Morgunblaðið - 03.06.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 15
og persónuverndarsjónarmið. Þegar
svona margt fólk er á ferðinni í mið-
borginni og við getum átt von á alls-
konar uppákomum vegur það
þyngra að lögreglan hafi öll tiltæk
úrræði við höndina til að takast á við
þær. Við erum ekki að dreifa þessum
myndavélum um alla borg og von-
andi verður það aldrei.“
Vélum fjölgað um helming
Fyrirhugað er að fjölga löggæslu-
myndavélum í miðborg Reykjavíkur
um allt að helming. Stefán segir
markmiðið með fjölguninni að dekka
öll þau svæði sem lögreglan telur
nauðsynlegt að dekka. „Veit-
ingastöðum í borginni hefur fjölgað
á undanförnum tíu árum og erillinn
er að færast ofar á Laugaveginn og
niður á Hverfisgötu. Við þurfum líka
að ná fleiri svæðum í Hafnarstræt-
inu.“
Hann segir lögregluna hafa sett
fram skýrar tillögur um staðsetn-
ingar og unnið er að framgangi
málsins þessa dagana, m.a. er verið
að skoða tæknilegar útfærslur. Stef-
án vonast til að nýju myndavélarnar
verði teknar í notkun í haust.
Tæknin er í stöðugri framþróun á
þessu sviði sem öðrum og Stefán
segir ánægjulegt að myndavélarnar
séu ekki aðeins orðnar öflugri, held-
ur jafnframt umfangsminni og ódýr-
ari.
Stefán hefur verið eindreginn
talsmaður þess að fjölga eftirlits-
myndavélum á helstu gatnamótum á
höfuðborgarsvæðinu enda hafi þær
mikið gildi við að rannsaka alvarleg
umferðarslys og upplýsa umferð-
arlagabrot. Hann segir aftur á móti
engin áform um að færa löggæslu-
myndavélarnar út víðar. „Við erum
ekki á leið inn í svefnherbergi fólks.
Það er ekki sá heimur sem við viljum
lifa í.“
Morgunblaðið/Júlíus
Fjölgun Löggæslumyndavélarnar
eru átta í dag en til stendur að fjölga
þeim um allt að helming í haust.
Morgunblaðið/Júlíus
Í 4. grein reglna nr. 837/2006 umrafræna vöktun segir að húnverði að fara fram í yfirlýstum,
skýrum og málefna-
legum tilgangi, s.s. í
þágu öryggis og
eignavörslu.
Í 5. grein sömu
reglna segir að við
alla rafræna vöktun
skuli þess gætt að
ganga ekki lengra en
brýna nauðsyn beri til
miðað við þann til-
gang sem að er stefnt.
Ennfremur skal gæta
þess að virða einkalífs-
rétt þeirra sem sæta
vöktun og forðast alla
óþarfa íhlutun í einka-
líf þeirra. Við ákvörð-
un um hvort viðhafa
skuli rafræna vöktun skal því ávallt
gengið úr skugga um hvort mark-
miðinu með slíkri vöktun sé unnt að
ná með öðrum og vægari raunhæf-
um úrræðum.
Í 11. grein reglugerðar nr. 322/
2001 um meðferð persónuupplýs-
inga hjá lögreglu segir um rafræna
vöktun: Þegar löggæsla fer fram
með rafrænni vöktun á almannafæri
skal með merki eða á annan áber-
andi hátt gera glögglega viðvart um
þá vöktun.
Þórður Sveinsson, lögfræðingur
hjá Persónuvernd, vísar til þessara
reglna um rökstuðning, meðalhóf og
gagnsæi í samtali við Morgunblaðið
og segir grundvallaratriði að lög-
reglan virði þær þegar notkun lög-
gæslumyndavéla er annars vegar.
„Það er líka mikilvægt að lögregla
noti upptökur úr myndavélunum að-
eins þegar uppi er grunur um að
framið hafi verið afbrot á hinu vakt-
aða svæði og talið er að þær geti
varpað ljósi á málið,“
segir Þórður.
Hann segir Persónu-
vernd hafa borist fyr-
irspurnir varðandi lög-
gæslumyndavélarnar
en aldrei hafi komið
upp mál þar sem stofn-
unin hafi þurft að taka
afstöðu eða senda frá
sér álit. „Við höfum
ekki fengið neinar vís-
bendingar um það að
lögreglan sé að nota
myndavélarnar í ein-
hverjum öðrum tilgangi
en kveðið er á um í
reglum og reglugerð-
um.“
Þórður segir stofnunina þó til-
búna að skerast í leikinn gerist þess
þörf. „Persónuvernd er eftirlits-
stofnun og ef einhver óánægður ein-
staklingur leitar til okkar vegna
gruns um brot á einkalífsrétti sínum
munum við fjalla um málið á hlut-
lausan hátt.“
Löggæslumyndavélarnar í miðbæ
Reykjavíkur eru átta en til stendur að
fjölga þeim um allt að helming. Að
sögn Þórðar mun Persónuvernd
fylgjast grannt með framvindu mála.
„Það liggur í eðli stofnunarinnar að
hún er alltaf á varðbergi þegar verið
er að fjölga eftirlitsmyndavélum og
vöktun aukin. Án þess að ég sé að
fullyrða að þessar myndavélar eigi
ekki rétt á sér er það hlutverk Per-
sónuverndar að vera á bremsunni í
þessum efnum og koma í veg fyrir að
vöktun fari út í öfgar.“
GÆTA SKAL HÓFS
Þórður Sveinsson