Morgunblaðið - 25.02.2007, Side 80
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 56. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: auglysingar@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Norðlæg átt,
víða 5–10 metrar á
sekúndu. Él norð-
an til og við suð-
austurströndina, annars
léttskýjað. » 8
Heitast Kaldast
0°C -8°C
Morgunblaðið/G. Rúnar
TÓNSKÁLDIÐ og athafnamaðurinn
Sveinn Rúnar Sigurðsson segir Eirík
Hauksson vera mesta töffarann sem hann
hafi kynnst á ævinni. „Hann tekst á við
margvísleg verkefni án þess að fórna lista-
mannsheiðri sínum,“ segir Sveinn í viðtali
við Morgunblaðið í dag en Eiríkur flytur
lag hans „Ég les í lófa þínum“ í Júró-
visjónkeppninni í Helsinki í vor.
Sveinn býr í Ungverjalandi og er kominn
með mikinn áhuga á austur-evrópskri
menningu og vill hvergi annars staðar vera.
Sveinn hefur áður átt lag í Júróvisjón-
keppninni. Árið 2004 söng Jón Jósep Snæ-
björnsson lag hans „Heaven“ í Istanbúl. Til
viðbótar við að vera afkastamikill lagahöf-
undur stendur Sveinn í stórræðum í við-
skiptalífinu í Rússlandi. Fyrirtæki sem
hann stofnaði þróar hugbúnað fyrir far-
símafélög og netveitur og hefur starfs-
mönnum fjölgað úr fimm í 95 á einu ári.
Sveinn segir að félagið fari að öllum lík-
indum á markað í Noregi í haust og þá get-
ur hann hugsað sér að söðla um eftir að
hafa unnið 16 tíma á sólarhring undanfarin
ár og fara í nám. Og hvað hyggst þúsund-
þjalasmiðurinn þá taka sér fyrir hendur?
„Ég hugsa að það verði tannlækningar.“
Heillaður
af Austur-
Evrópu
Fjölhæfur Sveinn Rúnar Sigurðsson lætur
m.a. til sín taka í Rússlandi.
Sveinn Rúnar Sigurðsson
höfundur „Ég les í lófa
þínum“ stendur í ströngu
Ekki með | 28
LOÐNUSKIPIN koma hvert af öðru þessa dagana til Grindavíkur til að
landa loðnu í hrognafrystingu hjá Síldarvinnslunni. Við sólarupprás á
laugardagsmorgun var verið að dæla úr Súlunni EA, Beitir NS beið vel
siginn en um borð í Margréti EA var gert klárt til að fara aftur á miðin.
Að sögn Hjalta Bogasonar rekstrarstjóra er loðnan kreist í gömlu
loðnuþrónni við höfnina og lætur nærri að til falli 200 tonn á sólar-
hring. Frystigetan er um 110 tonn í gamla frystihúsinu á Þórkötlustöð-
um og hafa hrogn verið send austur í Neskaupstað til að hafa undan.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Unnið nótt og dag í loðnuhrognum
„ÉG ákvað þegar ég fermdist að
fara í guðfræðina og hef aldrei vik-
ið frá því af neinni alvöru. Ég velti
því fyrir mér um hríð að fara í sál-
fræði en síðan togaði guðfræðin
alltaf í mig,“ segir Ólafur Jóhann
Borgþórsson. Biskup Íslands, Karl
Sigurbjörnsson, vígir í dag Ólaf
Jóhann til prests við Seljakirkju en
vígslan fer fram við athöfn í Dóm-
kirkjunni. Ólafur Jóhann verður
þar með yngsti starfandi prestur
landsins, en hann er 25 ára gamall.
Ólafur Jóhann er enginn ný-
græðingur innan kirkjunnar þrátt
fyrir ungan aldur. Þar hefur hann
lengi sinnt barna- og æskulýðs-
starfi. „Ég vann með náminu í
barna- og æskulýðsstarfi í Selja-
og Árbæjarkirkju,“ segir Ólafur
Jóhann. Þá hefur hann unnið með
börnum í Landakirkju í Vest-
mannaeyjum, en Ólafur Jóhann er
upprunninn í Eyjum.
Upp á síðkastið hefur Ólafur Jó-
hann þó starfað í Seljakirkju og
verið ánægður með veruna þar.
Eftir vígsluna í dag verður hann
einn þriggja presta sem þjóna í
kirkjunni.
Víða sóst eftir
þjónustu kirkjunnar
Ólafur Jóhann kveðst hlakka til
að takast á við prestsstarfið. „Það
er óhætt að segja að þetta sé mjög
fjölbreytt starf og enginn 9–16-
vinnutími,“ segir hann. Prestar
taki þátt í stærstu athöfnum í lífi
fólks, hvort sem það séu gleði- eða
sorgarstundir. „Þetta er krefjandi
og getur verið mjög skemmtilegt
og gefandi,“ segir hann. Verkefni
kirkjunnar í samfélaginu séu að
aukast og sóst sé eftir þjónustu
hennar víða. Ólafur Jóhann telur
verkefni kirkjunnar óþrjótandi í
samfélaginu og hennar rödd verði
að heyrast, það sé mikilvægt fyrir
fólk að vera áminnt um hvað raun-
verulega skiptir máli í lífinu.
Hann kveðst aldrei hafa séð eft-
ir því að hafa valið að fara í guð-
fræði. „Námið er ótrúlega
skemmtilegt og fjölbreytt. Þar
læra menn tungumál, biblíufræði,
sálgæslu og allt þar á milli,“ segir
hann. Námið nýtist fólki hvort sem
það hyggist starfa sem prestar eð-
ur ei.
„Síðan togaði guðfræðin alltaf í mig“
Vígsla Ólafur Jóhann Borgþórsson vígist í dag til prests í Seljaprestakalli.
Ólafur Jóhann Borgþórsson vígður til þjónustu og verður þar með yngsti starfandi prestur landsins
LÁNSHÆFISMATSFYRIRTÆKIÐ Moody’s
hefur hækkað lánshæfismat íslensku viðskipta-
bankanna þriggja, Landsbanka, Glitnis og Kaup-
þings og fá langtímaskuldbindingar þeirra ein-
kunnina Aaa, sem er hæsta einkunn sem
fyrirtækið gefur. Kemur hækkunin til vegna
breyttrar aðferðafræði Moody’s við útreikning
lánshæfis. Mat Moody’s varðandi skammtíma-
skuldbindingar bankanna er óbreytt, það er P-1,
sem er hæsta einkunn sem gefin er.
Mun styrkja stöðu bankans
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Lands-
bankans, segir ánægjulegt að þessi nýja aðferða-
fræði skuli koma svo vel út fyrir íslensku bank-
ana. „Við hjá Landsbankanum erum mjög ánægð
með að lánshæfismat Moody’s á bankanum skuli
koma svo vel út, en langtímaskuldbindingar
Landsbankans eru að hækka um fimm flokka í
lánshæfismati Moody’s, úr A2 í Aaa, sem er
hæsta einkunn Moody’s fyrir langtímaskuldbind-
ingar. Þá skiptir það einnig miklu máli að horfum
á fjárhagslegum styrk bankans var breytt úr nei-
kvæðum í stöðugar, og kemur það til ekki síst
vegna margháttaðra aðgerða bankans til að
minnka markaðsáhættu og bæta lausafjárstöðu
meðal annars með afar vel heppnaðri alþjóðlegri
innlánastarfsemi bankans.“
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings,
segir hið nýja lánshæfismat Moody’s mjög
ánægjuleg tíðindi fyrir íslenska bankakerfið.
„Þetta kom okkur í raun nokkuð á óvart. Sér-
fræðingar okkar hafa skoðað þessa nýju aðferða-
fræði Moody’s í nokkra mánuði og bjuggust þeir
við að við myndum hækka um einn flokk í Aa3.“
Hreiðar segir hins vegar fullsnemmt að segja
hvaða áhrif þetta muni hafa, enda hafi þetta ef-
laust komið markaðnum á óvart.
Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, segir
lánshæfismatið hafa komið þægilega á óvart, en
erfitt sé að segja til um hvaða áhrif það muni hafa
á markaðnum, en það muni breikka mjög fjár-
festahópinn sem fjárfest geti í skuldabréfum ís-
lensku bankanna. Sumir fjárfestar einskorði sig
við Aaa skuldabréf. „Tryggingaálag á íslensk
skuldabréf hefur undanfarin misseri verið hærra
en lánshæfismat hefur gefið tilefni til og er erfitt
að fullyrða að það muni breytast mikið. Það er
hins vegar afar jákvætt að hafa fengið lánshæf-
ismat upp á Aaa, sem fá fyrirtæki í heiminum
geta státað sig af.“
Moody’s hækkar láns-
hæfi íslensku bankanna
Í HNOTSKURN
» Moody’s metur nú lánshæfi íslenskubankanna jafn hátt og lánshæfi nor-
rænna banka eins og Danske Bank,
Nordea Bank og Sampo Bank.
» Lánshæfi íslensku bankanna, sam-kvæmt mati Moody’s er jafnframt
orðið hærra en hæfi Jyske Bank og
Svenska Handelsbanken.