Morgunblaðið - 25.02.2007, Side 64
64 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000
www.terranova.is · Akureyri sími: 461 1099
Hafnarfjörður sími: 510 9500
Vilnius
í Litháen
Frá aðeins kr. 23.990
Beint flug
29. apríl – 4 nætur
3. maí – 3 nætur
Frá kr. 23.990
Flugsæti með sköttum. Netverð á mann.
29. apríl - 3. maí. Takmarkaður sætafjöldi á
þessu tilboði.
Frá kr. 39.990
– flug & gisting í 4 nætur
Flug, skattar og 4 nætur á Europa City ***
m/morgunverði. Netverð á mann.
29. apríl - 3. maí.
Frá kr. 49.990
– flug & gisting í 3 nátta helgarferð
Flug, skattar og 3 nætur á Europa City ***
m/morgunverði. Netverð á mann. 3.-6. maí.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
26
0
87
Síðustu sætin – ótrúleg kjör
Vilnius býður allt það sem ferðamenn sækist
eftir í borgarferð; fjölbreytta og spennandi
menningu, fallegar byggingar, glæsilega
gististaði, skemmtilegar verslanir og úrvals
veitingahús. Auk þess er næturlífið fjörugt
og fjölbreytt. Vilnius er rómuð fyrir fegurð
borgarinnar og gestrisni borgarbúa.
Vor í
Þ
að er fleira merkilegt við
Ekvador en að þar er
miðju jarðar að finna.
Þar er einnig upp-
spretta hins mikla Ama-
zon-fljóts, hæsta snævi þakta eld-
fjall heims, Otopaxi, sem gnæfir yfir
höfuðborgina Quito, og loks að Ga-
lapagos-eyjar tilheyra landinu.
Til að mynda er talið er að elsta
þekkjanleg menning í Suður Am-
eríku hafi orðið til og þróast í
strandhéruðum landsins, eða 8800-
3500 f.Kr., eins og stendur í einum
ferðabæklingnum. Um er að ræða
menningararfleifð frumbyggja sem
enn finnast í landinu og sam-
anstanda af þremur ólíkum ætt-
kvíslum er lifa í regnskógum hita-
beltisins í Vestur-Andes. Fyrir
liggur að þeir hafi flúið þangað und-
an innrás Inka frá Perú á fimm-
tándu öld og Spánverja á þeirri sex-
tándu. Nánar tiltekið eru Inkar
sagðir hafa tekið borgina 1492, en
herlið undir forystu Simôn de Be-
nalcâzars hrakti þá burt 1534, er
þúsundir hermanna Inka gerðu upp-
reisn. Benalcâzar fann glæsihýsi
San Francisco de Quito undir leifum
borgarinnar sem Inkar höfðu eyði-
lagt áður en hinir helgu hörgar féllu
í hendur Spánverja. Fyrir vikið er
lítið sem ekkert að finna þar sem
minnir á veru þeirra á þessum slóð-
um.
Til eru fornleifafræðingar, og þeir
margir, sem halda því fram að sumt
af elstu arfleifðinni sem lifað hefur
af í meira en 10 þúsund ár sé líkast
til komið frá hinu raka hitabelt-
isumhverfi regnskóganna á bökkum
Amazon. En vitaskuld er ill-
mögulegt að rekja slóð þeirra marg-
ar aldir til baka í þessu umhverfi
sem er á stöðugri gróðurfarslegri
hreyfingu. Í heimsmynd þessara
hópa frumbyggja var og er lífið hluti
af „Amazanga“, regnskógasvæðinu.
Guðdómur og kraftbirtingur tilver-
unnar opinberast þeim við hverja
dagrenningu eins og skrifað stend-
ur.
Regnskógarnir voru heim-kynni þeirra, og eru aðhluta enn, og þangaðsóttu þeir lífsviðurværi
sitt. Skógarnir sáu þeim fyrir fæðu,
læknajurtum og andlegum ríkidómi.
Fyrir þeim var hitabeltisskógurinn
öll veröldin, þar voru þeirra stór-
markaðir og apótek, og þar þróuðust
trúarbrögð þeirra og helgisiðir. Enn
í dag lifa hópar þeirra einangraðir á
sömu slóðum og þeir kæra sig ekki
um samneyti við siðmenninguna
svonefndu, lifa sælir og sáttir við
sitt.
Hér má enn einu sinni vísa til skil-
greiningarinnar „Terra Icognito“,
land nafnlausrar fortíðar, þar sem
enn er svo margt ókannað á þessum
slóðum og menningin getur allt eins
verið miklu eldri. Í Bólivíu finnst til
að mynda sléttlendi, hið víðfeðmasta
í allri álfunni, og þar mun áður hafa
verið mikið og djúpt vatn. En fyrir
um tíu þúsund árum urðu miklar
hamfarir um alla Norður-, Mið- og
Suður-Ameríku og vatnið þornaði
upp. Afleiðingarnar urðu meðal ann-
ars þær að fílar sem eiga að hafa lif-
að í Suður-Ameríku dóu út. Í Bólivíu
hafa líka fundist borgir sem torvelt
er að aldursgreina og tákn sem eiga
að staðfesta tilvist fílanna. Og á
landamærum Ekvador og Perú hafa
fundist borgir sem fornleifafræð-
ingar eru nú að grafa upp og telja
þeir að allt að 10.000 manns hafi lif-
að sumum þeirra.
Hin mikilfenglega gríma afsólguðinum sem er ein-kennistákn Ekvador-banka, fannst í La To-
lita, eyju undan norðvesturströnd
Ekvador og suðvestur af Kólumbíu.
Og það er ekki lengra síðan en um
1920 að La Tolita komst á heim-
skortið þegar nokkrir evrópskir
könnuðir tilkynntu fund svo mikils
magns af fagurlega mótuðum grip-
um úr gulli að það átti sér fá eða
engin fordæmi. Fornleifafræðingar
vilja meina að eyjan hafi verið helg-
ur staður forn-Kólumbíu, Mekka
eða Jerúsalem, borg gullsmíði í þágu
helgra ímynda, sem hafi haft áhrif á
flest af því sem nú er á landsvæði
Ekvador. Þá eru höggmyndir sem
fundist hafa á La Tolita einstæðar í
list forn-Kólumbíu. Fornleifafræð-
ingar hafa brotið heilann um hvern-
ig hinir fornu málmsmiðir fóru að
því að vinna svona fína hluti með
jafn frumstæðum verkfærum og þá
þekktust og nota til þess aðferðir
sem voru fyrst uppgötvaðar í Evr-
ópu um miðja nítjándu öld…
En þessir pistlar eiga ekki að vera
nein landafræði og þar er ég satt að
segja á hálum ís því um Ekvador hef
ég ekkert lært og fátt lesið um dag-
ana sem gerir þó alla upplifun hér
meira spennandi. Og kannski bland-
ast eitthvað af þessu upplýsingum
óraunhæfri getspeki og óskhyggju
fornleifafræðinga og ritglaðra
manna en þá verða menn að taka
viljann fyrir verkið. Eitt er þó alveg
víst, og það er að þetta regn-
skógafólk hitabeltisins hefur öllu
meira að segja okkur um viðgang
lífsins og hvernig komast skuli af í
sátt við náttúruna og allífið en við
getum sagt þeim. Það er ómetanleg
gáfa og æðri allri tilbúinni klæð-
skerasaumaðri og niðursoðinni
þekkingu. Aðdáunarvert er hvernig
það hefur varðveitt þekkingu sína
við flóknar og yfirmáta hættulegar
aðstæður og um leið viðhaldið menn-
ingarlegri arfleifð sinni, þar á meðal
tungumálinu; Quichua…
Ekvador, sem liggur milliBólivíu og Perú, er eittfrjósamasta land Suður-Ameríku, en um leið með
þeim fátækustu hvað almenn lífs-
kjör áhærir. Sennilega er Perú, sem
er til muna rýrara að landgæðum
eina ríkið sem er verr statt. Flóran
er óvíða fjölbreyttari og fuglalífið
hið þriðja fjölbreyttasta í heiminum
og er þó ekki miðað við stærð lands-
ins.
Quito er mikil og merkileg borg
sem komin er á minjaskrá
UNESCO og þar fara fram umtals-
verðar framkvæmdir til að varðveita
fornar menjar. Allt um kring er fjöl-
þætt landslag sem rís hæst í fjallinu
Otopaxi sem gnæfir yfir og er hæsta
virka eldfjall í heimi; mikilfenglegur
haddur þess er jafnan snævi þakinn.
Aðeins fáum vikum eftir að Spán-
verjar tóku borgina hófu Fransisk-
umunkar að byggja San Francisco
klaustrið en því var ekki lokið fyrr
en 70 árum seinna og reyndist fyrsta
klassíska dæmið um húsagerðarlist
nýlendutímabilsins. Það hefur varð-
veist í svo til upprunalegri mynd í
aldanna rás þó að eftir jarðskjálfta
hafi þurft að endurbyggja flesta
hluta þess.
Þá ber að nefna sextándu aldar
kirkjuna, La Compania de Jesus,
(Félagsskapur Jesú), jesúítakirkju
sem sögð er fallegasta og ríkasta
guðshús í allri Suður-Ameríku og
var heil 163 ár í smíðum. Rétt er að
hið risastóra höfuðaltari í háb-
arrokkstíl (himinhvolfið sækir þó til
Mára) er eitt íburðarmesta altari
sem um getur, slegið gulli og dýrri
virkt. Í því er hvorki meira né minna
en heilt tonn af gulllaufum og annað
eftir því í fágætum efnum.
Quito getur þó hvorki talist falleg
né vel skipulögð borg og þótt íbú-
arnir séu taldir 1,4 milljónir eru þeir
milljónum fleiri ef allt svæðið er tal-
ið með. Nágrannabyggðirnar
streyma eins og stórfljót niður
fjallshlíðar, víða á mjög mynd- og
litríkan hátt, eins og líta gat frá mat-
sal hótelsins okkar á efstu hæð, hvar
Cotopaxi kórónaði sigurverkið. Bíla-
flotinn er gífurlegur og mengunin
eftir því meiri en ég hef áður upp-
lifað og má þó vart bæta við súrefn-
isleysið þarna í 2.800 metra hæð!
Að sjálfsögðu lá leiðin að minn-
istákni miðju heimsins en þangað er
rúmlega hálftíma akstur frá Quito
og var það eftirminnileg stund. Þar
er einnig að finna Plateneríum,
stjörnuver, og nokkur kúlulaga sýn-
ingarhús, sum mjög fróðleg og upp-
lýsandi viðbót. Eiginlega um að
ræða lítið þorp umhverfis breidd-
argráðuna núll, núll, núll...
(Guayanquil/Ekvador)
Miðja jarðar (jafna O° O’ O’’)
Miðpunkturinn Pistlahöfundur á miðju jarðar,breiddargráðu 0° 0’ 0’’.
Mikilfenglegur forngripur Sólgríman sem fannst í „La Tolita“ í norðvestur
Ekvador um 1920 og mun vera frá tímabilinu 350 f. Kr, til 400 eftir Kr.
SJÓNSPEGILL
Bragi Ásgeirsson