Morgunblaðið - 26.04.2008, Side 8
8 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
UPPSTIGNINGARDAGUR er dag-
ur aldraða í kirkjum landsins. Þessi
dagur er sérstaklega tileinkaður
öldruðum og fjölskyldum þeirra.
Á degi aldraða taka margir eldri
borgarar virkan þátt í messunni,
m.a. með því að lesa ritningarlestra
og flytja prédikun. Fjölskyldum
gefst tækifæri til að eiga hátíð-
arstund í kirkjunni sinni og að lok-
inni guðsþjónustu er boðið upp á
veitingar.
Herra Pétur Pétursson lagði til á
kirkjuþingi árið 1982 að dagur
aldraða yrði árlegur á uppstign-
ingadag í kirkjum landsins.
Útvarpað verður messunni í
Grafarholtssókn.
Dagur aldraðra
í kirkjunni
Í DAG, laugardag, verða Ný-ung og
Ungblind með bækistöðvar í Hinu
húsinu, Pósthústræti 3-5 milli kl.
13-16. Þar verður boðið upp á lif-
andi bókasafn og ljósmyndasýningu
eftir Höskuld Þór Höskuldsson.
Ungblind er hópur blindra og
sjónskertra á aldrinum 15-35 ára. Í
dag standa þau fyrir lifandi bóka-
safni þar sem almenningi gefst
kostur á því að fletta upp í lifandi
bókum um ýmsa minnihlutahópa.
Ný-ung er ungliðahreyfing
Sjálfsbjargar slf. Þau verða á ferð í
miðbæ Reykjavíkur og bjóðast til
að „af-ófatla“ fólk, sem sem er
þreytt á að vera í minnihluta. Með
þessari aðgerð vilja Ný-ung mót-
mæla fordómum gegn öryrkjum og
öðrum minnihlutahópum.
Lifandi bókasafn
VINIR Tíbets ætla í dag, laugar-
daginn 26. apríl klukkan 13:00, að
efna til fundar fyrir utan kínverska
sendiráðið að Víðmel 29, að því er
fram kemur í tilkynningu. Fundur-
inn er til að minna kínversk yfir-
völd á að heimurinn fylgist grannt
með ástandinu í Tíbet sem og til að
heiðra Panchen Lama, en hann
varð 19 ára 25. apríl sl. Hann er
næstæðsti lama Tíbeta og var rænt
af kínverskum yfirvöldum aðeins 6
ára gömlum ásamt allri fjölskyldu
hans. Enginn veit hvar hann er nið-
urkominn.
Vinir Tíbets áttu fund með Björg-
vini G. Sigurðssyni viðskiptaráð-
herra í vikunni. Rætt var um nýaf-
staðna ferð hans til Kína og hvers
hann varð vísari þar varðandi mál-
efni Tíbets. Þá var rætt um hvað
væri líklegast til að bera árangur
varðandi ástandið í Tíbet.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Tíbet-mótmæli
ÁRSFUNDUR
Landspítalans
verður í Salnum í
Kópavogi þriðju-
daginn 29. apríl
nk. kl. 14.00–
16.30. Heilbrigð-
isráðherra flytur
ávarp og Frank
B. Cerra, forseti
heilbrigðisskól-
ans í Minnesota, flytur erindi. Veitt-
ir verða styrkir úr styrktarsjóði
Bents Scheving Thorsteinsson. Vís-
indi á vordögum hefjast daginn eft-
ir með opnun veggspjaldasýningar
í K-byggingu við Hringbraut kl.
11.30 og vísindadagskrá í Hringsal
hjá Barnaspítala Hringsins kl. 13.
Gestur vísindadaga verður Robert
Murrey, prófessor við Lundúnahá-
skóla.
Vísindi á
vordögum
Robin Murray
STUTT
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
FJÁRMÁL Bolungarvíkurbæjar
verða meginverkefni nýs meirihluta
A- og D-lista sem myndaður hefur
verið í Bolungurvík. Þetta segir Elí-
as Jónatansson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í sveitarstjórn, en hann
mun taka við sem bæjarstjóri á bæj-
arstjórnarfundi nk. miðvikudag.
Meirihlutinn var myndaður eftir
að slitnaði upp úr samstarfi A- og K-
lista. Formaður bæjarráðs nýs
meirihluta verður Anna G. Edvards-
dóttir, oddviti A-lista. Gerður hefur
verið málefnasamningur milli fram-
boðanna, en Elías vildi ekki ræða
efni hans í smáatriðum fyrr en búið
væri að kynna hann flokksmönnum.
Elías sagði að meginverkefni nýs
meirihluta væri að taka á fjármálum
sveitarfélagsins. „Það erum með
mörg verkefni í gangi á vegum bæj-
arfélagsins, en það er ekki búið að
ljúka fjármögnun þeirra allra. Við
munum fara í gegnum fjárhagsáætl-
unina og taka hana upp til endur-
skoðunar með það að markmiði að
fresta hugsanlega einhverjum fram-
kvæmdum. Síðan þarf að klára
lánsfjármögnun á þeim verkefnum
sem búið er að taka ákvörðun um og
búið er að setja af stað,“ sagði Elías í
samtali við Morgunblaðið.
Elías sagði að ársreikningur Bol-
ungarvíkur fyrir síðasta ár væri ekki
tilbúinn og því lægju ekki fyrir allar
upplýsingar um raunverulega fjár-
hagsstöðu sveitarfélagsins. Eins
myndi hann óska eftir að fá ítarlegar
upplýsingar um allar skuldbindingar
sem sveitarfélagið hefði tekið á sig.
Grímur Atlason, fyrrverandi bæj-
arstjóri, sagði að sér litist illa á nýja
meirihlutann. Það hefðu verið átök
milli A-lista og sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn á þessu kjörtímabili.
Samskiptin einkenndust af gömlum
væringum. „Það var beinlínis stofn-
að til A-listans til að koma í veg fyrir
að Elías Jónatansson yrði bæjar-
stjóri í Bolungarvík. Anna G. Edv-
ardsdóttir varð undir í prófkjöri
sjálfstæðismanna og gekk síðan úr
flokknum. Úr varð persónuleg óvild
sem m.a. kom fram í bæjarráði.
Fulltrúi minnihlutans sat stöðugt
undir árásum frá Önnu um að flokk-
ur hans væri ómögulegur og hefði
klúðrað öllu á síðasta kjörtímabili.“
Grímur sagði óljóst hvað tæki við
hjá sér. Hann keypti hús í Bolung-
arvík þegar hann var ráðinn bæjar-
stjóri og gerði það upp. Hann sagði
gott að vera í Bolungarvík og hann
hefði ekki verið að tjalda til einnar
nætur. Síðasta vika hefði hins vegar
valdið sér miklum vonbrigðum.
Efnt var til mótmæla fyrir utan
Ráðhús Bolungarvíkur í gær. Á
þriðja tug þátttakenda vildi láta í
ljósi óánægju sína með myndun nýs
meirihluta og bæjarstjóraskiptin.
Gæti þurft að fresta
einhverjum verkefnum
Nýr meirihluti í
Bolungarvík tekur
við á miðvikudag
Meirihluti Samkomulag um nýjan meirihluta var undirritað af Elíasi Jón-
atanssyni oddvita D-lista, og Önnu Guðrúnu Edvardsdóttur oddvita A-lista.
UNGIR jafnaðarmenn og Græna netið plöntuðu í
gær tveimur trjáplöntum á fyrirhugaðri bygg-
ingarlóð álvers í Helguvík. Að sögn Önnu Pálu
Sverrisdóttur, formanns Ungra jafnaðarmanna,
eiga plönturnar að vera táknrænir vaxt-
arsprotar fyrir fjölbreytt atvinnulíf á Suð-
urnesjum. Vildi hópurinn minna á að fram kom í
ársskýrslu Hitaveitu Suðurnesja að mörgum
smærri fyrirtækjum var neitað um frekari raf-
orkukaup þar sem væntanlegu álveri hefði þeg-
ar verið lofað fáanlegri raforku. Einnig bárust
af því fréttir í vikunni að álver Norðuráls á
Grundartanga mengaði mun meira en áður var
talið, og vildi hópurinn vekja til umhugsunar um
hvaða mengunar mætti þá vænta í Helguvík.
Fengu plönturnar nöfnin Þórunn og Össur.
Plöntuðu vaxtar-
sprotum í Helguvík
Ljósmynd/Víkurfréttir