Morgunblaðið - 03.06.2007, Page 59

Morgunblaðið - 03.06.2007, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2007 59 FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 Sími 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali. Sérlega skemmtileg og falleg 2ja herb. íbúð á efstu hæð (3ju) í litlu fjölbýlishúsi. Sérlega glæsi- legt útsýni út á hafið, hátt til lofts í íbúðinni og lítið svefnloft aukalega. VERÐ 17,4 millj. Upplýsingar gefur Ingvar Ragnarsson löggiltur fasteignasali, s. 822-7300. FLÉTTURIMI – 112 RVK Um er að ræða glæsilega fjögurra herbergja, vel skipulagða endaíbúð í litlu fjölbýli við Seilugranda í Reykjavík. Eignin skiptist í hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Stórar svalir í suður auk minni svala út frá hjónaherbergi. Stæði í bílageymslu fylgir eigninni. Íbúðin er mjög stílhrein, björt og falleg. Allar hurðir og gólfefni eru úr fallegri eik, fyrir utan á baðherbergi og í forstofuholi, en þar eru flísar. Glæsileg eign. Stutt í leikskóla og grunnskóla sem og aðra þjónustu. 6779 Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Seilugrandi - falleg eign Eikarás Einstök eign Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Um er að ræða stórglæsilegt einbýli á tveimur hæðum á frábærum stað í Garða- bæ. Stórkostlegt óhindrað útsýni er til austurs, suðurs og vesturs. Efri hæð eignarinnar skiptist í 3 svefnherbergi, eldhús, borðstofu, gestasalerni, baðherbergi, þvottaherbergi og innbyggðan bílskúr. Á neðri hæð eru 2 svefnherbergi, stofa, sjónvarpsstofa, frístundaherbergi og baðherbergi. Eign í algjörum sérflokki. 6640 ÞAÐ var í fréttunum að einn ráð- herrann ætlar að bregðast við skjótt til þess að bjarga einhverjum rétt- indalausum útlendingum á Flateyri, einhverjum sem eru að missa vinnu þegar útgerðin þar er að hætta starf- semi. Og ráðherrann ætlar án tafar að taka pen- inga af skattfé lands- manna og gefa þessu réttindalausa fólki. Af tvennu illu væri senni- lega ódýrara fyrir skattgreiðendur að greiða fyrir þetta fólk svo það komist til baka til síns heima, þótt það með réttu eigi auðvitað að borga fyrir sig sjálft, til þess að komast í burtu. Því hver er meiningin að halda þessu fólki þarna á Vestfjörðunum? Er það ætlan ríkisstjórnarinnar að bæta þessu fólki við þann hóp sem er atvinnulaus á Vestfjörðunum, og láta almenning borga? Og hvað kemur næst – hvað er næsta skref? Er hugs- að fram í tímann? Þegar fréttir bárust af því, nú fyrir nokkrum dögum, að Kambur – eina útgerðarfyrirtækið á Flateyri – væri að hætta starfsemi, þá heyrðist ekki mikið frá ráðamönnum. Svo virtist sem þingmönnum og ráðherrum væri nokkuð sama, – en ef rétt- indalausir útlendingar eiga í hlut, þá stendur ekki á úrræðaflaumnum og peninga skortir ekki. Hefði verið hugs- anlegt að ráðherrarnir myndu bregðast við þessum fréttum frá Flateyri með þeim hætti að bjóða fram hjálp af hálfu rík- isvaldsins? Kæmi til dæmis til álita, að rík- isvaldið myndi bjóðast til þess að hjálpa heima- mönnum til þess að stofna nýtt fyrirtæki, sem svo semdi um kaup á eignum útgerð- arfélagsins Kambs? Nýja fyrirtækið gæti svo jafnframt endurnýjað báta til veiðanna. Rík- isstjórnin myndi einnig veita nýja fyrirtækinu ríkisábyrgð fyrir lánum til kaupanna (ef það teldist nauðsyn- legt) – og ríkisstjórnin myndi jafn- framt gefa nýja fyrirtækinu fiskveiði- heimildir sem væru tvöfalt meiri en samanlagðar heimildir sem fyr- irtækið Kambur hafði haft yfir að ráða – hér áður fyrr í sinni starfsemi. Heimildunum myndi jafnframt fylgja sú kvöð, að þær giltu einungis fyrir hið nýja fyrirtæki, og einungis til veiða á þeim bátum eða skipum sem fyrirtækið ætti sjálft og gerði út frá þessum stað, það er Flateyri. Heimildirnar væru ekki framselj- anlegar með nokkrum hætti til ann- arra manna eða fyrirtækja – heimild- irnar væri ekki hægt að lána eða leigja eða selja með neinum hætti, og heldur ekki neinn hlut eða part þar af. Þá myndi sú kvöð jafnframt fylgja að öllum afla yrði að landa á einhverri höfn Vestfjarðanna. Þá væri það eng- in skylda fyrir nýja fyrirtækið að veiða allt sem heimildin væri fyrir – það myndi sem sagt engu breyta – heimildin myndi haldast óbreytt frá ári til árs. Og svo kemur hér stóra spurn- ingin: Hafa heimamenn einhvern áhuga á að taka undir hugmyndir í þessa veru – eða hafa þeir ef til vill allt annað og betra í smíðum? Ef svo kynni að vera, þá væri það auðvitað langbesta lausn þessara mála. Samkvæmt fréttum er fyrirtækið Kambur búið að selja eitthvað af sín- um bátum, og fasteignir eru jafn- framt til sölu. Það er því ennþá hægt að taka nýjar ákvarðanir, ef viljinn er fyrir hendi. Og þar komum við reyndar að kjarna málsins – viljinn er allt sem þarf. Ef svo kynni að vera að vilji heima- manna hneigist að svipuðum hug- myndum og nefndar eru hér að ofan, og það er jafnframt samkvæmt stefnu hinnar nýju ríkisstjórnar að leysa málið með þessum eða svip- uðum hætti, þá er það vafalaust auð- velt og kostar ríkissjóð sennilega lítið sem ekki neitt. Aftur á móti er það sparnaður fyrir þjóðfélagið að þurfa ekki að greiða fjölda manns atvinnu- leysisbætur. Og nýtt fyrirtæki, sem væntanlega yrði í góðum rekstri – sem og starfs- fólkið – skilar alltaf fjármunum til baka í þjóðarbúið. Ég álít að það sé hlutverk nýrrar ríkisstjórnar að leysa þetta mál. Ríkisstjórnin hin nýja – réttið hlut Flateyrar Tryggvi Helgason skrifar um málefni Flateyrar » Það er því ennþáhægt að taka nýjar ákvarðanir, ef viljinn er fyrir hendi. Og þar kom- um við reyndar að kjarna málsins – viljinn er allt sem þarf. Tryggvi Helgason Höfundur er flugmaður. Fréttir í tölvupósti smáauglýsingar mbl.is Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.