Morgunblaðið - 25.02.2007, Side 16

Morgunblaðið - 25.02.2007, Side 16
16 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is Því er iðulega haldið fram aðhann skorti „sjarma“ ogsumir segja hann beinlínisleiðinlegan – á ítalskan mælikvarða ef ekki alþjóðlegan. En Romano Prodi er maður ólseigur og í gær virtist sýnt að valdaskeiði hans í ítölskum stjórnmálum væri engan veginn lokið. „Prófessorinn“ hefur á hinn bóginn átt í erfiðleikum; ef til vill hefði engum tekist að halda sam- an þeirri undarlegu og sundurleitu samsteypustjórn sem hann fór fyrir. Hún féll heldur óvænt og með hvelli á miðvikudag en Ítalíuforseti bað hann í gær um að sitja áfram þangað til greidd hafa verið atkvæði um traustsyfirlýsingu. Prodi hefur áður gengið á fund forseta Ítalíu og beðist lausnar. Í þetta skiptið tók Giorgio Napolitano við afsagnarbeiðninni. Prodi hefur tvívegis áður átt slíkt erindi við Ítal- íuforseta, fyrst árið 1997 en þá hélt hann embættinu. Ári síðar lá leið hans enn í Quirinale-höllina í Róm, þar sem norður-ítalskir risar gæta öryggis forsetans. Í það skiptið missti hann embættið háa. Prodi hófst á ný til valda í maí í fyrra og hafði því gegnt embætti for- sætisráðherra í níu mánuði í þessari lotu. Ýmsu var venju samkvæmt lof- að en utan Ítalíu vakti trúlega mesta athygli sá eindregni ásetningur for- sætisráðherrans að ráðast gegn póli- tískri spillingu. Þingmeirihlutinn samanstóð hins vegar af mekki flokka og bandalaga á miðju og vinstri væng ítalskra stjórnmála. Þar var að finna kommúnista, gamla kommúnista, endurhæfða kommún- ista, framsóknarmenn, jafnaðar- menn, frjálslynda og jafnvel fyrrum fylgismenn Kristilega demókrata- flokksins. Margir sögðu að þessi samsuða myndi aldrei halda og ekki var þörf á doktorsprófi í stjórnvís- indum til að álykta á þann veg. Utanríkismálin urðu stjórn Prodis að falli. Í atkvæðagreiðslu síðdegis á miðvikudag risu þingmenn upp gegn áformum um að halda ítölsku herliði í Afganistan. Stjórnin hugðist einnig fá þingheim til að samþykkja að bandarísk herstöð í Vicenza yrði stækkuð. Eindregnustu vinstri mennirnir höfðu fengið nóg af meint- um undirlægjuhætti Prodis gagn- vart Bandaríkjastjórn. Romano Prodi er 67 ára, fæddur 9. ágúst 1939 í bænum Scandiano í Emilia-Romagna-héraði á Norður- Ítalíu. Faðir hans var verkfræðing- ur, móðirin kennari. Þau hjónin stóðu sig prýðilega í að uppfylla lög- málið; Romano er áttundi í röð níu systkina. Hann sýndi snemma veru- lega hæfileika til náms líkt og önnur börn þessara ágætu hjóna. Prodi á sex bræður og fimm þeirra eru eða hafa verið háskólakennarar. Prodi nam lög við katólska háskól- ann, sem kenndur er við „hjartað helga“ eða Sacro Cuore, í Mílanó. Þaðan lá leiðin til Bretlands þar sem hann settist á skólabekk í London School of Economics. Þegar heim kom hóf hann kennslu við stjórn- og hagspekideild háskólans í Bologna. Pólitískan feril sinn hóf Prodi inn- an vébanda Kristilega demókrata- flokksins. Hann taldist til vinstri vængsins innan flokksins en náði frama og árið 1978 fór hann með embætti iðnaðarráðherra í stjórn Giulio Andreotti. Frá 1982 til 1989 var hann forstjóri IRI (ít. „Istituto per la Ricostruzione Industriale“), ríkisrekins eignarhaldsfélags, sem hann átti þátt í að einkavæða. Ekki varð hjá ásökunum um spillingu komist á þessum vettvangi fremur en flestum öðrum á Ítalíu. Leiðin lá aftur í stjórnmálin. Árið 1995 varð Prodi leiðtogi „Ólívutrés- ins“, bandalags miðju og vinstri flokka sem fór með sigur af hólmi í kosningunum árið eftir. Hann ríkti í rétt tæp tvö og hálft ár; endurhæfðir kommúnistar gátu ekki samþykkt breytingar sem Prodi taldi nauðsyn- legar á sviði vinnumarkaðar og eft- irlauna og felldu stjórnina. Evrópusmiður Enn skipti Prodi um gír og nú lá leiðin í norðurátt. Árið 1999 var hann skipaður forseti framkvæmdastjórn- ar Evrópusambandsins og er sagt að einungis hafi tekið eina klukkustund að ná samkomulagi um þá ráðningu. Prodi hafði lengi verið í hópi helstu talsmanna Evrópusamrunans og náði árangri á þessum vettvangi þótt stundum gæfi á bátinn. Sennilega verður hann talinn í hópi smiða hinn- ar nýju Evrópu; í valdatíð hans tóku ein 11 Evrópuríki upp evruna og árið 2004 fengu átta fyrrum kommúnista- ríki aðild að Evrópusambandinu. Stjórnmál Evrópusambandsins eru flókin, hægvirk og að margra mati yfirtak leiðinleg. Þar reyndist Prodi vera á heimavelli. Haustið 2004 var forsetatíð Prodis úti en heima biðu hans krefjandi verkefni. Upplausn ríkti á miðju og vinstri væng ítalskra stjórnmála eft- ir stórsigur auðjöfursins Silvios Ber- lusconis í þingkosningunum 2001. Prodi var kjörinn leiðtogi nýs banda- lags þessara stjórnmálaafla haustið 2005. Í kosningunum í apríl í fyrra fór Bandalagið naumlega með sigur af hólmi. Hann sór embættiseið 17. maí og lof var borið á hann fyrir að afreka að mynda stjórn úr því krað- aki flokka sem samtökin hýstu. Nú þegar Prodi hefur neyðst til að segja af sér liggur fyrir að stöðug- leikinn heyrir sögunni til í ítölskum stjórnmálum. Líkt og margir höfðu spáð reyndist hann ekki langlífur. Milljarðamæringurinn umdeildi, Silvio Berlusconi, setti met í maí- mánuði árið 2004 þegar hann hafði afrekað að gegna forsætisráð- herraembættinu í 1.060 daga, lengst allra frá lokum síðari heimsstyrjald- arinnar. Alls ríkti Berlusconi í fimm ár samfleytt og verður það met vís- ast seint slegið, 61 ríkisstjórn hefur verið við völd á Ítalíu frá því að ófriðnum mikla lauk. Romano Prodi hefur löngum sætt gagnrýni fyrir að vera heldur „óspennandi“ stjórnmálamaður, lengi var hann haldinn í tölu tækni- krata og sagður öldungis laus við persónutöfra. Tæpast ríkir einhugur um það mat en samanburður við höf- uðóvininn, Silvio Berlusconi, verður honum alltaf erfiður. „Kavalérinn“ er að sönnu eftirtektarverður per- sónuleiki hið minnsta; undarleg blanda heimsborgara og götustráks, milljarðamærings og alþýðuhetju, frelsara og loddara. Samskipti þess- ara manna hafa jafnan verið afar erf- ið og til þess er tekið að þeir geta vart heilsast þegar leiðir liggja sam- an á opinberum vettvangi. „Prófessorinn“ er gælunafnið sem Prodi gengur undir í röðum aðdá- enda sinna. Fjendurnir kalla hann „Mortadella“ en svo nefnist heldur bragðdauf spægipylsa sem íbúar Bo- logna hafa sérstakar mætur á. And- stæðingarnir segja hann hrokafullan og einstrengingslegan, fylgismenn- irnir telja hann einan færan um að koma á nauðsynlegum breytingum á Ítalíu. Baklandið er sundrað en pró- fessorinn fær tækifæri til að þreyta sjúkraprófið. Lífseigur lærifaðir SVIPMYND» Reuters Alvara Romano Prodi fór frá 1996 til 1999 fyrir fyrstu raunverulegu samsteypustjórn miðju og vinstri flokka á Ítalíu frá því að fasisminn leið undir lok þar í landi. Hann þykir alvörugefinn og nákvæmur í framgöngu allri. Afsögn Stuðningsmenn Forza Italia, flokks Silvios Berlusconis, fagna falli stjórnar Romans Prodis forsætisráðherra í Róm á miðvikudagskvöld. Erlent | Stjórn Romanos Prodis féll í vikunni og gekk hann í þriðja skipti á ferlinum á vit Ítalíuforseta að beiðast af- sagnar en þar með er ekki öll sagan sögð. Höfuðprýði | Rauðhært fólk verður iðulega fyrir aðkasti, en hárliturinn getur einnig orðið eins og vörumerki. Svipmynd | Kate Winslet hefur verið nefnd enska rósin og er nú tilnefnd til Óskarsverðlauna. VIKUSPEGILL» Enn og aftur kemur sundurlyndis- fjandinn í bakið á Romano Prodi » Andstæðingarnir segja hann hroka- fullan og einstrengings- legan, fylgismennirnir telja hann einan færan um að koma á nauðsyn- legum breytingum á Ítalíu. Baklandið er sundrað en prófesorinn fær vísast að þreyta sjúkraprófið. » Könnun sýnir það svart áhvítu að við erum ekki þekkt fyrir menningu okkar, hún er ekki hluti af ímynd Íslands. Valgerður Sverrisdóttir utanrík- isráðherra um nýja úttekt á ímynd Íslands sem gerð var í samvinnu viðskiptaráðs og ríkisstjórnarinnar. » Þetta er mannréttindabrot. Sigurbjörn Sveinsson , formaður Lækna- félags Íslands, um frumvarp til laga um vátryggingasamninga sem m.a. mun kveða á um rétt vátryggingafélaga til að afla við- kvæmra heilsufarsupplýsinga frá trygg- ingataka um þriðja aðila, t.d. um foreldri eða systkini, án samþykkis hans eða jafn- vel vitneskju. Sigurbjörn segir þessi vinnubrögð minna á starfsaðferðir austur- þýsku öryggislögreglunnar, Stasi. »Næsta takmark er að verðaalþjóðlegur meistari. Hjörvar Steinn Grétarsson , 13 ára, sem varð Norðurlandameistari í sínum aldurs- flokki í skólaskákkeppni í þriðja skiptið. » Ekki neitt, ætla ég rétt að vona. Sigurður Sigurjónsson , leikskólastjóri Skýjaborgar í Hvalfjarðarsveit, spurður hvað gert sé öðruvísi í Skýjaborg en öðr- um leikskólum. Sigurður er eini karlmað- urinn sem gegnir stöðu leikskólastjóra hér á landi. »Ég hef óbeit á klámiðn-aðinum og öllum afurðum hans. Geir H. Haarde forsætisráðherra í um- ræðu á Alþingi um klámráðstefnu sem boðað hafði verið til á Íslandi 7.–11. mars. Hætt var við ráðstefnuna á fimmtudag þar eð eigendur Radissons SAS, Hótel Sögu, neituðu að hýsa gestina. » Okkur finnst þetta frábærsigur fyrir kynfrelsið og mjög gott að sjá þjóðina standa saman um það að hafna kláminu. Katrín Anna Guðmundsdóttir , talskona Femínstafélagsins, þegar fyrir að lá að klámfólkinu hafði verið úthýst. » Ef við ætlum ekki að fremjalögbrot í landinu, af hverju ætti okkur þá að vera úthýst. Það er engin glóra í þessu. Cristina Ponga , fulltrúi klámfengnu ráð- stefnugestanna, um viðbrögð forráðamanna Radisson SAS, Hótel Sögu. » Við erum mjög hissa á þessuog sár út í þetta fyrirtæki. Halldór Haldórsson , bæjarstjóri á Ísafirði, um þá ákvörðun stjórnenda Marels hf. að loka starfsstöðinni í bænum. » Við lítum svo á að við séumkomnir að þeim tímapunkti að geta sagt hingað og ekki lengra. Stefán Eiríksson , lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, um þá ákvörðun lögreglu að rannsaka hvort ofsaakstur tveggja ungra manna í Reykjavík fyrr í mánuðinum gefi tilefni til að ákæra viðkomandi fyrir brot gegn almennum hegningarlögum en ekki aðeins fyrir brot á umferðarlögum. Allt að sex ára fangelsi liggur við þeim ákvæðum hegningarlaganna sem þykja koma til álita í þessu efni. » Þetta er kannski í mesta lagikartöflumús. Guðmundur Magnússon , framkvæmdastjóri Bónuss. Í sjónvarpsþættinum Ísland í dag á mánudagskvöld birtust myndir sem teknar voru í verslun Bónuss í Holtagörðum og kviknuðu vangaveltur um hvort mýs hefðu þar sést skjótast yfir gólfið. Upplýst hefur verið að þar voru kartöflur á ferð. Tilefni myndatökunnar var verðkönnun .Guðmundur segir lýsandi fyrir umræðuna um matvörumarkaðinn á Íslandi að athygli fjölmiðla skuli hafa beinst að því hvort mýs eða kartöflur hafi sést á gólfinu en ekki niðurstöðum verðkönnunarinnar. Ummæli vikunnar Morgunblaðið/Ásdís Metnaður Hjörvar Steinn Grét- arsson stefnir á stærri afrek.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.