Morgunblaðið - 25.02.2007, Page 29
lag og ég var svolítið spéhræddur að
bera þetta á borð,“ segir hann en
Dísella og Guðrún Árný sungu lagið.
„Mér þótti mjög vænt um lagið en
því gekk ekki vel. Það var gert svo-
lítið grín að því að ég skyldi hafa
gert dramatískt lag um hundinn
minn. Eftir úrslitakvöldið fór ég rak-
leitt heim og setti saman „Heaven“,“
segir Sveinn en í ár fékk hann Krist-
ján Hreinsson til að semja texta við
„Ég les í lófa þínum“.
Sagan af Heaven
„Heaven“ var upphaflega ekki
eins dramatískt og lokaútgáfan og er
ástæða fyrir því. „Jóhanna Jóhanns
hjá Sjónvarpinu hringdi í mig 6. jan-
úar 2004. Deginum áður lauk með
formlegum hætti fimm ára sambúð
hjá mér. Ég var því í tilfinninga-
legum brunarústum þegar ég mætti
til fundar og í framhaldinu tók lagið
breytingum eftir því. Útsetningin og
stemningin fór í þessa átt að gefa
fyrrverandi maka lagið og það væri
okkar svanasöngur,“ segir hann en
Magnús Þór Sigmundsson samdi
textann.
Sveinn er ekki með lög á lager.
„Ef söngvari kemur til mín í leit að
lagi spyr ég um hvað lagið eigi að
vera, hvað hann sé að hugsa. Ég fer í
greiningarvinnu, kynnist rödd hans
og met hvað hentar. Það er engin til-
viljun að ég gekk fast að Eika, rödd-
in hans smellpassar í lagið. Eiki var
líka valinn vegna þess að það eru
mjög fáir íslenskir tónlistarmenn
sem hafa raunverulega reynslu í því
að labba fram á svið fyrir framan 30
þúsund tryllta áhorfendur og skila
sínu. Menn þurfa oft nokkur lög til
að hita sig upp. Þarna hefurðu þrjár
mínútur til að selja lagið. Þetta er
áreiðanlega með því erfiðara sem
söngvari getur gert.“
Sveinn á mikið af vinum um allan
heim, sem hann hefur kynnst í
tengslum við keppnina. Hann er bú-
inn að sækja marga þeirra heim og
rifjar upp sögu af einni slíkri heim-
sókn. Sveinn var staddur hjá Tobiasi
Larsson, finnskum evróvisjónmanni,
með Thomasi Lundin, litríkum full-
trúa Finna í frægum norrænum
evróvisjónsjónvarpsþætti, ásamt
Eika Hauks.
Thomas Lundin í hjólabuxum
„Ég gisti sökum plássleysis í
metrabreiðum svefnsófa með Thom-
asi heima hjá Tobiasi en við höfðum
verið að skemmta okkur í Helsinki
og Thomas var búinn að missa af
lestinni heim til sín. Mér varð pínu-
lítið bylt við þegar hann sagði að við
ættum báðir að gista í litla sófanum,
– fullmikil nálægð, alveg sama hver
á í hlut!“ segir Sveinn en þótt Lund-
in eigi konu og börn ganga þær sög-
ur reglulega að hann sé samkyn-
hneigður og hefur Lundin gaman af
því að leika sér með þann orðróm.
„Thomas sá það á mér að ég var
svolítið skelkaður. Hann mætir inn í
stofuna í svörtum og bleikum níð-
þröngum hjólabuxum úr teygjuefni
við afar efnislítinn bol. Hann
ákveður að stríða mér, leggur hönd-
ina á öxlina á mér og segir grafalvar-
legur: „Sveinn, ég hef aldrei sofið
hjá neinum frá Íslandi fyrr.“ En ég
get upplýst það hér með að hann er
gagnkynhneigður,“ segir Sveinn,
sem ber Lundin vel söguna.
Nú hefur mikið verið rætt um að
Austur-Evrópubúar hafi tekið yfir
Evróvisjón. „Þeir hafa bara verið að
gera miklu betri músík. Hafa ein-
faldlega verið með miklu fram-
bærilegri og fallegri tónlist en flest
lönd í Vestur-Evrópu.“
Austur-Evrópuþjóðir virðast líta á
keppnina sem mikið tækifæri.
„Þær bera ekki þennan kala til
keppninnar sem Íslendingar virðast
gera. Þrátt fyrir það eigum við alltaf
met í áhorfi sem stangast á við yfir-
lýsingar háværs minnihluta þjóðar-
innar.“
Austur-Evrópuþjóðir hafa gjarn-
an notað þjóðlegar tilvísanir í lög-
unum í keppninni. „Þær hafa verið
með flott popplög með þjóðlegum til-
vísunum. Ég var með þá hugmynd
að gera kröftugt íslenskt popplag
með þjóðlegum tilvísunum. Notast
við fimmundararfinn og koma vík-
ingahljómnum til skila. En það bíður
bara betri tíma,“ segir hann.
Ertu hræddur um að einhver
semji svoleiðis lag á undan þér?
„Nei, nei. Maður verður að trúa því
að maður sé góður lagasmiður til
þess að ná árangri. Ég hef átt vel-
gengni að fagna en það er mikilvægt
að vera gagnrýninn og reyna að gera
betur næst.“
Búinn að manna flestar stöður
Er mikið annríki framundan?
„Mér sýnist þetta ætla að vera
mjög erfitt, að halda utan um allt og
sinna því sem maður er að gera á öll-
um vígstöðvum. Og halda í kærust-
una, því það fyrsta sem fólk hugsar
þegar það sér hana er: Hvað er gella
eins og hún að gera með svona
gaur!“ segir Sveinn og hlær.
„Ég verð að skipuleggja tímann
mjög vel, en það er fullt af góðu fólki
sem ég get leitað til. Sem betur fer
er ég búinn að manna flestar stöður
og hef leitað til fólks sem ég hef unn-
ið með áður. Ég hefði ekki viljað
vera að gera þetta í fyrsta skipti
núna,“ segir hann, en lagið verður
endurunnið að fullu og sungið í vor á
ensku.
Sveinn stefnir að því að fljúga aft-
ur til Ungverjalands á mánudaginn
kemur. „Ég veit ekki hvort það
stenst, ég ætlaði upphaflega að fara
til baka síðasta mánudag! Ég færi
miklar fórnir til að gera þetta en
sem betur fer er minn helsti meðeig-
andi mikill evróvisjónaðdáandi og
sýnir þessu mikinn skilning. En ég
þarf að stíga til hliðar fljótlega því
þetta er ekki ferð til fjár og ég stefni
eigin hagsmunum í voða ef ég sinni
ekki því sem ég er að gera.“
Hlakkarðu til Helsinkiferðar-
innar?
„Ég verð að játa að ég lagði af-
skaplega hart að mér að koma með
gott lag í ár. Mig langaði ofboðslega
að sækja Finnland heim. Það er það
land sem ég hef oftast heimsótt og
ég á marga vini þar. Finnski hópur-
inn í Evróvisjón samanstendur að
mestu af sama fólkinu ár eftir ár.
Hópurinn er sá sem ég kynnist lang-
best í Istanbúl. Það verður gaman að
geta sótt þau heim í því hlutverki
sem ég verð í.“
ingarun@mbl.is
»Hvað gott er og
slæmt í tónlist er háð
gildismati. Það er ekkert
rétt eða rangt. Á meðan
óperusöngvarar geta
ekki sungið popplög eins
og á að syngja þau eiga
þeir að bera virðingu fyr-
ir því sem popparar eru
að gera og öfugt
Morgunblaðið/Eggert
Tryllingur „Eiki var líka valinn vegna þess að það eru mjög fáir íslenskir
tónlistarmenn sem hafa raunverulega reynslu í því að labba fram á svið
fyrir framan 30 þúsund tryllta áhorfendur og skila sínu. Menn þurfa oft
nokkur lög til að hita sig upp. Þarna hefurðu þrjár mínútur til að selja lag-
ið. Þetta er áreiðanlega með því erfiðara sem söngvari getur gert,“ segir
Sveinn Rúnar um flytjanda evróvisjónlags síns.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 29
GRÆJUDAGARÍ HÁTÆKNI
Ármúli 26 / Sími 522 3000 / www.hataekni.isTilboðum skolað niður með Coca-Cola Opnunartími þessa helgi 11 - 18
• Flatsjónvörp með allt að 30% afslætti• Magnarar með allt að 50% afslætti• Nokia farsímar með allt að 40% afslætti
Tilboð á
öllum vörumAðeins um helginaPIPAR• S
ÍA
•
7
0
3
5
0