Morgunblaðið - 03.06.2007, Blaðsíða 34
veitt með | Sigurði Steindórssyni í Þingvallavatni
34 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
D
jöfull er það tregt.“
Sigurður Stein-
dórsson kemur gang-
andi upp frá kunnum
veiðistað með skrýtið
nafn í þjóðgarðinum á Þingvöllum –
Öfugsnáða – og bölvar fiskleysinu.
Það kemur þó ekkert á óvart þótt
bleikjan taki ekki, yfirleitt byrjar
hún að gefa sig upp úr 20. maí. Og
Sigurður hlýtur að teljast til þess
hóps; þótt hann sé að hefja sjöunda
veiðisumarið við vatnið þá veiða
örugglega fáir, ef einhverjir, meira
á stöng í vatninu en hann. Eins og
nótubækurnar í vel búnum húsbíl
hans sýna hefur hann eytt tugum
daga frá maí og inn í ágúst á bökk-
um vatnsins síðustu sumur. Og hef-
ur veitt hátt í fjögur hundruð
bleikjur á sumri.
Þetta er annar veiðidagur Sig-
urðar í vatninu þetta vorið. Í fyrstu
ferðinni fyrr í vikunni fékk hann
fjórar vænar bleikjur við Öf-
ugsnáða. Nú er hins vegar ekkert
líf.
„Ég er bara búinn að frétta af
einum fiski hér í dag. Það var ein-
hver sem kom eldsnemma í morg-
un sem náði honum.“ Nú er klukk-
an að ganga sjö, vonglaðir
veiðimenn komnir á flest nes í
þjóðgarðinum en enginn að fá neitt.
„20. maí hefur stundum gefið. Ég
kom fyrst 18. eða 19. í fyrra og
fékk ekki einn einasta fisk. En
stundum veiðist,“ segir hann íbygg-
inn á svip. „Það má ekki gefast
upp“
– Hvað veiddirðu margar í fyrra?
„Þrjú hundruð og eitthvað – þá
er ég að tala um bleikjur. Engar
murtur eða smábleikjur taldar
með. Murtan kom snemma hingað
að Snáðanum í fyrra, 10. júní. Í
einhverja bókina skrifaði ég: HEL-
VÍTIS MURTAN!“ Hann hlær og
hristir höfuðið.
Við höfum tyllt okkur inn í hús-
bíl Sigurðar á stæðinu við Öf-
ugsnáða og hann skenkir kaffi.
Hann horfir niður að vatninu, sæll
á svip þótt bleikjan hafi ekki gefið
sig. „Þetta er nokkuð sem ég vildi
ekki missa af,“ segir hann og aug-
ljóst að hann á við þá upplifun að
vera staddur í þjóðgarðinum að
vori. Horfir svo í augun á mér og
segir ákveðinn: „Þetta er fallegasta
og besta og skemmtilegasta veiði-
vatn í heimi!“ Þagnar síðan og sýp-
ur á kaffinu. „Að vakna hérna
klukkan fjögur á morgnana, þegar
fuglarnir eru að skreiðast af stað
og allt að fara í gang, það er alveg
dýrlegt.“
Þekki Snáðann best
Frábær aðstaða er í veiðibíl Sig-
urðar og greinilegt að hann kann
að taka því rólega þarna; um það
vitna vandlega útfyllt kross-
gátublöð. „Þetta er fínn veiðibíll.
Án hans vildi ég ekki vera hér.
Maður getur alltaf hitað sér kaffi,
fengið sér í gogginn, hvílt sig. Svo
er yndislegt fólk hér í þjónustu-
miðstöðinni og landverðirnir aldrei
neitt að argast í manni. Og veiði-
mennirnir, þetta eru sömu kallarnir
ár eftir ár. Menn hittast, spjalla
saman og fá fréttir.“
– Og þú ert með tvær uppsettar
veiðistangir.
„Það þýðir ekkert að verða veið-
arfæralaus maður; ef maður missir
troll þá verður að hafa annað.“
– Er Öfugsnáðinn þinn staður?
„Nánast eingöngu fyrri part
veiðitímabilsins. Ég fer stöku sinn-
um í Vatnskot, út á Pallinn eða þar
í kring.
Ég þekki Snáðann best. Það þýð-
ir ekki að hann sé endilega besti
staðurinn, ég hef bara tilfinningu
fyrir honum og trúi á hana.“
– Er það ekki eins og hjá skip-
stjóranum, sem kastar á sína staði
og byggir á tilfinningu og reynslu?
„Jú. Maður trúir einhverri helvít-
is vitleysu og alveg sama á við um
flugurnar. Ef maður hefur trú á
einhverri flugu og notar hana þá
veiðir maður á hana. Hinir, sem
eru með öðruvísi flugur, veiða líka.
Trúin skiptir öllu máli – hún knýr
mann áfram.“
Sigurður segir að ömurlegt sé að
veiða Öfugsnáðann í sunnan- og
suðvestanátt, þegar vindurinn er í
fangið. „Þá er eiginlega ekkert
hægt að gera hér, maður fer bara
heim.
Ég veit í raun ekkert um það
hvernig dýpið er hér fyrir utan.
Kafarar sem hafa kafað hér segja
mér að mesta dýpið sé um þrír
metrar; þetta virðist vera grynn-
ingafláki helling suðurfyrir.
Maður festir eða festir ekki. En
það er voðalega grunnt hérna.“
– En hvert leitarðu síðsumars?
„Þá fer ég hér austurfyrir.
Vatnsvik, Hallvik. Þess vegna er
gott að punkta í þessar,“ segir
hann og tekur upp vasabækur, eina
frá hverju ári sem hann hefur veitt
á Þingvöllum. „Hér get ég séð hve-
nær og hvort ég hef fengið fisk á
ákveðnum stöðum á ákveðnum tím-
um.“
Sigurður blaðar í bókunum og
les handahófskennt: „Öfugsnáði, 13
bleikjur. Það stendur að þetta hafi
verið 2002. Þrjár bleikjur, þar af
ein kuðungableikja, Vatnsvik,
murtudót. 3. júní: þrjár bleikjur Öf-
ugsnáða, reynt Hallvik, Síbería,
rigning, breytileg átt. Og hér er
fyrsta færslan það ár: 20. maí, ein
bleikja, Öfugsnáði, sólarlaust. Árið
áður, 2001, skráði ég 24. maí: Öf-
ugsnáði, hirtar 13 bleikjur, miklu
smærri fiskur en í gær. Skýjað,
breytileg átt.“
Fallegast,
skemmtileg-
ast og best
Morgunblaðið/Einar Falur
Vorkvöld á Þingvöllum Það styttist í miðnætti og Sigurður kastar flugum sínum einbeittur við Öfugsnáða.
Sigurður Steindórsson hefur síðustu sumur stund-
að Þingvallavatn af kappi. Afraksturinn er eftir
því; á fjórða hundrað bleikjur á sumri.
Sigurður er vanur því að afla vel. Hann fór á sjó-
inn 15 ára gamall og var á togurum. Síðast var
hann skipstjóri á Ottó N. Þorlákssyni. „Ég átti
heima á Eskifirði. Ég var síðan 38 ár hjá Granda.
Háseti fyrstu tvö þrjú árin þar, svo stýrimaður á
Ingólfi Arnarsyni. Var á Bjarna Ben. þangað til
Ottó var smíðaður. Tók fljótlega við honum. Loks
var ég rekinn,“ segir Sigurður og glottir – „og þá
uppgötvaði ég að ég þyrfti ekki að vinna og hætti
bara alveg. Það er lúxus að geta dundað sér hér á Þingvöllum.“
Á fjórða hundrað bleikjur
Sigurður
Steindórsson
Þú getur verið viss um gæðin
ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is
Mercedes-Benz ML-Class er jeppi sem slær samkeppnisaðilunum við hvað varðar gæði, glæsileika og öryggi. Í boði eru þrjár bensín-
vélar og þrjár dísilvélar. Sú nýjasta, V8 420 CDI dísilvélin, er sannkallað tækniundur sem skilar 306 hestöflum. Hröðun frá 0 og upp í
100 km er aðeins 6,5 sekúndur og togið er ótrúlegt, 700 Nm. Þrátt fyrir þetta er meðaleyðsla bílsins aðeins 11,1 lítrar á hverja 100 km.
ASKJA er eini viðurkenndi umboðsaðili Mercedes-Benz á Íslandi.
*Hiti í framsætum, dökkar filmur í rúðum og aftengjanlegt dráttarbeisli.
Mercedes-Benz ML-Class 280 CDI, verð: 6.370.000 kr. með Íslandspakka*