Morgunblaðið - 25.02.2007, Síða 76
76 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
FORELDRAR
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
FRÉTTABLAÐIÐ
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
ÓSKARS-
TILNEFNINGAR
8
BYGGÐ Á
METSÖLU
SKÁLDSÖGU
PATRICK
SÜSKIND
eee
VJV, TOPP5.IS
ÓSKARSTILNEFNING1
BREAKING AND ENTERING kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 16 ára
PERFUME kl. 3 - 6 - 9 B.i. 12 ára
DREAMGIRLS kl. 3 - 5:30 - 8 LEYFÐ
BLOOD DIAMOND kl. 3 - 9:30 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 6 - 7:50 LEYFÐ
BABEL kl. 10:40 B.i. 16 ára
BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
MAN OF THE YEAR kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára
ROCKY BALBOA kl. 8 B.i. 12 ára
PERFUME: THE STORY OF A MURDERER kl. 10:10 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 LEYFÐ
BREAKING AND ENTERING kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
ALPHA DOG kl. 8 B.i. 16 ára
HANNIBAL RISING kl. 10 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BREAKING AND ENTERING
JUDE LAW JULIETTE BINOCHE ROBIN WRIGHT
Með “Íslandsvininum og sjarminum Jude Law” ásamt óskarsverðlauna leikkonunni Juliette Binoche
Frá leikstjóra English Patient og Cold Mountain
SPARBÍÓ 450kr
Frá þeim sömu og færðu okkur
Chronicles Of Narnia
Stærsta opnun á fjölskyldumynd
í Bandaríkjunum í ár
eeee
VJV, TOPP5.IS
spurður um æv-
intýralega pen-
ingaeyðslu ein-
staklings, sem hafði
greitt hátt í hundrað
milljónir króna fyrir að
fá gamalkunnan popp-
ara frá Bretlandi til að
koma fram í afmæli
sínu. Ritstjórinn var
ekki tilbúinn að kafa of-
an í málið, sem hafði
vakið mikla athygli hjá
almenningi í landinu,
heldur sagði hann að
afmælisbarnið væri
sveitungi sinn úr Borg-
arfirði og að vildi ekki
tjá sig um málið. Þá
sagði hinn viðmælandinn í þætt-
inum: „Margur verður af aurum
api!“ og sagðist hann einnig vera úr
Borgarfirði. Gaf hann í skyn að hann
þyrði að hafa skoðanir, þó að um
sveitunga hans væri að ræða.
Ritstjórinn hafði heldur ekki
skoðanir þegar hann kom fram í öðr-
um sjónvarpsþætti og var beðinn um
að segja álit sitt á geysilegum gróða
íslenskra banka.
Eru þeir, sem segjast ætla að gefa
út blöð sem kafa „dýpra“ ofan í mál-
in, trúverðugir og geta lesendur
treyst þeim ef þeir vilja ekki taka á
málum vegna þess að þau snerta
sveitunga þeirra?
Víkverji, sem ermikill fréttafíkill
og alæta á dagblöð og
fréttatímarit, hefur
orðið fyrir miklum von-
brigðum í tvígang á af-
ar stuttum tíma.
Fyrst með nýtt blað,
Króníkuna, ekki einu
sinni – heldur tvisvar –
og þá með endurvakið
DV. Áður en Króníkan
kom út sagði ritstjóri
blaðsins að blaðið yrði
byggt upp á því að far-
ið yrði dýpra í frétt-
irnar. Já, það yrði kaf-
að niður í fréttir
líðandi stundar, þannig
að Íslendingar fengju meiri innsýn í
það sem væri að gerast í landinu
hverju sinni.
Eitthvað hefur köfunarbúnaður-
inn brugðist, því að tvö fyrstu blöðin
hafa verið frekar máttlaus og góð-
kunningjar lesenda dagblaða og
tímarita hafa verið kallaðir fram á
bragðdaufar síðurnar. Þá hafa verið
kallaðir fram í sviðsljósið álitsgjafar,
sem segja álit sitt á hinu og þessu –
daglega og oft á dag á heimasíðum
sínum á blogginu.
Það má segja að ritstjóri Króník-
unnar hafi fallið á prófinu áður en
fyrsta blaðið kom út, þegar hann
kom fram í sjónvarpsþætti og var
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: En Jesús hrópaði: „Sá sem
trúir á mig, trúir ekki á mig, heldur þann
sem sendi mig.“ (Jh.. 12, 44.)
Í dag er sunnudagur
25. febrúar, 56. dagur
ársins 2007
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Um fuglalífið á Tjörninni
GREIN í blaðinu 25. janúar sl. sem
bar heitið „Áhyggjur af fuglalífi á
tjörninni“, byrjaði svona: Fundnar
verði leiðir til að gefa ungum kjarn-
gott fæði næsta vor. Hvað hafa þeir
fyrir sér um fæðuskort á tjörninni?
Hefur nokkuð reynt á það, ég held
ekki. Sílamáfur og svartbakur tíndu
upp næstum hvern einasta unga um
leið og þeir komu á tjörnina síðast-
liðið sumar. Ég sá svartbak á tjörn-
inni í fyrrasumar en hann heldur sig
mest miðsvæðis. Og hann er síst
betri en sílamáfurinn, þá á ég við í
sambandi við ungana. Ég tel mjög
hæpið að hægt sé að friða tjörnina
fyrir þessum vargfugli.
Hvað kríuna varðar er það að-
allega fæðuskortur í sjó sem kemur í
veg fyrir viðkomu hennar. Ásamt því
að hólminn í syðstu tjörninni er svo
gersamlega þakinn af hvönn á sumr-
in að útilokað er að hún geti orpið
þar. Nauðsynlegt er að eyða hvönn-
inni áður en krían kemur.
Fyrrverandi bóndi.
Um nagladekk
GÍFURLEGA mikill skaði er af
nagladekkjunum, og loksins eru yf-
irvöld að taka á málinu, 10 árum of
seint, miðað við önnur lönd, þar sem
þau voru bönnuð eða skattlögð fyrir
10 árum. Þrátt fyrir að allir þekki nú
skaðann af nagladekkjanotkuninni
aka samt ennþá u.þ.b. 60% á þeim.
Fólk sem ekki ekur á nagladekkjum
furðar sig á hve lengi yfirvöld, sem
eiga að stjórna þessu, ætla að um-
bera nagladekkjabílstjóra. Þeir sem
aka á nagladekkjum ættu að muna
að heilsa barna getur skaðast og
hætta er á varanlegum lungna-
skemmdum og hjá þjóðinni allri. Svo
ætti engum að vera sama að við-
gerðir á gatnakerfinu á hverju vori
kosta skattborgarana nokkur
hundruð milljónir á ári. Yfirvöld
hafa ekki haldið við auglýsinga-
starfsemi gegn nagladekkjum held-
ur var þetta aðeins tímabundið. Hér
þarf að minna fólk á svo það síist inn
hjá grunnhyggnum nagladekkjabíl-
stjórum.
Lesandi.
Kerru stolið
AÐ kvöldi 21. febrúar var þessari
nýju hvítu yfirbyggðu kerru stolið
frá fyrirtækinu Bæjardekk í Mos-
fellsbæ. Kerran er með bremsu-
búnaði og skráningarskyld, en ekki á
númerum. Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar vinsamlegast hringi í
566 8188 Bæjardekk, eða lögregluna
í Reykjavík í síma 444 1000
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
60 ára af-mæli.
Sextíu ára er í
dag, 25. febrúar,
Birna Bessa-
dóttir, Snægili
3b, Akureyri.
Hún dvelur
þessa dagana í
London ásamt
eiginmanni sínum og vinafólki.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til
kynningar um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira lesendum sín-
um að kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og mánudags-
blað.
Samþykki afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í síma 569-
1100, senda tilkynningu og mynd
á netfangið ritstjorn@mbl.is,
eða senda tilkynningu og mynd í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja liðinn
"Senda inn efni". Einnig er hægt
að senda vélritaða tilkynningu
og mynd í pósti. Bréfið skal stíla
á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.