Morgunblaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 25.02.2007, Blaðsíða 57
Hann lagði áherslu á mannasiði, kurt- eisi, þakklæti og virðingu fyrir mann- eskjunni. Menntun var honum hug- leikin og hann hvatti okkur afkomendurna til mennta. Hann styrkti góð málefni og mér er það minnisstætt þegar hann styrkti vatnsátak Hjálparstofnunar kirkj- unnar. Hann styrkti átakið sem nam fjórum vatnsbrunnum. Einn fyrir hvert barn sem honum og ömmu hafði auðnast að eignast. Þannig var afi, hann var þakklátur fyrir það sem hann átti og örlátur á sitt. Ríkidæmi afa fólst ekki í veraldleg- um hlutum. Auðlegð hans lá í þeim mannauði sem finnst í fjölskyldunni. Fjölskyldan var honum allt. Börnin voru honum dýrmæt og þau voru hon- um endalaus uppspretta gleði. Afi elskaði fjölskylduna og hann var elsk- aður af henni. Í því lá hans sanna ríki- dæmi. Og okkar. Með djúpu þakklæti minnist ég afa míns. Þó að ljós hans hafi slokknað hér á jörð lýsir það áfram í hjarta mínu. Ragna Jenný. Hann afi minn var níutíu ára gam- all þegar hann dó. Hann var hluti af mínu lífi í 29 ár. Mér finnst það skrýt- in tilhugsun að eiga hvorki ömmu né afa á lífi. Þó svo að ég sé orðin 29 ára gömul þá langar mig að eiga ömmu og afa því fram að þessu hefur raunin verið sú. En ég veit hvernig lífið geng- ur fyrir sig og veit að afi og amma áttu einungis takmarkaðan tíma á þessari jörðu. Mér finnst ég hafa nýtt þann tíma sem mér bauðst með afa mínum vel. Hann afi minn hafði þægilega nærveru og ég sótti í þá kyrrð og ró sem umlukti hann. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast hon- um vel og sem betur fer urðum við góðir vinir og nutum samvista við hvort annað. Hann vildi hafa mig sem mest á Digranesveginum og fannst ég aldrei stoppa nógu lengi. Ég eignaðist mitt fyrsta barn, Sigurvin Frey, ung og var hann jafnframt fyrsta langafa- barnið. Afi var mjög stoltur af nýjum titli og fannst mikilvægt að aðgreina afanafnið og langafanafnið. Afi var góður maður. Hann var traustur, heiðarlegur, vinnusamur, gáfaður og með góðan húmor. Fjöl- skyldan var honum allt og hans dýr- mætustu stundir voru þegar hún kom öll saman á Digranesveginum. Hann lifði fyrir börnin sín og barnabörnin og reyndist þeim vel. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst honum afa mínum þetta náið og tel mig hafa lært mikið af honum. Ég á eftir að sakna hans mikið en með allar þær fallegu og góðu minningar sem ég á um hann þá verður söknuðurinn ekki sár heldur ljúf tilfinning sem minnir mig á hversu frábær maður hann var. Elsku afi minn, þú varst einstakur og ég mun aldrei gleyma þér. Þín afastelpa, Oddný. Hann langafi minn var kurteis og góður afi. Hann hló oft þegar ég stökk úr gluggakistunni í stofunni heima hjá honum. Þegar ég var lítill byrjaði ég að kalla hann afa stafa af því að hann gekk við staf. Það fannst honum sniðugt hjá mér og hló að því. Afi sat alltaf í sama ruggustólnum og horfði á okkur krakkana leika á gólfinu. Mér þótti mjög vænt um afa. Nú er afi hjá Guði og þar líður honum vel með ömmu. Guð blessi minningu langafa. Friðrik Benóný Garðarsson. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 57 afmælisdaga. Mér fannst æðislegt þeg- ar þú komst síðast heim til Íslands, en það var sumarið ’96 þegar ættarmótið var í Árnesi. Allir skemmtu sér vel og ég tala nú ekki um hvað það var mikið rætt hvað það var gaman að hafa bæði þig og Nonna frænda, báðir að koma erlendis frá. Því miður urðu heimferð- irnar ekki fleiri en ég náði þó að hitta þig þegar ég bjó í Noregi árið 2001 og þú hjálpaðir mér ofsalega mikið, bæði fjárhagslega og andlega, þegar ég bjó þar. Og í raun sá ég þig í síðasta skiptið þegar pabbi og mamma komu að heim- sækja mig til Noregs og við gerðum okkur ferð til Óslóar til að hitta þig. Okkur öllum þótti yndislegt að hittast og hvað það var í raun ómetanlegt þeg- ar við hugsum um það, því að pabbi dó aðeins mánuði seinna og ég veit að hann tekur vel á móti þér og ykkur líð- ur miklu betur núna. Sem betur fer var tekin upp á video þessi stund okkar allra og mun ég geyma hana rosalega vel. Ég er líka rosalega ánægð með að Yngvi Freyr fékk að hitta þig og hann man enn eftir þér, manninum sem við hittum hjá lestinni. Elsku Haukur minn, ég vona inni- lega að þér líði betur núna og, eins og börnin þín settu á kransinn úti í Nor- egi, munum við hittast aftur einhvern tíma. Ég mun varðveita öll bréfin sem ég hef fengið frá þér og minningarnar um þig geymi ég vel í hjarta mínu. Yngvi Freyr biður líka voða vel að heilsa. Eins og ég endaði öll bréfin þá ætla ég að enda síðasta bréfið þannig líka, hafðu það rosalega gott, stor klem til deg og 1000000000000000000 koss- ar. Það biðja allir voða vel að heilsa. Þín frænka Helena Björk. Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN ÞORVALDSSON, Lækjasmára 4, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð mánu- daginn 19. febrúar. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 26. febrúar kl. 15.00. Margrét Á. Þorvaldsdóttir, Þorvaldur K. Þorsteinsson, Guðrún Þ. Þórðardóttir, Kristinn H. Þorsteinsson, Auður Jónsdóttir, Óli Þorsteinsson, Guðrún Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, vinur, bróðir, mágur og frændi, HAUKUR GUÐJÓNSSON rafvirki, Osló, Noregi, áður Hafnarfirði, lést í Noregi þriðjudaginn 23. janúar sl. Útför hans fór fram frá Råde kapell í Noregi föstu- daginn 2. febrúar. Hanna Karen Paulsen og fjölskylda, Margrét Dyrholm og fjölskylda, Laila Klausen, Hulda Guðjónsdóttir, Haukur Sveinsson, Hera Guðjónsdóttir, Helgi S. Guðmundsson, Elsa Guðjónsdóttir, Óskar Guðjónsson, Kristín Jónsdóttir og frændfólk. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, EMILÍA GUÐLAUGSDÓTTIR, Laugalandi, Vestmannaeyjum, áður Veghúsum 31, síðast til heimilis á Lindargötu 66, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 19. febrúar. Jarðsungið frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 27. febrúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Sigurður R. Guðmundsson, Rósa Guðmundsson, Halldór V. Guðmundsson, Hrefna Harðardóttir, Guðmundur Hallórsson, Donna Doty, Kristín Halldórsdóttir, Michael Nethersole og barnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA BJARNADÓTTIR, Norðurbrún 1, lést föstudaginn 23. febrúar. Margrét Kjartansdóttir, Björg Kjartansdóttir, Freysteinn G. Jónsson, Sæunn Kjartansdóttir, Guðmundur Jónsson, Ásta Kjartansdóttir, Vigfús Erlendsson og barnabörn. ✝ Faðir okkar, bróðir, mágur og frændi, ÞÓRARINN J. EINARSSON, Hátúni 10b, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 7. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Helga Þórarinsdóttir, Ómar Karl Þórarinsson, Steingerður Einarsdóttir, Sigfús Gunnarsson, Kristín Einarsdóttir, Einar Gústafsson, Þórlaug, Helga Soffía og Einar Örn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VÍKINGUR HEIÐAR ARNÓRSSON, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 21. febrúar. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 5. mars kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hins látna, er bent á Barna- spítalasjóð Hringsins, sími 543 3724. Fyrir hönd aðstandenda, Viðar Víkingsson, Svana Víkingsdóttir, Ólafur Axelsson, Gísli A. Víkingsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Þóra Víkingsdóttir, Bjarni Jónsson, Arnór Víkingsson, Ragnheiður J. Jónsdóttir, Ragnheiður Víkingsdóttir, Anton Jakobsson, Þórhallur Víkingsson, Rósa Björk Sigurðardóttir, Steingerður Gná Kristjánsdóttir og Karl Axel Kristjánsson. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EYJÓLFUR AGNARSSON, Dvergholti 25, Hafnarfirði, andaðist á St. Jósefsspítala föstudaginn 23. febrúar. Sigríður Traustadóttir, Bryndís Eyjólfsdóttir, Agnar Steinn Gunnarsson, Höskuldur Eyjólfsson, Katrín María Benediktsdóttir, Dagbjört, Gunnar og Sóley. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG HELGA ÞÓRÐARDÓTTIR, (Nenný) frá Breiðabólsstað í Dölum, Breiðagerði 8, Reykjavík, andaðist á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn 22. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ástvaldur Magnússon, Dóra Steinunn Ástvaldsdóttir, Ragnar Ragnarsson, Þorgeir Ástvaldsson, Ásta Eyjólfsdóttir, Magnús Ástvaldsson, Pétur Ástvaldsson, Elísabet M. Jónasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.