Morgunblaðið - 03.06.2007, Síða 30

Morgunblaðið - 03.06.2007, Síða 30
Glæsileg Katrín Stella Briem með tíkina Berettu, sem oft er hjá henni í pössun. Í baksýn er málverk af föður henn- ar, Arthur Frederich Richmond Cotton, aðeins átta ára gömlum. H ún tekur á móti mér, grönn og glæsileg. „Sestu og vertu ró- leg,“ segir hún við snögghærða og flekk- ótta tík sem fylgir okkur fast eftir inn í stofu. Augljóslega er þessi kona vön að umgangast dýr, ég heyri það á föstum myndugleika raddarinnar. Í vel búnum stofum með dökkum viðarloftum eru fögur málverk á veggjum, einkum festi ég augun á mynd í stórum gylltum ramma af ungum dreng sem líkist helst hinu fræga málverki af „bláa drengnum“. Í hillum eru margar styttur af hestum – greinilega eru þeir í hávegum hafðir á heimilinu. Sú ályktun reynist ekki fjarri lagi, Katrín Stella Briem var árum sam- an í framvarðasveit í starfsemi Hestamannafélagsins Fáks, var for- maður kvennadeildar og síðan fræðslunefndar og varaformaður fé- lagsins um tíma. Hestum kynntist hún þó ekki fyrst á Íslandi. „Ég kynntist hestum þegar ég var barn á Ítalíu. Þar bjuggum við í fáein ár fjölskyldan, móðir mín, Stella Briem og fósturfaðir minn Þórður Albertsson, hann starfaði hjá Sölusambandi íslenskra fisk- framleiðenda og dvaldi langtímum saman erlendis vegna starfs síns,“ segir Katrín þegar ég spyr út í hestamennskuna. „Ég tek nú ekki eins mikinn þátt í félagsstörfum Fáks og áður og mér hefur nú alveg verið bannað að sitja hest. Ég slasaðist fyrir tæpum 30 árum, hesturinn flaug með mig fram af moldarbarði og ég fékk háls- skaða. Þá var mér bannað að fara á hestbak en ég lét ekki segjast og skellti mér á fullu í félagsstarfið. En svo varð ég löngu seinna aftur fyrir óhappi á hestbaki og nú er þetta al- veg búið. Mér þykir það sárt, árin í hestamennskunni og starfið hjá Fáki, með öllu því góða fólki sem þar er, veittu lífi mínu mikið og gott innihald,“ segir Katrín. En það er þó ekki svo að hestamennskan sé ekki í tengslum við heimilið lengur. „Maðurinn minn, Guðmundur Júl- íusson, smitaðist af þessari hesta- bakteríu í mér og hann er nú vakinn og sofinn í hestamennskunni, og við gáfum barnabarni okkar hest í fermingargjöf fyrir nokkru. Ég á enn hryssuna sem er móðir þess hests,“ segir Katrín. Þau hjónin ráku lengi Melabúðina en nú hafa synir þeirra, Friðrik Ármann og Pétur Alan, tekið við þeim rekstri, sá síðarnefndi á að baki mun lengra starf í Melabúðinni. Á meðan hann sinnir vinnu sinni gætir móðir hans tíkarinnar Berettu. „Hún er að bíða eftir að Pétur komi heim til að fara með hana út að ganga,“ segir Katrín. Greinilega hlustar tíkin eftir hverju hljóði, en þegar dregst að Pétur komi leggst hún eins og gamall kunningi á ann- an fót minn og hlustar þolinmóð þegar við Katrín tökum að spjalla. Ekki það að ég vorkenni henni að hlusta á okkur – Katrín á að mörgu leyti óvenjulega sögu að baki. Hún fæddist í London 20. febrúar 1935. Móðir hennar var sem fyrr sagði Stella Briem, hún hét raunar Ingi- björg fullu nafni en var jafnan köll- uð Stella, og faðir hennar var Arth- ur Frederich Richmond Cotton, verkfræðingur og vísindamaður. Líkt við Gretu Garbo Þau hjónin kynntust á rómantísk- an hátt. Arthur Cotton sagði föður sínum, sem þá var velefnaður iðn- rekandi í London, að hann langaði til að eyða fríi sínu á afskekktum stað. Fyrir valinu varð Ísland. Hann tilkynnti á ferðaskrifstofu Cooks, sem þá var stærsta ferðaskrifstofa í heimi, að hann vildi komast til Ís- lands. Þeir spurðu: „Hvernig ætlar þú að komast þangað?“ Hann svar- aði: „Ég kom nú hingað til að fá þær upplýsingar hjá ykkur!“ Til Íslands sigldi hann á alþing- ishátíðina 1930 og ferðaðist mikið um landið. Einhvern tíma inn á milli ferðalaganna gaf hann sér tíma til að skreppa niður í danssalinn á Hót- el Borg að kvöldlagi og þar hitti hann Stellu Briem sem annáluð var fyrir glæsileika. Þessi fundur þeirra varð afdrifa- ríkur. Þau trúlofuðu sig fljótlega. „Faðir minn lét smíða fyrir móður mína platínuhring með demöntum sem mynduðu stafinn S,“ segir Katrín. Foreldrar hennar gengu í hjóna- band árið 1931 og brúðkaupið fór ekki framhjá neinum. Um það var mikið skrifað og raunar líka um trú- lofun þeirra áður, bæði í bresk blöð og dönsk. „Mömmu var í bresku blöðunum líkt við Gretu Garbo og hún var köll- uð „Bruden fra det höje Nord“,“ segir Katrín og ég spyr hvort hún eigi eitthvað af þessum blaða- umfjöllunum. Þær reynast ekki langt undan því einmitt um þessar mundir kveðst Katrín vera að flokka fjölskyldu- myndir og gögn sem hún ætli að Blaðaúrklippa Foreldrar Katrínar nýgift árið 1931. Langafi Fyrrverandi borgarstjóri Lundúna, Sir William J.R. Cotton Friðriksdætur F.h. Rúna og Katrín Stella, sonardætur Katrínar og Guðmundar Lífið er púsluspil „Það er einsog einhver öfl sem stýri manni á lífs- leiðinni og ég trúi að það sé í einhverjum tilgangi gert,“ segir Katrín Stella Briem m.a. í samtali við Guðrúnu Guðlaugsdóttur. Katrín hefur átt við- burðaríkt og á margan hátt óvenjulegt lífshlaup. Snorradætur F.v. Maia og Arna son- ardætur Katrínar og Guðmundar Í fararbroddi Sigurbjörn Bárðarson og Katrín á firmakeppni Fáks Morgunblaðið/Golli lífshlaup 30 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.