Morgunblaðið - 03.06.2007, Side 4
4 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VÉLASVIÐ | Klettagörðum 8-10 | 104 Reykjavík | Sími 590 5100 |www.hekla.is/velasvid
HEKLA er umboðsaðili Perkins á Íslandi
Veldu aðeins viðurkennda varahluti
Eftir Gunnar Hrafn Jónsson
UMHVERFISÞÆTTIR hafa lítil
áhrif á það hvort börn greinast með
einhverfu og ekkert bendir til þess að
bólusetningar séu á nokkurn hátt or-
sakavaldur heilkennisins. Þetta var
meðal þess sem fram kom á fimmtu
árlegu ráðstefnu NoCRA um ein-
hverfu sem haldin var á Grand hóteli í
Reykjavík nú fyrir helgi. Ráðstefnan
er mikilvægur vettvangur fyrir nor-
ræna fræðimenn til að kynna nýjustu
rannsóknir sínar á sviði einhverfu en
þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefnan
er haldin hér á landi.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, setti ráðstefnuna með stuttu
ávarpi þar sem hann fagnaði auknum
skilningi á einhverfu í samfélaginu.
Forsetinn sagði rannsóknir ráð-
stefnugesta gegna mikilvægu hlut-
verki hvað varðaði úrbætur í mál-
efnum einhverfa þar sem
stefnumótun framtíðarinnar þyrfti að
byggjast á traustum, vísindalegum
grunni.
Meðal helstu fyrirlesara má nefna
Catherine Lord, prófessor í sálfræði
og geðlækningum við Michigan-
háskóla í Bandaríkjunum, Annelies
de Bildt sem er doktor og vinnur að
rannsóknum við University Medical
Center í Groningen í Hollandi og Eric
Fombonne, prófessor í geðlækn-
ingum við McGill-háskóla í Kanada –
en hann er einnig sviðsstjóri geð-
lækninga við Barna- og unglingaspít-
ala Montrealborgar.
Dr. Fombonne gerði sjúkdóms-
greiningu og tíðni einhverfu sér-
staklega að umtalsefni í fyrirlestri
sínum en að hans sögn þjáist að með-
altali eitt barn af hverjum 165 af ein-
hverskonar einhverfu eða PDD
(Persistant Developmental Disorder
eða einhverfurófröskun á íslensku).
Þrátt fyrir að tíðni greininga hafi
aukist mikið á undanförnum áratug-
um varaði dr. Fombonne fólk þó við
að draga þá ályktun að tilvikum ein-
hverfu hefði fjölgað eða að þau ættu
sér einhverjar skýringar í umhverf-
islegum þáttum.
Skilningur að aukast
„Við verðum að muna að með
hverju árinu eykst skilningur vísinda-
manna,“ sagði dr. Fombonne, „og þar
með breytast skilgreiningar og rann-
sóknaraðferðir. Ekki er því hægt að
segja að sú staðreynd að við greinum
nú mun fleiri tilfelli bendi til þess að
eitthvað hafi breyst í umhverfinu eða
að um einhvers konar faraldur sé að
ræða. Því til stuðnings má benda á
rannsókn sem gerð var í Finnlandi en
þar var sami úrtakshópurinn rann-
sakaður þrisvar með aðferðum frá
þremur mismunandi tímabilum. Að-
ferðafræði dagsins í dag skilaði þre-
falt fleiri tilvikum af einhverfu en
elsta greiningarmódelið þrátt fyrir að
um nákvæmlega sama hóp væri að
ræða.“
Dr. Fombonne sagði ennfremur að
niðurstöður vísindalegra rannsókna,
meðal annars rannsókna sem hann
hefði sjálfur tekið þátt í, bentu ótví-
rætt til þess að engin tengsl væru á
milli einhverfu og bólusetninga. Það
meinta orsakasamband hefur þó ver-
ið mörgum foreldrum áhyggjuefni
eftir að kenningar þess efnis að ein-
hverfa stafaði af svokölluðum MMR-
bólusetningarsprautum komu fram í
fjölmiðlum fyrir nokkrum árum.
Dr. Fombonne varpaði upp línurit-
um sem sýndu að greining á ein-
hverfu hefði aukist í jöfnu hlutfalli við
fjölgun sjónvarpstækja í einkaeign og
minnkandi kirkjusókn. Sagði hann að
fæstir létu sér væntanlega detta í hug
að þarna væri um eitthvert orsaka-
Einhverfa er aðallega
ættgengur sjúkdómur
Einhverfa Á hinni árlegu ráðstefnu NoCRA kom fram að ekkert benti til
þess að bólusetningar væru á nokkurn hátt orsakavaldur einhverfu.
Stór norræn ráðstefna um einhverfu haldin á Íslandi
samhengi að ræða. Samt hefðu ein-
hverjir orðið skelkaðir við að sjá tölur
um bólusetningar og einhverfu hlið
við hlið. „Þvert á móti,“ sagði dr.
Fombonne, „þá hefur almennt dregið
úr bólusetningum á Vesturlöndum
eftir að þessar áhyggjur komu fyrst
upp en tíðni einhverfu heldur samt
áfram að hækka á sama hraða og áð-
ur. Þetta og margt annað bendir til
þess að orsakasamhengið sé í raun
ekkert.“
Að lokum sagði dr. Fombonne það
liggja fyrir að einhverfa væri fyrst og
fremst erfðasjúkdómur og umhverf-
isáhrif hefðu lítil sem engin áhrif.
„Segja má að 90% einhverfu orsakist
af erfðafræðilegum þáttum. Þau afar
sjaldgæfu umhverfisáhrif, sem mæld
hafa verið, eiga sé stað mjög snemma
á meðgönguferlinu og enginn hefur
enn getað sýnt fram á að neitt sem
gerist eftir fæðingu barns geti haft
áhrif á þróun sjúkdómsins.“
Fyrirlestur dr. Fombonnes var að-
eins einn fjölmargra, áhugaverðra
fyrirlestra sem haldnir voru þá tvo
daga sem ráðstefnan stóð yfir. Ráð-
stefnugestir og fyrirlesarar virtust
allir ánægðir með dagskrána og bæta
þurfti við stólum í salinn þegar ljóst
varð að húsið var orðið yfirfullt.
ÞÓTT mjög hafi dregið úr reyk-
ingum hér á landi síðustu ár verður
enn hátt í fjórði hver Reykvíkingur
sem ekki reykir fyrir óbeinum
reykingum. Þetta kemur fram í ný-
birtum niðurstöðum alþjóðlegrar
rannsóknar, Evrópukönnunar um
lungu og heilsu, sem náði til um
14.000 einstaklinga í 27 borgum í 12
Evrópuríkjum, auk íbúa í Mel-
bourne í Ástralíu og Portlands í
Bandaríkjunum.
Um aðra umferð rannsóknarinn-
ar var að ræða en sú fyrri var
framkvæmd á árunum 1990 til 1994.
Í þeirri síðari sem var gerð í
Reykjavík árið 2000 kemur fram að
hlutfall reykingamanna í borginni
hefur lækkað úr 38,5% frá fyrri
könnun í 28,4%. Á sama tíma hefur
dregið verulega úr óbeinum reyk-
ingum, en í fyrri umferðinni reynd-
ust 48,4% þeirra sem aldrei hafa
reykt verða fyrir óbeinum reyk-
ingum fimm daga eða oftar í viku
en 24,5% nú. Af þessum fjölda
verða jafnmargir fyrir þeim á heim-
ili og á vinnustað.
Athygli vekur að síðarnefnda
hlutfallið er enn miklu hærra í
Reykjavík en í Gautaborg, Svíþjóð,
(9,9%) og Bergen, Noregi, (15,2%)
og Basel, Sviss, (16,8%). Í Mel-
bourne og Portland er hlutfallið
10,8% en hæst í spænsku borginni
Huevia, 65,1%.
Dregur milljónir til dauða
Könnunin byggðist á spurninga-
listum og voru þeir sem sögðust
hafa orðið fyrir óbeinum reykingum
flesta daga síðustu 12 mánuði skil-
greindir sem þolendur þeirra.
Aðrar niðurstöður þessarar sömu
fjölþjóðarannsóknar hafa sýnt að
þeir sem ekki reykja en verða fyrir
óbeinum reykingum eru mun oftar
með lungnaeinkenni en þeir sem
ekki er reykt í kringum.
Verulega dregur úr óbeinu reyk-
ingunum í flestum borgum og er
Gautaborg gott dæmi um það.
43,9% urðu fyrir óbeinum reyking-
um í fyrri könnuninni en innan við
10% nú.
Að samanlögðu dró úr beinum
reykingum um 5,9% á tímabilinu en
18,4% úr óbeinum í borgunum 29.
Alþjóðlegi reyklausi dagurinn er
haldinn víða um heim í dag og gefa
gögnin vísbendingar um umfang
þess heilsufarsvanda sem óbeinar
reykingar eru á Íslandi, nú þegar
bannað verður að reykja á veitinga-
og skemmtistöðum landsins frá og
með morgundeginum.
Reykvíkingar verða fyrir
óbeinum reykingum
Vandamálið hefur minnkað mikið í Gautaborg í Svíþjóð
aldrinum 17-20 ára að fá vinnu en
mörg fyrirtæki setja 20 ára aldurs-
takmark þar sem nóg af fólki sé í
boði.
Hjá Atvinnuþjónustu HR, Há-
skólans í Reykjavík, gengur mjög
vel að útvega útskriftarnemendum
og námsfólki störf. Þar eru um
1.500 manns á skrá og meira og
minna allir komnir með störf, flest
sem tengjast náminu. „Langflestir
uppskera nokkuð vel, sérstaklega
þeir sem byrja snemma að leita sér
að sumarstarfi,“ segir Sonja Dögg
Pálsdóttir, ráðgjafi hjá Atvinnu-
þjónustunni. Að hennar sögn er þó
mest slegist um tölvunarfræði-
nema og tölvunarfræðinga en
beiðnir fyrirtækja hófu að berast í
febrúar. Viðskiptafræðinemar eru
einnig eftirsóttir en um 90% þeirra
eru komin með vinnu viku fyrir út-
skrift.
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
„ÉG HEF á tilfinningunni að það
sé frekar auðvelt fyrir ungt fólk að
fá sumarstarf,“ segir Gerður Dýr-
fjörð, deildarstjóri Vinnumiðlunar
ungs fólks í Hinu húsinu. Vinnu-
miðlunin sér um að ráða í störf fyr-
ir Reykjavíkurborg og af rúmlega
tvö þúsund umsækjendum eru nú
um 80 manns eftir á lista, flestir
17-18 ára. Gerður telur fjölda
starfa og umsækjenda svipaðan og
í fyrra og sömu sögu segir Hanna
María Jónsdóttir hjá Félagsstofn-
un stúdenta. Um sex hundruð
manns skráðu sig á vefmiðil stofn-
unarinnar í maímánuði og óskuðu
eftir sumarvinnu og enn eru að
koma inn ný störf og nýir stúd-
entar á skrá. Hanna María bendir
þó á að erfiðara sé fyrir fólk á
Auðvelt fyrir
ungt fólk að
fá sumarvinnu
JÓN Bjarnason, alþingismaður
Vinstri grænna, segist undrandi á
aðgerðar- og áhugaleysi stjórn-
valda á ástandinu á Flateyri.
Þingflokkur VG hefur verið á
ferð um norðanverða Vestfirði til
að kynna sér aðstæður sem hafa
komið upp á Flateyri og í Bol-
ungarvík. Þingflokkurinn fundaði
með stjórnendum Kambs á Flat-
eyri og Íbúasamtökum Önund-
arfjarðar.
Jón óskaði eftir fundi með öll-
um þingmönnum Norðvestur-
kjördæmis skömmu eftir að öllu
starfsfólki Kambs var sagt upp
störfum en fundurinn hefur ekki
verið haldinn.
Þingflokkur VG ræðir við
heimamenn á Flateyri