Morgunblaðið - 26.04.2008, Page 1
ÖKUMENN á götum borgarinnar veittu
því margir hverjir athygli hversu auðvelt
var að komast leiðar sinnar í morg-
unumferðinni í gærmorgun. Í stað þess
að mjakast hægt áfram í löngum bílaröð-
um gekk umferðin nánast smurt. Sam-
kvæmt tölum frá umhverfis- og sam-
göngusviði Reykjavíkur voru þremur
þúsundum færri bílar á ferðinni í gær
milli kl. 7 og 9 í Ártúnsbrekkunni og
Kringlumýrarbrautinni en á sama tíma
fyrir viku. Á sama tíma bárust tilkynn-
ingar um að lokað væri hjá nokkrum
fjölda fyrirtækja vegna árshátíðaferða.
Vafalaust hafa margir líka notfært sér tækifærið og tekið sér
aukafrídag í tengslum við rauðan frídag á fimmtudegi.
Þúsundum færri bílar
á götum borgarinnar
STOFNAÐ 1913 113. TBL. 96. ÁRG. LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
RÚMT ár er liðið frá því Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra kynnti hugmyndir sínar
um 240 manna varalið lögreglu og vekja
þær hugmyndir spurningar um hvort at-
burðir í ætt við þá sem urðu við Rauðavatn á
miðvikudag kalli á slíkt varalið. Að sögn
Harðar Jóhannessonar, varalögreglustjóra
höfuðborgarsvæðisins, var lögreglan nægi-
lega vel mönnuð til að sinna verkefninu og
jafnframt var unnt að halda úti eftirliti ann-
ars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Þegar
mest var voru um 80 lögreglumenn við
Rauðavatn að fást við mótmælendur.
Almennt er ákveðinn fjöldi lögreglu-
manna lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
á vakt á hverjum tíma ásamt dagvinnu-
mönnum í rannsóknardeildum, umferðar-
deild og víðar. Unnt er að kalla menn af
þessum deildum út í stór og aðkallandi
verkefni og við þetta bætast lögreglumenn
á frívöktum.
Reyndi á viðbúnaðinn á miðvikudag
„Við höfum verið með þennan viðbúnað í
nokkurn tíma og vorum viðbúnir því að
grípa til aðgerða ef bílstjórar stoppuðu og
færu úr bílunum. En það reyndi ekki á við-
búnaðinn fyrr en þarna,“ segir Hörður.
Að hans mati hefði ekki þurft 240 manna
varalið lögreglu í útkallið við Rauðavatn á
miðvikudag, en hann bendir hins vegar á að
ef til vill myndi öðruvísi horfa við ef varð-
staðan þar hefði dregist á langinn. „Ef þetta
stæði yfir í lengri tíma, þá kæmi varalið að
gagni,“ segir hann
Sérútbúnir lögreglumenn með skildi og
hjálma með glerhlíf sem þjálfaðir eru í
mannfjöldastjórnun voru mjög áberandi í
aðgerðunum og segir Hörður að þeir gegni
því hlutverki að „skerma“ af lögreglumenn
við verkefni sín. Verkefni lögreglu hafi verið
að leggja hald á flutningabíla þegar ljóst var
að bílstjórarnir hlýddu ekki fyrirmælum.
„Þótt gatan hafi verið lokuð allri almennri
umferð, þá hefði verið hægt að hleypa um-
ferð í gegn við neyðaraðstæður. Aðgerðin
snérist um að taka bílana og bílstjórana sem
höfðu raskað umferð.“
Engin kæra hefur borist á hendur lög-
reglu vegna meints harðræðis. Lögreglan
lítur ekki svo á að viðbúnaði vegna aðgerða
bílstjóranna sé lokið og er því enn í við-
bragðsstöðu.
Morgunblaðið/Júlíus
Viðbragð Lögreglumaður að skyldu-
störfum við Rauðavatn í liðinni viku.
Lögreglan
er enn við
öllu búin
Varalið hefði ekki
þurft við Rauðavatn
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„ÓLÍKLEGT er að sættir náist fyr-
ir 1. maí og það mun hafa mikil áhrif
á þjónustu við sjúklinga eins og
hjartasjúklinga sem þurfa að leita
aðstoðar á skurðdeildum spítalans,“
segir Sigurður Guðmundsson, land-
læknir, um deilur á milli skurð- og
svæfingarhjúkrunarfræðinga og
stjórnar Landspítala. Ekkert miðar
í samkomulagsátt í deilunni. „Það er
enginn grundvöllur fyrir því að
semja,“ segir Vigdís Árnadóttir,
trúnaðarmaður skurðhjúkrunar-
fræðinga. „Við munum ekki hætta
við vaktabreytingarnar,“ segir
Anna Stefánsdóttir, settur forstjóri
LSH.
Landlæknir segir erfitt að meta
hversu lengi skurðdeildirnar geti
haldið uppi neyðarþjónustu komi til
uppsagna um hundrað hjúkrunar-
fræðinga. „Þolmörkin eru væntan-
lega nokkrir dagar en svo fer að
gæta þreytu hjá þeim sem halda
uppi þjónustunni,“ segir Sigurður.
Landlæknir ræddi við stjórnend-
ur spítalans og starfsmenn í gær.
Hann segir landlæknisembættið
ekki blanda sér í kjaradeilur en þeg-
ar deilan fari að hafa áhrif á þjón-
ustu við sjúklinga, „þá fer þetta að
verða okkar mál,“ segir Sigurður.
„Við hófum samræður við starfs-
menn deildanna fyrir fjórum árum
og fólum fólki að vinna að ákveðnum
hugmyndum sem ekki hefur gengið
eftir,“ segir Anna Stefánsdóttir og
vísar á bug orðum Erlu Bjarkar
Birgisdóttur í Morgunblaðinu í gær
um að hjúkrunarfræðingar hafi
fyrst heyrt af breytingunum í jan-
úar sl. „og við höfum tölvupósta sem
sanna það,“ segir Anna. Neyðar-
áætlun verður kynnt opinberlega á
miðvikudag.
„Við getum ekki annað en sagt
upp og fyrir því liggja alvarlegar
ástæður sem varða okkar hagi og
öryggi sjúklinga,“ segir Vigdís
Árnadóttir. „Við höfum engar
áhyggjur af atvinnuleysi og margar
hafa þegar fengið aðra vinnu. Vissu-
lega hefðum við viljað vinna áfram
við okkar sérfag en við ætlum ekki
að sætta okkur við þær breytingar
sem fyrirhugaðar eru.“
Stál í stál á
Landspítala
Anna Stefánsdóttir
hjúkrunarforstjóri
„Við munum ekki
hætta við vakta-
breytingarnar“
Morgunblaðið/ÞÖK
Í hnút Neyðaráætlun fyrir skurð-
deildir á Landspítala er í bígerð.
Í HNOTSKURN
»Breytingar á vaktafyr-irkomulagi skurð- og svæf-
ingarhjúkrunarfræðinga fela
m.a. í sér að í stað bakvakta
verða hjúkrunarfræðingar á
vöktum inni á spítala á kvöldin
og um helgar.
»Breytingarnar eiga að takagildi í þremur áföngum.
Vigdís Árnadóttir
hjúkrunarfræðingur
„Það er enginn
grundvöllur fyrir
því að semja“
VEÐRIÐ hefur leikið við fólk á Andrésar Andar leikunum á skíðum í
Hlíðarfjalli. Keppni hófst í fyrradag og lýkur í dag en að þessu sinni eru
þátttakendur 765 á aldrinum 7-14 ára alls staðar að af landinu. Þessi
unga stúlka var ekki meðal keppenda að þessu sinni, en ekki kæmi á
óvart þótt hún spennti á sig keppnisskíðin áður en langt um líður. | 18
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Rjómablíða í Hlíðarfjalli
Andrésar Andar leikarnir
JÁ, SJÓMENNSKAN
SJÓARASTARFIÐ ER ÁKVEÐIN SLÖKUN FRÁ AMSTRI
LÍFSINS, SEGIR SIGRÍÐUR GUÐNÝ >> 20
Hetjur >> 48
Allir í leikhús
Leikhúsin í landinu
Fossháls 5-7 • 110 Reykjavík
Sími 551 5600 • Fax 551 5601
www.utilegumadurinn.is
Þægindi um land allt
Komdu á Fossháls 5-9 og skoðaðu glæsileg
Rockwood fellihýsi.