Morgunblaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 45
Hjallasel 49
Reykjavík
Verð: 29.900.000
Stærð: 80
Fjöldi herbergja: 2
Byggingarár: 1985
Brunabótamat: 13.800.000
Bílskúr: nei
REMAX Lind kynnir vel staðsett og fallegt parhús á einni hæð á skjólsælum stað við Seljahlíð í Breiðholti.
Seljahlíð er hjúkrunar og þjónustuheimili fyrir aldraða. Íbúum parhúsanna býðst aðgangur að þeirri
þjónustu sem Seljahlíð veitir sínu vistfólki. Sem dæmi má nefna heimaþjónustu með mat, nálægð við
sjúkraþjálfun, verslanir og banka. Einnig er hægt að fá tengingu við öryggisvakt sem er til staðar allan
sólarhringinn. Hugsað er fyrir hjólastólaaðgengi í íbúðinni. Sér hellulagt bílastæði.
Hilmar Jónasson
Sölufulltrúi
695 9500
hj@remax.is
Þórarinn
Jónsson hdl.
lögg. fasteignasali
LIND
HÚSNÆÐI FYRIR ELDRI BORGARA
Sími 575 8500 - Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasali
OPIÐ
VIRKA DAGA
FRÁ KL. 9-18
Opin hús
SPÓAHÓLAR 4 - LAUS ÍBÚÐ
LAUGARNESVEGUR 112
NÝ ÍBÚÐ
Í dag á milli kl. 14-15 verður til sýnis falleg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð.
Íbúðin er tæpir 90 fm og skiptist í flísalagt hol með skápum, tölvukrók,
eldhús með ágætri innréttingu og tækjum ásamt borðkrók, bjarta parket-
lagða stofu með útgang á hellulagða verönd og sérgarð, baðherb. með
flísum á gólfi, tengingu fyrir þvottavél og baðkari og tvö parketlögð
svefnherb. Sérgeymsla er á hæðinni og sameiginlegt þvottaherb.
Hús í góðu ástandi. Áhv. 7,6 m. V. 17,5 m.
Már og Ástríður á bjöllu.
Í dag á milli kl. 14-15.30 verður til sýnis skemmtileg, mjög óhefðbundin
fullbúin 3ja-4ra herb. 88,6 fm ný íbúð við Laugarnesveg 112 í Reykjavík.
Íbúðin er á tveimur hæðum og er tæplega 4 m lofthæð á efri hæðinni
sem gefur ótal möguleika. Sérinngangur er í íbúðina og úr henni er
fallegt útsýni út á Faxaflóann og upp að Snæfellsjökli. Íbúðin er með
vönduðum gólfefnum og innréttingum. Sjón er sögun ríkari. V. 21,4 m.
FANNBERG FASTEIGNASALA ehf.
ÞRÚÐVANGI 18 - 850 HELLU
Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur
sími 487 5028
TIL SÖLU
Einbýlishús á Hellu
Til sölu er nýtt, fullbúið einbýlishús við
Dynskála á Hellu.
Húsið er byggt úr steinsteypu og er steinað
að utanverðu, stærð 177 fm, þar af er bíl-
skúr 30 fm. Eignin skiptist í anddyri, eld-
hús, stofu, gang, fjögur svefnherbergi, bað-
herbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Auk þess er rými yfir svefnherbergisálmu.
Eignin er vel staðsett og stutt er í alla þjón-
ustu. Verð kr. 29.500.000.
Nánari upplýsingar og myndir á
www.fannberg.is og á skrifstofu.
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
125,2 fm mjög góð og mikið uppgerð neðri sérhæð auk 21 fm bíl-
skúrs, alls 146,2 fm við Kópavogsbraut. Hæðin skiptist í forstofu,
þvottahús, geymslu, hol, stofur, sjónvarpshol, glæsilegt eldhús
með borðkróki, baðherbergi, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi.
Hæðin er með nýju eikarparketi á gólfi. V. 32,9 m.
Opið hús í dag milli kl. 13.00 og 14.00 (vinstri hurð).
Kópavogsbraut 81 – Opið hús
180,5 fm mjög góð efri sérhæð við Tjarnarból á Seltjarnarnesi, þar
af er sérstúdíóíbúð í kjallara, auk 51,5 fm bílskúrs, alls 232,0 fm.
Hæðin skiptist í stigagang, hol, stofu, eldhús með borðkrók,
þvottahús, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er stór
geymsla og sér 2ja herbergja íbúð (ekki full lofthæð). Bílskúrinn er
sérstæður framan við húsið. Íbúð í kjallara gefur góðar leigutekjur.
V. 45,5 m.
Opið hús í dag milli kl. 13.00 og 14.00.
Tjarnarból 15 – Opið hús
254,4 fm glæsilegt miðjuraðhús/tengihús á tveimur hæðum með
bílskúr á góðum útssýnisstað í Kórahverfinu í Kópavogi.
Húsið verður fullbúið að utan, steinað í ljósum lit. Lóðin verður tyrfð
og bílaplan hellulagt götumegin. Að innan verður húsið afhent full-
búið án gólfefna, flísar verða þó á aðalbaðherb. Húsið verður með
gólfhita. Möguleiki er á breytingum í innréttingavali ef kaupendur
koma með þær tímanlega. V. 55 m.
Hamrakór – Eitt hús eftir
Glæsilegar 139,9 fm 4ra herbergja efri sérhæðir auk 33,2 fm bíl-
skúrs í fallega hönnuðum tvíbýlihúsum við Lindarvað í Reykjavík.
Alls er hver hæð því 173,1 fm með bílskúr. 50 fm svalir fylgja hverri
íbúð í suður. Eignunum er skilað fullbúnum án gólfefna. Hægt er að
fá eignirnar 5 herbergja. V. 40,9 m.
Lindarvað - Nýbygging
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! –
Á SÍÐASTA kjör-
tímabili samþykktu
fulltrúar allra flokka að
breyta fyrirkomulagi á
ferðaþjónustu fatlaðra í
þá veru að fatlaðir gætu
pantað ferðir samdæg-
urs en þyrftu ekki að
skipuleggja allar sínar
ferðir með dagsfyr-
irvara. Þessar breytingar áttu að taka
gildi frá og með 1. janúar sl.
Í meðförum nýs meirihluta hefur
andi breytinganna tekið stakkaskipt-
um til hins verra og málið tafist en
breyttar reglur eiga að taka gildi 1.
maí nk. Samkvæmt nýjum reglum
verður fötluðum gert að greiða 500
króna aukagjald fyrir hverja ferð sem
pöntuð er samdægurs, til viðbótar við
140 króna grunngjald, eða 1.280 krón-
ur fram og til baka. Þá má hver ein-
staklingur að hámarki panta 10 ferðir
samdægurs á mánuði (það er fimm
ferðir fram og til baka). Að auki verð-
ur að panta ferðirnar með þriggja
klukkustunda fyrirvara á afgreiðslu-
tíma þjónustuvers. Það er því ljóst að
þrátt fyrir breytingarnar er þjónustan
bæði stirð og dýr fyrir notendur.
Flokkun fatlaðra
Aðeins hluta þeirra sem rétt hafa til
að nýta sér ferðaþjónustu fatlaðra
verður gefinn kostur á að panta ferðir
samdægurs.
Fatlaðir einstaklingar sem ekki eru
í hjólastól, en hafa rétt á að nota ferða-
þjónustu fatlaðra, munu ekki eiga
þess kost að panta ferðir samdægurs
og verða áfram að ákveða allar sínar
ferðir með dagsfyrirvara. Þannig er
verið að gera upp á milli fötl-
unarflokka og bjóða þeim, sem til
dæmis búa við andlega fötlun, verri
þjónustu hjá ferðaþjónustu fatlaðra
en þeim sem bundnir eru hjólastól.
Flokkun ferða
Í samþykkt meirihlutans er há-
marksfjöldi ferða fyrir hvern ein-
stakling skilgreindur sem 60 ferðir á
mánuði (30 ferðir fram og til baka),
þar af að hámarki 25 ferðir til einkaer-
inda og af þeim að hámarki 10 sam-
dægurspantaðar ferðir á mánuði. Það
er því ekki nóg með að hámarksfjöldi
ferða sé skilgreindur heldur er einnig
sett hámark á ferðir í „einkaerindum“
sem eru þá ferðir sem ekki eru til
vinnu, skóla eða lækninga. Í þessum
skilgreiningum felst skerðing á ferða-
frelsi, forsjárhyggja og niðurlæging
fyrir þá einstaklinga sem þurfa að
haga ferðum sínum út af heimilinu út
frá flokkunarkerfi stjórnvalda í
Reykjavík.
Tilvalið að einkavæða
Reyndar botna ég ekkert í því af
hverju Strætó BS er falin framkvæmd
á þessu, af hverju er þessi þjónusta
ekki boðin út? Það eru fjölmörg fyr-
irtæki betur til þess fallin að veita
þessa þjónustu en
Strætó, fyrirtæki sem
gætu nýtt bíla í annan
akstur samhliða þjón-
ustu við fatlaða sem
hlýtur að lækka kostn-
að. Ég er sannfærð um
að aðrir fram-
kvæmdaaðilar geta
boðið betri og skilvirk-
ari þjónustu fyrir not-
endurna án meiri
kostnaðar fyrir borg-
ina. Úr því að nýr
meirihluti sá sig knúinn
til að setja mark sitt á breytingarnar
hefði verið meiri reisn yfir því að gera
þjónustuna aðgengilegri, fremur en
að leggjast í þessa fólks- og ferða-
flokkun, engum til gagns.
Ferðafrelsi, nauðsyn eða bruðl?
Sigrún Elsa
Smáradóttir fjallar
um Ferðaþjónustu
fatlaðra
» Í meðförum nýsmeirihluta hefur
andi breytinganna tekið
stakkaskiptum til hins
verra og málið tafist …
Sigrún Elsa Smáradóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar.