Morgunblaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ „Nýju fötin keisarans“? VEÐUR Sjálfstæðisflokkurinn hefur veriðað laga sig að nýjum viðhorfum í umhverfismálum. Það kemur skýrt í ljós í fréttaskýringu, sem birtist á forsíðu Morgunblaðsins í gær.     Forystumaðurum þessa að- lögun Sjálfstæð- isflokksins að breyttum við- horfum er tví- mælalaust Illugi Gunnarsson, fyrr- um aðstoð- armaður Davíðs Oddssonar, sem nú skipar öruggt sæti á framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins í öðru Reykjavíkurkjördæmanna.     Nú fyrir helgina skipaði EinarOddur Kristjánsson alþing- ismaður sér í hóp hinna grænu sjálf- stæðismanna, þegar hann andmælti ákveðið hugmyndum um eignarnám vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár.     Áður hafði Katrín Fjeldsted talaðmeð afgerandi hætti á Alþingi fyrir sjónarmiðum umhverfisvernd- arsinnar.     Í fréttaskýringu Morgunblaðsins ígær er vakin athygli á afstöðu Sigríðar Önnu Þórðardóttur, fyrr- verandi umhverfisráðherra, Guð- laugs Þórs Þórðarsonar, Péturs Blöndals og Borgars Þórs Ein- arssonar, formanns Sambands ungra sjálfstæðismanna.     Fylking umhverfisverndarsinnarinnan og utan þingflokks sjálf- stæðismanna er því orðin sterk og endurspeglar áreiðanlega sömu þró- un meðal flokksmanna.     Birgir heitinn Kjaran, fyrrum einnaf forystumönnum Sjálfstæð- isflokksins og frumkvöðull í mótun umhverfisstefnu í íslenzkum stjórn- málum, hefði glaðst yfir þessari þró- un. STAKSTEINAR Illugi Gunnarsson Aðlögun Sjálfstæðisflokks SIGMUND                         ! "#   $%&  ' (                               ) '   *  +, -  . /    * ,                            !!  "! "      ! ! # $          01      0  2   3 1, 1  ),  40 $ 5 '67 8 3# '  %   #!!  $                   9 )#:;< !!                   !  "  #  $  )  ## : )    &' ( !  !' !    ) =1  = =1  = =1  &(  !* $ +!, -  <>7, ?           .( !- / ! ! !' !   " 0 !! !! 1! $ !  ' " 5  1 2   ! ! !  3  !  $ 1! !   ! & ' 3! !4  $ " . !- / !  " : 2 !!+ 1! ! '  !' !   )$ " &! ! !  $ 1!    !!& 3! !4  $ " 0 !! !! 1! $ !!  '" 5/ !!66  !!4  !* $ !7 "!   ! "!" 2&34@3 @)=4ABC )D-.C=4ABC +4E/D(-C " 1% %" "     9"  " " " " " " " "   1 19 1 1 1 1% 1 1 1 1 1 1% 1 1% 1%            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Jóhanna Fríða Dalkvist | 24. febrúar 2007 Umhverfismál Ég var að lesa rosalega góða grein á blogginu hjá Kára Harðarsyni um hjólreiðar. Allir þeir sem eru að hugsa í raun um um- hverfismál og vilja láta kjósa sig á þeim forsendum ættu að beita sér fyrir bættum hjólreiða- samgöngum. Það er eitt af því besta sem hægt er að gera til að sporna við svifrykinu og CO2 mengun, það er að auka notkun reiðhjólsins. Meira: dalkvist.blog.is Eiríkur Bergmann Einarsson | 23. febrúar 2007 Klámið á Hótel Sögu Samt hefur komið fram að Hótel Saga selur gestum sínum klám. Því er ekki ólíklegt að Hótel Saga dreifi klámefni frá ein- hverjum þeirra aðila sem ætluðu að gista á hótelinu, en máttu ekki. Semsé: Forsvarsmenn Hótel Sögu telja í lagi að selja klám og dreifa klámi en þeir telja ekki í lagi að hýsa framleiðendur þess efn- is sem þeir sjálfir sýna og græða á. Meira: eirikurbergmann.blog.is Snorri Bergz | 24. febrúar 2007 VG og Samfylkingin Ok, ég verð að segja, í þessu samhengi, að ef marka má fyrstu frétt- ir frá Landsþingi VG, séu voðalega margir þar búnir að ganga í gegnum skilnaði. Steingrími tókst þarna algjörlega að hrekja ISG í faðm Geirs. Því jafnvel kratarnir hljóta að sjá, að stefna VG er bæði óframkvæmanleg og hættu- leg. Þar að auki er SJS ekki líklegur til að gera miklar málamiðlanir eða tilhliðranir. Meira: hvala.blog.is Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir | 24. febrúar 2007 Ríkisrekin trú? Þjóðkirkjan er minnk- andi stofnun eins og góð úttekt Kompáss sýnir. Afstaða biskups og annarra leynt og ljóst gegn giftingum samkynhneigðra innan kirkjunnar og það þvingunarvald sem þeir beita gegn öðrum trúfélögum til gifta samkynhneigð pör fjölgaði ekki meðlimum. Sumir geta réttilega haldið því fram að kirkjan eigi ekki að breytast, geri hún það sé hún að beygja sig undir nýtt gildismat hverrar kyn- slóðar og smátt og smátt missi hún sjónar á tilgangi sínum. Hins vegar er ljóst að sú kirkja sem rígheldur í aft- urhaldsöm og gamaldags gildi missir frá sér meðlimi og þurrkast á end- anum út. Þar með ætla ég ekki að halda því fram að þjóðkirkjan sé vond stofnun eða geri meira ógagn en gagn – kirkj- an gerir flest vel og innan hennar er mikið af fólki sem vinnur óeigingjarnt starf af miklum kærleika. Það er ekki jafnræði á milli trú- félaganna – þjóðkirkjan fær skv. Kompási fjóra milljarða en hin trú- félögin fá eingöngu sóknargjöldin sem dregin eru af skatti sóknarbarna. Ég viðurkenni mikilvægi trúfélaga í samfélaginu en myndi helst ekki vilja borga af mínum skattpeningum til Krossins, Vottanna eða annara öfgahópa. En ef ég vil að skattborg- arar borgi í mitt trúfélag þá get ég ekki annað en samþykkt það sama fyrir aðra. Meira: bryndisisfold.blog.is Steingrímur Sævarr Ólafsson | 23. febrúar 2007 Bréfið umdeilda Hér er bréfið sem er að gera allt vitlaust í nýj- asta þættinum af The bold and the beautiful, aka Baugsmálinu svo kallaða. Er þjóðfélagið ekki fullt af nafnlausum bréfum? Er annað hvert blogg ekki nafnlaust bréf? Langflestir spjall- þræðir Málefnanna og Barnalands? Hvað er svona sérstakt við þetta bréf sem gerir allt vitlaust? Þegar stórt er spurt … Meira: saevarr.blog.is BLOG.IS Allir velkomnir. Nánari upplýsingar á www.hi.is Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum, flytur erindi um augnrannsóknir í boði Háskóla Íslands, í Hátíðasal Aðalbyggingar, miðvikudaginn 28. febrúar kl. 16.15. Að erindi loknu verður boðið upp á léttar veitingar. Allt áhugafólk um augnrannsóknir er velkomið. www.hi.is FYRIRLESTUR AUGNRANNSÓKNIR ERU BLINDUVARNIR, GRUNNVÍSINDI OG NÝSKÖPUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.