzt svo mörgu góðu fólki inni á fjölmiðl- unum, sem ég get leitað beint til. Það er aðalatriði að hafa sambönd, ef plöt- ur og tónlistarmenn eiga hreinlega ekki að týnast. Mér finnst Rás 2 standa sig langbezt í þessum efnum. Rás 2 er bjargvættur íslenskra tón- listarmanna! Tók níu ár að komast í sjónvarpið Ég hef svo sem ekki hangið á hurð- arhúninum hjá útgefendum og ekki sótzt eftir því sérstaklega að fá útgef- anda. En ég hef fengið alveg sæmi- lega spilun í útvarpi og salan verið ágæt líka. En það hefur verið erfiðara að fá kynningu í blöðum að ekki sé talað um sjónvarp. Ég kom að vísu fram í Kastljósi í vor og ég held að það sé í fyrsta skipti í níu ár sem ég kemst inn í Ríkissjónvarpið. Fjölmiðlar hafa sinnt trúbadorum eins og mér mjög misjafnt. Rás 2 hef- ur á síðustu árum sinnt þeim, sem eru alveg nýir á markaðnum. Það er nátt- úrlega nauðsynlegt. En mér finnst hins vegar að það verði að gera þá lágmarkskröfu að þetta nýja fólk sé að gera eitthvað merkilegt, en komist ekki í fjölmiðlana bara vegna þess að það er að gera eitthvað nýtt. En taktu nú eftir,“ segir Halli: „Það hvarflar ósjálfrátt að manni, að ég ætti ekki að vera að nefna þetta. Það gæti verið mistúlkað og ég af- greiddur sem einhver reiður og spældur náungi. Og kannski kunna menn ekki að taka svona gagnrýni. Eða eins og ég sagði áðan: Ég hef mínar skoðanir og stend við þær.“ Er ekki þreytandi að spila fyrir ölvað fólk, sem hlustar misvel á tón- listarmanninn? „Jú, enda hefur þróunin hjá mér orðið sú, að ég hef verið að halda tón- leika, sem byrja snemma og eru bún- ir klukkan 12 á kvöldin. Fólk kemur inn og er með mér og hlustar eina kvöldstund, þar sem ég næ að full- nægja þeirri þörf minni að tjá mig og segja sögur af alls kyns tagi. Ég er stoltur af því að hafa náð þessu tak- marki, því þetta er það erfiðasta við að lifa af tónlist, að geta spilað, sungið og sagt sögur áður en allt fyllist af há- vaða í ölvuðum gestum. Þess vegna vil ég einmitt ekki spila langt fram á nætur. Mér hefur að mörgu leyti gengið betur í spileríinu úti á landi en í Reykjavík. Ég er búinn að þræða nánast hvert einasta byggða ból á Ís- landi og það oft. Ætli það séu ekki Vestmannaeyjar, sem mér finnst skemmtilegast að koma til að spila. Það er eitthvað sérstakt og svo má ekki gleyma Vestfjörðum. Ég segi oft að Vestfirðingar og Eyjamenn séu sami kynstofn. Það er eitthvað svo opið og frjálst við þetta fólk. Annars er sérstök stemning í því að fara út á land, sérstaklega á sumr- in, þegar nóttin er björt, keyra inn í þorpið, hitta fólk og setja upp tólin og tækin. Og svo þegar maður er búinn að spila setzt maður upp í bílinn og ekur út í bjarta nóttina. Það er hvergi betra að hugsa en úti í náttúrunni og næturkyrrðinni. Toppurinn í mínu lífi í dag er að fara einn lengst upp á heiði til að veiða silung, vera einn á nóttunni og heyra ekkert hljóð nema í fuglunum og vera einn með hugsanir mínar. Og það er oft, sem ég fyllist þessari þörf.“ Halli er ekki búinn að gera upp við sig hvernig hann hagar framhaldinu, en ætlar að stofna nýja hljómsveit ásamt Erik Qvick trommuleikara. Hann segist geta lifað á þessu með plötum og tónleikaferðum, „en þetta er ekki fjölskylduvænasta starfið, sem maður getur valið sér. Ég er mjög mikill fjölskyldumaður og lifi fyrir að vera það. Og það er kannski það helzt sem stoppar mann af í því að vera á fullu í þessu“. Tvo síðastliðna vetur hefur Halli kennt á gítar í Tónsölum í Kópavogi og kann því vel að hafa músíktengda vinnu með listamannsferlinum. En draumurinn er að verða ferðabóndi. „Sá sem lifir ekki í deginum í dag, hann lifir aldrei. Ef maður er alltaf fastur í framtíðinni eða fortíðinni þá nýtur maður ekki dagsins í dag. Og það að taka spontant og óvæntar ákvarðanir er frábær valkostur. Það eru margir, sem segja í ellinni: Ég vildi að ég hefði gert þetta eða gert hitt. Tónlistin er það sem heillar mig og það að vera fjölskyldumaður. Ég er mikið með strákunum mínum í íþróttum og er fararstjóri í öllum fót- boltaferðum út á land. Þá er gítarinn tekinn með og þannig er ég virkur í félagsstarfi með þeim í leiðinni.“ Svarið við spurningunni hvort þú viljir vera trúbador eða ekki er því bæði já og nei? „Það er já. Fyrir mér er það að semja músík og texta nokkuð, sem ég valdi mér aldrei. Þetta var bara eitt- hvað sem gerðist. Allt í einu á ein- hverjum tímapunkti á kvöldin, þegar ég var unglingur, var ég hættur að geta sofið vegna þess að ég var svo uppfullur af einhverju sem ég þurfti að skrifa niður á blað. Og ég gerði þetta af mikilli ákefð, eins og þetta væri bezt launaða starf í heimi. Að vera skapandi tónlistarmaður er ákveðinn lífsstíll. Núna er heimasíðan mín, hallireynis.com, tekin við af stílabók- inni. Það er gott fyrir hvern einasta listamann að fá vindinn á móti sér, þá fyrst kemur í ljós hvað er í hann spunnið og það er margt, sem maður getur lært af sögu manna eins Harð- ar Torfa. Sjáðu bara hvað hann er í dag, sextugur maðurinn, frjór og aldrei betri. Það væri gaman að taka við keflinu af honum!“ m sér trúr Allir eins Halla Reynis finnst vera einhver einhver mórall í þjóðfélag- inu sem gengur út á að dingla bara með; að vera á sömu skoðun og allir hinir. Morgunblaðið/RAX »En það er spurning hvað maður „má“ ganga langt í því að vera pólitískur í þessu landi. Efnishyggjan er orðin svo geigvænleg og það eru takmörk fyrir því hvað er óhætt að segja. halldorjr@centrum.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 33 GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Lið-a-mót FRÁ www.nowfoods.com APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR H á g æ ð a fr a m le ið sl a A ll ta f ó d ýr ir NNFA QUALITY ALLTAF FÁANLEGT Á vegum ríkisskattstjóra eru haldin námskeið sem eru sérstaklega ætluð fyrir einstaklinga sem eru að hefja sjálfstæðan atvinnurekstur. Á námskeiðunum er farið yfir hagnýt atriði sem varða skattskil einstaklinga með at vinnu rekstur, svo sem skráningarskyldu, launagreiðanda í staðgreiðslu, reiknað end ur gjald, rekstr ar kostnað, skatt fram talið, reglur um tekjuskráningu og reikn inga út gáfu. Einn ig er fjallað um virðisaukaskatt, út skatt og innskatt, skattskyldu, und an þágur, skatt verð o.þ.h. Næsta námskeið verður haldið á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, þann 24. mars nk. og stendur yfir frá kl. 12:45 til kl. 17:30. Skráning og nánari upplýsingar á www.rsk.is Ertu að hefja atvinnurekstur? - námskeiðin byrja aftur í mars Linnetsstíg 2, Hafnarfirði, sími 551 0424 Seyma Seyma Útsala Allt á að seljast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.