Morgunblaðið - 03.06.2007, Síða 14

Morgunblaðið - 03.06.2007, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ LÖGGÆSLUMYNDAVÉLAR Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR í vikunni þeirri skoðun sinni að lög- gæslumyndavélarnar hefðu tak- markaðan fælingarmátt. Stefán er ósammála þessu en hann telur fæl- ingarmáttinn einmitt felast í því að vélarnar geri lögreglunni kleift að hafa augu á fleiri stöðum. „Það hlýt- ur að hafa fælandi áhrif ef mönnum er ljóst að svæðið, þar sem þeir hafa í hyggju að fremja glæp, er vaktað.“ Hafa bjargað mannslífum Stefán segir myndavélarnar hafa reynst mikilvægar við rannsókn margra mála, t.d. komi gjarnan í ljós hver átti upptökin þegar um ofbeld- isbrot er að ræða. Hann bendir á að vitaskuld séu myndavélarnar líka vel til þess fallnar að upplýsa aðra glæpi en ofbeldisglæpi. Stefán segir vélarnar í nokkur skipti hafa leitt til þess að lögreglan hafi bjargað mannslífum. „Það ger- ist nánast um hverja einustu helgi að lögreglumenn sem vakta vélarnar sjá hluti sem eru í uppsiglingu, árás- ir sem eru í gangi og annað, og láta félaga sína sem staddir eru í mið- borginni vita. Ég fullyrði að þetta hefur bjargað mannslífum.“ Stefán segir lögregluna á sínum tíma hafa kynnt sér reynslu af ör- yggismyndavélum í öðrum borgum. Bæði var þá horft til Bretlands og Norðurlandanna. „Það er samdóma álit allra að löggæslumyndavélarnar hafi skipt sköpum, ég man t.d. eftir nýlegri frétt frá Suður-Afríku þar sem fram kom að uppsetning myndavéla hefði fækkað til- greindum brotum umtalsvert.“ Löggæslumyndavélarnar eru vaktaðar í fjarskiptamiðstöð lögregl- unnar í Skógarhlíð. Ekki er fylgst grannt með þeim allan sólarhringinn en þegar mest er um að vera í mið- bænum er vöktun stöðug. Þá sitja tveir menn við skjáina átta. „Ef eitt- hvað kemur upp á á öðrum tímum eru vélarnar mannaðar um leið, menn fara og líta á ástandið og leið- beina félögum sínum á vettvangi.“ Það eru ekki bara myndavélar lögreglu sem þjóna þessu hlutverki en Stefán segir myndavélar á vegum fyrirtækja og einstaklinga einnig hafa komið við sögu þegar upplýsa þarf sakamál. Reglur um eftirlitsmyndavélar eru rúmar og getur hver sem er komið sér upp slíku tæki til að mynda og vakta eigin eign. Öryggis- fyrirtæki setja upp myndavélar fyrir fólk en Stefán segir búnaðinn það einfaldan að menn geti hæglega sett hann upp sjálfir. „Þú getur farið út í hvaða tölvubúð sem er og sett upp býsna öflugt kerfi.“ Stefán segir það vissulega sjón- armið að löggæslumyndavélar skerði frelsi og réttindi manna. „Þarna vegast á öryggishagsmunir V ilhjálmur Þ. Vil-hjálmsson borg-arstjóri segir reynslu borgarinnar af löggæslumyndavél- unum góða og þær séu mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni að stuðla að auknu ör- yggi fólks í miðborg- inni, einkum á föstu- dags- og laugardagskvöldum. Hann segir það tví- mælalaust rétta stefnu að fjölga myndavélum enda sé það samdóma álit allra sem að málinu koma að það muni hafa jákvæð áhrif. „Það er brýnt að efla löggæslu og eftirlit í miðbænum á helstu álagstímum og þetta er liður í því.“ Vilhjálmur er sann- færður um fæling- armátt myndavélanna en tekur þó fram að oft sé erfitt að ráða í hegðun fólks, einkum þegar það er í ann- arlegu ástandi. „Það er eigi að síður mín trú að þeir sem eru að velta fyrir sér að gera eitthvað sem ekki er í samræmi við lög og reglur hugsi sig um tvisvar sé þeim kunnugt um öryggismynda- vélar á svæðinu. Það má því öðr- um þræði líta á þetta sem eins- konar forvarnarstarf.“ Borgarstjóri telur örygg- ismyndavélarnar ekki ganga á persónuréttindi fólks enda séu þær á almannasvæði. Þá sé fjöld- inn allur af erftirlitsmyndavélum á vegum einstaklinga og fyr- irtækja víðsvegar um borgina. „Ég á ekki von á því að þessi fyr- irhugaða fjölgun myndavéla breyti neinu þar um en ef ein- hverjir telja að svo sé munum við taka á því.“ STUÐLA AÐ AUKNU ÖRYGGI Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.