Morgunblaðið - 25.02.2007, Qupperneq 52
52 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS - VEGHÚS 23, 3.H.H.
Mjög falleg og björt 6-7 herbergja íbúð á
tveimur hæðum ásamt innbyggðum bíl-
skúr. Íbúðin skiptist í forstofu, baðher-
bergi, fimm svefnherbergi, eldhús og tvær
stofur. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG
(SUNNUDAG) MILLI KL. 14.30-16.00.
V. 32,9 m. 6412
OPIÐ HÚS - SUÐURHVAMMUR 9 HFJ 2H.H.
Mjög falleg þriggja herbergja íbúð í fjöl-
býlishúsi við Suðurhvamm í Hafnarfirði.
Íbúðin skiptist þannig: Stór stofa, tvö her-
bergi, eldhús, baðherbergi, hol og for-
stofa. Sér geymsla fylgir í kjallara. Þvotta-
hús innan íbúðar. Góður bílskúr fylgir
íbúðinni, EIGNIN VERÐUR TIL SýNIS Í
DAG (SUNNUDAG) FRÁ KL. 16.30-18,00.
V. 23,5 m. 4807
LOGAFOLD - FRÁBÆR STAÐSETNING
Góð sex herbergja 190 fm efri sérhæð
með innb. tvöföldum bílskúr í tvíbýlishúsi
við Logafold í Reykjavík. Eignin skiptist í
forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús,
baðherbergi, fjögur herbergi og þvotta-
hús. Á neðri hæðinni er tvöfaldur bílskúr
og geymsla. Hiti er í plani. Húsið er vel
staðsett, innst í botnlanga. V. 39,8 m.
6460
MIÐLEITI - LAUS FLJÓLEGA
Falleg og rúmgóð 89,4 fm 2ja-3ra herb.
íbúð á 3. hæð í virðulegu fjölbýli, ásamt
stæði í bílageymslu. Íbúðin skiptist í tvær
samliggjandi stofur, svefnherbergi, eld-
hús, baðherbergi og hol. Í kjallara fylgir
sérgeymsla með hillum. Innangengt er í
bílageymslu. V. 26,0 m. 6452
HVERFOLD - Í VERSLUNARMIÐSTÖÐ
Hér er um að ræða 239 fm verslunar- og
þjónusturými á jarðhæð í verslunarmið-
stöð í Hverafold 1-5 í Grafarvogi. Í rým-
inu er nú starfrækt veitingaþjónusta með
spilakössum, billjardborði o.fl. Húsnæðið
snýr allt til suðurs og er gott rými fyrir
framan húsið sem hægt er að nýta á góð-
viðrisdögum. V. 47,0 m. 6463
HÁVALLAGATA
Þrílyft 185,4 fm parhús á hornlóð. Á mið-
hæð er forstofa, snyrting, hol, tvær sam-
liggjandi stofur og eldhús. Á efri hæð eru
þrjú herbergi (fjögur samkvæmt teikningu)
og baðherbergi. Í kjallara eru tvö herbergi,
geymsla, kyndiklefi og þvottahús. Húsið
stendur á 459,7 fm lóð. V. 49 m. 6471
SJÁVARGRUND - GLÆSILEG
4ra herb. glæsileg 125 fm íbúð ásamt
stæði í bílageymslu í einstaklega
skemmtilega hönnuðu húsi. Glæsilegt út-
sýni er til norðurs, frá Snæfellsjökli að
Arnarnesi. Íbúðin er með sérinngangi að
norðanverðu en þar er sérgarður en til
suðurs er góð, hellulögð verönd. V. 32,9
m. 6453
BÆJARFLÖT - GLÆSILEGT ATVINNUHÚSNÆÐI
Um er að ræða tæplega 1.900 fm atvinnu-
húsnæði, þar af 400 fm milliloft á 3.600 fm
lóð. Húsið skilast fullbúið að utan með frá-
genginni lóð og tilbúið til innréttinga að
innan. Húsið er stálgrindahús frá Atlas
Ward. V. 360,0 m. 6450
SELJALAND - MEÐ AUKAÍBÚÐ OG BÍLSKÚR
4ra herbergja mikið endurnýjuð 89,7 fm
íbúð á 1. hæð og ca 21,5 fm stúdíóíbúð á
jarðhæð sem er í útleigu. Samtals 117,5
fm. 23,6 fm bílskúr. Íbúðin skiptist í hol,
3 svefnherbergi, stofu, eldhús og bað.
Íbúðin hefur verið mikið standsett, m.a.
baðherbergi, eldhús, gólfefni o.fl.
V. 31 m. 6444
GARÐSENDI - GÓÐ ÍBÚÐ
Falleg 3ja herb. íbúð í kjallara í 2-býlis-
húsi við Garðsenda í Reykjavík. Íbúðin
skiptist í stofu, tvö svefnherbergi, eldhús,
baðherbergi, geymslu, hol og forstofu.
Sameiginlegt þvottahús. V. 16,5 m. 6439
OPIÐ HÚS Í DAG
OPIÐ HÚS Í DAG
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
ÓSKAST - FLÚÐIR
LÓÐ MEÐ EÐA ÁN HÚSS
Hef verið beðinn um að útvega íbúðarhús eða sumarhús við Flúð-
ir í Hrunamannahreppi. Viðkomandi aðili óskar eftir fasteign og/
eða byggingarlandi. Ýmislegt kemur til greina hvað varðar stað-
setningu, stærð húss eða lands. Til greina kemur bæði íbúðarhús
innan þéttbýliskjarna Flúða eða í nágrenninu. Einnig kemur til
greina að kaupa nokkurra hektara spildu utan Flúða. Um er að
ræða ákveðinn fjársterkan aðila.
Nánari upplýsingar gefur Ólafur B. Blöndal,
löggiltur fasteignasali, s. 6-900-811.
SJÁLFSBJARGARHEIMILIÐ hefur ráðist í endurnýj-
un á borðum og stólum í matsal heimilisins. Tilurð
þess má rekja til peningagjafar Þórdísar Davíðsdóttur
sjúkraliða og hópstjóra. Færði Þórdís heimilinu
400.000 kr. að gjöf og var það ósk hennar að fjár-
hæðin yrði nýtt til að endurnýja stóla í matsal heim-
ilisins.
Þórdís starfaði við Sjálfsbjargarheimilið sem sjúkra-
liði frá árinu 1973 eða allt frá upphafi. Frá 1994
gegndi hún starfi hópstjóra á 5. hæð. Hún sinnti jafn-
framt öðrum trúnaðarstörfum, settist í stjórn starfs-
mannaráðs 1991 er það var sett á laggirnar. Var hún
fyrsti formaður þess og gegndi því starfi til ársins
1996. Hún kom á ný inn í stjórn starfsmannaráðs 1998
og var jafnframt tilnefnd af þess hálfu sem fulltrúi
starfsmanna í stjórn Sjálfsbjargarheimilisins og
gegndi störfum þar frá árinu 1998 til ársins 2005. „Á
þessum tímamótum er okkur sem höfum lifað og starf-
að með Þórdísi Davíðsdóttur efst í huga þakklæti og
hlýhugur í hennar garð,“ segir í frétt frá Sjálfsbjörg.
Þórdís Davíðsdóttir(fjórða frá vinstri í fremri röð) í hópi samstarfsmanna.
Sjálfsbjargarheimilið fær styrk
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Félagi
heyrnarlausra:
„Vegna umræðu sem orðið hefur í
kjölfar könnunar sem unnin var á
vegum Félags heyrnarlausra, með
stuðningi félagsmálaráðuneytisins,
um kynferðisafbrot gegn heyrnar-
lausum einstaklingum vill félagið
koma eftirfarandi á framfæri:
Kveikjan að því að ráðist var í
þessa könnun um kynferðislega mis-
notkun heyrnarlausra á Íslandi voru
tvö dómsmál og auk þeirra ábend-
ingar sem forvígismenn Félags
heyrnarlausra höfðu fengið. Könn-
unin var gerð til þess að kynnast um-
fangi vandans svo hægt væri að
byggja upp markviss úrræði fyrir þá
sem eru í sárum eftir þessa ógnar-
legu reynslu. Hún beindist ekki að
því að finna sökudólga af neinu tagi
heldur var hún einungis gerð til þess
að styðja og styrkja núverandi fé-
lagsmenn.
Meðferðarúrræði fyrir heyrnar-
lausa á þessu sviði eru flóknari en
fyrir aðra þar sem þeir hafa annað
móðurmál en flestir Íslendingar.
Þjónustuna verður að byggja upp
með fagfólki og túlkaþjónustu. Eina
lausnin sem nú er boðið upp á fyrir
þolendur og gerendur er tákn-
málstalandi sérfræðingur í 50%
stöðu sem starfar í Félagi heyrnar-
lausra. Þetta er ekki nóg. Mikinn
stuðning stjórnvalda þarf ef hægt á
að vera að takast á við vandamálin
sem skapast hafa í samfélagi heyrn-
arlausra.
Félag heyrnarlausra hefur komið
með tillögur til félagsmálaráðu-
neytisins um lausn á þessum vanda.
Það hefur einnig unnið að því að fá
fagfólk, sem vinnur innan þessa
sviðs, þjálfað til að veita heyrnar-
lausum þjónustu. Enn fremur hefur
verið hafinn undirbúningur að
fræðslu- og forvarnarstarfi innan
samfélags heyrnarlausra til að koma
í veg fyrir að svo skelfilegir atburðir
endurtaki sig.
Félag heyrnarlausra vonast til að
félagsmálaráðuneytið bregðist
myndarlega við tillögum til lausnar á
vandanum. Félagið ítrekar jafnframt
að það tekur ekki afstöðu til ein-
stakra mála, hvort sem þeim er beint
gegn félagsmönnum eða ekki. Hlut-
verk Félags heyrnarlausra er fyrst
og fremst að gæta hagsmuna heyrn-
arlausra með almennum hætti.“
Yfirlýsing frá Félagi
heyrnarlausra
FYRIR nokkrum dögum birtist
óvænt halastjarnan McNaught.
Nemendur og kennarar Digranes-
skóla urðu hennar varir því að hún
sást vel á austurhimninum. Þetta
kveikti áhuga og umræður um
stjörnuskoðun og ræddu menn um
að gaman væri að skólinn eignaðist
öflugan stjörnukíki.
Skólinn hefur ekki úr miklum fjár-
munum til slíkra hluta að spila svo að
einn kennarinn, Þórður Guðmunds-
son, ákvað að hafa samband við
nokkur fyrirtæki til að athuga hvort
þau hefðu áhuga á að styðja okkur
hvað þetta varðar. Fyrsta fyrirtækið
sem hann hringdi í var Klæðning
ehf. Til að gera langa sögu stutta var
svar þeirra stutt og einfalt: já. Þeir
voru fúsir til að styðja með þessum
hætti við bakið á skólanum, segir í
fréttatilkynnningu. Tækið var síðan
afhent á Þorrahátíð skólans á bónda-
daginn, 19. janúar, og tóku fulltrúar
nemenda við gjöfinni. Það er hug-
mynd skólans að nýta sjónaukann m.
a. með því að fara með hann í vett-
vangsferðir út úr þéttbýlinu þar sem
skilyrði eru betri til stjörnuskoðun-
ar. Auk þess býður hann upp á ný
tækifæri við nám og félagsstörf. Er
skólinn mjög þakklátur fyrir þessa
höfðinglegu gjöf og er þetta gott
dæmi um það hvernig atvinnulífið
getur stutt við bakið á skólastarfi.
Sigþór Ari Sigþórsson og Hreinn
Jónasson afhentu gjöfina fyrir hönd
Klæðningar ehf.
Vegleg gjöf
til Digra-
nesskóla
Fréttir
í tölvupósti