Morgunblaðið - 03.06.2007, Síða 44

Morgunblaðið - 03.06.2007, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ 5. júní 1977: „Hvert sinn, sem við leiðum hugann að sjávarútvegi, hlýtur hann að staldra við hættulegasta vandamál þessarar þjóðar, ástand fiskstofnanna, eink- um þorsksins, sem verið hef- ur burðarásinn í verðmæta- sköpun okkar um áratugaskeið. Mikilvægir áfangar hafa að vísu náðst í landhelgismálum, allt frá því að landgrunnslögin vóru sett, árið 1948, til þess að fært var út í 200 mílur á árinu 1975, og íslenzkur réttur til veiðistjórnunar á þessu stóra hafsvæði var viðurkenndur með svoköll- uðu Óslóarsamkomulagi 1976. Og aldrei í sögu þjóð- arinnar hefur verið gripið til víðtækari varnarráðstafana til fiskverndar, með löggjöf og reglugerðum um veiði- sókn, veiðarfæri og veiði- friðun, en sl. tvö til þrjú ár. Engu að síður er þörf vax- andi varúðar að dómi fiski- fræðinga okkar.“ . . . . . . . . . . 7. júní 1987: „Þegar ríkis- sjóður eyðir meira en hann aflar og verðbólga og hækk- un kaupmáttar er miklu meiri hér á landi en í við- skiptalöndunum er ekki til lengri tíma lítið hægt að halda gengi íslensku krón- unnar stöðugu. Halli á rík- issjóði veldur viðskiptahalla og skuldasöfnun erlendis, nema ef einkageirinn sparar nægjanlega mikið til að vega upp á móti eyðslunni. Það verður því verkefni nýrrar ríkisstjórnar að rétta rík- issjóð við. Mörgum stjórnmálamönnum hefur orðið tíðrætt um rík- issjóðshallann og talið sig sjá leiðir til þess að afla nægilegra tekna – oftast með skattahækkunum –, jafnvel svo, að hægt sé að auka þjónustu ríkisins veru- lega, án þess að eyða um efni fram.“ . . . . . . . . . . 1. júní 1997: „Íslenzkir sjó- menn hafa þraukað mörg þrengingartímabil og nú virðist sem eitt slíkt sé á enda. Þeim hefur lærzt, að engin sú auðlind, sem al- mættið hefur gefið, er óþrjótandi. Því hafa þeir verið samtaka stjórnvöldum um friðunaraðgerðir vegna veiðistofnanna og þeir hafa einnig lært að nýta betur það hráefni, sem náttúran gefur. Þess vegna hefur það verðmæti, sem sjávarafurðir hafa gefið þjóðinni, ekki dregizt jafnmikið saman á erfiðleikatímum og sjávarafl- inn. Sá gífurlegi samdráttur, sem orðið hefur á afla síð- ustu tæplega 20 ár, hefur því orðið til þess að farið er betur með verðmætin.“ Úr gömlum l e iðurum Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HÁTÍÐ ÍSLENSKRA SJÓMANNA Sjómannadagurinn er haldinnhátíðlegur um land allt í dag.Þessi hátíðisdagur er verð- skuldaður virðingarvottur við sjó- menn, sem hafa með dugnaði sínum og elju, staðið undir stórum hluta bættra lífskjara þjóðarinnar allrar. Þótt vægi sjávarútvegs í íslensku efnahagslífi sé ekki lengur jafnmikið og áður, skyldu menn varast að gera lítið úr þýðingu þessarar grundvall- aratvinnugreinar í þjóðarbúskap Ís- lendinga. Það var mikil framsýni fulltrúa 10 stéttarfélaga sjómanna úr Reykjavík og Hafnarfirði sem réði för, fyrir hartnær 70 árum, þegar þeir stofn- uðu Sjómannadagsráð til þess að helga sjómannastétt landsins einn dag á ári. Þetta var í nóvember 1937 og því er sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur í dag í 69. skipti. Tilgangur sjómannadagsins er ekki síður sá að efla samhug meðal sjómanna og heiðra minningu þeirra sem farist hafa við störf á sjó. Því á þessi hátíðisdagur sjómanna jafn- mikið erindi við þjóðina í dag og hann átti fyrir tæpum 70 árum. Það er sérstakt ánægjuefni, hversu aðbúnaður á fiskiskipum hef- ur batnað á undanförnum árum og áratugum, sömuleiðis kaup og kjör sjómanna, sem eiga að vera vellauna- ðir. Sjómannsstarfið er í eðli sínu krefjandi og lýjandi starf. Það krefst oft langra fjarvista frá heimilum og fjölskyldum og því skiptir það miklu máli, að aðbúnaður um borð í far- og fiskiskipum hefur verið stórbættur frá því sem áður var. Réttindamál sjómanna hafa einnig tekið stórstígum framförum á und- anförnum áratugum. Stéttarfélög sjómanna halda að sjálfsögðu áfram baráttu sinni fyrir bættum kjörum og réttindum, þótt með breyttum áherslum sé og í annarri mynd, mið- að við það sem áður var. Það var fyrir tæpum 80 árum, eða árið 1928, sem lög voru sett á Alþingi um að hásetar skyldu fá a.m.k. átta klukkustunda hvíld á sólarhring. Það var svo ekki fyrr en 26 árum síðar, árið 1954, sem lög voru sett um að sjómenn skyldu almennt fá 12 klukkustunda frí á sólarhring. Vafa- laust hefur barátta sjómannaforyst- unnar á sínum tíma, fyrir þessum hvíldarréttindum, kostað blóð, svita og tár; réttindum, sem allir líta á sem sjálfsagðan og eðlilegan hlut í dag. Á sjómannadaginn er einnig eðli- legt og rétt að sjómenn heiðri minn- ingu þeirra sem háðu réttindabar- áttu þeirra á liðinni öld. Sú barátta getur verið íslenskum sjómönnum aflvaki og hvatning í annars konar réttindabaráttu. Sam- tök sjómanna hljóta að vera uggandi um atvinnuástandið í sjávarþorpum víða um land, þar sem horft getur til auðnar, þegar veiðiheimildir eru seldar burt úr byggðarlögunum og þegar smærri útgerðarfyrirtæki gef- ast upp á útgerð, vegna þess að þau hafa ekki bolmagn til þess að leigja veiðiheimildir áfram af stóru útgerð- unum, sem leigja út kvóta við okur- verði. Nýlegt dæmi um uppgjöf Kambs á Flateyri og sölu á veiði- heimildum og fiskiskipum burt úr plássinu, segir allt sem segja þarf um þá ógn sem steðjar að sjávarplássum víða um land. Blasir það ekki við, að samtök sjómanna þurfa að skera upp herör gegn kerfi, sem ógnar atvinnu- öryggi heilu byggðarlaganna, bæði fiskvinnslufólks í landi og sjómanna? Íslenskir sjómenn munu halda áfram að sækja sjóinn, draga björg í bú og stuðla að efnahagslegum bata og framförum í landinu. Sú siðferði- leg skylda hvílir á stjórnvöldum að tryggja sjómönnum áfram réttinn til sjósóknar, án þess að þeir þurfi að vera þjakaðir af áhyggjum af því, hvar þeir landi afla sínum næst og hvar þeir hafi búsetu á næstu vertíð. Morgunblaðið flytur íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjó- mannadaginn. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ E f horft er til íslensks veruleika er ljóst að hér hefur staðið yfir sam- felld hátíð lista nánast allt frá upp- hafi þessa árs. Þannig hófust Myrkir músíkdagar strax upp úr miðjum janúar, síðan tók Vetr- arhátíð við mánuði seinna og um leið hófst franska menningarhátíðin, Pourquoi Pas? Pourquoi Pas? stóð síðan allt fram að opnunardegi Listahátíðar í Reykjavík í byrjun maí, en henni lauk nú fyrir skömmu. Framundan eru síðan allar listahátíðir sumarsins, sem standa með stuttum hléum fram á haust. Þótt flestar þeirra séu helgaðar tónlist verð- ur æ algengara að önnur listform slæðist með í pakkann og auki þannig skírskotunina til almenn- ings. Listahátíð í Reykjavík hefur nú sannað sig sem árlegur viðburður hér á landi, eftir að hafa farið fram annað hvert ár um áratugaskeið. Líklega hef- ur hátíðin aldrei vakið meiri athygli en í vor. At- hyglina að þessu sinni má að miklu leyti þakka ris- essunni, sem nánast hvert mannsbarn á landinu fylgdist með, ef ekki í návígi á götum miðborg- arinnar, þá í fjarlægð í gegnum myndir og frásagnir fjölmiðlanna. Augljóst er að Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, hefur gætt hana alþýðlegu yfirbragði. Undir stjórn hennar hefur ásýnd Listahátíðar í Reykjavík breyst umtalsvert og höfð- ar meira til almennings en nokkru sinni fyrr. Þessi breyting er allra góðra gjalda verð og hefur stuðlað að því að færa hátíðarhöldin til fjöldans, án þess að slakað hafi verið á listrænum kröfum. Hátíðin er nú fjölþættari og fjölbreyttari að allri gerð – einnig hvað fjárútlát listneytenda varðar. Sumt (eins og risessan) var ókeypis en annað létti pyngjuna eftir því sem hver og einn treysti sér til. Menntun og skemmtun Þ ótt vel hafi tekist til með þróun Listahátíðar í Reykjavík, heyrast þó gagnrýnisraddir þeirra nú er telja hátíðina geta sinnt framsæknum listviðburðum betur; þ.e.a.s. listvið- burðum er aldrei munu hafa víða skírskotun til almennings en gegna þrátt fyrir það veigamiklu hlutverki við framþróun listformanna og um leið samfélagsgerðarinnar. Í öllum listgrein- um er nefnilega að finna fólk sem er mikilvægir frumkvöðlar í listrænum skilningi, án þess endilega að njóta mikillar hylli utan hrings innvígðra at- vinnumanna. Heimsóknir slíkra frumkvöðla, í bland við þær heimsfrægu stjörnur er nú tekst að laða að hátíðinni, myndu auðvitað styrkja sess Listahátíðar í Reykjavík sem hugmyndafræðilegs hreyfiafls í menningarlífi landsmanna. Og ýta undir þá tilfinn- ingu að hátíðin sé ekki einungis alþýðleg, heldur stuðli að uppbyggingu og styrkingu innviða ís- lenskra lista – mennti um leið og hún skemmti. Það er þó ekki einungis á Íslandi sem risessur eða önnur stórvirki á sviði menningar vekja athygli fólks í þúsunda- eða jafnvel tugþúsundatali. Í Bret- landi hafa gríðarstór verk í miðborg Lundúna, í Margate og á hálendi Skotlands ekki einungis dreg- ið að sér mikinn áhorfendaskara heldur sömuleiðis notið athygli pressunnar. Bent hefur verið á í því sambandi að áhrifaríkt myndmál þessara stóru verka og sú sýn er liggur þeim að baki hafi skapað eftirtektarverðan samhljóm innra með almenningi. Samhljóm sem ekki tekst að skapa í hugarheimi fólks fyrir tilstilli þess sem þó er oftast talið líklegra til að efla hópvitund almennings; svo sem stjórn- mála. Listverkefnið „The Storr: Unfolding Landscape“ [Storr: landslagið afhjúpað], var unnið á vegum NVA-stofnunarinnar í Skotlandi árið 2005. Í verk- inu var stórbrotnu fjalllendi umbylt með sjónræn- um hætti til að segja samtvinnaða sögu jarðfræði og manna. Þeir hópar sem flykktust í gönguferð um fjalllendið voru sammála um að upplifunin af verk- inu væri einstök og ákaflega afhjúpandi um tengsl- in við umhverfið. Hópurinn sem stóð að risessunni hefur gert víð- reist um heiminn og heimsókn þeirra til Lundúna á síðasta ári með fíl í farteskinu, auk risessunnar, auðvitað, hafði áþekk áhrif á borgarbúa þar og hér. Götuleikritið sem Lundúnabúar sáu hét „The Sult- an’s Elephant“ [eða „Fíll soldánsins“] og er meðal viðburða sem álitinn er vera til marks um það að- dráttarafl sem listir hafa í samtímanum og jafn- framt þá möguleika sem í listsköpun felst til að hafa áhrif á samfélagið, ef hún nær athygli almennings. Nýjasta dæmið um slíkt í Bretlandi er síðan verk Antony Gormley, er hann kennir við neyslusam- félagið og sóun þess; „Waste Man“ [sem útleggja mætti sem „Ruslmennið“]. Verkið var sett upp í strandbænum Margate, sem má muna sinn fífil feg- urri, en var áður þekktur fyrir vinsælan og fjölsótt- an skemmtigarð. Gormley, sem talinn er hafa geng- ið í endurnýjun lífdaga sem listamaður með þessu nýja verki sínu eftir nokkuð hnignunarskeið, bjó til þemainnsetningu í skemmtigarðinn byggða á Bibl- íunni, en stærsta verkið var sjálft „Ruslmennið“ – risavaxinn skúlptúr í mannslíki. Hann var síðan brenndur að viðstöddu miklu fjölmenni þar sem fjölmiðlar létu ekki sitt eftir liggja, auk þess sem heimildarmynd um verkið vakti mikla athygli. „Waste Man“ hefur sterka skírskotun í trúarbrögð, bæði kristin og heiðin, auk þess að höfða sterkt til umhverfisvitundar nútímafólks. Umhverfismál hafa vitaskuld reynst sá málaflokkur í samtímanum er sameinar fólk þvert á áður þekkta flokkadrætti – bæði í pólitískum og stéttarvitundarlegum skiln- ingi. Í umsögnum um „Waste Man“ kemur glögglega fram að það er talið virkja pólitíska hugsun almenn- ings með eftirtektarverðum hætti, án þess þó að nokkru sé fórnað í fagurfræðilegum gildum eða list- rænum skilningi. Það að áhorfendur skuli vera svo fjölmennir, dregur m.ö.o. ekki úr gæðum verksins eða heilindum þess. Þarna kveður við nokkuð nýjan tón, því fram til þessa hefur yfirleitt gætt ákveðinna fordóma í heimi listanna gagnvart öllu því sem nýt- ur fylgis fjöldans – rétt eins og velþóknun almenn- ings gengisfelli listina sem slíka. Í þessu samhengi má minna á gagnrýnisraddir á verk Ólafs Elíasson- ar í túrbínusal Tate Modern árið 2003, þar sem al- menningur flykktist á sýninguna til að taka þátt í þeim gagnvirka leik er listamaðurinn bauð upp á. Þótti mörgum nóg um hástemmdar lýsingar þar sem verkinu var líkt við trúarlega upplifun – og töldu jafnframt að slíkar vinsældir hlytu að draga úr alvarleika og dýpt listaverksins. Þversögnin brotin á bak aftur? Í ljósi þessarar þróunar síðustu ára má velta því fyrir sér hvort sú lífseiga þver- sögn, úr hugmyndafræði módernista síð- ustu aldar, sé loksins að úreldast, þ.e. að listsköpun sem nær fjöldahylli hljóti að vera óæðri listsköpun er einungis höfðar til fárra útvaldra. Miðað við þróunina hér á landi er ljóst að sú hugsun á ekki við lengur. Listin stendur fyrir sínu óháð því hvort margir eða fáir njóta hennar. Það breytir þó ekki þeirri staðreynda að list sem vekur marga til umhugsunar hefur meiri áhrif á samtíma sinn – er ómælt hreyfiafl sem vert er að virkja núna þegar tímarnir virðast vera opnir fyrir listum á annað borð. Til marks um það er sú staðreynd að stofnunin sem sá um uppsetningu og framkvæmd- ina í kringum verk Antony Gormley í Margate, er sú sama og stóð að Vatnasafni Roni Horn sem opn- að var í Stykkishólmi fyrir réttum mánuði. Með til- komu starfsemi stofnunar á borð við Artangel inn í íslenskt menningarlíf hefur verið sleginn nýr tónn, sem ef vel er á málum haldið getur haft afar jákvæð fordæmisgefandi áhrif í íslensku samfélagi. Artangel er stofnun sem miðlar fé til listsköp- unar með óvenjulegum hætti. Starfsemin, sem nýt- ur reyndar nokkurs styrks frá opinberum aðilum, byggist fyrst og fremst á framlögum stuðnings- aðila, bæði einstaklinga og fyrirtækja, sem hafa hug á að vinna myndlistum eitthvað til framdráttar og treysta Artangel til beina fjármagningu í verðug verkefni. Sumir þeirra einstaklinga sem láta fé renna til starfsemi Artangel vilja einungis starfa á bak við tjöldin og láta því hvergi nafns síns getið, en aðrir eru virkir í framvarðasveit stuðningsmanna stofnunarinnar og njóta virðingar sem slíkir. Það sem greinir starfsemi Artangel frá starfsemi ann- arra sambærilegra stofnanna er sú stefna þeirra að stuðla fyrst og fremst að því að gera listamönnum mögulegt að vinna listaverk inn í óhefðbundin rými, utan safna og gallería. Listamönnum er m.ö.o. gert kleift að skapa verk þar sem þeir geta brotist út úr þeim þrönga stakki sem þeim er iðulega sniðinn í listasöfnum og galleríum, hvað rými, tímamörk, listræna sýn og kostnað varðar. Artangel vinnur með listamönnum að verkum sem byggjast á tiltek- inni staðsetningu og óvenjulegri framsetningu, rétt eins og verkefnið í Margate og Vatnasafn í Stykk- ishólmi bera glöggt vitni. Það hversu margir erlendir stuðningsaðilar voru tilbúnir til að fjárfesta í listaverki Roni Horn á Ís- landi er í raun undravert, og þá ekki síður hversu vel tókst til á síðustu metrunum að fá íslenska aðila til samstarfs við Artangel til þess að verkið mætti verða að veruleika. Kostnaðurinn við framkvæmd- ina var umtalsverður eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins hinn 8. apríl sl. Hálf önnur milljón Bandaríkjadala safnaðist, sem er jafnvirði um 100 milljóna króna, en tveir þriðju hlutar fjárins komu erlendis frá og einn þriðji héðan. „Þetta er fólk sem hefur trú á listamanninum Roni Horn og vill leggja sitt af mörkum til þess að gera hugmynd hennar um endurgjald til Íslands í Vatnasafni í Stykkis- Laugardagur 2. júní Reykjavíkur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.