Morgunblaðið - 03.06.2007, Page 39

Morgunblaðið - 03.06.2007, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 39 „Togaratímabilið hjá HB hófst þannig að fyrst var hugað að því að búa Höfrung III til trollveiða. Hann var 260 tonna bátur með 750 hestafla vél, kannski ekki mikill togbátur. Þetta var svo að gerjast fram eftir sumri, en þá er ákveðið að kaupa nýtt skip frá Noregi, Bátsfjörð. Hann hafði þá nýlega verið keyptur til fyrirtækis í Bátsfirði en ekki verið gerður út. Við komum á honum til Akra- ness frá Noregi um miðjan júlí 1975 og fékk hann nafnið Har- aldur Böðvarsson AK 12. Þá var ég orðinn togarasjómað- ur, kannski ekki gegn vilja mín- um, en það hafði aldrei verið ætl- un mín að svo færi. Ég hafði farið tvo túra á síðutogara áður. Það var atvinna sem ég ætlaði ekki að stunda. Ég var því illa í stakk bú- inn til þess að fara svona beint á togara. Ég réði því til mín mann sem hét Kristján Kristjánsson, sem var móðurbróðir minn. Hann var þrautreyndur togaramaður, hafði verið síðustu árin á Víkingi, bæði sem stýrimaður og skip- stjóri. Hann kom til mín sem fyrsti stýrimaður, en hann hafði reynd- ar verið með mér sem stýrimaður á síld á Bjarna Jóhannessyni. Á honum byggðist þetta fyrst, því megnið af mannskapnum, sem kom af bátnum, kunni lítið til verka. Við fengum líka annan vanan togaramann til að vera með okkur og á þessum tveimur mönn- um byggðist til dæmis vinnan við veiðarfærin til að byrja með.“ Veiðarnar gengu rólega fyrst „Við lönduðum um verzl- unarmannahelgina eftir fyrsta túr. Veiðarnar gengu frekar ró- lega þetta árið. Haustið var frek- ar leiðinlegt og það bar við að mönnum fyndist það ekki hafa verið rétt ráðstöfun að ráða óvana menn á þetta skip. Ég heyrði það þó aldrei frá útgerðinni. Strax á næsta ári gengu veiðarnar hins vegar mjög vel borið saman við önnur skip á svæðinu. Við vorum þá töluvert mikið í þorski fyrir vestan og svo á karfa fyrir Suð- vesturlandi. Þá var enginn kvóti kominn. Þetta voru góð og stígandi ár. Þetta gekk bara nokkuð vel. Árið 1981 var okkar bezta ár í tonnum talið, 5.800 tonn, en þá var karf- inn orðinn vaxandi hlutfall í aflan- um. Þá sneru menn sér meira að karfanum, sérstaklega sunn- anskipin. Þá komu þessi viðmið- unarár út af kvótanum og þar sem við höfðum lagt áherzlu á karf- ann, vegna lélegrar þorskveiði, varð hlutfall sunnanskipanna í þorskinum mjög rýrt. Skipin frá Vestfjörðum og Norðurlandi höfðu haldið sig meira í þorsk- inum og fengu því betri úthlutun. Ég var með Harald Böðvarsson í 11 ár. Síðan keypti HB togarann Sigurfara II frá Grundarfirði á uppboði og hlaut hann nafnið Sturlaugur H. Böðvarsson og ég tók við honum. Það var svo árið 1992 að menn voru búnir að sjá að það borgaði sig að fara út í sjó- frystingu. Þá keyptu þeir fjögurra ára gamlan frystitogara frá Fær- eyjum, vel útbúið skip, en ekki hannað nema að hluta til sem frystiskip eins og Íslendingar vildu hafa þau. Þetta var öflugt skip með stóra vél og góð spil. Á það skip fór ég 1992 og fékk það nafnið Höfrungur III.“ „Það voru mikil viðbrögð að koma af bátum yfir á togara. Mór- alslega séð mikil viðbrigði. Meðan maður var á bátunum og á nóta- veiðum, var eins og maður væri ekki fyrir neinum og menn voru vinsælir. En þegar maður var kominn á togara, fann maður að það var allt annar mórall í kring- um það. Það var alltaf verið að hnýta í togarana. Ég ólst upp við það í Grundarfirði að togari væri algjört eitur í beinum manna. Línumönnum var illa við togar- ana. Eins var fréttaflutningurinn miklu meiri í kringum bátana, sérstaklega á síldarárunum og svo auðvitað á vetrarvertíð. Þó komu þarna tímabil, sem togararnir nutu vinsælda. Það var á fyrstu árum skuttogaranna. Svo þegar maður kom á frystitogarann fann maður að það var mikil andstaða við þá vegna þess að fólk var hrætt við þessi skip, sem voru að taka vinnu af fólki. En ein að- alrökin fyrir útgerð frystitog- aranna voru þau, að þeir sköpuðu svo mikil verðmæti.“ Þá var ég orðinn togarasjómaður Veiðarnar Frá veiðum í flottroll á Haraldi Böðvarssyni í kringum 1980. Það eru 60 tonn í halinu. Svona veiðar stunda menn ekki lengur. Þetta gæti orðið útsýnið þitt! Fimmtudagskvöld á Þingvöllum 2007 Á fimmtudagskvöldum í júní og júlí býður þjóðgarðurinn fræðimönnum og öðrum áhugamönnum um staðinn að fjalla um hugðarefni sín tengd Þingvöllum. Allar gönguferðirnar hefjast kl. 20:00 við fræðslumiðstöðina við Hakið og taka um 2 klst. 7. júní Konungskoman og konungsglíman á Þingvöllum 1907 Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur segir frá konungskomunni og þýðingu hennar. Glímumenn frá Glímusambandi Íslands rifja upp konungsglímuna sem var háð í tilefni heimsóknarinnar og sýna glímubrögð. 14. júní Frigg og Freyja Ingunn Ásdísardóttir þjóðfræðingur og þýðandi fjallar um hugmyndir sínar um hinn forna goðaheim þar sem gyðjur skipa miklu stærri sess en bæði Snorri og margir síðari tíma fræðimenn hafa talið. 21. júní Alþingi á Þingvöllum Gunnar Karlsson sagnfræðingur ræðir um störf og skipan Alþingis á þjóðveldisöld. 28. júní Tildrög fyrstu drekkingar, eingetið barn Ragnar Arnalds rithöfundur fjallar um líf og örlög fyrstu konunnar sem drekkt var í Drekkingarhyl. 5. júlí Glæpasviðið Þingvellir Katrín Jakobsdóttir íslenskufræðingur fjallar um Þingvelli sem sögusvið glæpa í íslenskum bókmenntum. 12. júlí Hreppstjórinn í Skógarkoti Páll Lýðsson bóndi og sagnfræðingur í Litlu-Sandvík segir sögur af Kristjáni Magnússyni hreppstjóra í Skógarkoti. 19. júlí Hvað eiga Þingvallavatn og Galápagos eyjarnar sameiginlegt? Skúli Skúlason rektor Hólaskóla fjallar um lífríki Þingvallavatns og tengir það við hugmyndir um þróun tegunda. 26. júlí Jarðskorpuhreyfingar á Þingvöllum Páll Einarsson prófessor í jarðeðlisfræði skýrir hreyfingar jarðskorpunnar undir Þingvöllum og hvernig það tengist flekaskilum undir Íslandi. Upplýsingar um dagskrá þjóðgarðsins má finna á heimasíðu þjóðgarðsins www.thingvellir.is og í síma þjónustumiðstöðvar 482-2660. Þátttaka í fræðsludagskrá þjóðgarðsins er öllum opin og án endurgjalds. Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar. - traustur bakhjarl fræðslu í þjóðgarðinum á Þingvöllum AUGLÝSINGASÍMI 569 1100 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.